Morgunblaðið - 17.05.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDÁGUR 17. MAl 1975
23
Utanríkisráðherra Portúgals:
Hætta á algeru
stríði í Angóla
Lissabon, Nairobi 16. maí—AP
ANTONIO Melo Antunes, utan-
rfkisráðherra Portúgals, sagði f
dag er hann kom heim til Lissa-
bon úr 3ja daga ferð til Angöla að
hætta væri á þvf að almenn
styrjöld brytist út f nýlendunni,
sem gæti leitt til erlendrar fhlut-
unar vegna hinna miklu náttúru-
auðlinda landsins. Hann sagði að
portúgalskar hersveitir yrðu að
beita valdi eftir þörfum til þess
að viðhalda friði og spekt. Ferð
utanrfkisráðherrans til Angóla,
sem á að fá sjálfstæði f nóvember,
kemur f kjölfar blóðugra bardaga
milli tveggja af þremur frelsis-
hreyfingum blökkumanna f land-
inu, en samkvæmt áreiðanlegum
portúgölskum heimildum hafa
meir en 3000 manns beðið bana f
átökunum.
Bardagar hafa einkum farið
fram í höfuðborginni Luanda.
Atökin hafa kippt grundvellinum
undan sjálfstæðissamkomulaginu
sem undirritað var af fulltrúum
frelsishreyfinganna og Portúgals-
stjórnar i janúar. Bardagarnir
hafa staðið milli Þjóðfylkingar-
Ungverjaland:
Aukið eftirlit
og aðhald í
dnahagsmálum
Búdapest 16. maí AP.
STJÓRNMALAFRÉTTARITAR-
AR telja að tilnefning Gyoergy
Lazar f embætti forsætisráðherra
Ungverjalands muni verða til
aukins eftirlits og meira aðhalds f
ungverskum efnahagsmálum.
Lazar er 51 árs gamall, hann
hefur áður gegnt starfi aðstoðar-
forsætisráðherra og hefur verið
formaður framkvæmdastofnunar
ríkisins sem sér m.a. um alla
áætlanagerð. Hann hóf feril sinn
árið 1948.
Afsögn Focks fráfarandi for-
sætisráðherra kemur ekki á óvart
þvf að talsverð gagnrýni hefur
verið á stefnu hans undanfarið og
sjálfur hefur hann einu sinni
haldið ræðu opinberlega þar sem
hann kvaðst vilja nota tækifærið
og játa ýmis mistök sem sér hefðu
orðið á, ekki hvað sízt í stjórnun
efnahagsmála. Fock var sæmdur
æðstu hetjunafnbót ríkisins eftir
að Janos Kadar, flokksleiðtogi,
hafði fallizt á afsögn hans úr for-
sætisráðherrastóli. Aður hafði
Fock gegnt ýmsum mikilvægum
ráðherraembættum. Hann hafði
verið forsætisráðherra sl. átta ár.
innar fyrir frelsun Angóla og
Marxísku alþýðuhreyfingarinnar
fyrir frelsun Angóla. Þriðja sjálf-
stæðishreyfingin, Þjóðareiningin
fyrir algjöru sjálfstæði Angóla,
skoraði í dag á hinar tvær að
reyna að jafna ágreiningsmálin
og stöðva bardaga, en hreyf-
ingarnar þrjár deila völdum með
Portúgölum unz til sjálfstæðisins
á að koma i nóvember.
Malik líflátinn
Port of Spain, Trinidad
16. mai.AP.
ABDUL Malik, fyrrverandi for-
ystumaður samtakanna „British
black power“, var hengdur við
sólarupprás I morgun, þremur ár-
um eftir að hann var fundinn
sekur um morð á ungum rakara.
Kona Maliks var f hópi tvö þús-
und manna hóps, sem safnaðist
saman úti fyrir fangelsi því sem
Malik hafði verið f og var tekinn
af lffi f.
Lögfræðingur Maliks, Denis
Muihead, lýsti mikilli reiði vegna
líflátsins og sagðist hafa freistað
þess fram til hins síðasta að telja
stjórnvöldum hughvarf.
Malik var 41 árs. Hann kom til
Bretlands frá Trinidad 17 ára
gamall, hann sat í fangelsum fyrir
kynþáttaóeirðir og síðar var hann
ákærður fyrir fjárkúgun. Hann
flýði til Trinidad áður en hann
kom fyrir rétt.
