Morgunblaðið - 17.05.1975, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975
Sveinn Björnsson og kona hans
Sólveig Erlendsdóttir við eitt
verka Sveins á sýningunni, „Sá
sem stjórnar plássinu".
sýningarskrá hefur Sveinn birt
úrdrætti úr nokkrum blaða-
dómum frá því hann hélt sýn-
ingu 1 Charlottenborg í Dan-
mörku 1965 og eru þeir mjög
lofsamlegir. Eru gagnrýn-
endurnir þar sammála um að
Sveinn sé sterkur og svipmikill
málari en jafnframt nokkuð
ofsafenginn.
En hvenær hefur yfirmaður
rannsóknarlögreglunnar í
Hafnarfirði eiginlega tíma til
að mála allar þessar myndir?
„Ég er nú þannig maður,“ segir
Sveinn „að mér þykir gaman að
vinna og flestallar þessar
myndir eru málaðar á nóttunni.
sýninguþá
við hana”
„Ef ég hef ákveðið
vil ég ekki hætta
— segir Sveinn Björnsson listmálari og lögreglu-
foringi, sem opnar sýningu á Kjarvalsstöðum í dag
SVEINN Björnsson listmálari
og lögregluforingi úr Hafnar-
firði opnar mikla sýningu á
verkum sfnum f vestursal
Kjarvalsstaða f dag. A sýning-
unni eru 84 myndir allar mál-
aðar f olfulitum. Þær eru
málaðar á árunum 1960 og
fram til dagsins f dag. Flestar
myndanna eru frá sfðustu 2—3
árum þar af nokkrar máiaðar f
nýrri vinnustofu sem listmál-
arinn hefur komið sér upp f
Krfsuvfk. Þar hefur hann góða
aðstöðu til að mála stórar
myndir en það er hans mesta
yndi. Sýningin verður opin
klukkan 14 til 22 alla daga vik-
unnar einnig mánudaga, en þá
er venjulega lokað að Kjarvals-
stöðum. A hvftasunnudag opn-
ar sýningin ekki fyrr en klukk-
an 15 enda má ekki sýna á
messutfma á þeím degi. Allar
myndirnar eru til sölu. Sýning-
unni lýkur sunnudaginn 25.
maf.
„Til að fyrirbyggja allan mis-
skilning vil ég taka það fram að
ég sótti um að sýna hér á Kjar-
valsstöðum áður en allt vesenið
þar byrjaði," sagði Sveinn er
blaðamaður Mbl. hitti hann
sem snöggvast að máli á Kjar-
valsstöðum. „Ég sendi dóm-
nefndinni sem þá sat 10 myndir
og fékk það svar að ég fengi að
sýna. Og ég er nú einu sinni
þannig gerður að ef ég hef
ákveðið sýningu þá vil ég ekki
hætta við hana. Ég vil halda
mínu striki og ég hefði frekar
sagt mig úr FÍM frekar en
hætta við ef ég hefði verið í
þeim félagsskap. Ég fékk nú
reyndar ekki inngöngu í FlM
þegar ég sótti um það fyrir 12
árum, hef líklega ekki þótt
nógu góður. Siðan hef ég ekki
haft áhuga á þvf að sækja um
inngöngu."
A sýningu Sveins kennir
margra grasa enda stærsta sýn-
ing sem hann hefur haldið til
þessa. Þarna er að finna fanta-
síur, sjávarmyndir og mótív
sem eru alveg ný hjá Sveini,
sjór og himinn. Fantasfurnar
byrjaði Sveinn fyrst að mála í
Krísuvík en sjávarmyndirnar
eru minningar frá þeim tfma er
hann stundaði sjóinn sem
ungur maður um 13 ára skeið.
Sfðasta stóra sýning Sveins var
f Norræna húsinu fyrir 4 árum
og þá sýndi hann eingöngu
vatnslitamyndir. Hann hefur
haldið fjölmargar sýningar hér
heima og erlendis og hann
hefur m.a. sýnt í Bandaríkj-
unum, Þýzkalandi, Júgóslavíu
og Danmörku. I litprentaðri
Þegar ég er búinn í vinnunni
slappa ég af fyrir framan sjón-
varp á kvöldin og þegar það er
búið byrja ég að mála og er
eitthvað fram eftir nóttu.
Stundum kemur útkall þegar
ég er að mála og þá er ekki
annað að gera en henda pensl-
inum og þjóta af stað til að
rannsaka afbrotamál í Hafnar-
firði, Kjós, eða jafnvel upp í
Hvalfirði. Ég fer líka oft á hest-
bak og hef mikla ánægju af. Og
mér finnst ég hvergi betur
skynja náttúruna en á hestbaki.
Til vinnu mæti ég klukkan 8,30
á morgnana og er þá oft búinn
að fá mér sundsprett í sund-
lauginni í Hafnarfirði til að
hressa mig upp fyrir daginn. Ég
held það eigi vel við að rifja það
upp hér ? Kjarvalsstöðum sem
Kjarval sagði einu sinni:
„Listin er vinna og aftur
vinna“. Og eftir því sem ég vinn
meira í brauðstritinu fer ég af
meiri krafti í málverkin. Ég get
ekki verið án málverksins, ég
er eins og alkohólisti, ég get
ekki hætt.“
Varanlegt slitlag
Ljósmynd Mbl. Emilía.
Simon Vaughan baritonsöngvari, Sigríður E. Magnúsdóttir og Jónas Ingimundarson, en þau
leika og syngja á síóustu tónleíkum vetrarins f Háskólanum.
