Morgunblaðið - 25.05.1975, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1975
Landsliðsfyrirliðinn Jóhannes Lðvaldsson
var bjartsýnn á úrslit leiksins f dag og spáði
íslenzka liðinu 2:0 sigri.
Atvinnuknattspyrnumaóurinn Asgeir Sigur-
vínsson veróur meóal íslenzku leikmannanna
f leiknum.
Tony Knapp iandsliósþjálfari.
Olafur
Ouðgeir
Jóhannes
Björn
Grétar
Knapp
Bjartsýnir landsliðsmenn
ætla sér sigur gegn Frökkum
Hveljum landann til dáða í leiknum í dag
Hróp og köll landsliðsþjálfarans
Tony Knapps ómuðu um næsta ná-
grenni hins nýja knattspyrnuvallar
þeirra Kópavogsbúa á föstudags
kvöldið. Hann hrósaði strákunum
eða skammaði eftir því sem við átti
hverju sinni þagnaði aldrei og
strákarnir þeystu fram og aftur um
völlinn eftir skipunum landsliðs-
þjálfarans og drógu hvergi af sér.
Tony Knapp hefði svo sem getað
sparað sér hrópin því eðlilega eru
landsliðsmennirnir allir af vilja gerðir
og fúsir til að taka á. Þeir ætla sér
stóra hluti í leiknum í dag. Sumir
leikmannanna eru meira að segja
svo bjartsýnir að lofa sigri, aðrir eru
hógværari trúa ekki á sigur en
kannski jafntefli og örugglega ekki
stórt tap. Um eitt voru allir leikmenn
íslenzka liðsins sammála, landsliðs
hópurinn er mjög samstilltur og þeir
geta ekki hugsað sér betri liðsein-
ingu.
Vonandi verður bjartsýni landsliðs-
mannanna þeim ekki að falli í leikn-
um í dag, því víst er að Frakkarnir
eru engin lömb að leika við. Lands-
liðsmennirnir ætla sér að uppfylla
þær vonir sem bundnar eru við þá
eftir góðan árangur í fyrra, þeir van-
meta ekki Frakkana, en bera heldur
ekki neina virðingu fyrir atvinnu-
mönnunum.
Morgunblaðið tók nokkra lands-
liðsmannanna taii á föstudagskvöld-
ið og fyrst ræddum við við landsliðs
fyrirliðann Jóhannes Eðvaldsson.
,,Búbbi" var ekki í nokkrum vafa um
það hvort liðið sigraði, en átti í
nokkrum erfiðleikum með að ákveða
hvað íslenzka liðið skoraði mörg
mörk. — Við vinnum þetta 2:0,
sagði hann þó eftir góða umhugsun.
— Vörnin verður sterkari hlutinn hjá
okkur í þessum leik, enda eðlilegt að
við leggjum meiri áherzlu á þann
hluta leiksins gegn hinum sterku
Frökkum. Við munum þó ekki
gleyma sókninni og uppskerum 2
mörk, sagði Jóhannes.
Jóhannes sagði að aðstæðurnar
væru islenzka liðinu i hag og að í
liðinu væri góður „húmor". Hvalbát
urinn er eitt af þeim nöfnum sem
danskir blaðamenn hafa sett á Jó-
hannes og við skulum vona að
„hvalbáturinn" reynist sannspár.
Grétar Magnússon úr Keflavík var
ekki síður bjartsýnn á úrslitin. Við
vinnum þetta 2:1 sagði Grétar og er
blaðamaður spurði hverjir skoruðu
mörkin sagðist hann gjarnan skyldu
sjá um annað markið. — Við hljótum
að standa okkur í þessum leik, þetta
er frábær hópur að leika með og
okkur hungrar í að sýna að leikirnir í
fyrrahaust voru ekki nein tilviljun.
Við gefum ekkert eftir og munum
berjast eins og við framast getum
sagði Grétar Magnússon og um síð-
ustu orð hans efumst við ekki. Bar-
áttan hefur einmitt verið aðalsmerki
þessa grjótharða Suðurnesjamanns.
