Morgunblaðið - 10.06.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JUNI 1975
21
Þróttarar halda strikinu, unnu Hauka 3:1
Jón Þorbjörnsson hinn efnilegi markvörður Þróttar stöövar eina af
sóknarlotum Haukanna, eftír að knötturinn hefur farið yfir Halldór
Bragason, fyrirliða Þróttar.
Slakur
leikur
við
slæmar
aðstæður
ÞAÐ VAR ekki rismikil knatt-
spyrna, sem leikmenn Þróttar og
Hauka sýndu í 2. deild á föstu-
dagskvöldið. Völlur Þróttar við
Sæviðarsund, þar sem leikurinn
fór fram, var bæði harður og
þurr, þannig að rykmökkur
þyrlaðist upp, jafnvel við hina
minnstu hreyfingu leikmanna.
Við slíkar aðstæður hlýtur að
vera erfitt að leika góða knatt-
spyrnu.
Ég tel því, að liðin búi yfir mun
meiru en þeim tókst að sýna í
þessum leik. Þróttarar hafa yngt
mjög upp lið sitt og meóal leik-
manna eru margir skemmtilegir
og efnilegir leikmenn, sem gaman
verður að fylgjast með. Markvörð-
urinn, Jón Þorbjörnsson, er t.d.
mjög mikið efni og mega Þróttar-
í heimsókn hjá ÍSÍ
Framhald af bls. 17
um iþróttir fyrir fatlaða. Ahugi á
þessari starfsemi hefur verið mik-
ill og þegar hafa verið stofnuð
félög á Akureyri og í Reykjavík.
Hafa þessi félög haldið mót, í
bogfimi og bowling við mikla
ánægju þátttakenda. Nú nýlega
barst ÍSl svo boð frá fram-
kvæmdaaðiljum Ölympíuleik-
anna í Kanada þar sem Islending-
um er boðin þátttaka í OL fyrir
fatlaða næsta sumar. Af þátttöku
verður ekki þá, en vonandi þegar
fram í sækir.
Grunnskóli ÍSl er nýr liður í
starfsemi ISl og hefur nú starfað
í eitt ár. Hafa 60 manns lokið
a-stigi skólans en honum er skipt í
fjórar einingar, a, b, c og d. Eftir
a-stigið verður skólinn í höndum
sérsambandanna þvi þá kemur
sérhæfingin til sögunnar. Til
þessa hefur skólinn verið kennd-
ur á fjórum stöðum, í Menntaskól-
anum í Reykjavík, í Reykholti, í
Hveragerði og hjá Iþróttabanda-
ar þakka honum öðrum fremur,
að þeir fóru með bæði stigin frá
þessum leik, sem var mun jafnari
en markatalan segir til um.
Það var Baldur Hannesson, sem
skoráði fyrsta markið fyrir Þrótt
á 15. mín. með aðstoð frá varnar-
manni Hauka. Komst hann inn-
fyrir og skaut að markinu, en þar
var þá kominn varnarmaður, sem
ætlaði að skalla frá, en tókst ekki
lagi Reykjavíkur. Iþróttasam-
bandið hefur farið þess á leit við
skólastjóra Iþróttakennaraskól-
ans á Laugarvatni að þar verði
nemendur ) undirbúnir fyrir
grunnskólann, en það hafa eink-
um verið íþróttakennarar sem
annazt hafa kennsluna í grunn-
skólanum.
„REYNUM AÐ FYLGJAST
MEГ
Til að slá botninn í þetta rabb
um ISI er ekki úr vegi að mirinast
á samskipti ÍSl við útlönd. — Við
höfum stöðug samskipti við
iþróttasambönd í öðrum löndum,
sagði Gísli Halldórsson. — Við
sækjum fundi Norðurlandasam-
bandanna slíkan fund á að halda
hér í næstu viku. Þar er m.a. á
dagskrá að taka Færeyinga inn í
Norðurlandasamstarfið formlega
þannig að við verðum sex í stað
fimm í þessum samtökum. Svo
sækjum við ýmsar aðrar ráðstefn-
ur og fundi i Evrópu og reynum
að fylgjast eins vel með þvi sem
er að gerast og við getum, sagði
Gisli Halldórsson að lokum.
betur til en svo, að knötturinn fór
í netið. — Á 27. mín. var svo hinn
gamalkunni Halldór Bragason á
ferðinni og skoraði annað mark
Þróttar.
