Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.06.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JUNI 1975 3 Hvað segja þeir um samningana? MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til forsvarsmanna þeirra samtaka er stóðu að samkomulagi því er sam- þykkt var f gærmorgun milli launafólks og vinnuveit- enda um kaup og kjör, og spurði þá álits á þessum samningum: Strax og samningarnir milli VSl og ASl höfdu verið undirritaðir var gengið frá samningum milli VR og Kjararáðs verzlunarinnar með undirskrift samningsaðila. A efri myndinni er Torfi Hjartarson, sá'iasemjari (1. t.v.K ásamt samningamönnum VR og má þar þekkja þá Magnús L. Sveinsson, Björn Þórhallsson og Guðmund H. Garðarsson. A neðri myndinni sést hvar fulltrúar Kjararáðsins eru að skrifa undir samninginn og má þar þekkja þá Júlfus B. ölafsson, Gunnar Snorrason, Harald Sveinsson og Hjört Hjartarson. (Ljósm. Mbl. Br.H.) SPOR 1 RÉTTA ÁTT Björn Jönsson, forseti Alþýðusambands íslands, sagði um samningana að hann bygg- ist við að það yrði flestum létt- ir, að tekizt hefði að ná sam- komulagi án verkfalla nema í fáeinar klukkustundir. Björn sagðist jafnframt vona að þeir tryggðu vinnufrið til næstu ára- móta og að félagar verkalýðs- hreyfingarinnar kæmust að sömu niðurstöðum um samningana og samninga- nefndarmennirnir. „Við lítum ekki á samningana sem stórsig- ur og þeir fullnægja ekki þvi marki okkar að tryggja svip- aðan kaupmátt og gilti eftir sámningana frá 1974, en sé Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, og Torfi Hjartarson, rfkissátta- semjari, ræðast við á viðkvæmu stigi samninga- gerðarinnar í fyrrinótt. hann skoðaður með sanngirni, er hann þó spor i rétta átt. Miðað við eldri samninga er þessi samningur með hærri samningum í krónutölu sem gerðir hafa verið og vegið meðaltal miðað við 6. taxta Dagsbrúnar 15,9% hækkun," sagði Björn Jónsson og bætti við: „Tvö atriði metum við einnig mjög mikils í sambandi við þessa samningsgerð. I fyrsta lagi er það yfirlýsing Geirs Hallgrímssonar, forsætis- ráðherra, um búvöruverðið, en hún felur i sér að sú búvöru- verðshækkun, sem koma átti til framkvæmda 1. júní gerir það ekki, en þetta varðar þýðingar- mestu neyzluvörur almennings. Hitt atriðið er að hinn 1. desem- ber höfum við dregið svokallað rautt strik, þannig að verðlags- hækkanir umfram 477 stig f framfærsluvísitölu verða bættar. 1 þessu ákvæði er vissu- lega fólgin mikil trygging fyrir því að þessir samningar auki kaupmátt launa — og vissulega er það og var tilgangurinn með allri þessari samningsgerð.“ sagði Björn Jónsson að lokum. SKILNINGUR LAUNÞEGA HEFUR AUKIZT Jón H. Bergs, formaður Vinnuveitendasambands ís- lands, sagði um samningana: „Vinnuveitendur hafa ekki um langt árabil gengið til heildarkjarasamninga við erfiðari efnahagsaðstæður en nú. Þær kröfur sem launþega- samtökin settu fram í upphafi viðræðnanna voru óvenju háar og það er líka ljóst að skilningur launþega á erfiðri rekstrarstöðu atvinnuveganna hefur aukizt, og þess vegna tókust samningar. Þótt flestir vinnuveitendur viti, að t.d. í sjávarútvegsgreinunum og í mörgum fyrirtækjum i öðr- um greinum, er atvinnu- rekstrinum það um megn að taka á sig svo miklar útgjalda- hækkanir. sem heildarkjara- samningurinn felur i sér. Menn vona þó að sjálfsögðu að ekki komi til mikilla rekstrar- stöðvana af þessum ástæðum, því að það gæti verið viss hætta á alvarlegu atvinnuleysi, ef til kæmu umfangsmiklar rekstrar- stöðvanir fyrirtækjanna. Ég held, að samninganefnd vinnuveitenda hafi verið þessi hætta mjög vel í ljós. Það var mjög gott samstarf og samstaða í nefndinni eins og raunar hefur komið fram i heildarsam- tökunum i dag í atkvæða- greiðslu um samningana. En menn hafa auðvitað áhyggjur af þvi, hvernig fyrirtækin geti greitt þessi auknu útgjöld, af- komuhorfurnar eru engan veginn góðar, en það er náttúrulega von bjartsýnustu manna að markaðsaðstæður batni, viðskiptakjörin batni. Það er mikil óvissa framundan og það er auðvitað meginástæða þess, að ekki var samið til lengri tima eri raun ber vitni. Báðir aðilar hefðu í sjálfu sér viljað gera samning til lengri tima, en eftir því sem viðræð- urnar þróuðust kom það á dag- inn, að það var skoðun beggja aðila og urðum við sammála um, að mjög vandasamt væri nú að gera samning til langs tima. Ég er viss um það að þrátt fyrir þessa óvissu, þá eru allir góðir íslendingar ánægðir með að þessir samningar tókust og fagna þeim. Þeir, sem ekki sam- þykkja þá og vilja hafna þeim, eru ef til vill að kalla yfir sig annað verra, sem hefði getað orðið langvarandi vinnustöðv- anir, framleiðslutjón