Morgunblaðið - 25.05.1975, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAI 1975
Starfssvæðin eru oft dreifð og afskekkt A þessari mynd sjáum við að flugvélar
eru notaðar til Biblíudreifingarstarfs.
Biblian er grundvöllur kristinnar
trúar. Þess vegna er það svo mikil-
vægt að hver þjóð og þjóðarbrot
eigi hana ð sinu eigin máli. Svart-
ir, hvitir, brúnir og rauðir menn
hafa allir rétt til að heyra fagn-
aðarerindið. „Wycliffe Bible
Translators" vilja stuðla að þvi að
allir geti heyrt og lesið fagnaðar-
erindið á slnu máli og nú vinna
þeir að þvi að koma um 600
tungumálum á pappir, kenna fólki
að lesa og þýða Bibliuna fyrir það.
John Wycliffe, heimspekingur og
guðfræðingur i Englandi á 14. öld,
var aðalhvatamaður þess að Bibli-
an var þýdd á enska tungu og
lagði hann með þvi grundvöllinn
Umsjón:
Jóhannes Tómasson
Gunnar E. Finnbogason
Biblía til allra
að ensku ritmáli. Þessi öflugustu
biblíuþýðingarsamtök i heimi
draga nafn sitt af honum.
Með þýðingar- og kennslustarfi
sínu gera Wycliffe-samtökin kirkj-
urnar sjálfstæðari og hægt er að
byggja meira á þeim innfæddu við
uppfræðsluna i Guðs orði. f
heiminum eru talin vera um 5.000
tungumál og af þessum mikla
fjölda eru ekki enn til Bibliur
nema á 1.500 málum. Mörg
tungumálanna eru töluð af mjög
fáum, oft innan við hálfa milljón. í
Nepal eru t.d. 40 álik mál og
vinna Wycliffe-menn með um 20
þeirra. „Wycliffe Bible Trans-
lators" vinnur mjög þarft verk.
Margar þjóðir og bióðarbrot hafa
eignazt Bibliuna eða einstök rit
hennar á sinu máli. Margir hafa
líka lært að lesa sitt eigið mál og
hefur Wycliffe-hreyfingin stuðlað
mjög að útrýmingu ólæsis i heim
inum.
í sumum tilfellum hefur starfs-
fólk Wycliffe þurft að búa til rit-
mál og er það starf mjög erfitt og
krefst þolinmæði, en það er unnið
í kærleika og trú á mátt Guðs orðs
til að frelsa synduga menn.
Við íslendingar megum vera
þakklátir fyrir að eiga Bibliuna á
okkar máli og einnig fyrir það
hversu snemma við fengum hana.
og enn eru margar þjóðir, jafnvel
fjölmennari en við erum sem ekki
hafa enn eianazt Bibliuna
Stór dagur hjá Wycliffe-kristniboðum: Biblían dreífð á máli þeirra.innfæddu.
Smá hefti eru oft fjölrituð fyrir þá, sem geta lesið sitt eigið mál
Trésmiðjan Víðir hf. auglýsir:
gTCRUTSALA
Vegna flutnings úr verksmiðjuhúsi
okkar í nýtt húsnæði, seljum við
næstu daga húsgögn með miklum
afslætti
Notið þetta einstaka tækifæri
og gerið góð kaup
Trésmiðjan Víðir hf.
Símar 22222 — 22229
Litil tölva
til leigu eða sölu
Lítil fljótvirk segulplata er á góðri
leið með að hrinda skjalaskápnum,
upplýsingamöppum og tölvukortum
út af vinsældalistanum.
Segulplatan er hluti af IBM System
/32, nýju tölvukerfi, sem er á stærð
við venjulegt skrifborð. IBM System
/32 hentar litlum íslenzkum fyrir-
tækjum mjög vel hvað snertir af-
köst, færzlumöguleika, — kaup eða
leigu.
IBM System /32 sýnir útreikninga
sina á sjónvarpsskermi og skrifar
niðurstöður sínar út á prentara.
Fyrirferðarlitlir seguldiskar og disk-
ettur sjá um upplýsingar til úr-
vinnslu á hvers konar bókhaldi,
yfirlits og samanburðarreikningum,
°g uppgjöri.
Svo að segja hver sem er getur
stjórnað System /32 eftir fárra
klukkustunda þjálfun. Hefðbundið
letur og töluborð eykur öryggi
stjórnandans.
Ef þér efist um að fyfirtæki yðar
sé nógu stórt til að geta sparað sér
vinnu og tírna með tölvukerfi, hafið
samband við sölumenn IBM.
System /32 býður fyrirtæki yðar
hagstæð leigukjör eða betra kaup-
verð en yður grunar.
IBM World Trade Corpöration
Klapparstíg 27, Reykjavík, sími 27700