Morgunblaðið - 25.05.1975, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1975
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLE/Ð/R
/^BÍLALEIGAN"”
^IEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIOINJŒGLR
Útvarpog stereo, kasettutæki
Fa
Itll. t / / /f.H
'AiAjm
BILALEIGA
Car Rental
{ÆA SENDUM
41660-42902
bilaleigan
MIÐBORG H.F.
sími 19492
Nýir Datsun-bílar.
Brynjudalsá
Nokkrir dagar til sölu í
sumar.
Hafið samband um
helgar í síma 38989.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU
A SUNNUDAGSKVÖLD verö-
ur í sjónvarpinu eitt af ágætum
sjónvarpsleikritum, sem Grana-
da sjónvarpið brezka hefur gert
eftir sögum rithöfundanna H.E.
Bates og A.E. Coppard undir
heitinu Sveitamál eða á hér-
lenda tungu líklega lands-
byggðarmál. En sögurnar eru
allar þekktar vel og gerast í
sveit i Englandi á fyrstu áratug-
um aldarinnar. Þegar hefur ein
saga Bates Fegurðardísirnar
verið sýnd hér og þótti góð.
Hinar verða sýndar hér áfram í
sumar. Leikritið á sunnudaginn
nefnist „Stúlkan við lækinn“
eða „The Watercress Girl“ og
tekur 52 mínútur. Hún fjallar
um stúlku sem skvettir eitri i
andlit annarrar stúlku en hin
raunverulega ástæða gerða
hennar kemur okki fram fyrr
en of seint. Fyrstu 6
sögurnar komu í sjónvarpsgerð
Susan Fleetwood sem dularfulla stúlkan
vid lækinn.
Stulkan með
hrafnaklukkurnar
Dað eru
komnlr gestlr
í Bretlandi, og hlutu frábæra
dóma. Sunday Times kallaði
þetta „stórkostlega mynda-
seríu“, Times sagði að þær
væru í frábærum gæðaflokki og
enn hefði gagnrýnandinn eng-
an hitt, sem ekki fundust mynd-
irnar sérstæðar og hafa yfir-
burði, Daily Telegraph kallaði
þetta ánægjulegan leikrita-
flokk, Guardían einn af beztu
Ieikritaflokkunum, sem sjón-
varpið hefði sýnt um nokkurt
skeið, o.s.frv. Hafi Islendingar
eitthvað svipaðan smekk og
Bretar er því hiklaust hægt að
mæla með þessum myndum.
Sagan um stúlkuna við lækinn
Sveinn Sæmundsson kemur með gesti til sjónvarpsáhorfenda á sunnudagskvöld, kvæða-
mennina Ingþór Sigurbjörnsson ogOrm ólafsson.
kom út 1925. Coppard var þá
orðinn mjög þekktur rithöfund-
ur fyrir smásögur sínar Það er
James Saunders, sem mikið
hefur skrifað fyrir leikhús og
sjónvarp og er m.a. þekktur fyr-
ir framúrstefnuleikrit, sem hef-
ur búið söguna til sjónvarps-
flutnings. Leikritið er mjög
dramatískt.-Stúlkan við lækinn
er fangi og enginn skilur það
stolt, sem Iætur hana þegja um
leyndarmálið mikla, er olli
gerðum hennar.
1-4^43 EH HQ HEVHH*^3
SICVALDI Hjálmarsson flyíur
í kvöld kl. 19.25 í útvarp eitt af
sínum fróðlegu erindum um
dulfræði, en hann hefur allra
tslendinga lengst fengist við
sálræn vísindi eða síðan hann
var 18 ára gamall, og dvalið
langdvölum á Indlandi, nú síð-
ast fram yfir áramót við yoga-
þjálfun. Nýlega hefur hann
flutl tvö erindi af því tagi, hið
fyrra almennt um yoga og hitt
um indverskan hugsunarhátt,
sem svo sannarlega er öðru vísi
en hugsunarháttur Vestur-
landabúa og okkur framandi.