FRIÐARAVARPIÐ AFHENT — Pödgorny, forseti Sovétríkjanna, sést hér taka við friðarskjali úr
hendi Ahti Karjalainens, utanríkisráðherra Finnlands. Undir skjalið rituðu nöfn sín 580 þúsund
manns, þar á meðal voru ýmsir framámenn verkalýðssamtaka og annarra félaga með milljónir innan
sinna vébanda. I áskoruninni er hvatt til stöðugra og bættra samskipta við Sovétríkin og friðarhugur
Finna f garð þeirra ítrekaður.
VEUJUR GÐSLUN FRA USSR
HEILSUTJÓNI í FENINLANDI?
Sendinefnd til Spánar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sendi-
nefnd haldi til Spánar strax eftir
helgina til viðræðna við spænsk
yfirvöld um hina fyrirvaralausu
stöðvun á innflutningi á Islenzk-
um saltfiski til Spánar. I nefnd-
inni verða fulltrúar frá Sölusam-
bandi íslenzkra fiskframleiðenda
og viðskiptaráðuneytinu. Þá er
líklegt að sendiherra Islands á
Spáni, Níels P. Sigurðsson, verði
með f förinni. I gær höfðu engar
frekari skýringar borizt frá Spán-
verjum á stöðvun saltfiskinn-
flutningsins.
Washington, 16. maí — Reuter.
BANDARlSKI dálkahöfundurinn
Jack Anderson segir f blaðinu
Washington Post f dag, að útgeisl-
un frá sovézkri örbylgjumóttöku-
stöð sem beint er að bandarfskum
eldflaugastöðvum, kunni að valda
hjartaáföllum og krabbameini f
þorpum f Finnlandi. Umrædd
stöð er að sögn Andersons við
austanvert Ladogavatn, norð-
austur af Leningrad og beinist að
eldflaugastöðvum f norðurhluta
Bandarfkjanna. „Geislarnir eru
svo sterkir að flestir Rússanna f
nágrenni hennar hafa verið flutt-
ir burt, og er nú talið að geislan-
um sé stjórnað með rafeindaheila
úr f jarlægð."
Segir Anderson að Sovétmenn
hafi vegna hinnar hættulegu út-
geislunar beint geislanum frá
mikilvægum bækistöðvum I
grenndinni, en um leið hafi
óvenjuleg tfðni hjartasjúkdóma
og krabbameins orðið í finnsku
þorpunumm Kuopio, Joensuu og
Ilomantsi handan landamæranna.
Einkum hafi Alþjóða heilbrigðis-
stofnunin, WHO fundið fádæma
tíðni þessara sjúkdóma I Ilom-
antsi sem er næst umræddri stöð,
raunar mestu tfðni í heimi. Einn-
ig hafi tvö önnur landamæraþorp,
Koitsanlahti og Parikkala orðið
fyrir óskiljanlegri aukningu
krabbameins meðal fbúanna.
Anderson segir að bandaríski vís-
indamaðurinn Milton Zaret hafi
rannsakað ástandið og á fundi
örbylgjusérfræðinga í Varsjá hafi
hann sakað stöðina við Ladoga-
vatn um að valda þessum sjúk-
dómum.
Vestur-þýzk blöð
fái fjárhagsaðstoð
Forstjóri Gulf Oil viðurkennir:
Pólitískar fjárveit-
ingar til S-Kóreu
Washington 15. maf — AP
FORSTJÓRI Gulf Oil-
olfufélagsins skýrði frá þvf við
yfirheyrslur fyrir undirnefnd
öldungadeildarinnar um fjöl-
þjóðafyrirtæki að Gulf Oil hefði
veitt 4 milljónum dollara f póli-
tfskum tilgangi til stjórnarflokks-
ins f Suður-Kóreu, Demókratfska
lýðveldisflokksins, á árunum
1966 og 1970. Hann sagði að
flokksleiðtogarnir hefðu krafizt
slfkra framlaga, raunar hærri en
fyrirtækið hefði samþykkt, og
hefði berlega verið gefið f skyn að
hagsmunir olfufélagsins f Suður-
Kóreu yrðu í einhverri hættu ef
ekki væri gengið að þessum kröf-
um. Gulf Oil hafði þá hafið veru-
lega fjárfestingu f landinu. For-
stjórinn viðurkenndi einnig þrjú
sams konar framlög til Bólivfu,
þ.e. til Rene Barrientos, hershöfð-
ingja, sem nú er látinn.
Bonn 16. maí.Reuter
VESTUR-þýzka stjórnin
hefur lagt fram áætlun,
þar sem gert er ráð fyrir
tafarlausri fjárhagsaðstoð
við blaðaútgáfu f Vestur-
Þýzkalandi og er upphæðin
100 milljón þýzk mörk.
