Morgunblaðið - 25.05.1975, Síða 48

Morgunblaðið - 25.05.1975, Síða 48
INNIHURÐIR Cæöi í fyrirrúmi SIGURÐUR ELÍASSONHF. ^avo^ AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI, SÍMI 41380 GLUGGA- OG HURÐAPÉTTINGAR m«ð Ínnfrostvm ÞÉTTILISTUM GOA þföootta Vonduð vmna GUNNLAUGUR MAGNUSSON SlMI 16559 [_ SUNNUDAGUR 25. MAl 1975 Sigurður Markússon um Bandarikjamarkað: Vona að ástandið versni ekki meir — MKNN eru farnir að vona að áslandið á Bandaríkjamarkaði eigi ekki eflir að versna meir, áður en það fer að skána á ný, sem sumir telja aö verði síðast á árinu. Hins vegar vila menn ckki hvort eða um hve góðan hata verð- ur að ræða og hve lengi hann varir f fyrstu, sagði Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri sjávarafurðadeildar S.I.S., þegar Morgunblaðið spurði hann um horfur á helztu markaðssvæðum íslenzkra sjávarafurða. Sigurður sagði að markaðurinn í Bandaríkjunum væri svo til alls i áðandi hvað ireðfiskinn varðaði, þangað væru seld 75—80% af okkar framleiósiu. Þar hefði eng- in breyting orðið nýlega, og blokkin væri blýföst í 58 centum. Flökin héldust líka i óbreyttu verði, en þau hefðu hvorki lækk- að né hækkað í verði, sem er um 1 dollar, og verðinu á þeim hefði tekizt að halda óbreyttu frá því að blokkin fór að lækka á síðasta ári. Þá sagði hann, að birgðir af fiski í Bandaríkjunum væru nú minni en i fyrra, jafnvel hlutfalls- lega minni, en fiskneyzla hefði minnkað um 20% þar í fyrra. Að lokum sagði Sigurður, að það værí enn staðreynd að is- lenzkar fiskafurðir nytu ekki þeirra kjara, sem búið var að semja um hjá E.B.E. Ef það væri búíð, hefðu ísiendingar sennilega dágóðan markað þar eins og t.d. fyrir humar og rækju. r Asgeir Magnús- son II nær ónýtt- ist í eldi úti á sjó Þorlákshöfn, 24. mai. ÁSGEIR Magnússon II GK 59 úr Garði var dreginn brennandi til hafnar hér í Þorlákshöfn klukkan rétt fyrir sjö í morgun. Jó- hannes Gunnar GK úr Grindavík kom með bátinn að bryggju. Þá var mikill eldur í bátnum og logaði stýrishús hans. Slökkvilið Þorlákshafnar var tilbúið á bryggjunni og hóf slökkvistarfið sem lauk um klukkan 11.15. Áhöfn bátsinsyfir- gaf hann logandi á hafi úti og fór í gúmbát og voru mennirnir þar í klukkutíma þar til Jóhannes Gunnar kom á vettvang og tók þá um borð. Ekki urðu nein slys á mönnum. Báturinn er mikið brunninn og talinn svo til ónýtur. Ókunnugt er um eldsupptök en eldur mun hafa komið upp í bátn- um klukkan rúmlega fjögur í nótt er hann var á togveiðum útaf Sel- vogi. Ásgeir Magnússon II er 65 tonna eikarbátur smíðaður í Dan- mörku árið 1947. Eigandi bátsins er Ásgeir hf. í Garði. — Ragnheiður. Storkurinn lifir góðu lífi „KRAKKARNIR mínir sáu stork- inn á flugi fyrir þremur dögum og var ekki annað að sjá en hann lifði hinu bezta lífi,“ sagði Svein- björn Ingimundarson bóndi á Yztabæli undir Eyjafjöllum er Mbl. ræddi við hann í gær og innti eftir fréttum af vini vorum storkinum. Sveinbjörn sagði að storkurinn hefði í fyrstu haldið sig á af- mörkuðum svæðum en upp á síð- kastið hefði hann farið á flakk og sést víða undir Eyjafjöllum. Jafn- framt færi hann meira inn í landið en áður. „Hann er farinn að kynnast landinu betur enda er nú væntanlega meira æti að finna þar en áður,“ sagði Sveinbjörn. Búist við mikilli að- sókn að landsleiknum I.SLENDINGAR og Frakkar leika landsleik í knattspyrnu á Laugardalsvellinum I dag og hefst leikurinn klukkan 14.00. Forsala að- göngumiða undanfarna daga hefur verið mjög góð, meiri en venjulega fyrir lands- leiki. Morgunblaðið hafði í gær samband við skrifstofu Knattspyrnusambandsins og bjuggust menn þar við mikilli aðsókn á leik- inn. Veðurfræðingar spá þokkaiegu veðri í Reykjavík í dag, sunnan kalda og sennilega þurru veðri. Á íþróttasíðu, bls. 46, er spjallað við leik- menn íslenzka landsliðsins. ÞEIR hafa gert það ágætt á grásleppu og rauðmaga I vor karlarnir þrátt fyrir rysjótta tíð. Hér er verið að ianda úr Má RE 87 og yngri kynslóðin fylgist spcnnt með. Ljósm. Mbl. Ól. K. Mag. Vinnuveitendur: Kaupkröfur ASÍ þýða 30 þús. milljónir í aukin launaútgjöld NtJ ER ekki rétli tíminn til kaup- hækkana var svar, sem Mbi. fékk í gær er það Icitaði álils forráða- manna vinnuveitenda, formanns VSl og formanns Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna. Hinn síðarnefndi var þó ef til vill sýnu svartsýnni á ástandið og sagðist ekki sjá fram á annað en verkföll og þau