Morgunblaðið - 17.05.1975, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAl 1975
Áttu síðasta orðið
oo sigruöu Luxemburaara 73:67
Frá Gylfa Kristjánssyni, frétta-
manni Mbi. með fslenzka körfu-
knattleikslandsliðinu í Vestur-
Þýzkalandi.
Ekki fór það svo að íslenzka
körfuknattleikslandsliðið þyrfti
að sætta sig við að koma sigur-
laust heim úr ferðinni í Evrópu-
bikarkeppni landsliða í körfu-
knattleik. 1 síðasta leik sínum
unnu Islendingarnir sætan sigur
yfir Luxemburg 73:67 í mjög jöfn-
um og spennandi leik. Var þetta
bezti leikur fslenzka liðsins í ferð-
inni, — mikil barátta og stemmn-
ing frá upphafi og landsliðsmenn-
irnir ákveðnir.
Leikurinn var mjög jafn til að
byrja með og var jafnt á öllum
tölum upp í 12:12 en þá sigu Is-
lendingar fram úr og komust i
19:13. Þegar 5 mínútur voru til
loka hálfleiksins var staðan 31:25
fyrir tsland, en Luxemburgararn-
ir áttu þá mjög góðan leikkafla og
komust yfir 35:32. Eftir þetta
gekk á ýmsu. Island var yfir i
hálfleik 44:42, en í seinni hálfleik
náðu Luxemburgarar að jafna og
komast yfir. Þegar 2 mínútur
voru til loka leiksins var staðan
65:62 þeim í vil, og virtist vonlítið
um sigur. En íslenzka liðið tók á
öllu sem það átti undir lokin og
skoraði 10 stig i röð og gerði þar
með út um leikinn.
Kristinn Jörundsson átti þarna
frábærlega góðan leik, bæði í
sókn og vörn. Agnar Friðriksson
fékk snemma á sig 4 villur og var
þá tekinn útaf, en síðan skipt inná
undir lok leiksins og hitti þá oft
stórkostlega. Bjarni Gunnar stóð
sig mjög vel í fyrri hálfleik, en
varð að fara útaf í byrjun seinni
hálfleiks með 5 villur.
Gott hjá
Ragnhildi
RAGNHILDUR Pálsdóttir stóð sig
frábærlega vel I hinu árlega
Holmenkollenboðhlaupi sem fram
fór í Noregi um slðustu helgi. Er
þarna um að ræða eitt fjölmennasta
boðhlaup sem fram fer. en keppend-
ur I þvf að þessu sinni voru um 6000
talsins. Ragnhildur, sem dvelur nú
við nám I Iþróttaskóla I Viborg I
Danmörku keppti með sveit BUL I
boðhlaupinu og hljóp lengsta sprett-
inn, sem var um 2800 metrar.
Keppti hún þar á móti beztu hlaupa-
stúlku Noregs, Britt Olsen, sem
hlaupið hefur 1500 metra hlaup á
4:32,0 mln. Flestum til mikillar
furðu vann Ragnhildur um 20
Framhald á bls. 47.
Stig íslenzka liðsins skorðu:
Kristinn Jörundsson 23, Agnar
Friðriksson 14, Bjarni Gunnar
Sveinsson 13, Símon Ólafsson 7,
Kristinn Stefánsson 6, Kári
Marísson 5, Jóhannes Magnússon
2, Gunnar Þorvarðarson 2 og
Þórir Magnússon 1.
Eftirtaldir leikir verða í deildakeppninni f knattspyrnu um
helgina:
1. DEILD:
Laugardagur 17. maí:
Kl. 14.00: Kaplakrikavöllur: FH — Fram
Kl. 14.00: Vestmannaeyjavöllur: IBV — Víkingur
Kl. 16.00: Akranesvöllur: IA — KR
Þriðjudagur 20. maí:
Keflavíkurvöllur: IBK — Valur
2. DEILD:
Laugardagur 17. maí:
Kl. 16.00: Þróttarvöllur: Þróttur — Völsungur
Kl. 16.00: Selfossvöllur: Selfoss — Víkingur, Ólafsvík
Mánudagur 19. maí:
Kl. 16.00: Kaplakrikavöllur: Haukar — Reynir, Árskógs-
strönd.
3. DEILD:
Laugardagur 17. maí:
Kl. 14.00: Arbæjarvöllur: Fylkir — Grindavík
Kl. 15.00: Þorlákshöfn: Þór, Þorlákshöfn —Hrönn
Mánudagur 19. maí:
Kl. 19.00: Njarðvíkurvöllur: Njarðvík
■ Leiknir.