Blöð í Vestur-Þýzkalandi
hafa mörg hver barizt f
bökkum vegna samdráttar
í auglýsingum upp á síð-
kastið.
Efri deild Sambandsþingsins —
Bundesrat — kynnti málið og var
þar látin í ljós sú skoðun að frelsi
vestur-þýzkrar blaðaútgáfu gæti
verið stefnt í voða ef ekki yrði
gerð gangskör að þvl að styrkja
blöðin fjárhagslega. Talsmaður
stjórnarinnar í deildinni sagði að
meginkjarni málsins væri að
vernda blaðaútgáfuna og yrði
skipulag væntanlega þannig að
komið yrði á laggirnar stofnun
sem ætti að vernda ólíkar skoðan-
ir sem fram kæmu í blöðunum og
leggja áherzlu á mikilvægi frjálsr-
ar blaðamennsku hjá öllum al-
menningi.
STORHREDNGERMNG I KAMBODÍU
Bangkok 16. maí. AP.
MIKIL hreingerningar-
alda gengur nú yfir
Kambódfu, að því er
heimildir f Bangkok telja
réttar. Segir f þeim að
hinír nýju valdhafar
leggi gffurlegt kapp á að
virkja sem flesta til að
vinna að þvf að hreinsa,
prýða og fegra bæði f
Phnom Penh og vfðar
annars staðar f landinu.
Felur þetta í sér hreins-
un og þvott á opinberum
byggingum, og götum og
unnið er af miklu kappi
að þvf að útrýma hvers
konar óþef og óhrein-
indum.
Útvarpið f Phnom Penh
sagði f dag að hreinlæti
hefði verið mjög ábóta-
vant f borginni undir
stjórn þeirra sem Banda-
rfkjamenn hefðu stutt
með ráðum og dáð og
nýja stjórnin teldi það
hið mesta metnaðarmál
að fólk legði fram lið-
sinni sitt til að gjör-
breyta svip og yfirbragði
höfuðborgarinnar til
hins hreinna og betra.
Þá er unnið mjög
ósleitilega úti f sveitum
landsins að sögn vald-
hafa, sérstaklega á hrís-
grjónaökrum, vegir eru
endurbyggðir og endur-
reistar eru verksmiðjur
og ýmsar aðrar byggingar
—.... I
„sem hafa verið að grotna
niður“ eins og stjórnin
segir. Sagði f tilkynningu
stjórnarinnar að þrátt
fyrir ýmis vandkvæði við
útvegun efnis og tækja,
sem hefðu orðið fyrir
skemmdum eða verið
ónýtt, myndi verða unnið
að þessu af elju. Þar kom
og fram að búizt er við að
flugvöllurinn við Phnom
Penh verði tekinn aftur f
notkun fljótlega, og er
unnið að viðgerðum á
flugbrautum og mann-
virkjum f grennd við
völlinn. Aðalviðgerðir
fara þó fram á Þjóðvegi
fimm að sögn útvarpsins,
en það er helzta sam-
gönguæð úr borginni og
voru stöðugar árásir á þá
leið f strfðinu. Einnig er
mikil þörf á þvf að gera
við og endurbyggja brýr
á öðrum stórum sam-
gönguleiðum.
Banana-
mútuþegi
fundinn
San Jose, Costa Rica, Mexico-
borg 16. mai AP, Reuter,
HONDÚRSK sérskipuð rannsókn-
arnefnd skýrði frá því f morgun
að fyrrverandi efnahagsráðherra
landsins, Bennaton Ramos, hefði
verið embættismaður sá sem þá
1,2 milljón dollara mútur frá
bandarfsku fyrirtæki, og hefði
hann f staðinn lækkað út-
flutningstolla á banönum, sem
fyrirtækið keypti frá Hondúras.
Forseti Costa Rica, Daniel
Obuber, gaf bandariska fyrir-
tækinu United Brands Co. frest
til hádegis í dag að birta nafn
mannsins sem múturnar hefði
þegið, en missa öll banana-
viðskipti við Costa Rica að öðrum
kosti.
Fram hefur komið að banda-
ríska fyrirtækið hefur leikið þetta
víðar og meðal annars mútað hátt
settum aðilum I bananaheiminum
i Panama, Italíu og i Vestur-
Þýzkalandi. Hefur þetta mál
vakið talsverða athygli og segja
fréttastofur að búast megi við
frekari rannsóknum á málum
bananafyrirtækis þessa á næst-