Morgunblaðið - 25.05.1975, Síða 1
48 SIÐUR
115. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 25. MAl 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Herinn ræðir
kröfur Soares
Lissabon, 24. mai. REUTER.
MARIO Soares, leidtogi
portúgalskra sósíaldemókrata,
fór í dag til Frakklands til við-
ræóna við evrópska skoðanabræð-
ur sína um valdabaráttu hans við
kommúnista f Portúgal. Situr
hann fund sósialista frá löndum
S-Evrópu og bendir koma hans
þangað til þess að dregið hafi
lítillega úr átökunum milli flokk-
anna í Portúgal — því sl. fimmtu-
dag tilkynnti Soares, að hann ætti
ekki heimangengt. Fundurinn fer
fram á sveitarsetri Francois
Hallast að
F-16 þotum
Haag, 24. mai. Reuter.
HOLLENZKA stjórnin tók í
dag ákvörðun um að endur-
nýja orrustuvélaflota sinn
með bandarísku þotunni F-16
fremur en frönsku Mirage-
þotunni F-l, en þó með þeim
fyrirvara að Danir, Belgar og
Norðmenn geri slfkt hið sama.
Norðmenn hafa þegar lýst yfir
að þeir hallist að bandarísku
þotunni og búist er við að Dan-
ir geri slíkt hið sama, en
Belgar hallast enn að Mirage-
þotunni. Löndin fjögur þurfa
að kaupa 350 nýjar þotur til að
leysa Starfighter-þoturnar
gömlu af hólmi og er gert ráð
fyrir að kostnaðurinn verði
um 2 milljarðar dollara.
Mitterand, leiðtoga franskra
sósíalista. f námunda við
Bordeaux í S-Frakklandi.
1 morgun sendu sósíaldemó-
kratar hins vegar frá sér yfirlýs-
ingu, þar sem kommúnistar voru
sakaðir um að reyna að útiloka þá
frá stjórnarsamstarfi. Kom þessi
yfirlýsing í kjölfar ásökunar
kommúnista í gærkveldi um að
sósíaldemókratar hunzuðu stjórn-
arfundi og stefndu þar með í
hættu öllu valdakerfinu í land-
inu. Sagði þar og, að þing það sem
til var kosið í april sl. og koma á
saman 2. júní, væri ekki rétt-
lætanlegt.
Byltingarráð hersins sat á fundi
fram eftir nóttu eftir að hafa
hlýtt á röksemdir leiðtoga
kommúnista og sósíaldemokrata i
gærkveldi. Er haft eftir áreiðan-
Iegum heimildum, að ráðið hafi
óskað eftir því við leiðtogana að
þeir legðu fram snemma í næstu
viku ýtarlega greinargerð um
sjónarmið sín varðandi framtíð
Portúgals og hvernig leysa skuli
hin ýmsu vandamál, í bráð og
lengd.
Þá hefur byltingarráðið boðað
til þings 250 herforingja og
annarra á mánudag til þess að
ræða, hvort orðið skuli við kröf-
um sósialdemókrata um, að her-
inn bindi enda á kverkatak
kommúnista á fjölmiðlum lands-
ins, verkalýðsfélögum og bæjar-
og sveitarstjórnum.
Ljósmynd: Friðþjófur Helgason.
Sunnanátt og skýjað sunnanlands og vestan, en bjartviðri norðan og
austanlands segir veðurstofan, en lofar okkur litlum hitabreytingum.
Þrátt fyrir að sólin sé horfin hér sunnanlands í bili, er ekki að sjá
annað en þessar stöllur séu f sólskinsskapi.
Róðrabann
Sjómenn krefjast hærra fiskverðs
Þórshöfn, 24. mai. Einkaskeyti
til Morgunblaðsins frá
Jogvan Arge.
