Morgunblaðið - 10.06.1975, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1975
i n
Morgunstund með Gísla Halldórssyni og starfsfólki ÍSÍ
INNAN vébanda lþróttasam-
bands Islands eru rútnlega 50
þúsund manns og eru samtökin
þvf einhver fjölmennustu félaga-
samtök hér á landi. Höfuðvfgi ISl
er f Iþróttamiðstöðinni f Laugar-
dal og þangað lögðu Morgunblaðs-
menn leið sfna á föstudaginn f
sfðustu viku. Ætlunin var að
k.vnnast nánar innviðum stofnun-
arinnar, fræðast um hið daglega
starf með rabbi við starfsfólk
sambandsins og Gfsla Halldórs-
son forseta tSl.
Þau eru fjögui sem starfa allan
daginn hjá ÍSl. Hermann
Guðmundsson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri frá því 1951 og
var áður varaforseti ISl, en
fannst það ekki eiga saman að
sitja í stjórninni og vera starfs-
maður um leið. Sigurður Magnús-
son er skrifstofu- og útbreiðslu-
stjóri ISI og hefur starfað hjá ISl
síðastliðin 4 ár. Sigurður hafði þó
áður haft með höndum forystu-
starf í íþróttahreyfingunni. Hann
var framkvæmdastjóri ÍBR
1948—53 og i stjórn HKRR. Siðan
sneri hann sér að verzlunarstörf-
um og vann við þau í 17 ár eða þar
til hann kom til ISt fyrir fjórum
árum.
Tvær skrifstofustúlkur eru í
starfi hjá tSÍ, þær Jóhanna Þor-
steinsdóttir og María Ragnars-
dóttir. Þegar okkur bar að garði
voru þær önnum kafnar, önnur
vélritaði bréf til menntamálaráð-
herra, þar sem ISl fór fram á
aukin fjárframlög, og hin vann að
því að fjölrita ársskýrslu Körfu-
knattleikssambandsins.
Gisli Halldórsson forseti ISl
rekur eigið fyrirtæki og vinnur
aðeins í sjálfboðavinnu fyrir sam-
bandið, en þær eru ótaldar
stundirnar sem hann fórnar fyrir
ISI. Gisli gaf sér tíma til að setjast
niður og rabba við Morgunblaðs-
menn yfir kaffibolla á föstudag-
inn, en Gisli, sem nýlega er orð-
inn sextugur, hefur verið forseti
ISI frá því 1962. Aður var hann
formaður Iþróttabandalags
Reykjavíkur.
KAFNAR NORÐUR-
LANDAÞINGIÐ
I VERKFÖLLUM?
Starfið undanfarna daga hefur
einkum beinzt að undirbúningi
fyrir Norðurlandaþing iþrótta-
leiðtoga, en það á að halda hér á
landi um miðjan mánuðinn.
Hefur mikið starf verið unnið f
þessu sambandi, en nú er útlit
fyrir að fresta verði þinginu
vegna yfirvofandi verkfalla og þá
morgunstund sem við dvöldum
hjá ISl f íþróttamiðstöðinni hafði
framkvæmdastjórinn samband
við kollega sína á hinum Norður-
löndunum og tjáði þeim hvernig
málin stæðu.
Dagskipunin fyrir þá
þremenningana, Gisla, Hermann
og Sigurð, var ströng og meðal
annarra verkefna var fundur með
Ölympiunefnd, ferð austur á
Laugarvatn vegna íþróttamið-
stöðvarinnar þar, undirbúningur
og þá breytingar á áætlun
Norðurlandaþingsins, bréfaskrift-
ir og ársskýrsla Körfuknattleiks-
sambandsins. Auk þess að sinna
Morgunblaðsmönnum og margs
annars.
GJÖRBREYTT AÐSTAÐA
EFTIR TILKOMU
IÞRÓTTAMIÐSTÖÐVANNA
Iþróttamiðstöð I Laugardalnum
hefur gjörbreytt allri aðstöðu
Iþróttasambands Islands. ÍSÍ
hefur þar skrifstofur sínar og
fundarherbergi. 12 sérsamband-
anna af 15 leigja þar húsnæði
fyrir starfsemi sina og Knatt-
spyrnusambandið á þar sitt eigið,
mjög gott húsnæði. Með tilkomu
Iþróttamiðstöðvarinnar hafa sér-
samböndin fengið fastan sama-
stað, en áður hefðu mörg þeirra
ekki i neitt hús að venda og voru
nánast með starfsemi sína á göt-
unni. Gísli Halldórsson sagði að
þó svo að íþróttamiðstöðin í
Laugardalnum gerði í dag meira
en að hýsa starfsemi ISI og sér-
sambandanna þá væri ljóst að
vélrita ársskýrslu körfuknattleiks-
manna.
innan nokkurra ára þyrfti ISl enn
að bæta við sig.
Á Laugarvatni á íþróttasam-
bandið efri hæð heimavistarhús-
næðis íþróttakennaraskólans og
með samningi við yfirvöld
menntamála tryggði ISl sér af-
notarétt af húsnæði Iþrótta-
kennaraskólans og íþróttavall-
anna á Laugarvatni yfir sumar-
tímann. I fyrrasumar voru þar
yfir 3500 dvalardagar og búizt er
við að aðsóknin þangað verði i
sumar í algjöru hámarki.
TRIMMHERFERÐIN
TÖKST EKKI
SEM SKYLDI
Fyrir fjórum árum hleypti
Iþróttasambandið af stokkunum
mikilli trimmherferð. Arangur í
þessari herferð hefur því miður
að mörgu leyti ekki orðið eins
góður og búizt hafði verið við. Þó
svo að „fþróttir fyrir alla“ hafi
verið vel tekið af forystumönnum
í iþróttahreyfingunni og sömu-
leiðis af almenningi þá skorti
mannskap til að taka að sér fram-
kvæmdir og skipulagningu.
