Morgunblaðið - 25.05.1975, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MAl 1975
47
Gumshoe: Einkaspæjarinn (Albert Finney) er var um sig í strætisvagninum í Liverpool.
★★★ Til þess að fyrirbyggja
allan miskilning, er rétt að taka
það fram strax, að leikstjóri
American Graffiti er George
Lucas. en ekki Franis Ford
Coppola, eins og margir virðast
halda. Coppola er hins vegar sð
aðili, sem leggur fram peninga til
kvikmyndagerðarinnar og nefnist
framleiðandi myndarinnar. George
Lucas er með öllu óþekktur hér á
landi, þar eð þetta er fyrsta mynd-
in sem hér er sýnd eftir hann. en
hann gerði áður eina mynd. sem
nefnist THX 1138. Mynd þessi,
sem var byggð á visindaskáld-
sögu, fékk allsstaðar mjög góða
dóma, en hlaut því miður litla
útbreiðslu. Áður hefur verið fjallað
nokkuð um American Graffiti hér
á siðunni, og óþarft að rekja efni
myndarinnar hér, sem í stórum
dráttum fjallar um nokkra ungl-
inga, sem eru að Ijúka skyldunámi
og eru að gera það upp við sig,
hvort þau eigi að halda áfram
námi og yfirgefa þá um leið bæinn
og kunningjahópinn eða vera um
kyrrt. Myndin gerist öll á einni
nóttu á þvl herrans ári 1 962, þar
sem ýmsir hlutir gerast. sem
breyta ákvörðunum viðkomandi
persóna. Lucas leggur mikla
áherslu á það, hve afdrifaríkar
þessar ákvarðanir eru fyrir framtíð
unga fólksins og þó myndin sé öll I
léttum dúr, leynist alvarlegur
undirtónn varðandi þessar
ákvarðanatökur, sem skilja á milli
gelgjuskeiðs og fullorðinsára hér
og hvar I myndinni. Lucas endar
svo myndina með því að draga
þennan undirtón upp á yfirborðið
og segja okkur, hver hafi orðið
örlög hinna fjögurra höfuðper-
sóna. Um leið gerir hann myndina
að sannsögulegri frásögn og færir
okkur eins nálægt þeim atburðum
kvik
muncl
/iö<m
SIGURÐUR SVERRIR PÁLSSON
VALOIVAR JÖRGENSEN
SÆBJÖRN VALDIMARSSON
sem við höfum verið að hlæja að,
eins og hægt er. Lucas tekst vel
að ná andrúmslofti þessa tlmabils
og bæði bilarnir og stelpurnar eru
einkar sannferðug, auk vatns-
greiddu rokk-grúppunnar á skóla-
ballinu. Strákarnir fjórir, allt frá
John Milner (fullorðna unglingn-
um — kappaksturshetjunni, sem
ekki hefur verið sigraður) til Terry
Fields, bólugrafna nýgræðingsins
með gleraugun, sem á bara Vespu,
eru fullmótaðar persónur, þó at-
burðarás myndarinnar sé mjög
sundurlaus og tækifæri til per-
sónusköpunar af skornum
skammti. En þó American Graffiti
sé þannig hin besta dægradvöl,
veldur Lucas nokkrum vonbrigð-
um. Þegar ungur og ferskur leik-
stjóri, sem hlotið hefur góða dóma
fyrir verk, sem sfðan berst hingað,
á maður von á einhverjum fersk-
leika I vinnubrögðum, ferskum
hugmyndum og til^—iytinga-ríkari
efnismeðferð en venjulega. Því
miður bregst þetta; efnismeð-
ferðin er f hæstamáta venjuleg og
einstaka sinnum finnst manni að
það sé verið að fylla upp í eyðurn-
ar með tónlistinni, sem stöðugt
glymur undir.
SSP
Gúmmiskór einkaspæjari
American Graffiti
★★★ Gumshoe, bresk,
gerð 1971.
Leikstjóri: Stephen Frears.
Það fyrsta og siðasta — og
kannski það eina — sem hægt er
að segja um þessa mynd, er: „Ein-
staklega ánægjuleg skemmtun".
Það er langt síðan ég hef skemmt
mér eins innilega við að horfa á
kvikmynd eins og ég gerði þetta
kvöld f Stjörnubfó. Það er hins
vegar öllu erfiðara að segja hvers
vegna. Þetta er bráðfyndin saka-
málamynd, gerð sem stæling á
sögu eftir Chandler og Gumshoe
er Sam Spade 30 árum seinna.