Því var gagnlegt að skyggnast
þar um gættir nú, þegar fréttir
eru að berast um líf og örlög
þjóða í Suðaustur-Asíu og við-
brögð þarlendra, sem við ekki
kunnum að túlka. Erindi Sig-
valda í kvöld fjallar um hugs-
unarhátt miðaldamannsins,
sem auðvitað hugsaði líka öðru
vísi en nútímamaðurinn, um
táknfræði hans og gullgerðar-
list. Síðar hefur Sigvaldi hug á
að taka fyrir erindi um yoga,
eins og hann af reynslu sinni
telur að það hcnti best nútíma-
fólki á Vesturlöndum og um
dulfræði.
Um það leyti sem fréttum í
sjónvarpi er að Ijúka og Onedin
að taka við á mánudagskviild,
er ástæða til að vekja athygli á
því að Halldór Laxness er þá að
hefja lestur ritgerðar, sem
hann skrifaði 1928, um Jónas
Hallgrímsson. Er það í tilefni
130. ártíðar skáldsins. Það er
alltaf fengur að heyra Halldór
lesa upp verk sín og Jónas Hall-
grfmsson hefur löngum vakið
áhuga Islendinga. Og þó! Um
það segir Halldór Laxness m.a.
í forspjalli að bók með kvæðum
og sögum Jónasar: „Skyldi ein-
hvers staðar í tímaritunum
okkar leynast eitthvað í líkingu
við kvæðið í 4. hefti Fjölnis
„smákvæði" sem veki undrun
manna eftir hundrað ár á sama
hatt og við sem nú lifum hljót-
um að undrast hverju sinni er
við lesum Gunnarshólma eða
rifjum hann upp í huganum;
Skáldskapur sem líklegur sé til
að láta seinni mönnum þykja
allt heldur dauflegt sem ort var
í kynslóðinni á undan okkur;
nútímakvæði sem segja má um
að þar hafi íslenzkri menningu
í einu átaki verið lyft á hærra
svið? Ekki fara heldur sögur af
því, að menn hafi kipt sér neitt
sérstaklega upp árið sem Gunn-
arshólmi kom á prent, nema
munnmæli segja að Bjarni
Thorarensen hafi átt að Iáta svo
ummælt að nú væri sér bezt að
hætta að yrkja, en ætli sú saga
hafi orðið til fyren laungu eft-
ir að hún átti að hafa gerst. I
raun réttri má segja að ekkert
hafi heldur gerst fyren löngu
síðar.“
Útvarp Reykiavlk
SUNNUD4GURI
SUNNUDAGUR
25. maf
8.00 Morgunandakt
Herra Sigurbjörn Einarsson
biskup flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir
8.15 Létt morgunlög
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10.
Veðurfregnir).
a. Messa í C-dúr op. 86 eftir
Beethoven.
Jennifer Vyvyan, Monica
Snclair, Richard Lewis,
Marian Nowakowski,
Beecham kórinn og Ffl-
harmónfusveit Lundúna
flytja; Sir Thomars Beecham
stjórnar.
b. Konsert fyrir flautu og
hörpu (K299) eftir Mozart.
Karlheinz Zöller, Nicanor
Zabaleta og Fflharmónfu-
sveit Berlfnar
11.00 Messa í safnaðarheimifi
Grensássóknar
Prestur: Séra Halldór S.
Gröndal.
Organleikari: Jón G.
Þórarinsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.15 Leitin að nýju tslandi
Sfðasti hluti dagskrár um að-
draganda og upphaf vestur-
ferða af tslandi á 19. öld.
Bergsteinn Jónsson lektor
tekur saman. Flytjandi
ásamt honum: Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor.
14.20 Pfanókonsert f a-moll
op. 54 eftir Schumann
Justus Frantz og Sinfónfu-
hljómsveit finnska útvarps-
ins leika; Kari Tikka stjórn-
ar. — Frá tónlistarhátfð f
Helsinki f september.
15.00 Landsleikur f knatt-
spyrnu: Island — Frakkiand
Jón Ásgeirsson lýsir sfðari
hálfleik á Laugardalsvelli.
