Morgunblaðið - 25.05.1975, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAl 1975
Tómas Guðmundsson
ísafirði — Minning
Hinn 28. marz lézt á ísafirði
Tómas Guðmundsson fyrrum
bóndi 87 ára að aldri. Mér undir-
rituðum er bæði ljúft og skylt að
minnast þessa fósturbróður mins
fáeinum lfnum með þakklæti. En
átta vikna gamall var ég tekinn i
fóstur á heimili foreldra hans og
systra, sem nú eru látnar. Það var
út af fyrir sig mikið lán að lenda á
slíku heimili og hljóta gott upp-
eldi og atlæti allt umkomulausum
dreng um siðustu aldamót, en þá
var margt öðru vísi en nú.
Tómas Guðmundsson var fædd-
ur að Nesi 26. sedember 1888.
Hann kvæntist í desember 1918
Ragnheiði Jónsdóttur, ágætri
myndarkonu. Hófu þau þá búskap
á Höfðaströnd og bjuggu þar til
1926, síðan í Kjós til 1952,
Sútarabúðum 1952-54, á Stað i 6 ár
-og þá aftur í Sútarabúðum 1960-
62. Eftir það var hann á Isafirði.
Þannig var ævi hans i stórum
dráttum, en þessi upptalning seg-
ir þó hæsta lítið. Hann fæddist á
höröum vetri, lifði á erfiðum tim-
um, harðindaár og kreppur, en
stöð öll veður, og það sem meira
var: Honum voru falin mörg trú-
naðarstörf og ábyrgðarstöður.
Kveðjuorð:
Jens Þórðarson
lögregluvarðstjóri
Jens Þórðarson, lögregluvarð-
stjóri í Keflavík, andaðist hinn 6.
apríl 1975 og var jarðsettur hinn
12. s.m., tæplega 69 ára að aldri.
Ég hefði viljaö minnast hans í
minningargrein á útfarardegi en
af þvi gat ekki orðið af ástæðum,
sem hér verða ekki greindar. Ætt
hans og uppruni verður því ekki
rakin hér, heldur kveðja frá vini
til vinar og samstarfsmanns.
Kynni mín af Jens heitnum
hófust árið 1947 þegar hann var
ráðinn sem lögreglumaður í
Keflavík. Ég hafði áður haft af-
spurnir af manninum Jens Þórð-
arsyni, sem allar hnigu í þá átt, að
hann mundi reynast hæfur í
starfi enda brást það ekki. Lög-
reglumansstarfi sínu gegndi hann
með mikilli prýði og eftir að hafa
staðizt meirapróf lögregluskólans
var hann gerður að lögregluvarð-
stjóra. Lögreglustörfum sínum
gegndi hann alla tið með stakri
samvizkusemi við vaxandi vin-
Framhald á bls. 32
Útför móður okkar og tengdamóður
MAGÐALENU NÍELSDÓTTUR,
fri Vfk, Stykkishólmi,
verður gerð frá Stykkishólmskirkju þriðjudaginn 27. maí kl 14
Böm og tengdabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ODDUR G. RÖGNVALDSSON,
Vesturgötu 56,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 26 mai kl 10 30.
Arndis Ólafsdóttir,
Ólafur Guðni Oddsson, Ragnhildur Gunnarsdóttir,
ÞórSur Oddsson, Hrldur Maríasdóttir
og barnabörn.
+
Útför föður okkar, tengdaföður og afa
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR
forstjóra
fer fram frá Frlkirkjunni i Reykjavík þriðjudaginn 27 mal kl. 1 5.
Þeir sem vildu minnast hans, vinsamlegast láti liknarstofnanir njóta
þess
Guðrún Kristjánsdóttir. Hannes Guðmundsson,
Hjalti Geir Kristjánsson. Sigríður Th. Erlendsdóttir,
og barnabörn.
+
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýnt hafa okkur samúð
við andlát og útför eiginkonu minnar.'móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu
LAUFEYJAR GUNNLAUGSDÓTTUR,
Sóleyjargotu 12, Akranesi.