Kreinn Halldðrsson tekur við verðlaunum fyrir kúluvarpið. l'.kkl vantaði nema sentimeter
upp á að 19 metra markið næðist. I kringiukastinu náði Hreinn svo einnig mjög góðum árangri
— þeim þriðja bezta sem tslendingur hefur náð frá upphafi.
Rjóst ekki víð meti núna en 20
metramir ættu að komaí sumar
— ÉG ÁTTI ekki von á meti I þessu
móti, og þá fyrst og fremst vegna
kuldans, sagði Hreinn Halldórsson,
„Strandamaðurinn sterki", eftir að
hann hafði varpað kúlunni 18,99
metra á ÍR-mótinu I fyrrakvöld og
þar með bætt sitt eigið íslandsmet
um 9 sentimetra. — Það vantaði
alla snerpu I þetta hjá mér, sagði
Hreinn, — en ég á von á þvl að gera
mun betur I sumar, — og auðvitað
eru 20 metrarnir takmarkið, sem
gaman væri að ná.
Hreinn var ekki einn um að setja met
I kúluvarpinu Hinn ungi ÍR-ingur Ósk-
ar Jakobsson setti nýtt unglingamet
með þvi að varpa 16,61 metra. Bætti
hann þar með unglingametið sem Er-
lendur Valdimarsson setti árið 1967
um 30 sentimetra Og afrek Óskars er
aðeins 1 3 sentimetrum lakara en hið
fræga íslandsmet Gunnars Husebys
var. Þriðji maðurinn yfir 16 metra á
ÍR-mótinu var Guðni Halldórsson, sem
varpaði 16,03 metra. — Ég náði mér
ekki vel á strik, sagði Guðni, eftir
keppnina, — ég er I prófum og þau
draga úr manni.
Köstin voru nær einu greinarnar sem
keppandi var i á ÍR-mótinu i fyrrakvöld
vegna kuldans og hvassviðrisins. Og
árangur I þessum greinum var líka
langbeztur. Auk metsins I kúluvarpi
náðist glæsilegur árangur I kringlu-
kastinu. Hreinn sigraði með 55,64
metra kasti og er það þriðji bezti árang-
ur íslendings I þeirri grein frá upphafi.
Aðeins Erlendur Valdimarsson og Hall-
grimur Jónsson hafa gert betur. Óskar
Jakobsson varð annar með 51,28
metra og Guðni var þriðji maður yfir
50 metra, kastaði 50,34 metra. Bezti
árangur þeirra allra I þessari grein.
ÍR-mótið bar þess annars greinileg
merki að margt af bezta frjálslþrótta-
fólki landsins er erlendis um þessar
mundir við æfingar, og þá einnig að
breiddin er stöðugt að aukast Þannig
vakti sérstaka athygli 3000 metra
hlaup Einars Guðmundssonar, FH-
ings, 9:37,6 mín. Það var vel gert I
kuldanum og rokinu. Þá vakti einnig
athygli gott 100 metra hlaup Sigurðar
Sigurðssonar Hann hafði vindinn
reyndar I bakið, en örugglega á þessi
ungi piltur eftir að láta verulega að sér
kveða í spretthlaupunum. og það
þegar i sumar. í þessu hlaupi kepptu
lyftingamennirnir Gústaf Agnarsson og
Skúli Óskarsson. Báðir fengu slæmt
viðbragð, en hlupu nokkuð vel,
einkum þó Skúli.
