Morgunblaðið - 10.06.1975, Page 27

Morgunblaðið - 10.06.1975, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNl 1975 35 Valurvann VALUR og Vfkingur léku í 1. cleild Islandsmótsins í knatt- spyrnu í gær og var leikurinn háður á Laugardalsvelli. Valur sigraði með 1:0 og var það Atli Eðvaldsson sem skoraði mark Valsmanna f síðari hálfleik. Verður CIA- skýrslan birt opinberlega? Washington 9. júní AP. FORD Bandarfkjaforseti hélt fund með fréttamönnum um mið- nættið f nótt, þar sem gert var ráð fyrir að hann myndi tilkynna, að skýrsla Rockefellernefndarinnar um starfsemi CIA, bandarfsku L'.vniþjónustunnar, yrði birt opin- berlega. Starfsemi CIA hefur sætt mikilli gagnrýni f Bandarfkj- unum undanfarna mánuði og hún sökuð um njósnir innanlands og undirbúning að tilraunum til að ráða þjóðarleiðtoga af dögum þ. á m. Fiedel Castro forsætisráð- herra Kúbu. Rockefeller sagði við fréttamenn fyrir helgi, að rann- sóknir nefndarinnar sýndu að aðeins hefði verið um minnihátt- ar lögbrot að ræða og ekkert f skýrslunni myndi koma illa við Ford forseta. Ford eyddi helginni í að lesa skýrsluna, milli þess sem hann lék golf f alls 12 klukku- stundir. — Nærri 40 þús. Framhald af bls. 2 Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verka- lýðs- og sjómannafélögin í Gerða- hreppi og Miðneshreppi og Verkalýðsfélögin í Hafnarhreppi ogGrindavík. Félögin á Vestfjörð- um — Patreksfirði, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og tsafirði hafa einnig öll boðað verkföll þennan dag, föstudaginn 13. júní, en verkalýðsfélögin á Snæfells- nesi eru tveimur dögum síðar á ferðinni og kemur því ekki til verkfalla í Stykkishólmi, Ólafs- vík, Hellissandi og Grundarfirði fyrr en frá og með sunnudeginum 15. júní. A vestanverðu Norðurlandi er hins vegar mjög mismunandi hvenær verkföll hefjast — á Hofsósi t.d. 11. júní en 12. á Sauðárkróki og 16. á Skagaströnd. En allt frá Siglufirði til Raufar- hafnar hafa verkalýðsfélögin boðað verkfall frá og með 11. júní og svo er einnig um flesta staði á Austfjörðum nema hvað í Borgar- firði eystra er það boðað frá og með 12. júni og 13. júní á Seyðis- firði. Á austanverðu Suðurlandi hafa allmörg félög boðað verkföll 12. júni, svo sem Verzlunar- mannafélag Rangárvallasýslu, Verkalýðsfélagið Rangæingur, Verkakvennafélagið Snót Vest- mannaeyjum og Sveinafélag járn- iðnaðarmanna í Vestmanna- eyjum, en Verkalýðsfélagið Þór á Selfossi og Verkalýðsfélag Hvera- gerðis og nágrennis, Verzlunar- mannafélag Arnessýslu og fleiri hafa boðað verkfall frá og með 11. júní. Þá er þess að geta að 11. júní hefst einnig samúðarverkfall Landssambands vörubifreiða- stjóra. — íslendingar til sólarlanda Framhald af bls. 2 manns á vegum ferðaskrif- stofunnar. „Um bókanir fyrir allt sumarið er það að segja, að það er allt að verða uppselt í þessar 37 leiguflugsferðir sem Utsýn stendur að“ sagði Ingólfur en minnti jafnframt á að verðið nú væri afár lágt og miðaði að því fyrst og fremst að gera fólki kleift að komast til sólarlanda þrátt fyr- ir versnandi efnahagsástand i landinu. Guðni Þórðarson i Sunnu tók 1 sama streng. Hann kvað miklar b'ókanir hjá ferðaskrifstofunni í sumar og alveg uppselt í næstu ferðir til Spánar. „Hjá okkur er ekki laust pláss i ferð