Gunnar Sigurðsson
Gunnlaugur Gunnarsson,
Helga Gunnarsdóttir
Kristjana Jónsdóttir,
Ingunn Gunnarsdóttir,
Svava Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurður Helgason,
Sigurður Gunnarsson,
Magnús Kristjánsson,
Gunnar Gunnarsson,
Oddur G. Rögnvalds■
son — Kveðja
Hann reyndist líka þeim vanda
vaxinn, og hann brást eigi þeim
trúnaði, er honum var sýndur.
Þannig var hann um tima far-
kennari, póstur í 30 ár, hrepp-
stjóri í allmörg ár. í öllu reyndist
hann hinn trúi, dyggi þjónn, sem
var trúr yfir litlu, og sífellt settur
yfir meira. Tómas heitinn var
ætíð grannholda, léttleikamaður,
léttur í spori og glaður í lund, þótt
við erfiðleika væri að etja.
Grunnavíkurhreppur er nú af-
skekkt sveit og eyðileg. En eitt
sinn var þar þó fagurt mannlíf.
Það er óhætt að segja, að það hafi
ekki sízt byggzt á þeim hjónum
Ragnheiði og Tómasi, Ragnheiði
konu sina missti Tómas 1968. Þau
ólu upp þrjú börn, Rögnu, Elínu
og Ragnar Inga. Stjúpbörnum sín-
um tveimur, Jónínu og Einari, var
hann einnig jafnan sem bezti
faðir.
Þeim sendi ég nú ásamt öllum
öðrum eftirlifandi vinum og
vandamönnum innilegar sam-
úðarkveðjur og þakka ógleyman-
legar viðtökur á Isafirði við útför
Tómasar og allt gott á liðnum
árum. Megi Guð blessa ykkur öll.
Að lokum kveð ég vin minn og
uppeldisbróður, þótt kveðja mín
komi nokkuð seint: Ear þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hrafnistu, 1. maí 1975.
Sumarliði Eyjólfsson.
Fæddur 9. nóvember 1894
Dáinn 19. maí 1975.
Fallinn er nú i valinn sómamað-
ur af breiðfirzku höfðingjakyni,
hann lézt í Borgarspítalanum 19.
þ.m. sem fyrr segir. Oddur var
fæddur að Innri-Fagradal við
Gilsfjörð í Dölum vestur. Var
hann því rúmlega áttræður að
aldri þá er hann lézt.
Hann var sonur heiðurs-
hjónanna Önnu Oddsdóttur, nafn-
kunnrar ljósmóður í byggðum
Breiðafjarðar, af hinni velþekktu
Ormsætt, sem fjölmenn er við
Breiðafjörð og á Suðvesturlandi,
og faðir hans Rögnvaldur R.
Magnúsen frá Fagradal í Saur-
bæjarhreppi, og síðast kaup-
maður i Tjaldanesi.
Hann var kominn af hinni
gömlu Skarðsætt frá Skarði á
Skarðströnd, enda var séra
Friðrik Eggerz í Akureyjum á
Gilsfirði langafi Odds. Systkini
Odds voru þessi: Jón og Guðrún,
dóu ung að aldri, Axel hljómlist-
armaður og starfsmaður Reykja-
vikurborgar, dáinn fyrir
nokkrum árum, og Klara, ekkja
Skúla Eggertssonar rakara-
meistara.
Ungur að árum fluttist Oddur
heitinn til Reykjavíkur, þar sem
hann stundaði verzlunarstörf um
langan aldur, ásamt störfum í
slökkviliði Reykjavíkurborgar, og
var Oddur heitinn virtur starfs-
maður alla ævi, enda naut hann
aðstoðar sinnar ágætu eiginkonu
frú Arndísar Ölafsdóttur Páls-
sonar, sem komin er af vestfirzku
höfðingjakyni og sem lifir mann
sinn. Synir þessara heiðurshjóna
eru Ölafur, sem er danskmennt-
aður tæknifræðingur og kennari,
og Þórður, velþekktur skipstjóri á
Vestfjörðum, en mun nú vera
búsettur um hrið i Afriku á veg-
um Sameinuðu þjóðanna.