15.55 Harmonikulög
Egil Hauge og félagar hans
leika.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Alltaf á sunnudögum
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.15 Barnatfmi: Agústa
Björnsdóttir stjórnar
Selur sefur á steini. —
Fluttar frásagnir af selum,
m.a. les Sigurður Grétar Guð-
mundsson „Lubba“ eftir
Eystein Gfslason og Sigrún
Sigurðardóttir les „Sel f
sumarleyfi" eftir Halldór
Pétursson.
18.00 Stundarkorn með
búlgarska bassasöngvaran-
um Nicolaj Ghjauroff
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Molar úr dulfræðum
miðalda
Sigvaldi Hjálmarsson flytur
erindi.
19.50 Sinfóníuhljómsveit ts-
lands leikur í útvarpssal
Stjórnandi: Páll P. Pálsson
a. Forleikur að „Hollend-
ingnum fljúgandi" eftir
Wagner.
b. Intermezzo eftir Mascagni.
c. Ensk þjóðlagasvfta eftir
Williams.
20.20 Frá afdegi til ævikvölds.
Nokkur brot um konuna f
fslenzkum bókmenntum.
Annar þáttur: Þjóðlag. —
Gunnar Valdimarsson tekur
saman þáttinn. Flytjendur
auk hans: Helga Hjörvar,
Grfmur M. Helgason og Úlfur
Hjörvar.
21.05 Kvennaskór Suðurnesja
syngur f útvarpssal
Söngstjóri: Herbert H.
Ágústsson. Einsöngvarar:
Elfsabet Erlingsdóttir og
Rósa Helgadóttir. Undirleik-
arar: Ragnheiður Skúladótt-
ir, Hrönn Sigurmundsdóttir
og Sigrfður Þorsteinsdóttir.
21.40 „Bernskusumar“, smá-
saga eftir Jóhönnu Bryn-
jólfsdóttur
Höfundur les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Danslög
Hulda Björnsdóttir dans-
kennari velur lögin.
23.25 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sjá dagskrár mánudags bls. 41
SUNNUDAGUR
25. maf
18.00 Höfuðpaurinn
Bandarfsk teiknimynd.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
18.20 Hegðun dýranna
Bandarfskur
fræðslumyndaflokkur.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
18.45 ívar hlújárn
Bresk framhaldsmynd.
5. þáttur.
Þýðandi Ellert Sigur-
björnsson.
19.15 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og
auglýsingar
20.35 Það eru komnir
gestir
Sveinn Sæmundsson
ræðir við tvo kvæðamenn,
Ingþór Sigurbjörnsson og
Orm Ólafsson.
21.15 Lost
David Essex, Bruce
Springstein, Buddy Miles,
Sailor og fleiri flytja
vinsæl dægurlög.
21.30 Stúlkan með hrafna-
klukkurnar
Breskt sjónvarpsleikrit,
byggt á sögu eftir A.E.
Coppard.
Aðalhlutverk Susan Fleet-
wood, Gareth Thomas og
Susan Tebbs.
Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
Sagan gerist f ensku
sveitahéraði fyrir all-
löngu. Ung stúlka er
ákærð fyrir að hafa skvett
eitri f andlit annarrar
stúlku. Flestum þykir
ljóst, að afbrýðisemi sé
meginástæðan fyrir
þessum verknaði, en fleiri
orsakir eiga þó eftir að
koma f ljós.
22.20 Albert Schweitzer
Sfðari hluti þýskrar
heimildamyndar um
mannvininn Albert
Schweitzer og æviferil
hans.
Þýðandi Auður
Gestsdóttir.
Fyrri hluti myndarinnar
var sýndur á hvítasunnu-
dag.
22.55 Vísindastofnunin í
Austur-Sfberfu
Sovésk fræðslumynd um
rannsóknir, sem unnið er
að austur á Kamtsjaka-
skaga.
Þýðandi Hallveig
Thorlacius. Þulur, ásamt
henni, Óskar Ingi-
marsson.
23.15 Að kvöldi dags
Dr. Jakob Jónsson flytur
hugvekju.
23.25 Dagskrárlok.