Ásgeir Sigurvinsson gat ekki tekið
þátt í æfingunni á föstudaginn af
fullum krafti. Hann tognaði lítillega í
nára á æfingu á fimmtudaginn og í
stað þess að æfa undir stjórn Knapps
lék hann sér með knöttinn við hliðar-
línu vallarins. Ásgeir taldi meiðslin
þó ekki alvarleg og vonandi fáum við
að sjá hann í ham í leiknum í dag.
Ásgeir sá leik Frakka og Portúgala
sem fram fór í síðasta mánuði í
sjónvarpi og sagði hann að Frakkarn-
ir hefðu yfir mjög skemmtilegu liði
að ráða. Þeir hefðu þó ekki staðið sig
vel gegn Portúgölunum, en þegar
þeir næðu sér upp væri liðið geysi-
lega sterkt, með léttleikandi og
fljóta leikmenn. Ásgeir sagði að ekki
yrðu mörg mörk skoruð i leiknum
1:1 jafntefli væru líkleg úrslit, eða
þá 1:0 sigur annars hvors liðsins.
Framararnir Marteinn Geirsson og
Jón Pétursson hafa átt við nokkur
meiðsli að stríða í vor, en er við
ræddum við Martein í fyrrakvöld
sagði hann að þeir væru báðir orðnir
algóðir af meiðslunum og ætluðu sér
ekkert nema sigur í leiknum við
Frakka. Landsliðshópurinn væri
mjög samstilltur og innan hans rikti
engin „kafbátahernaður".
Guðgeir Leifsson leikur í dag sinn
fyrsta leik á keppnistímabilinu. Hann
hefur enn ekki fengið að leika með
Víkingum eftir að hann skipti um
félag í vor, en fyrsti leikur hans með
Víkingi verður væntanlega gegn
Skagamönnum um næstu helgi. Eins
og félagar sinir i landsliðinu var
Guðgeir fullur bjartsýni og sagði að
leikkerfi landsliðsins væri orðið það
vel æft að hann óttaðist ekki „slys"
í leiknum við Fransmennina. Að
þeim orðum töluðum tók Guðgeir að
nýju til við æfingarnar. Skot-
æfingarnar voru á dagskrá og það
siðasta sem við heyrðum var
ánægjuhróp Tony Knapps landsliðs-
þjálfara er hann hrósaði Jóni Gunn-
laugssyni fyrir vel heppnað skot.
„Svona förum við að þvi, big
fellow." -- áij
Sigurður Dagsson landsliðsmarkvörður horf-
ir á eftir knettinum.
Framararnir Jón og Marteinn eru báðir
búnir að ná sér eftir meiðslin, sem þeir hlutu
I vor og verða með í dag.
SIGRADI HEIMSMEfflAFANN
Glœsilegt afrek Ágústs Ásgeirssonar
Ágúst Ásgeirsson hlaup-
ari úr ÍR vann það fræki-
lega afrek á frjálsíþrótta-
móti sem fram fór í Gate-
head í Englandi í fyrra-
kvöld að sigra heimsmet-
hafann í 3000 metra og 2ja
mílna hlaupi, Brendan
Forster í 800 metra hlaupi.
Forster sem er nánast
þjóðardýrðlingur í Eng-
landi brást mjög illa við
ósigri sínum, óskaði Ág-
ústi ekki til hamingju með
sigurinn, heídur tók þegj-
andi æfingafatnað sinn og
fór burt af vellinum.
Fyrir mót þetta haföi mikið ver-
ið skrifað um Forster í ensk blöð,
og sagt að i hlaupi þessu ætlaði
hann að „skerpa" sig fyrir heims-
mettilraun í 2 mílna hlaupi sem
hann ætlar að gera innan tíðar.
Beindist því öll athygli manna að
heimsmethafanum er keppnin
hófst, en keppendur í hlaupinu
voru margir, m.a. tslendingarnir
Ágúst Ásgeirsson, Jón Diðriksson
og Gunnar Páll Jóakimsson. Byrj-
unarhraðinn i hlaupinu var mjög
lítill. Eftir fyrstu 100 metrana var
Ágúst í fjórða sæti, en i viðtali við
Morgunblaðið sagði hann að þá
hefði sér verið farið að ieiðast
þófið, eða ,,lahbið“ og tekið for-
ystuna. Hélt Ágúst henni siðan þar
til 300 metrar voru eftir, en þá
fór Forster fram úr og freistaði
þess að hrista hann af sér. Agúst
sleppti honum þó ekki og tók for-
ystuna aftur er um 100 metrar
voru eftir í markið. Forster gaf
sig þó ekki og þegar 80 metrar
voru eftir fór hann og annar
hlaupari til fram úr Ágústi. — En
mér tókst að pína fram einhvern
svolítinn aukakraft á síðustu
metrunum, og pressa mig fram úr
þeim, enda báðir greinilega orðn-
ir örþreyttir, sagði Ágúst.