fyrr en eftir hálfan mánuð," sagði Guðni, en kvað að öðru leyti nokkur laus sæti vera í ferðir félagsins i júlí. Aftur á móti væri svo að segja fullbókað orðið í ferðir Sunnu í ágúst og september á þá þrjá staði á Spáni sem Sunna hefur ferðir til — Mallorka, Costa del Sol og Costa Brava. Guðni taldi þannig ljóst að farþegafjöldi Sunnu í sumar yrði mjög svipaður og í fyrrasumar. Pétur Helgason hjá Urvali sagði að forstöðumenn ferðaskrif- stofunnar væru mjög ánægðir með útkomuna það sem af væri sumri og eftirspurn eftir ferðum til sólarlanda hefði farið fram úr björtustu vonum. Kvað hann margar ferðir á vegum ferðaskrif- stofunnar til Mallorka senn full- bókaðar. — 30 Volvoar Framhaid af bls. 2 milljóna eins og bílarnir i næstu sendingu koma til með að gera. Hjá bifreiðadeild StS höfðu menn einnig orðið varir við að ofurlítið hefði lifnað yfir bifreiða- sölunni upp á síðkastið. StS hefur auglýst bandariska bíla á hag- stæðu verði, sem felst í því að hér er um að ræða sendingu frá fyrra ári, og er töluverð eftirspurn eftir þeim. Hjá Sveini Egilssyni fengum við svipuð svör. Sala bifreiða hefur heldur verið að glæðast nú fyrir verkfallið, og seljast nú í kringum 20 bifreiðar á viku, meðan algengast var áður að viku- lega seldust milli 10 og 15 bifreiðar. Þessi sala er þó hreint smáræði miðað við góðærin, þegar iðulega seldust um 70 bifreiðar í viku hverri. — Nauðgun Framhald af bls. 2 karlasalerni við Hegningarhúsið og ætlað að nauðga sér þar. Piltar- nir hættu reyndar við þá ráðagerð og dógu stúlkuna með sér upp á Skólavörðustíg. Fóru þeir með hana inn í húsagarð og þar var henni nauðgað af yngri piltinum. Enn héldu piltarnir af stað með stúlkuna og neyddu hana til að koma með sér niður í Þingholts- stræti þar sem þeir fóru með hana 1 húsagarð og nauðguðu henni báðir. Eftir það slepptu þeir stúlkunni en höfðu áður spurt hana hvort hún myndi nokkuð kæra til lögreglunnar, og þorði hún ekki annað en neita því. Allan tímann sem stúlkan var í höndum piltanna voru þeir með hótanir í hennar garð, jafnvel hót- anir um líflát og gat hún því ekki hrópað á hjálp. Gripu þeir stund- um fyrir munn stúlkunnar til að kæfa hróp. Eins og vænta mátti var stúlkan mjög miður sín eftir atburðinn og kærði hann ekki fyrr en siðdegis á laugardag. Rannsóknarlögregl- an í Reykjavík hóf þegar eftir- grennslan og studdist við smá- vegis upplýsingar sem stúlkan gat gefið um piltana. Voru þeir hand- teknir s.l. sunnudagskvöld á heimilum sinum í Kópavogi og færðir í fangageymslur. Voru þeir yfirheyrðir strax um nóttina og játaði sá yngri en hinn eldri hefur neitað að um nauðgun hafi verið að ræða, heldur hafi samþykki stúlkunnar til samfaranna komið til. Rannsókn málsins heldur áfram og verða piltarnir á meðan í gæzluvarðhaldi. Þeir voru báðir ölvaðir umrædda nótt. —140% Framhald af bls. 36 mánaðarlaun mjólkurfræðings á hæsta kaupi með föstum auka- greiðslum sem þeim fylgja gætu orðið allt að kr. 192.653.00. Samsvarandi laun I dag ásamt hliðstæðum föstum aukagreiðsl- um eru krónur 83.843.00 á mánuði. Hér er þvi um að ræða kröfur um að laun mjólkurfræð- inga hækki um allt að kr. 108.810.00 á mánuði. Mjólkurfræðingar hafa boðað verkfall í mjólkursamlögunum þann 11. júní n.k. til þess að fylgja