og ýmiss konar erfiðleikar i atvinnulíf- inu, sem af því hefði getað leitt. En ég vona að launþegar sýni skilning á erfiðleikum atvinnu- veganna þegar þeir taka af- stöðu til þessara samninga i fé- lögunum, þvi að það er áreiðan- lega þörf á því að nú standi allir saman um að byggja upp bjart- ari og öruggari framtíð." SKYNSAMLEGRI SAMNINGAR EN OFT ÁÐUR Skúli J. Pálmason, formaður Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna, sagði um samningana: „Þetta eru samn- ingar, þar sem vinnuveitendur taka vissulega á sig talsverða áhættu. Þeir eru þó kannski skynsamlegri en samningar hafa verið oft áður, því að tillit er tekið til sérstaks ástands i þjóðfélaginu. Nei, þetta eru ekki þeir sömu verðbólgusamn- ingar og t.d. gerðir voru i fyrra, en samt hafa þeir i för með sér Framhald á bls. 18 Torfi Hjartarson, rfkissáttasemjari ræðir við iðnnema. — Ljósm.: Brynjólfur. SAMNINGARNIR f kjaradeilu ASl og vinnuveitenda voru undirritaðir 1 gærmorgun, þegar klukkan var 06,45. Hafði þá samningaþóf mikið staðið 1 6 klukkustundir um launakjör iðnnema. Jafnframt var ekki unnt að skrifa undir samninga Verzlunarmannafélags Reykja- víkur og Kjararáðs verzlunar- innar, þar sem beðið var úrslita 1 deilunni um iðnnemana. Eiginlegt samkomulag ( deil- unni, sem fól f sér 15,9% kaup- hækkun miðað við 6. taxta Dagsbrúnar, fékkst þó 1 fyrri- nótt um miðnætti. I fyrrakvöld klukkan 18 var boðað til baknefndarfundar ASl og eftir hann, er fréttist, að fundurinn hefði falið samn- inganefnd sambandsins að ganga frá samningum á grund- velli samningsstöðunnar, voru menn mjög bjartsýnir á lausn. Var almennt um það rætt að undirritun gæti farið fram um miðnætti. Þegar síðan samlegur hófst og farið var að lesa samn- inginn niður í kjölinn komu upp á yfirborðið ýmis smá- atriði, sem leysa þurfti, en þau voru engin svo alvarleg, að talið var að það myndi tefja undirrit- un ffam úr hófi. Var rætt um undirritun um klukkan 02. Um miðnætti komu nokkrir iðnnemar i húsakynni sátta- semjara ríkisins og hljóp þá skyndilega mikil snurða á samningaþráðinn. Iðnnemarnir áttu fundi með þjóðhagsstjóra, sáttanefndinni allri og full- trúum í samninganefnd ASl og gerðu sfnar kröfur. Allt. kom fyrir ekki — þeir komu i veg fyrir undirritun samningsins og allur sá mikli fjöldi samn- ingamanna, sem vakað hafði undanfarnar nætur og unnið baki brotnu — var nú látinn hanga næturlangt aðgerðarlaus að mestu á meðan þessi óvænti hnútur var Ieystur. Fjöldi samningamanna var í senn hneykslaður og sár yfir því að utanaðkomandi aðilar gætu komið inn í slíka samningsgerð og tafið hana. Sögðu þeir að iðnnemar væru engir samnings legir aðilar að þessum viðræð- um, þar sem ekki væri verið að ræða námssamninga, sem þeir gerðu við meistara sfna I við- komandi iðngrein. Jafnframt létu menn í ljós undrun yfir þvi að iðnnemar skyldu ganga svo hart fram I kjaramálum sínum sem raun bar vitni, þar sem aðeins er um laun á námstíma að ræða og vart mætti búast við því að nokkur iðnnema væri að semja um kaup og kjör í starfi, sem hugsað væri sem lífstíðar- starf. Einn samninganefndar- manna sagði að i raun ætti að hafa lögregluvörð um samn- ingamenn og ætti að tryggja þeim vinnufrið með því. Um fjögurleytið var kjara- samningur VR og Kjararáðs verzlunarinnar tilbúinn til undirritunar, en enn var beðið úrslita í málum ASl og vinnu- veitenda. Þegar klukkan var orðin 05,30 óskaði Kjararáðið eftir þvf að fá að ganga frá samningi sinum við VR og sagðist ekki sjá ástæðu til að bíða öllu lengur eftir lyktum í iðnnemadeilunni. Tók Kjara- ráðið sér sæti við það borð, sem ætlað hafði verið til undirrit- unar samningsins. En verzl- unarmenn komu ekki til undir- ritunar klukkan 05,30. Björn Jónsson mótmælti þvi um það leyti að undirritaðir yrðu samn- ingar við VR á undan samn- ingunum við ASI og sagði að hann liti á það sem móðgun bæði við ASl og VSl, ef svo yrði. Þegar alvarlega virtist ætla að skerast i odda vegna þessara mála tók Torfi Hjartar- son þá ákvörðun, að engin undirritun samninga færi fram fyrr en lausn væri fengin á málinu öllu i heild. Hálfri klukkustund siðar leystist deilan um iðnnemana m'eð yfir- lýsingu, sem báðir aðilar, ASl og vinnuveitendur, undirrituðu og klukkan 06.15 yfirgaf Kjara- ráðið undirritunarsalinn og fór í kaffistofu tollstöðvarhússins. Hálfri klukkustund síðar undir- rituðu ASl og vinnuveitendur samninginn og um iíkt leyti VR og Kjararáðið, sem undirritaði samninginn i snatri og gekk síðan á braut I mótmælaskyni og reyndu samningamenn að forðast allar myndatökur. — mf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.