í kvennagreinunum vakti einna
mesta athygli hástökk Láru Sveinsdótt-
ur og kúluvarp Guðrúnar Ingólfsdóttur
Annars urðu helztu úrslit I ÍR-mótinu
þessi:
Kúluvarp:
Hreinn Halldórsson, HSS 18,99
Óskar Jakobsson, ÍR 16,61
Guðni Halldórsson, HSÞ 16,03
Elías Sveinsson. ÍR 14,25
Þráinn Hafsteinsson, HSK 13,31
Kringlukast:
Hreinn Halldórsson, HSS 55,64
Óskar Jakobsson, ÍR 51,28
Guðni Halldórsson, HSÞ 50,34
Elías Sveinsson, ÍR 47,70
Þráinn Hafsteinsson, HSK 46,62
3000 metra hlaup:
Einar Guðmundsson, FH 9:37,6
Leif Österby, HSK 9:52,8
110 metra grindahlaup:
Valbjörn Þorláksson, KR 15,0
Elías Sveinsson, (R 1 5,9
Stefán Jóhannsson, Á 16,3
Þorleikur Karlsson, KR 16,6
Þráinn Hafsteinsson, HSK 16,9
100 metra hlaup:
Sigurður Sigurðsson, Á 10,5
Óskar Thorarensen, ÍR 11,6
Skúli Óskarsson, UÍA 11,8
Gústaf Agnarsson, KR 12,3
800 metra hlaup:
Gunnar Þ. Sigurðsson, FH 2:12,5
Rúnar Hjartar, UMSB 2:16,8
Þórður Gunnarsson, HSK 2:19,0
Hástökk:
Elías Sveinsson, ÍR 1,92
Karl West Fredriksen, UBK 1,88
Hafsteinn Jóhannesson, UBK 1,88
Stefán Halldórsson, ÍR 1,75
Guðmundur R. Guðmundsson,
FH 1,70
Valbjörn Þorláksson, KR 1,70
100 metra hlaup kvenna:
Erna Guðmundsdóttir, KR 12,2
Margrét Grétarsdóttir, Á 1 3,2
Hafdís Ingimarsdóttir, UMSK 13,2
Friðrikka Guðmundsdóttir, ÍA 13,6
800 metra hlaup kvenna:
Inga Lena Bjarnadóttir, FH 2:45,0
Svandís Sigurðardóttir, KR 2:45,9
Sólveig Pálsdóttir, UMSK 2:51,6
Kúluvarp kvenna:
Guðrún Ingólfsdóttir, USÚ 1 1,82
Ása Halldórsdóttir, Á 11,10
Lára Sveinsdóttir, Á 9,60
Sveinbjörg Stefánsdóttir, HSK 9,53
Sigrún Sveinsdóttir, Á 9,28
Allir kallaðir—einn útvalinn
í dag hefst íslenzk knattspyrnuvertfð
fyrir alvöru. Þrfr leikir fara fram i 1.
deildar keppninni, tveir i 2. deild og
tveir i 3. deild. Á þriðjudagskvöldið
fer svo fram fjórði leikurinn i 1.
deild, en eins og i fyrra er að þvi
stefnt að Ijúka jafnan heilli umferð
um helgi, eða á næstu dögum eftir
hana, þannig að linurnar verði jafnan
sem skýrastar í fslandsmótinu.
Búast má við óvenjulega
spennandi og jafnri kepprti í 1. deild i
sumar, bæði á botninum og á toppn-
um. Sex af átta liðum sem eru i
deildinni hafa erlendum þjálfurum
yfir að ráða, og nú undanfarin ár
hafa flest félögin lagt i æ meiri
kostnað til þesss að ná árangri i
fslandsmótinu. Æfingar leikmanna
hafa orðið strangari, og óneitanlega
var knattspyrnan i fyrrasumar öllu
betri en við höfum átt að venjast
undanfarin ár. Mikið má vera ef
knattspyrnan í sumar verður ekki
enn betri — alla vega ætti starf
erlendu þjálfaranna að skila sér bet-
ur nú en það gerði I fyrra. Þá verður
fróðlegt að sjá hvernig íslenzku þjálf-
urunum vegnar ( keppninni við er-
lenda starfsfélaga sína, þótt saman-
burður sé auðvitað erfiður, þar sem
liðin eru misvel skipuð.
Sennilega hefur aldrei verið
erfiðara að spá við upphaf fslands-
móts um liklegan sigurvegara. Flest
liðin koma til greina, og ef marka má
getu þeirra af útkomu i vorleikjun-
um, þá virðast þau flest næsta jöfn.
ÍA: Akurnesingar hafa sama þjálf-
ara og f fyrra.Kirby, og mjög litlar
breytingar munu verða á liði þeirra.
Aðeins Eileifur Hafsteinsson hefur
lagt skóna á hilluna af þeim leik-
mönnum sem léku með í fyrra. Mjög
liklegt verður að teljast að Skaga
menn verði i fremstu röð í sumar, en
hins ber líka að minnast að nú orðið
er það fremur fátitt að sama liðið
vinni íslandsmótið tvö ár i röð.