Nokkur þvaga var fyrir framan
mark Hauka og hrökk knötturinn
frá markstönginni til Halldórs,
sem var ekki seinn á sér og
skallaði hann i netið. Eftir markið
sóttu Haukar nokkuð og voru
nálægt því að skora, en Jón Þor-
björnsson hélt hreinu. Sérstak-
lega munaði litlu á 33. mín. er
markakóngur Hauka Loftur,
Eyjólfsson, var kominn frir inn-
fyrir, en Jón kom út á móti hon-
um og varði vel.
Skömmu fyrir lok hálfleiksins,
eða á 42. mín. bætti Erlendur
Björnsson 3ja markinu við fyrir
Þrótt. Vörn Haukanna opnaðist
illa, þannig að eftirleikurinn var
auðveldur fyrir Erlend.
Þegar 15. min voru liðnar af
síðari hálfleik skoraði Guðjón
Sveinsson fyrir Hauka. Vildu
sumir meina, að hann hefði verið
rangstæður, en dómari og línu-
vörður voru á öðru máli og
dæmdu mark.
Undir lok leiksins sóttu Haukar
i sig veðrið og gerðu allt hvað þeir
gátu til að skora fleiri mörk, en
allt kom fyrir ekki þótt stundum
munaði mjóu.
Þróttur fór þvi með tvö dýrmæt
stig frá þessum leik, sem var jafn-
ari en markatalan segir til um.
Leikinn dæmdi Hinrik
Lárusson og gerði það með
ágætum. _ híJan.
Róleg helgi í golfínu
Aðeins opið kvenna- og unglingamót í Grafarholti
Undanfarnar helgar hefur
hvert golfmótið rekið annað,
svo sem títt er á vorin. Oft
hefur verið að þvf vikið, að
golfmótin séu orðin full mörg
og ástæða væri til þess að draga
þar eitthvað úr. Samt er tæpast
hægt að sjá á kappleikaskrám
klúbbanna, að keppnum hafi
verið fækkað.
Um slðustu helgi bar svo við,
að ekkert mót var á dagskrá hjá
körlum. Ilinsvegar fór fram á
laugardaginn opið kvenna- og
unglingamót á vegum Golf-
klúbbs Reykjavfkur í Grafar-
holti. Keppni um sum verð-
launasætin varð svo hörð, að
bráðabana þurfti til að skera úr
um röð og var það gert á sunnu-
daginn.
I kvennaflokki urðu úrslit
sem hér segir:
An forgjafar: högg
1. Jóhanna Ingólfsdóttir
GR 92
2. Hanna Aðalsteinsdóttir
GK 96
3. Laufey Karalsdóttir
GR 98
Laufey varð jöfn Ágústu Dúu
Jónsdóttur og vann hana I
bráðabana.
Með forgjöf:
1. Ágústa Dúa Jónsdóttir GR
98—36 eða nettó á 62 höggum
2. Jóhanna Ingólfsdóttir GR
92—19 eða nettó á 72 höggum
3. Hann Gabríelsson GR
105—30 eða nettó á 75 höggum
Unglingaflokkur
Hér var miðað við, að
unglingarnir væru ekki orðnir
18 ára.
An forgjafar: högg
1. Óli Laxdal GR 77
2. Sigurður Pétursson
GR 79
3. Eiríkur Jónsson GR 79
Hér urðu þeir Sigurður og
Eiríkur jafnir, en Sigurður
vann í bráðabana.