Síðustu tónleikar Há-
r
skóla Islands í vetur
á veginn
ALÞINGI hefur ákveðið að veita
fé til að setja varanlegt slitlag á
veginn milli Keflavíkur og Garðs
en hann mun vera rúmlega 7 kíló-
metrar að lengd. Að sögn Sigurð-
ar Jóhannssonar vegamálastjóra
verður verkinu skipt í tvennt,
olíumöl lögð á helming vegarins í
sumar og hinn helminginn næsta
sumar. Þetta verður stærsta fram-
kvæmdin á Reykjanesi í sumar,
hvað varðar lagningu á varanlegu
slitlagi.
I framhaldi af þessu sneri Mbl.
sér til Finnboga Björnssonar odd-
Sinfónían
að Flúðum
NÆSTU tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands utan Reykja-
víkur verða haldnir á vegum Tón-
listarfélags Árnessýslu að Flúð-
um í Hrunamannahreppi föstu-
daginn 23. maí kl. 9.30. Stjórnandi
verður Páll P. Pálsson. Flutt
verða verk eftir Beethoven, Grieg
og Mozart.
Sinfóniuhljómsveitin hefur á
undanförnum árum oftast haldið
tónleikana á vegum Tónlistar-
félags Árnessýslu á Selfossi, en að
þessu sinni verða þeir haldnir í
Félagsheimilinu á Flúðum.
til Garðs
vita í Garðinum og ræddi við
hann um fyrirhugaða vegarlagn-
ingu og byggðarlagið. Finnbogi
sagði: „Þegar nú liggur Ijóst
fyrir að ákveðið er að hefjast
handa um byggingu vegar með
varanlegu slitlagi milli Kefla-
víkur og Garðs þá nálgast endalok
mikils baráttumáls okkar Garð-
manna. Það gefur auga leið, að
byggðarlag eins og Garður sem
hefur mjög takmarkaða hafnarað-
stöðu og þarf að flytja til sín
landleið allar þær sjávarafurðir
sem vinna á og þær fullunnu frá
sér, hlýtur að fagna þessum mála-
lokum þótt að við hefðum að sjálf-
sögðu kosið að fá allan veginn nú
í ár. Einnig náðist nú sá áfangi, að
vegurinn Garður — Sandgerði
var tekinn með og til hans ákvarð-
að það sem við getum nefnt
opnunarframlag. Það er góður
áfangi því töluverðum hluta
sjávarafla okkar er ekið þaðan.
Ég leyfi mér fyrir hönd okkar
Garðmanna að þakka fjármála-
ráðherra, samgönguráðherra,
þingmönnum kjördæmisins svo
og öðrum þeim sem lagt hafa
hönd að því að þetta geti gerzt
sem fyrst, þann skilning sem þeir
hafa sýnt á þörf okkar fyrir góðar
samgöngur. Við höfum að sjálf-
sögðu óttazt það að fram-
kvæmdum yrði frestað þar sem
Framhald á bls. 47.
t vetur hefur Háskóli tslands
haldið 10 tónleika í Félags-
stofnun stúdenta og hafa þeir
verið sóttir af fólki utan Háskól-
ans sem innan.
Siðustu tónleikar þessa háskóla-
árs verða haldnir á hvitasunnu-
dag kl. 15 í Félagsstofnuninni.
Þar syngja þau Sigríður E.
Magnúsdóttir og Simon Vaughan
við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar lög eftir Schubert,
Schumann, Duparc, Hugo Wolf,
Brahms og Benjamin Britten.
Sigríður E. Magnúsdóttir er um
þessar mundir að æfa sjálfa
Carmen i Þjóðleikhúsinu fyrir
flutning næsta haust. Simon
Vaughan er ungur enskur
baritonsöngvari, nemandi Antons
Dermota í Vínarborg og er hann
nú þegar orðinn athafnasamur
tónleikahaidari heima hjá sér í
Englandi og einnig i Austurriki
og á Italíu.
Fyrstu tónleikar Háskólans
voru i nóv. s.l. Þá lék Barokkvint-
ett Kammersveitar Reykjavíkúr, i
nóvember söng Elísabet Erlings-
dóttir íslenzk þjóðlög, Kammer-
sveit Reykjavíkur lék í nóvember
Framhald á bls. 47.
Jóhann G.
opnar sýningu
JÓHANN G. Jóhannsson opnar
málverkasýningu i dag, laugardag
að Hamragörðum, Hávallagötu 24.
Sýningin verður opin klukkan
3—10 og stendur hún til sunnu-
dagsins 25. mai. 37 verk eru á
sýningunni, oliu- og vatnslita-
myndir. Allt eru þetta nýjar
myndir. Einnig mun Jóhann
kynna nýja tveggja laga hljóm-
plötu sem væntanleg er á mark-
aðinn í næstu viku. Verður platan
leikin annað slagið á meðan sýn-
ing stendur yfir.
Steingrímur
sýnir í Eden
STEINGRlMUR Sigurðsson opn-
aði í gærkveldi málverkasýningu
i Eden í Hveragerði, og'er þetta
22. einkasýning hans.
A sýningunni eru alls 35 verk,
öll ný, mest olíumálverk og vatns-
litamyndir.
Sýningin verður opin fram yfir
hvitasunnu.
Ragnar Lár
sýnir á Húsavík
RAGNAR LAR, sem í vetur hefur
starfað sem kcnnari við Barna- og
ungiingaskólann á Skútustöðum í
Mývatnssveit, opnar sýningu f
barnaskólanum á Húsavik í dag,
laugardag, og lýkur sýningunni á
2. í hvítasunnu. Sýningin er opin
frá 4—22 daglega.
Á sýningunni eru 20 olíumál-
verk og 7 vatnslitamyndir, enn-
fremur penna- og pensilmyndir,
tréristuþrykk, dúkristuþrykk og
álímíngarmyndir.
Ragnar sýndi fyrst í Ásmundar-
sal árið 1956, en þetta er viða-
mesta sýning hans.