ÍBK: Keflvíkingar hafa farið mjög
vel af stað i sumar undir stjóm Joe
Hooleys, sem var með liðið 1973, er
það vann yfirburðasigur í íslands
mótinu. Verða Keflvikingar að teljast
Ifklegir „kandidatar" um islands-
meistaratitilinn í ár, þótt auðvitað
komi það til með að veikja lið þeirra
verulega að Guðni Kjartansson mun
sennilega ekki geta leikið með i
sumar vegna meiðsla. Guðni hefur
verið herforingi Keflavfkurliðsins, og
verður örugglega erfitt að finna
mann i hans stað.
Valur: Valsmenn eru spurninga-
merki i þessu móti. Þeir urðu fyrir
miklu áfalli er þeir misstu fyrirliða
sinn Jóhannes Eðvaldsson utan, en
það var fyrst og fremst hann sem átti
heiðurinn af þvf að Valur hlaut þriðja
sætið í mótinu i fyrra. Má mikið vera
ef Valsmenn verða öllu ofar í mótinu
að þessu sinni.
ÍBV: Þeim sem séð hafa til Eyja-
liðsins i ár, ber saman um að það
leiki nú skemmtilega knattspyrnu,.
enda hefur liðið verið nær ósigrandi I
þeim æfingaleikjum sem það hefur
leikið i vor. Má vera að 1975 verði
ár Vestmannaeyinga. og væri það
vissulega gaman fyrir Gisla Magnús-
son, hinn nýja þjálfara liðsins. Mjög
vel mun hafa verið mætt á æfingar
hjá Eyjamönnum að undanförnu, og
þeir tefla fram litið breyttu liði frá i
fyrra. Óskar Valtýsson, hinn snjalli
leikmaður liðsins, er þó á sjúkralista
og mun verða það fram eftir sumri,
og kann það að veikja liðið töluvert.
KR: Reykjavfkurmeistarar KR
verða örugglega skæðir i mótinu i
sumar. f fyrra var KR hálfgert hrak-
fallalið, beztu menn liðsins voru
meiddir á vfxl og liðið náði aldrei að
sýna hvað i þvi bjó. KR-ingar hafa
komið sterkar frá leikjum vorsins og
verða örugglega engin lömb að leika
við i sumar. Engar stórbreytingar
munu verða á liðinu frá síðasta
keppnistimabili.
Fram: Hvert áfallið öðru meira
hefur dunið yfir Framliðið að undan-
förnu. Tveir leikmenn sem voru
stjörnur þess i fyrra hafa yfirgefið
það: Guðgeir Leifsson og Ásgeir
Eliasson. Auk þess er liklegt að liðið
muni missa Kristin Jörundsson út í
sumar, og fleiri leikmenn sem voru
fastamenn hjá Fram i fyrra leika ekki
með því f sumar. Þetta verður þvi
ugglaust erfitt ár hjá Fram, en þeir
Marteinn Geirsson og Jón Pétursson
eru leikmenn sem hvergi gefa eftir,
og kann reynsla þeirra og öryggi að
verða veigamikil fyrir Framliðið f
sumar.
Vikingur: Víkingar munu hafa
hagað undirbúningi sínum undir Ís-
landsmótið á annan hátt nú en þeir
gerðu i fyrra, en þá byrjuðu þeir vel,
en botninn reyndist síðan suður [
Borgarfirði. Þeir hafa nú fengið Guð-
geir Leifsson til liðs við sig, og
munar örugglega mikið um hann.
Vikingar verða sennilega ofar í mót-
inu nú en þeir voru i fyrra, þó að ekki
sé sennilegt að þeir blandi sér
alvarlega í baráttuna á toppnum.
FH: FH-ingar leika nú i fyrsta sinn
f 1. deild. Liðið er skipað ungum
leikmönnum sem leikið hafa saman i
nokkur ár, og eru orðnir vel sam-
stilltir. Það er gömul saga og ný að
það er erfitt fyrir nýliða að gera stóra
hluti i fyrstu deildinni fyrsta árið sitt
þar, enda hlýtur það að vera megin
keppikefli FH-inga að halda sér uppi
i ár. Það ætti þeim að takast og er
t.d. ekki ólíklegt að þeirfái mörg stig
á heimavelli sínum f Kaplakrika. Er
FH eina fyrstu deildar liðið sem
leikur ð eigin velli f sumar.
Ef undirritaður gerði spá um röð
liðanna i íslandsmótinu i ár liti hún
þannig út:
1. ÍBK
2. (BV
3. ÍA
4. KR
5. Valur
6. Víkingur
7. FH
8. Fram