Með forgjöf:
1. Júlíus Bernburg GR 83—22
eða nettó á 61 höggi
2. Óli Laxdal GR 77—16 eða
nettó á 61 höggi
3. Eiríkur Jónsson GR 79—13
eða nettó á 66 höggum.
Eins og sjá má, urðu þeir
Július og Óli jafnir og gerðu út
um röðina í bráðabana. I annan
stað urðu þeir jafnir í 3.—4.
sæti Eiríkur Jónsson og
Tryggvi Traustason GK og
einnig þeir háðu bráðabana um
röðina.
Um næstu heigi verður hald-
ið opið mót á Nesvellinum:
Pierre Robert flokkakeppni og
er það eina opna mótið, sem
fram fer á Nesvelli. Sami hátt-
ur verður á hafður og tíðkazt
hefur, að meistaraflokksmenn
munu leika 36 holur á sunnu-
daginn. Fyrsti og annar flokkur
leika á laugardaginn og aðrir
flokkar á föstudag. Með þessu
móti verða menn aðeins bundn-
ir einn dag yfir þátttökunni.
Búast má við góðri þátttöku i
þessari flokkakeppni likt og á
undanförnum árum. g
íslandsmótið 3. deild
Austri — Valur 3 : 2
MÖRK AUSTRA: Bjarni Kristjánsson, Anton Pétursson og Alti Aðal-
steinsson.
MÖRK VALS: Sigmar Ingvarsson og Rúnar Sigurjónsson.
Leikur Eskfirðinga og Reyðfirðinga einkenndist af háum spyrnuin
og löngum, en lltið sást af skemmtilegum samleik. Austra-liðið var
heppið að ná báðum stigunum, en I liði þeirra var þó bezti maður
vallarins, hinn bráðcfnilegi Halldór Arnason.
Af öðrum leikjum I Austf jarðariðlinum er það að frétta að völlurinn
á Vopnafirði er ekki tilbúinn og varð því að fresta leik Einherja og
Hattar. Þá fór leikur KSH og Sindra ekki fram; heyrzt hefur að Sindri
frá Hornafirði hafi dregið sig út úr mótinu.
Þróttur — Huginn 3 : 0
MÖRK ÞRÓTTAR: Björgútfur Halldórsson 2, Sigurður Friðjónsson 1.
Þróttararnir höfðu yfirburðí I leiknum og áttu mýmörg marktæki-
færi, sem ekki nýttust. Hins vegar voru sóknir Seyðisfjarðarliðsins
teljandi á fingrum annarrar handar. Norðfirðingarnir eiga mjög
sterku liði á að skipa, liði sem ætlar sér stóra hluti í 3. deilriinni I
sumar.
UMSS - KS 0 : 1
Siglfirðingar kræktu sér I tvö stig á laugardag þegar þeir sóttu
UMSS heim á Sauðárkrók og sigruðu með einu marki gegn engu.
Leikurinn, sem fram fór á hinum ágæta grasvelli á Sauðárkróki, var
fremur jafn og hefði ekki verið ósanngjarnt að liðin hefðu skipt með
sér stigunum. Eina mark leiksins var skorað á markamínútunni miklu.
þeirri 43., I fyrri hálflcik, og var það Þorgeir Sigurðsson sem það gerði.
Bæði liðin áttu sín tækifæri I ieiknum, sem þó nýttust ekki nema
þettaeina. Sigb.G.
Leiftur — Efling 3 : 3
Það var mikið skorað af mörkum á Ölafsfirði á laugardag þegar
Efling úr Reykjadal kom f heimsókn og lék við heimamenn I 3.
deildinni. Alls urðu mörkin sex taisins og skiptu liðin þeim b^óðurlega
á milli sfn. Leiftur varð fyrri til að skora. Það var Stefán Jakobsson
sem það gerðí á 15. mfn. Skömmu sfðar jafnaði Arnór Benónýsson
fyrir Eflingu og hélzt staðan þannig til hálfleiks. Þegar um tuttugu
mín. voru af síðari hálfleik hafði Efling bætt tveimur mörkum við,
Hermann Jónasson, sem áður lék með VÖIsungi, hinu fyrra, en sfðara
markið var sjálfsmark. Það sem eftir lifði tóku leikmcnn Leifturs
verulega við sér og höfðu jafnað þegar um fimm mfn voru til teiksloka.