löng, þar eð kröfur ASl væru fjarri raunvcruleikanum. Svör þessara manna fara hér á eftir: Jón H. Bergs, formaður vinnu- veitendasambands Islands sagði: „Þær kröfur ASl I yfirstandandi Minni skuttogararnir fiska ekki minna en þeir stóru I SKÝRSLU Landssambands ísl. útvegsmanna um yfirlit yfir afia- magn, aflaverðmæti og úthaids- daga íslenzku togaranna frá ára- mótum fram tii 10. maí kemur fram að sá togari, sem hæst skiptaverð hefur pr. kíló er Dagný frá Siglufirði, kr. 38.47, en þess ber að gæta, að togarinn hef- ur iandað nokkrum sinnum er- lendis og því náð þessu háa verði. Ef miðað er við togara, sem ein- göngu hafa landað heima, þá er Guðbjartur ÍS með dýrmætasta fiskinn en hann hefur fengið kr. 33.20 pr. kg. Kaldbakur EA er svo með bezta fiskinn af stóru skut- togurunum hefur fengió kr. 30.70 pr. kg. að meðaltali. Ef litið er á stóru skuttogarana kemur fram, að Sléttbakur EA er með mesta aflaverðmætið á þess- um tíma og hefur fiskað fyrir röskar 47 millj. kr. og sá togari er ennfremur með næsta hæsta með- alverðið kr. 30.70, og meðalskipta- verð pr. dag er kr. 356.669.00. Mestan afla pr. úthaldsdag hefur fengið Júní GK 13.13 tonn, en mestan afla yfir þetta tímabil hef- ur Bjarni Benediktsson fengið 1.428 lestir. • Eins og fyrr segir eru Dagný og Guðbjartur með hæsta meðalverð minni skuttogaranna, en hæsta skiptaverð pr. úthaldsdag er Bessi IS með, kr. 408.783, og er því meðalskiptaverð á Bessa mun hærra en á stóru togurunum og ennfremur kemur fram f skýrsl- unni að minni skuttogararnir fiska síst minna en þeir stærhi. Fimm af minni skuttogurunum eru meó hærra brúttóverðmæti en hæsti stóri skuttogarinn. Guð- bjartur fS hefur fiskað fyrir 52.8 millj. kr., Bessi fyrir 49.8 millj. kr., Framnes 1, fyrir 48.5 millj. kr., Guðbjörg fS fyrir 47.8 millj. kr. og Júlíus Geirmundsson fS fyrir 47.6 millj. kr. Það vekur athygli að allir þessir togarar eru gerðir út frá Vestfjörðum, byggð- ir í Noregi og með sams konar fiskileitartæki og veiðarfæri. kjaradeilu, sem kunngerðar voru í gær, eru nú til athugunar hjá Vinnuveitendasambandinu og þeim mun verða svarað innan nokkurra daga. Ég get þó sagt það strax, að mér finnast þessar kröf- ur fráleitar við þær efnahagslegu aðstæður, sem nú eru í þjóðarbú- skap okkar íslendinga. Þegar þjóðartekjurnar lækka og þjóðar- framleiðslan minnkar, viðskipta- halli er áætlaður 12 til 13 þúsund milljónir á einu ári, afkoma ríkis- sjóðs og fjölmargra framleiðslu- fyrirtækja hangir á bláþræði, þá er ekki rétti tíminn til verulegra kauphækkana. Ef til vill hafa menn ekki gert sér grein fyrir því, að sú grunnkaupshækkun, sem nú er farið fram á myndi kosta nær 30 þúsund milljónir í auknar launagreiðslur alls í land- inu miðað við þá launafúlgu, sem nú er greidd. Til þess að veita slíkum viðbótarlaunafúlgum út í þjóðfélagið eru nú engin skilyrði, heldur myndi slíkt valda enn nýrri kollsteypu, en af þess háttar ættum við fslendingar nú að hafa fengið meira en nóg. Við getum ekki haldið áfram að halda hér uppi óeðlilegum kaupmætti og lífsskilyrðum með því að sóa gjaldeyri og safna skuldum er- lendis eins og þjóðin hefur látið sig hafa undanfarin ár. Skúli Pálmason, formaður stjórnar Vinnumálasambands samvinnufélaganna, sagði: „Þess- ar kröfur eru algjörlega út í loftið og verða ekki til þess að auðvelda þá samninga, sem við stöndum trammi fyrir nú. Ég á ekki með hliðsjón af þessum kröfum von á að samningar náist. Ég held að komi til verkfalla og þau verði jafnvel löng.“ Skúli sagði að stjórn Vinnumálasambandsins hefði ekkert fjallað um kröfurnar siðan þær voru kunngerðar. Hann sagðist ekki vita hvenær stjórnin tæki endanlega afstöðu til þeirra, en sér sýndist kröfurnar vera þess eðlis að ekki þyrfti langa fundi til þess að fjalla um þær. 560kr. fyrir humarkílóið Verðlagsnefnd sjávarútvegs- ins hefur nú ákveðið verð á humri fyrir veiðitímabilið, sem hefst í dag. Fyrir 1. kg. af 1. flokks humri verða greiddar i sumar kr. 560, en i fyrra var verðið kr. 385. Fyrir 2. flokks humar fæst nú kr. 300, en í fyrra var verðið kr. 205. Þessar verðhækkanir stafa ekki af hækkunum á erlendum mörkuðum heldur ein- vörðungu af gengisbreytingun- um tveim, sem átt hafa sér stað frá því í fyrra. Þá hefur einnig verið ákveð- ið verð á hörpudiski og er það nú kr. 16 fyrir hvert kg. en var kr. 17 áður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.