í Færeyjum
FÆREYSKA útvegsbændafélag-
ið, Meginfélag útróðrarmanna
sem telur um 1600 manns á 70
kútterum og fjölda trillubáta hef-
ur sett á róðrabann til að mót-
mæla lágu hráefnisverði. Gekk
bannið f gildi um hádegisbilið í
gær og lagðist þá þegar niður öil
vinna í fiskiðjuverum í
Færeyjum. Krefst félagið þess að
fiskverð verði þegar hækkað til
að grundvöllur geti orðið fyrir
útgerð bátanna. 45 kútterar voru
nýbyrjaðir togveiðar í sérstökum
hólfum innan 12 mílna fiskveiði-
lögsögunnar, en slík veiði er
heimiluð frá 15. maf til 15.
september. t upphafi vertíðar er
mestur hluti aflans flatfiskur,
rauðspretta og rauðtunga og segja
sjómennirnir að verðið á þessum
tegundum sé svo lágt, að það
borgi sig ekki að gera út. Einnig
segja þeir að verðið á þorski og
öðrum fiski sé of lágt.
Samningaviðræður hafa staðið
yfir milli fulltrúa sjómannanna
og landsstjórnarinnar um lausn
málsins og hefur verð á flatfiski
m.a. verið hækkað úr 92 aurum kg
Utlagastjórn Palest-
inu-Araba í Líbýu?
Kuwait, 24. maí. REUTER.
HAFT er eftir Muammar Gaddaf i,
leiðtoga Libyu, f samtali við
hann, sem birtist í Kuwait i dag,
að hann hafi hoðið Palestínu-
Aröbum að setja upp útlagast jórn
í Libyu.
í 1 kr. 49 á rauðtungu og kg af
rauðsprettu úr 68 aurum í 92
aura. Þetta segja sjómennirnir
ekki nægilega hækkun. Heimildin
til veiða innan fiskveiðilögsög-
unnar hefur verið bundin þvi
HAFT er eftir áreiðanlegum
heimildum f Washington, að
Rockefeller-nefndin hafi undir
höndum gögn er sýni, að háttsett-
ir menn f stjórn Johns F. Kenne-
dys hafi rætt þann möguleika á
leynifundi 10. ágúst 1962, að ráða
Fidel Castro, forsætisráðherra
Kúbu, af dögum. Samkvæmt
upplýsingum frá heimildar-
manni, er séð hefur fundargerð
frá þessum fundi, var hugmynd-
inni vísað afdráttarlaust á bug.
Aðrar heimildir herma, að tveim-
ur dögum síðar hafi aðstoðarmað-
ur þáverandi landvarnaráðherra,
Robert McNamara, skrifað fyrir-
skipun til bandarísku leyniþjón-
ustunnar, CIA, um að láta útbúa
áætlun þar að lútandi. Hún hafi
einnig verið afturkölluð en málið
þar með ekki verið úr sögunni,
því eftir það hafi verið gerðar
tilraunir til að losna við Castro.
Umræddan fund sátu meðal
annarra McNamara, Dean Rusk,
skilyrði að bátarnir landi afla sín-
um í Færeyjum, en nú hefur
þetta skilyrði verið fellt niður að
kröfu sjómanna og þeim heimilað
að selja aflann í Bretlandi eða
Danmörku. Þá krefjast sjómenn-
irnir að verðákvarðanir á fiski
verði látnar gilda til lengri tíma
og að Lögþingið verði þegar
kallað saman til að undirbúa
nauðsynlegar lagabreytingar.
þáverandi utanríkisráðherra, Jon
A. McCone, þá forstöðumaður
GIA og McGeorge Bundy, ráðgjafi
Kennedys forseta.
Heimildarmaður AP segir, að
fyrirskipunin til CIA hafi verið
skrifuð af Edward G. Lansdale
höfuðsmanni. Hún hafi verið aft-
urkölluð — en eftir sem áður hafi
verið útbúnar áætlanir um ýmsar
leiðir til að losna við Castro, allt
frá uppreisn gegn honum til líf-
láts. I símtali við AP könnuðust
hvorki McNamara né Lansdale
við umrædda fyrirskipun til CIA.
Rockefeller-nefndin var upp-
haflega sett á laggirnar að boði
Geralds Ford forseta til þess að
rannsaka ákærur um meiriháttar
njósnastarfsemi bandarísku
leyniþjónustunnar innan Banda-
rikjanna, en umboð nefndarinnar
hefur siðan verið aukið svo, að
það nær einnig til meintra ráða-
gerða, framkvæmdra og ófram-
kvæmdra, um pólitísk morð, er
CIA hafi átt hlut að erlendis. Bú-
izt er við skýrslu nefndarinnar 6.