Það voru þeir Ingólfur Hannesson og Albert Agústsson sem skoruðu
fyrir Leiftur.
Leikurinn var ekki sérlega vel leikinn af liðunum þrátt fyrir mörg
mörk. Þó höfðu leíkmenn Eflingar uppi meiri tilburði til að leika
knattspyrnu en heimamenn og hefði ekki verið ósanngjarnt að Efiing
hefði fengið bæði stigin. Sigb. G.
USAH - Þór 0 : 1
ÞÖR frá Akureyri lék sinn fyrsta leik í 3. deild á laugardag. And-
stæðingarnir voru USAH og fór leikurinn fram á Blönduósi. Augu
manna beinast nú-mjög að Akureyrarliðunum, KA og Þór, eftir að
Akureyringar hættu að senda sameíginlegt lið undir merkjum IBA.
Leikur Þórs og USAH var fremur slakur f heild og Þórsarar fremur
heppnir að hljóta bæði stigin, en Þór sigraði með eina markinu sem
skorað var í ieiknum og gerði það Öskar Gunnarsson.
Sem fyrr getur var lftið um fallega knattspyrnu f þessum leik,
aðallega þóf á miðjunni, enda mikill baráttuhugur f mönnum.
Sigb.G.
UMSE — Magni 1 : 3
UMSE og Magni frá Grenivfk nuettust f 3. deildinni á laugardag, og
fór leikurinn fram á grasvellinum við Arskóg. Leikurinn var nokkuð
liðlega leikinn, einkum af hálfu Magna, sem sigraði sannfærandi með
þremur mörkum gegn einu. t Icikhléi var staðan jöfn eitt mark gegn
einu, en gestirnir tóku af skarið f sfðari hálfleik með tveimur góðum
mörkum.
Mörk Magna skoruðu: Sæmundur Guðmundsson tvö og Hringur
Hreinsson eitt.
Mark UMSE: Örn Tryggvason.
Njarðvilí — Fylkir 1:2
Mörk Fylkis: Ólafur Brvnjólfsson og Grettir Gfslason.
Mörk Njarðvíkinga: Slefán Jónsson.
Fylkisliðið var talsvert betra í þessum leik og verðskuldaði sig'urinn
fyllilega. Ölafur Brynjólfsson sem áður lék með Þrótti skorar orðið f
hverjum leik fyrir Fylkisliðið, sem eftir f jóra leiki er komið með átta
stig og markatalan er 20:1. Njarðvíkingunum hefur hins vegar ekki
gengið eins vel og liðið er búið að tapa þremur stigum. Þeir urðu þó
fyrstir til að skora hjá Fylkisliðinu, sem ætlar sér sigur f 3. deildinni f
sumar.
ÍR - Víðir 2-0
ÍR-INGAR áttu mun meira i þessum leik og var 2—0 sigur þeirra
verðskuldaður. Það óhapp varð fljótlega eftir að leikurinn hófst að
einn bezti maður ÍR-liósins, Guðmundur Björgvinssóri, fótbrotnaði.
Lenti hann í árekstri við einn af ieikmönnum Viðis. Má búast við
þvt' að Guðmundur verói aiveg frá knattspyrnuiðkunum i sumar, og
getur það ntunað miklu fyrir ÍR-liðið. Staðan í hálfleik í leiknutn á
laugardaginn var 1—0, og skoraði Jóhannes Gunnarsson það mark. I
seinni hálfleiknum bætti Oskar Jóhannesson öðru inarki við fyrir
IR. en eftir atvikum hefðu tnöt kin getað orðið fleiri.