Nú þegar vegir skiljast, koma í
Alfons Gíslason
frá Hnífsdal
Alfons Gislason fyrrverandi
hreppstjóri, simstöðvarstjóri og
bakari frá Hnífsdal er látinn, eft-
ir stutta en erfiða sjúkdómslegu á
83. aldursári. Utför hans fer fram
+
Útför eiginmanns míns
JÓNS Ó. NIKULÁSSONAR,
skipstjóra
Ljósheimum 20
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 27. maí kl. 13.30 Blóm og
kransar afbeðin, en þeir sem vilja minnast hins látna er bent á
Slysavarnafélag íslands.
Fyrir hönd barna og annarra vandamanna Margrét Kristinsdóttir
+
Eiginkona mln,
KRISTJANA JÓSEFSDÓTTIR,
frð Görðum. Aðalvlk,
Laugarnesvegi 106, Rvk.
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 26. maí kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hennar, láti
llknarstofnanir njóta þess
Betúel Jón Betúelsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför,
DÝRFINNU GUÐJÓNSDÓTTUR.
Safamýri 87,
Einnig þökkum við læknum og hjúkrunarliði á Borgarspítalanum, fyrir
frábæra hjúkrun.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þórunn Guðjónsdóttir,
Ingigerður Eggertsdóttir,
Jóna Sigurðardóttir,
Jóhann Bjarnason,
Einar Guðjónsson,
Kristinn Auðunsson.
frá Hnífsdalskapellu á morgun,
mánudag.
Þegar við 3 systkinin stóðum
allt í einu uppi móðurlaus, korn-
ung, þá varð það ein okkar gæfa
að lenda að nokkru leyti undir
verndarvæng Aifonsar og eiga
hann siðan öll okkar uppvaxtarár
að vini og athvarfi.
Heimilið i Stekkjarhúsinu í
Hnífsdal var stórt. Þar bjuggu afi
okkar og amma, Sigurður Þor-
varðarson, útgerðar- og athafna-
maður og kona hans Halldóra
Sveinsdóttir ásamt syni sínum
Þorvarði, dóttur sinni og manni
hennar, sem voru foreldrar okkar
og Helgu dóttur þeirra, sem þá
var nýlega gift Alfonsi. Hjú höfðu
þau gömlu hjónin á heimili sínu
eins og þá var titt og var allt þetta
fólk ein fjölskylda.
Afi og amma sáu til þess að við
börnin tvistruðumst ekki við and-
lát móður okkar, heldur yrðum
kyrr þarna á heimilinu, en það
lenti i hlut Helgu móðursystur
okkar að ganga okkur í móðurstað
og hefir það óneitanlega komið
Alfonsi verulega á óvart að kona
hans skyldi þarna allt í einu vera
orðin 3ja barna móðir, barna ann-
ars fólks, með því umstangi og
umhyggju, sem því óhjákvæmi-
lega fylgir. En hann átti slikt
hjartarúm að við urðum aldrei
annars vör frá hans hendi en að
við værum þarna hjartanlega vel-
komin og hann leysti alla tíð okk-
ar vanda af ‘alúð og kærleika og
reyndist okkur hlýr og góður vin-
ur í alla staði. Okkur er minnis-
stæð glaðværð hans á heimilinu
og ýmsar stundir þegar hann söng
og dansaði við okkur, eftir að við
tókum að stálpast.
Helga og Alfons eignuðust svo 4
börn sjálf og ólumst við öll þarna
upp í sameiningu og var aldrei
+ neinn greinarmunur geröur a milli okkar og þeirra barna. Arin
1 Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu "h
minnar, móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, GUÐBÚNARJÓNASDÓTTUR Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar
Rafnkelsstöðum.
Guðmundur Jónsson, KARLS GfSLASONAR
Jónas Guðmundsson, Björg Árnadóttir, Njálsgötu 20.
Karólína Guðmundsd<£ttir, Sigurður Björnsson, Gunnar Guðmundsson, Gréta Úlfsdóttir, Fyrir hönd vandamanna
Ragnar Guðmundsson, Karólína Jónasdóttir,
Ása Eyjólfsdóttir, Guðný Kjartansdóttir, Gísli Karlsson.
barnabörn, og barnabarnabörn.