Ekki var hægt að verða við
þessari kröfu, þar sem Atli Dam
lögmaður og Peter Reinert fiski-
málaráðherra sitja nú fund NA-
Atlantshafsnefndarinnar i
London og hafnað var einnig
kröfu um að þeir yrðu kallaðir
heim þegar í stað. Mun þvi róðra-
bannið gilda áfram þar til tvi-
menningarnir koma heim i næstu
viku.
júní nk. og er haft eftir varafor-
manni hennar, C. Douglas Dillon,
að þar verði ekki að finna neinar
meiriháttar uppljóstranir um
njósnastarfsemi CIA heimafyrir.
Jafnframt er haft eftir öldunga-
deildarþingmanninum Frank
Church, demokrata frá Idaho, að
rannsóknamefnd öldungadeildar
bandaríska þingsins sé nú að
kanna, hvar i stjórnarstiganum
bandaríska hafi verið tekin
ákvörðun um að láta útbúa fyrir-
skipunina til CIA, sem Lansdale
er sagður hafa skrifað. Lét
Church svo um mælt eftir þriggja
klst. fund nefndarinnar með
William E. Colby, yfirmanni CIA,
að enn væri mörgum spurningum
ósvarað í sambandi við þetta mál.
Þá skýrói dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, Edward Levi,
frá pvi i dag, að J. Edgar Hoover,
fyrrum yfirmaður FBI hafi borið
ábyrgð á því, að meðlimir
mafíunnar voru settir til höfuðs
kommúnistaflokknum banda-
riska.
W
Aætlanir QA um tilræði
við Castro rannsakaðar
Washington, 24. mai. AP.
Spánska
Sahara fær
fullveldi
Madrid, 24. maí. Reuter.
SPANSKA stjórnin lýsti því
yfir í dag, að hún myndi veita
Spönsku Sahara fullveldi eins
fljótt og unnt væri. Miklar
deilur hafa verið um þetta
svæði, sem býr yfir auðugum
fosfatnámum og gera
Mauritania og Marokkó einnig
tilkall til yfirráða. Um 74000
manns búa á svæðinu. Stjórn-
málafréttaritarar túlka þessa
yfirlýsingu I þá átt að Spán-
verjar muni fremur láta
svæðið af hendi en að lenda í
nýlendustríði.
Tveir bræð-
ur skotnir á
N-írlandi
Belfast, 24. mai. Reuter.
TVEIR kaþólskir bræður voru
skotnir til bana í Belfast í gær
og 11 manns særðust í
sprengjutilræðum og skotárás-
um. Irski Lýðveldisherinn IRA
hefur virt vopnahlé sitt við
Breta frá því um miðjan
febrúar sl., en ekki hefur
tekizt að koma í veg fyrir inn-
byrðis deilur milli öfgahópa
mótmælenda og kaþólskra.
Bræðurnir tveir sátu að spilum
með vinum sinum úr hópi mót-
mælenda, er grímuklæddir
menn ruddust inn í íbúðina og
tóku þá af lífi með skoti i
hnakkann.
Portugalsher
fái friðarverð-
launin
Ósló, 24. mai. Reuter.
LAGT hefur verið til við
norsku Nóbelsnefndina, að
Portúgalsher verði veitt friðar-
verðlaun Nóbels, að þvf er
áreiðanlegar heimildir i Ósló
hermdu í morgun. Tim Greve,
forstöðumaður stofnunar-
innar, neitaði að segja nokkuð
um málið, en það er venja
nefndarinnar að ræða ekki um
tillögur um verðlaunahafa.
Rússnesktillaga
umþorskveiðar
við Noreg
London, 24. mai. Reuter.
SOVÉZKA stjórnin hefur lagt
fram skriflega tillögu á fundi
NA-Atlantshafsnefndarinnar
um tilhögun þorskveiða undan
ströndum N-Noregs. Ekki er
vitað í hverju þessi tillaga er
fólgin og hafa talsmenn brezka
sjávarútvegsráðuneytisins
neitað að láta nokkuð uppi um
hana fyrr en fundi nefndar-
innar, sem er lokaður, lýkur í
þessari viku.