fram framangreindum kröfum. Mbl. reyndi i gær að ná tali af talsmanni mjólkurfræðinga, en það tókst ekki. — Eru þeir Framhald af bls. 2 Nokkrar ár opnaðar í dag Eftir því sem þátturinn hefur komizt næst, þá verða nokkrar þekktar laxveiðiár opnaðar í dag og á næstu dögum eru árn- ar opnaðar Iaxveiðimönnum hver af annarri. Meðal þeirra áa, sem veiði hefst i í dag, eru Elliðaár, Þverá í Borgarfirði og Laxá í Aðaldal. Þá er t.d. vitað að Grimsá í Borgarfirði verður opnuð til laxveiða 15. júni. — Baknefnd ASÍ Framhald af bls. 36 Þetta þýðir að hærri laun hækka hlutfallslega minna en lægri laun, gagnstætt þvf sem áður var. Samkvæmt þessari nýju kröfu- gerð hækkar 6. taxti Dagsbrúnar um 38,5% eða um 17.330 kr. eins og áður. Kaup málmiðnaðar- manna hækkar hins vegar um 32,5% í stað 50% samkvæmt fyrri kröfugerð. Áttundi taxti Verzl- unarmannafélags Reykjavíkur hækkar um 29% í stað 33% áður. Trésmiðir fá 29,3% hækkun í stað 80% eins og fyrri útreikningar gerðu ráð fyrir, og rafvirkjar fá 32,1% hækkun í stað 52,2%. í inngangi að hinum nýju út- reikningum baknefndar Alþýðu- sambandsins segir, að grunnvið- miðunin sé núverandi grunnkaup að viðbættri þeirri 6,18% vísitölu- uppbót, sem reiknuð sé hlutfalls- lega á grunnkaupið. Mánaðar- kaup nú sé 8.400 kr. hærra en grunnviðmiðunin, en þar er átt við launajöfnunarbæturnar 3.500 kr. frá því 1. október og 4.900 kr. frá þvf í marz. Þá segir, að krafa Alþýðusambandsins sé sú, að allir fái 17.330 kr. kauphækkun (100 kr. á tímann) auk þess að 8.400 kr. komi óskertar þar sem um skerðingu hefur verið að ræða. Kaupið eftir þá hækkun, sem nú semdist um, yrði grunnkaup varð- andi vfsitöluútreikning. — Kaupskip Framhald af bls. 36 Vinnuveitendasambandinu fyrir- heit um að taka málið til endur- skoðunar ef eitthvað jákvætt kæmi upp í togaradeilunni. Sfðan gerðist það allt um leið, að sátta- nefnd er skipuð i deiluna og for- stjóri Þjóðhagsstofnunar enn- fremur látinn aðstoða deiluaðila. Jafnframt er höfðað mál fyrir Félagsdómi. Nokkru eftir að þjóð- hagsstjóri og sáttanefnd tóku til starfa komu þau með viðræðu- grundvöll. „Hann felur ekki t sér neina lausn, en mér sýnist hann vera viðræðugrundvöllur“, sagði Ingólfur, „sem ekki hefur verið fyrir hendi allar götur frá því I fyrra. Þar er um að ræða það sem við köllum stefnumarkandi breytingu.“ Félagsdómur hafði þau áhrif, að vélstjórar ákváðu að biða með að aflétta verkfallinu. Var búizt við því að dómur yrði kveðinn upp fremur fljótt, en þar sem það dróst og útséð var að skipin kæmust ekki út fyrir allsherjar- verkfall, var ákveðið að aflétta verkfallinu. Um það leyti, sem kaupskipin byrjuðu að sigla út úr Reykja- vikurhöfn hvert af öðru brugðu blaðamenn Morgunblaðsins sér niður á höfn og spurðu nokkra vélstjóra hvernig verkfallið hefði leystst. Sumir sögðust ekki hafa hina minnstu hugmynd um það. Það hefði aðeins verið hringt og sagt að búið væri að leysa deiluna og sigla ætti i dag. Enginn fundur hefði verið boðaður f félaginu. Hjá einum þeirra fengum við þær upplýsingar, að ástæðan fyrir því að verkfallinu hefði verið aflýst, væri, að megn óánægja hefði verið með verkfallið meðal fjölda vélstjóra. Sérstaklega hefðu vélstjórar hjá einu skipa- félaganna verið óhressir, þar sem