Morgunblaðið - 25.05.1975, Síða 32
32
MORG UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAI 1975
Bazar og kaffisala
að Fólkvangi í dag kl. 3.
Kvenfélagið Esja, Kjalarnesi.
Barnavefnaður
— dagnámskeið
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14.00
— 16.15. Byrjar 29. maí — 1 0. júlí.
íslenzkur heimilisiðnaður.
Hafnarstræti 3. Simi 11 785.
LAND — LAXVEIÐI
UM 50 HEKTARA LAND ÁSAMT FALLEGU HÚSI Á
BEZTA STAÐ í Borgarfirði til sölu. LAXVEIÐI FYLGIR.
HENTUGT FYRIR FÉLAGSSAMTÖK OG STARFS-
HÓPA.
ÞEIR, SEM HAFA ÁHUGA SENDI INN NAFN,
HEIMILISFANG OG SÍMA MERKT: „LAXVEIÐI —
9775 ", FYRIR 30. MAI N.K.
NÝ BÓK FRÁ
MÁLI OG
MENNINGU:
EDDA
Þórbergs
Þórðarsonar
„Ég hefi hvorki haft ástæður né löngun til
að vanda svo til Ijóðagerðar minnar sem
þeirra er siður, er telja skáldlistina lífsköll-
un sfna... enda aldrei þráð sæti á skálda-
bekk", sagði Þórbergur Þórðarson í inn-
gangsorðum að Hvitum hröfnum 1922, en í
þeirri bók er samankominn meginhlutinn af
kveðskap Þórbergs. En þó að skáldlistin
haf i aðeins verið aukageta í höf undarstarf i
Þórbergs Þórðarsonar, þá eru kvæði hans
raunar meitluð af sama málminum og önn-
ur verk hans. Hvítir hrafnar 1922, líkt og
Bréf til Láru 1924, voru uppreisn gegn
„slepju og væmni samtíðarinnar", og brutu
svo mjög f bág við það sem þá þótti rétt I
skáldskap, að fæstir samverkamenn Þór-
bergs í víngarði andans gátu litið þá réttu
auga. Ekki er þó ólíklegt að Hvítir hraf nar
verði endingarbetri en margt það sem var
hærra metið um þær mundir. — Árið 1941
gaf Þórbergur Hvíta hraf na og önnur kvæði
sín út á ný og nef ndi bókina Eddu Þórbergs
Þórðarsonar.
Þar brá hann á það nýmæli að birta með
hverju kvæði athugasemdir um sögu þess
og aðdraganda og skýringar ef með þurfti,
og urðu víða úr þessu smáritgerðir þar sem
ritlist og fyndni Þórbergs nýtur sín með á-
gætum. f þessum smágreinum segir hann
margt af sjálfum sér og tíma sínum sem
ekki er annarsstaðar að finna.
( hinni nýju útgáfu Máls og menningar á
Eddu Þórbergs er bætt við kvæðum sem
síðar eru ort, og er bókin nú aukin um 50
blaðsíður.
MÁL OG MENNING
Laugavegi 18, Reykjavík.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Aðalfundur
Dagsbrúnar verður haldinn í Iðnó laugardaginn
31. maí n.k. kl. 2. e.h.
Reikningar félagsins fyrir árið 1974 liggja
frammi I skrifstofunni. Stjórnin.
BUXNASETT
KVENBLÚSSUR
KVENBUXUR
KVENPILS o.fl.
Allt vörur á gamla verðinu.
Elízubúðin, Skipholti 5.
"C?
Icefood
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4—6,
Hafnarfirði
Seljum reyktan lax og graflax
Tökum lax í reykingu
Útbúum graflax
Vacuum pakkað ef óskað er
Póstsendum um allan heim.
ÍSLENZK MATVÆLI
SÍMI 51455
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNAR. Einn aðstoðarlæknir óskast
til starfa á Barnaspitala Hringsins frá 1. ágúst n.k. og tveir
frá 1. september n.k. Reiknað er með að þeir vinni þar í
sex mánuði hvor, en ekki ár, eins og áður hefur verið
auglýst. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir Barnaspital-
ans. Umsóknarfrestur er til 1 8. júní n.k.
DEILDARH JÚKRUNARKONA óskast á kven-
sjúkdómadeild Fæðingardeildar hið fyrsta eða eftir sam-
komulagi. Umsóknarfrestur er til 15. júni n.k.