Hinn litli byrjunarhraði kom í
veg fyrir mjög góðan tíma í hlaupi
þessu. Ágúst hljóp á 1:53,5 mín.,
sem er reyndar frábær árangur í
upphafi keppnistímabils. Brend-
an Forster hljóp á 1:53,6 mín. og
þriðji maður í hlaupinu fékk
1:53,7 mín.
Jón Diðriksson var sjötti í
hlaupinu og náði sínum bezta ár-
angri: 1:55,8 mín. og Gunnar Páll
Jóakimsson varð níundi á 1:59,8
mín., en hann hefur áður náð
betri árangri.
Sigfús Jónsson varð þriðji í
3000 metra hlaupinu á mjög góð-
um tíma 8:39,0 min. Sigurður P.
Sigmundsson, FH, varð í 10. sæti
á sinum langbezta tima 9:03,0
mín. ogGunnar Páll keppti einnig
í þessu hlaupi og náði sínum bezta
tima, þrátt fyrir að hann væri
nýlega búinn að hlaupa 800 metra
hlaup, eða 9:26,0 mín.
Viímundur Vilhjálmsson sem
einnig dvelur í Durham gat ekki
keppt á mótinu vegna meiðsla
sem hann varð fyrir rétt áður en
haldið var utan.
Islendingarnir munu væntan-
lega taka þátt í móti um næstu
helgi á Crystal Palace í London,
a.m.k. Ágúst sem hleypur þar
3000 metra hindrunarhlaup.
Verður frægðar-
verkið endurtekið
ÞAÐ RlKIR mikil eftirvænting meðal knattspyrnuáhugamanna
fyrir landsleik lslands og Frakklands á Laugardalsvellinum í
dag. Tekst íslenzka liðinu að endurtaka frægðarverkið frá
síðasta hausti er það náði þeim glæsta árangri að gera jafntefli
við A-Þjóðverja 1 Magdeburg? Þau úrslit skóku hinn evrópska
knattspyrnuheim. Hvað var litla Island að gera? Að gera
jafntefli við A-Þjóðverja, eitt af stcrkustu knattspyrnuliðum
heims var meira en nokkurn mann hafði órað fyrir, tap með
fimm marka mun hefói hins vegar engum komið á óvart.
1 dag klukkan 14.00 hefst leikur tslendinga og Frakka. Leikur
fslenzks liðs, sem að mestu er skipað áhugamönnum, gegn
þrautreyndu landsliði franskra atvinnumanna f knattspyrnu.
Frakkarnir eru að enda sitt knattspyrnutfmabil, en við að byrja
okkar. Franska landsliðið er í sárum eftir 0:2 tap gegn
Portúgölum f fyrra mánuði, sigurvfman er hins vegar enn ekki
runnin af fslenzka liðinu eftir hinn góða árangur síðasta hausts.
Spurningin er hvað þessir þættir gera leikmönnum liðanna í
dag.
lslenzka landsliðið hélt til Þingvalla á föstudagskvöldið og í
gær var æft á Laugarvatni. Sfðastliðna nótt var svo dvalið í
Valhöll á ÞingvöIIum og til Reykjavíkur voru leikmennirnir
væntanlegir um klukkan 10 fyrir hádegi í dag. A föstudags-
kvöldið æfðu landsliðsmennirnir á hinum nýja grasvelli f
Kópavoginum. Ekki voru þeir þó fyrstir til að nota þennan
glæsilega ieikvang. Meistaraflokksmenn höfðu leikiö sér á
honurn í einn hálftfma áður en landsliðið tók við, Blikarnir
vildu ekki að neinir utanaðkomandi yrðu fyrstir til að nota
völlinn þcirra, sem þeir hafa svo lengi beðið eftir.