þeirra skipafélag stæði ekki of vel að vigi fjárhagslega og þvi hefði svo getað farið, að það hefði misst skip, sem það var nýbúið að festa kaup á og mennirnir vinnuna um leið. Ennfremur fannst mörgum vélstjórum, að vélstjórar á minni skuttogurunum, hefðu fremur átt að fara í samúðarverkfall en vél- stjórar á kaupskipaflotanum og styðja þannig starfsbræður sína á stærri skuttogurum. Það var stjórn og trúnaðar- mannaráð Vélstjórafélags Is- lands, sem tók þessa ákvörðun. Ingólfur Ingólfsson sagði i gær að samúðarverkfallið hefði ekki sem slíkt verið neitt markmið í sjálfu sér og eftir að almennt verkfall væri skollið á töldu vél- stjórar það ekki lengur þjóna til- gangi sinum. I gærkvöldi átti að kveða upp dóm i máli sem VSl og Vinnu- málasamband samvinnufélag- anna höfðuðu gegn Vélstjóra- félaginu vegna þessa samúðar- verkfalls. Eftir að ljóst var að verkfallinu var aflýst var frestur gefinn og ákveðið að athuga hvort aðilar vildu halda málinu áfram. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk í gær, mun VSl hafa ákveðið að halda málinu áfram og mun þvi sennilega úrskurður kveðinn upp í dag. — Republica Framhald af bls. 1 eins og kommúnistar gerðu, er þeir lokuðu ritstjórnarskrif- stofunum. Joao Gomes fréttastjóri Republica sagði í dag, að blaða- menn Republica myndu halda fast við saksókn á hendur kommúnistísku prenturunum nema þvi aðeins, að þeir féll- ust á að hverfa frá störfum sinum við blaðið. Visuðu blaða- mennirnir til loforðs herfor- ingjastjórnarinnar um að hún mundi útvega þessum mönnum stöður við önnur blöð í landinu, sem flest eru i ríkis- eign. 20 leiðtogar kristilega demó- krataflokksins sluppu í dag úr 12 tima umsátri vinstrimanna og sakaði leiðtogi flokksins, Costa Figueira, hermenn, sem áttu að vernda flokksleiðtog- ana, sem sátu á fundi i Evora um 160 km fyrir austan Lissa- bon, fyrir að hafa sýnt algert getuleysi og afskiptaleysi, er um 1000 vinstrimenn gerðu umsátur um fundarstaðinn. Er hermenn fluttu fundarmenn loks á brott til herbúða í grenndinni urðu þeir fyrir bar- smíð og grjótkasti vinstri mannanna. Kristilegum demó- krötum var sem öðrum hægri flokkum bannað að taka þátt i kosningunum, sem fram fóru í landinu i april sl„ en flokkur- inn fær að starfa áfram. — Karl 16. Framhald af bls. 1 greifi og kommendörkapten Bertil Daggfeldt. Fylgdarmaður konungs verður dr. Sigurður Þórarinsson próf- essor, en fylgdarmaður sænska utanrikisráðherrans verður Hörður Helgason, skrifstofustjóri I utanríkisráðuneytinu. I fyrramálið heldur Svía- konungur flugleiðis til Vest- mannaeyja og eftir stutta viðdvöl þar verður haldið til Hafnar í Hornafirði. Þaðan verður ekið til Skaftafells í Öræfum, en konung- ur kemur síðan flugleiðis frá Fagurhólsmýri til Reykjavikur annað kvöld. Á fimmtudagsmorg- un mun konungur skoða íþrótta- mannvirki í Laugardal og haf- rannsóknaskipið Bjarna Sæ- mundsson í Reykjavíkurhöfn, en siðan situr hann hádegisverðar- boð Reykjavíkurborgar á Kjar- valsstöðum. Þaðan fer hann i heimsókn i Norræna húsið og skoðar síðan Þjóðminjasafnið og Listasafn Islands. Seinna um daginn hefur konungurinn mót- töku í sænska sendiráðinu fyrir Svia, sem búsettir eru á Islandi, en um kvöldið heldur hann veizlu fyrir forsetahjónin og