Forystumenn þessarar herferðar
telja þó ótviræðan árangur hafa
komið fram með aukinni aðsókn
að sundstöðunum stöðugt vaxandi
áhuga á skíðaíþróttinni og síauk-
inni eftirspurn eftir iþróttahús-
um.
— Því miður hefur ekki tekizt
að gera trimmið að sjálfstæðri
grein innan íþróttahreyfingarinn-
ar, sagði Sigurður Magnússon,
sem haft hefur veg og vanda af
skipulagningunni. — En við viss-
um þegar í upphafi að við vorum
að byrja á starfi sem engan enda
hefur og starfið er i fullum gangi.
Iþróttaforystan hefur nóg á sinni
könnu í sambandi við keppnis-
íþróttirnar og ræður ekki við
þessa viðbót sem almennings-
íþróttirnar eru. Við þurfum að fá
nýja leiðtoga í þessa grein og nú
vinnum við að því að gera al-
menningsíþróttirnar að afli I
skólunum og vonandi tekst okkur
að stofna nýtt sérsamband innan
ISl sem hefur á sinni könnu
skólaíþróttir.
HUSNÆÐISLEYSI HÁIR
STARFSEMINNI
Iþróttasambandið gerði í vetur
áætlun um byggingar íþrótta-
mannvirkja. I skýrslu um þá áætl-
un leggur ISl til að á næstu árum
verði byggð 27 ný iþróttahús sem
verði 22x40 metrar að lengd.
Sömuleiðis er f skýrslunni lagt til
að nokkrar sundlaugar verði á
næstu árum byggðar og þá hafðar
25 metrar á lengd í stað 16 % eins
og hingað til hefur verið algeng-
ast. '
— Við rekum okkur á það haust
eftir haust að iþróttafélögin verða
að úthýsa fjölda áhugasamra iðk-
enda, sagði Gísli Halldórsson. I
þessum tillögum okkar um bygg-
ingu íþróttamannvirkja leggjum
við áherzlu á þrjú atriði, það er að
öll nýju mannvirkin þjónað
Jóhanna Þorsteinsdóttir gaf sér tlma
til að líta upp og brosa þó mikið vasri
að gera við fjölritunina.
iþróttafélögunum, skólunum og
síðast en ekki sízt almenningi. Við
vonumst til að tekið verði tillit til
óska okkar því ljóst er að nauðsyn
krefst þess að fleiri og stærri hús
verði byggð. Það er sama hvar
drepið er niður fæti, íþróttahúsin
á stöðunum eru I stöðugri notkun
og færri komast að en vilja, sagði
Gísli.
MISMUNANDI DUGUR
I HÉRAÐSSAMBÖNDUNUM
Eitt af verkefnum Hermanns
framkvæmdastjóra er að sjá um
Texti: Ágúst I. Jónsson
Myndir: Friðþjófur Helgason.
samband ISI við héraðssambönd-
in. Sagði Hermann að yfirleitt
gengju þau samskipti snurðulaust
fyrir sig og stærsti hluti héraðs-
sambandanna væri mjög dugandi.
Svo væru önnur sem væru dauf-
ari og það væri greinilegt að þau
sem hefðu ráð á að ráða sér fram-
kvæmdastjóra til starfa væru
mun virkari í iþróttastarfinu.
Hér skaut Gísli Halldórsson þvi
inn í að auk þess sem íþróttastarf-
ið væri gróskumesta æskulýðs-
starfið í landinu þá væri iþrótta-
starfið mjög gagnlegt í hinni svo
kölluðu byggðastefnu. — Sveita-
stjórnir ættu að sinna iþrótta- og
æskulýðsstarfinu meira þvi það
gerir það að verkum að æskufólk-
ið helzt frekar heima á hinum
minni stöðum.
I fyrra var sveitarstjórnum á
landinu skrifað bréf þar sem þess
var farið á leit að meira fé yrði
veitt til iþróttamála. Hafa mörg
þeirra tekið vel þessari málaleit-
an og mörg þeirra styðja orðið
myndarlega við bakið á íþrótta-
hreyfingunni á hverjum stað.
Aníiars eru fjármálin höfuðverk-
ur hjá ISl eins og víðast annars
staðar. I haust jók Alþingi þó
framlag sitt til íþróttanna á fjár-
lögum, en þeir félagar sögðust
vona að það væri aðeins skref í
rétta átt.
GRUNNSKÓLI OG
IÞRÓTTIR FATLAÐRA
Samkvæmt upplýsingum þeirra
ÍSl-manna eru um 8% þjóðarinn-
ar með skerta hreyfiorku, eiga við
blindu að stríða eða annað, sem
dregur úr starfsþreki þeirra. —
Okkur fannst þetta of stór hópur,
‘ sem við gerðum ekkert fyrir,
sögðu þeir félagar, og ákváðum
því fyrir nokkru í samráði við
viðkomandi aðila að taka upp á
stefnuskrá ISI það sem við köll-
Framhald á bls. 21
•t"'U^i^rÚskrif*,®fus*lö'’i ***' *"isii U:ilI(li^rsson, forsetl Isl o* Hermann GuOmundsson, framkvæmdastjóri Isl. Myndina tók Frlðþjðfur fyrir framan bækistöð I
Iþróttamiðstoðinni r Laugardal °g baksýn mi sjá mannvirki Laugardalsvallarins. Er með sanni hægt að segja að Laugardalurinn sé nú orðinn höfuðvigi Islenzkra iþrótta. bæði I
varðar keppnisaðstoðu og Iþróttlr og stjórnun.