Albert Finney (Eddie Ginley) er
Humphrey Bogart endurholdg-
aður; og þó ekki alveg. Ginley,
sem er hálf-atvinnulaus frfstunda-
skemmtikraftur, dreymir um að
vera eins og Bogart. Hann setur
að gamni sfnu smáauglýsingu f
dagblað staðarins í Liverpool, og
býður fram þjónustu sina sem
einkaspæjari, meira vegna þess að
hann.á afmæli, sem enginn virðist
ætla að muna eftir en til þess að
taka þetta starf að sér. En fyrr
en varir er hann orðinn flæktur
I miklu ótrúlegra glæpamál, en
hann hafði nokkurn tfma lát-
ið sér detta I hug í sínum
djörfustu hugarórum. Þegar
svona er komið fyrir honum
er einasta haldreipið að leika hlut-
verkið eftir bókum (og kvikmynd-
um) og það er einmitt hér, sem
bæði Chandler og Sidney Green-
street og Bogart koma til sög-
unnar. Það sem tekst svo frábær-
lega vel f myndinni. er að blanda
þessum hugarórum og raunveru-
leika saman, án þess að því verði
nokkurn tíma lýst með orðum.
Ginley er flugmælskur (vitnandi i
gömlu sögurnar — „Byssan, einn
brúnn og stelpa — þetta er minn
heimur"), textinn mjög meitlaður
og Ginley hreytir honum út úr sér
eins og tannhvössum einkaspæj-
vjrdinu. uuri netur teRio endanlega ákvoröun um aö haida afram nami np vfirgefur fjölskyldu sína og vim.
ara er tamt. En jafnframt þvf að
vitna til hinna fyrrnefndu bætir
hann nokkrum við frá eigin
brjósti. „Ég er von hinna hvítu" (I
am the Great White Hope) segir
hann við svertingja nokkurn, en
eftir að sá hinn sami hefur lamið
Ginley niður, tautar Ginley fyrir
munni sér einkunnarorð Mu-
hamed Ali „Fly like a Butterfly —
Sting like a Bee" (fljúga eins og
fiðrildi — stinga eins og býfluga)
Það er vafalítið textahandritið
sem er sterkasti hluti myndarinn-
ar, þó hin flókna og hraða at-
burðarás, sem ekki borgar sig að
gefa neitt upp um, hjálpi mikið til.
Handritið er skrifað af tveim ung-
um mönnum, leikstjóranum
Stephen Frears og Neville Smith,
sem báðir unnu áður fyrir breska
sjónvarpið, en handritið varð til
vegna áhuga þeirra beggja á
Chandler og Bogart. Albert Finney
á hins vegar fyrirtækið Memorial
Enterprises, en þetta fyrirtæki
hefur hjálpað mörgum ungum og
upprennandi leikstjórum til að
fjármagna myndir sfnar, m.a.
Loving Memory (Scott), Bleak
Moments (Leigh), If . . . (Ander-
son) og Charlie Bubbles, sem
Finney leikstýrði sjálfur. Þetta er
fyrsta mynd hins unga leikstjóra,
Stephen Frears, og gætir hér ólfkt
meiri frumleika en hjá Lucas f
American Graffiti.
En mér þykir miður að þurfa að
benda sama kvikmyndahúsinu á
sama auglýsingagallann tvisvar I
röð. i auglýsingu Stjörnublós er
þvf enn haldið fram, að hér sé um
bandarlska mynd að ræða (sfðast
var það Citizen above Suspicion),
en þetta er bresk mynd f húð og
hár. SSP.
Tónlistarviðburður ársins”
Klubbur 32 efnir til hópferöar á tonleika Elton John's á Wembley leikvangmum í
London 21 júnf
Farið verður 1 9 júní og komið aftur þann 24 júní
Auk Elton Johns koma m a fram Stevie Wonder, Beach boys, Eagles, Dobbie
brothers, Rufus, Joe Walsh band og Kiki Dee band.
Verð kr 39 000 00, innifalið er Allar ferðir, hótel m/morgunmat. fararstjórn og
aðgöngumiði að tónleikunum
Mallorca
Fyrsta fero á hio glæsilega hótel Club 33 á
Mallorca er 1 5. júní.
Verð aðeins kr. 54.000.-
(Allt innifalið einnig næturmatur!)
Fá sæti laus
Meðlimir Klúbbs 32 munið að
þið fáið 10% afslátt í öllum
verzlunum Karnabæjar.
Klúbbur 33
Lækjargötu 2.
Slmar: 16400 — 26555
„Geymiö
minninguna á
stórri litmynd“
Veljið úr prufumyndum, sem allar eru
í lit og látið okkur stækka bestu myndina
fyrir ykkur.
Geymið augnablikið á stórri litmynd
til gleði og ánægju fyrir ykkur sjálf,
fjölskyldu og vini.
ColourcArt Rholo
Allar myndir okkar eru litmyndir,
sem hægt er að fá í stærðunum:
13x18 cm., 20x25 cm., 28x36 cm.,
40x50 cm., 50x60 cm.
EINKAUMBOÐ A ISIANDI
HIATS WIBE LIIND
UÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LÁGMÚLA 5 SÍMI 85811