gesti í veit- ingahúsinu Nausti. Á föstudagsmorgun verður ekið til Þingvalla, með viðkomu i dælustöðinni að Reykjum i Mos- fellssveit. Hádegisverður verður snæddur í hótel Valhöll á Þing- völlum i boði ríkisstjórnarinnar, en siðan verður haldið til Hveragerðis og þaðan til Reykja- víkur. Kl. 17 hefur flugvél kon- ungsins sig á loft frá Reykjavíkur- flugvelli og lýkur þar með opin- berri heimsókn Karls 16. Gústafs Svíakonungs til Islands. — Bretar Framhald af bls. 1 svör við, hver stefna bandalagsins verður, ef 200 mílna auðlindalög- saga verður viðurkennd alþjóða- regla. Er talið að hér sé um erfitt og viðkvæmt mál fyrir Breta að ráða. Fundur NV-Atlantshafs- fiskveiðinefndarinnar hefst í London á morgun og þar munu Kanadamenn m.a. leggja fram kröfu um, að dregið verði um 40% úr veiðum erlendra skipa við Atlantshafsströnd Kanada. Þetta kom fram á blaða- mannafundi Romeos Leblancs sjávarútvegsráðherra Kanada i dag. — íþróttir Framhald af bls. 15 halda uppi öflugasta iþróttastarf- inu fari I slika fjármagnsútvegun. Sem betur fer hafa mjög margir skilning á þörfum hreyfingarinnar og sýna henni velvild, og þau eru t.d. ótalin fyrirtækin sem leggja verulega fjármuni af mörkum ár- lega i iþróttastarfsins. Umrædd fjársöfnun til Frjáls- iþróttasambandsins færir okkur hins vegarheimsanninnum það, að það er ekki nóg að klappa saman lófunum og hafa hátt til þess að afla fjár til iþróttastarfsins. Það sem þremenningarnir voru aðgera var nákvæmlega það sama og stjórnir sérsambandanna hafa að aðalstarfi árið um kring. Munur- inn var bara sá að þeir virtust ekki hafa jafnmikinn árangur erfiðis sins og þær. Ef til vill skilja nú þeir sem hæst létu i vetur, er FRÍ greip til þess ..neyðarúrræðis" að gera samning við tóbaksfyrirtækið. hvers vegna það var gert, og sé svo að þessi misheppnaða söfnun hafi opnað augu einhverra fyrir vandamálum íþróttahreyfingarinn- ar við fjármagnsútvegun má segja að betur hafi verið af stað farið en heima setið. Það er hins vegar gömul saga og ný, að þær öldur sem risa i sambandi við svona mál eru tiltölulega fljótar að hjaðna og gleymast.og þvi hætt við að stjórn FRÍ sem stjórnir annarra sérsam- banda verði eftir sem áður að helga starfskrafta sina hinni hefð- bundnu „betlistarfsemi." —stjl. — Stríð eða... Framhald af bls. 1 frekari bráðabirgðafriðarsamn- ings við Egypta. Var Rabin for- sætisráðherra falið að fjalla um þetta mál við Ford Bandaríkjafor- seta í viðræðum þeirra, sem hefj- ast í Washington á morgun. I yfir- lýsingunni er lögð á það áherzla, að Israelar geti ekki fallizt á þau skilyrði fyrir friði, sem Sadat Egyptalandsforseti setti í friðar- umleitunum Kissingers í marz. Sagði i yfirlýsingunni að Israelar hefðu áhuga á raunhæfum til- raunum til friðarsamkomulags fyrir milligöngu Bandaríkja- stjórnar. — Smyglið Framhald af bls. 3 Friðjón Guóröðarson sagði að lokum, að engar merkingar væru á brúsunum utan um spírann og gæti því verið um að ræða iðn- aðarspiritus eða annan stórhættu- legan vökva. Slíkt kæmi ekki i ljós fyrr en búið væri að efna- greina spírann. Þvi kvaðst hann vilja vara menn við að drekka vökvann ef eitthvað hefði borizt í Iand áður en tollverðir komust á sporið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.