HJÚKRUNARKONA óskast á Barnaspitala Hrings-
ins í fast starf, ennfremur óskast hjúkrunarkonur á hinar
ýmsu deildir spitalans i fullt starf eða hluta úr fullu starfi til
afleysinga. Nánari upplýsingar veitir forstöðukonan, sími
24160.
KLEPPSSPÍTALINN:
MEINATÆKNIR óskast til starfa við spítalann frá 1.
júli n.k. eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 23.
júní n.k. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir spítalans.
Umsóknum, er greini aldur, menntun og fyrri störf, ber að
skila til skrifstofu rikisspitalanna, Umsóknareyðublöð fyrir-
liggjandi á sama stað.
Reykjavik 24. maí 1975.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPfTALANNA
EIRlKSGÖTU 5,SÍM111765
— Minning Jens
Framhald af bls. 38
sældir starfsbræðra sinna og yfir-
manna.
Fyrir 5—6 árum hrakaði heilsu
hans og varð hann að leggjast
undir uppskurð á sjúkrahúsi, en 3
árum eftir það varð hann fyrir
alvarlegu slysi og náði hann ekki
fullri heilsu eftir það. Fór hún
hrakandi eftir því, sem á leið,
þannig, að hann treystist ekki til
að vinna hinar erfiðu og löngu
vaktir lögreglumannsins öllu
lengur.
Jens var mjög greindur maður
og hafði fagra og læsilega rit-
hönd. Er hann treysti sér ekki
lengur til starfa lögreglumanns-
ins var honum fengið starf í skrif-
stofu embættisins til aðstoðar við
sakadómsfulltrúa mína og ýmis
önnur skyld störf. Þetta nýja starf
sitt á skrifstofunni rækti Jens
með sérstakri prýði og létti með
því starf skrifstofufólksins svo
um munaði. Varð hann brátt tal-
inn óminnandi í starfi sínu enda
var hann greiðasamur og hjálp-
samur vió annarra störf, ef á
þurfti að halda. Varð hann strax
hvers manns hugljúfi á skrifstof-
unni. Við fráfall hans varð þar
skarð fyrir skildi.
Jens Þórðarson var mikill
mannkostamaður í hvívetna, hóg-
vær en nokkuð dulur i skapi,
skyldurækinn í störfum sínum,
sem hann leysti af hendi með
mikilli sæmd og réttlæti. Hann
hafði gott lag á mönnum og leysti
hin ýmsu vandamál lögreglu-
mannsins, sem upp komu í sam-
skiptum við aðra, með lipurð og
rósemi, en gat verið harður i horn
að taka, ef hann sá, að annað
dugði ekki, enda var hann af-
burða vel að manni, ef kröftum
þurfti að beita. Prúðmenni var
hann í allri framgöngu og velmet-
inn af starfsbræðrum sínum.
Hann var vinsæll meðal almenn-
ings og kunningja og vellátinn í
starfi af öllum sem til hans
þekktu.
Frá fyrstu kynnum tókst með
okkur vinátta, sem aldrei bar
skugga á, enda var hann traustur
maður og trygglyndur með af-
brigðutn. Er mér mikil eftirsjá að
svo góðum og einlægum vini og
starfsmanni.
Jens var kvæntur hinni
ágætustu konu, Þuríði Halldórs-
dóttur, sem lifir mann sinn og
reyndist honum hinn mesta
hjálparhella til hins siðasta í veik-
indum hans. Var hjónaband
þeirra hamingjusamt og heilla-
ríkt. Eftirlifandi börn þeirra eru
fjögur; öll uppkomin: Kristinn,
búsettur á Súgandafirði, Alda,
gjaldkeri í Útvegsbankanum i
Keflavík, Þorkell, enn i heima-
húsum, og Halldór, lögregluvarð-
stjóri í Keflavík og Gullbringu-
sýslu.
Eg kveð hinn látna ágætismann
með trega og með þakklæti fyrir
órofa tryggð og vináttu í minn
garð allt frá fyrstu kynnum, en
um leið færi ég og fjölskylda mín
eftirlifandi eiginkonu hans,
Þuríði Halldórsdóttur, og öllu
öðru venzlafólki samúðarkveðjur
og innilega hluttekningu vegna
fráfalls þessa mikla
drengskaparmanns.
Alfreð Gfslason.