Morgunblaðið - 17.05.1975, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAt 1975
35
Ennþá hægt
að syngja
á Akranesi
Akranesi 15. maí.
NÚ LIGGJA hér 3 skip hreyf-
ingarlaus í höfninni vegna verk-
falls og samúðarverkfalls. Togar-
inn Vikingur, flutningaskipið
Álafoss og ferjan Akraborg. Það
lítur út fyrir að flestar bjargir
verði bannaðar bráðlega, eftir er
aðeins að loka fyrir landveginn og
drykkjarvatn úr Akrafjalli. Það
er þó eitt gott í þessum verkfalla-
málum, það að kirkjuorganistar
hafa samið um kaup þannig að
það er ennþá hægt að syngja við
undirleik. — Júlíus.
— Attræður
Framhald af bls. 34
ávallt þannig að telja sjálfsagða
þá fyrirhöfn, sem hann hefur
þurft að leggja á sig okkar vegna.
En auðvitað hefur Bjarni notið
aðstoðar sfnnar fjölskyldu við
símaþjónustuna. Um árabil átti
Bjarni sæti í hreppsnefnd Borgar-
hafnarhrepps.
1953 gerðist Bjarni húsvörður
Iðnskólans við Vonarstræti í
Reykjavík. Það starf mun hanri
hafa rækt með trúmennsku og
skyldurækni. Þá vetur, sem þau
hjónin dvöldu í Reykjavík var oft
gestkvæmt hjá þeim af Suður-
sveitungum, sem leið áttu til
höfuðborgarinnar og öórum
gestum. Þar var einkar ánægju-
legt að sækja þau heim eins og
annarsstaðar þar sem þau hafa átt
heimili.
Það var okkur hér í Suðursveit
ánægjuefni þegar Bjarni og J>óra
fluttust hingað aftur og á Jaðri
hafa þau búið síðan með Ingimari
og hans fjölskyldu. Eg veit að
hugur margra leitar til Bjarna á
þessum merku tímamótum, því
hann er vinmargur og nýtur
mikilla vinsælda allra þeirra, sem
hafa kynnst honum.
Er ég ein i þeim hópi, sem flyt
honum hugheilar hamingjuóskir
á afmælisdaginn og þakka ára-
tuga ágæt kynni. Lifðu heill. H.G
— Þessi sýning
Framhald af bls. 11
sanngirni og þekkingu. Og það
er útbreiddur misskilningur,
sem ég vil gjarnan leiðrétta, að
ég hafi gegnum árin hrósað ab-
strakt list meir en fígúratífri
list. Ég tel víst að ef þetta yrði
athugað þá myndi hið gagn-
stæða koma í ljós.“
„Þó að ég sé nú búinn að
böðlast í myndlist í allan þenn-
an tlma finnst mér ég enn vera
eins og á fermingaraldri í fag-
inu, og ég vil engu spá um
hvernig ég á eftir að mála héð-
an í frá. Ef ég ætti að defínera
sjálfan mig myndi ég kalla mig
rómantískan expressíónista. Ég
er einn af þessum köllum sem
dettur ýmislegt í hug, en fátt af
þvi verður að raunveruleika.
Ég held að fáir menn hafi bar-
izt jafn mikið gegn því að verða
málarar og ég. Ég ætlaði að
verða eitthvað allt annað. Og
enn koma tímabil þar sem ég
óska einskis fremur en að
skipta um hlutverk. Fa mér
trillubát. Það hvarflar líka
stundum að mér, að stunda
myndlist á Islandi sé alveg
eins og að gera út loðnu-
fiskirí uppi á miðjum Vatna-
jökli. Samt finnst mér nú að ég
hafi aldrei nógan tíma til að
mála, og ég held að ég hafi
aldrei haft meiri nautn af því
að mála.
Og þó. Þegar ég horfi á þessar
gömlu myndir mínar hér á loft-
inu fer ég að efast um það.“
Sérdu þaó
sem
Það þarf ekki að vera. Enda þótt allir
landsmenn njóti sömu dagskrár, er
afar mismunandi hvað fólk sér, og kemur þar
margt til, léleg sjónvarpstæki, slæm mót
tökuskilyrði og umdeild dagskrá. Við ráöum
ekki bót á efnisvali sjónvarpsins né heldur
lögum við móttökuskilyrðin, en sért þú að
Komdu í heimsókn og sjáöu.
hugsa um að endurnýja sjónvarpstæki
eða kaupa þitt fyrsta.þá viljum við benda
þér á að þaó sem þú sérð, það sérðu
best í Nordmende sjónvarpstæki. Við höfum
svart/hvít og litsjónvarpstæki i úrvali á verði
frá 60.000 krónum.
Skipholti 19 sími 23800
Klapparstíg 26 sími 19800
Sólheimum 35
MUNIÐ KAPPREIÐAR FÁKS
ANNAN í HVÍTASUNNU
KL. 14