Morgunblaðið - 14.06.1975, Síða 8

Morgunblaðið - 14.06.1975, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JUNÍ 1975 eftir JÓN AÐAL- STEIN JÓNSSON Heiðursskjöldur frá PPC. Hér birtist mynd af heiðurskildi þeim, sem islenzka póst- og sima- málastjórnin fékk frá klúbbi bandariskra blaðamanna, sem rita um frimerki og söfnun þeirra, fyrir framúrskarandi þjónustu við þá og frimerkjasafnara almennt á árinu 1974. Var sagt nokkuð nákvæm- lega frá greinargerð klúbbsins fyr- ir veitingu verðlaunanna i siðasta þætti. Ef myndin prentast vel, má lesa þessa greinargerð, eins og hún hljóðar orðrétt á ensku. Ernest A. Kehr frímerkjaritstjóri, sem er viðkunnur i heimi frimerkj- anna fyrir áratuga skrif og eins fyrirlestra um frimerki, afhenti verðlaunin við sérstaka athöfn i húsakynnum póststjórnarinnar 3. þ.m. Voru þar viðstaddir margír starfsmenn pósts og sima og eins helztu forystumenn frimerkjasafn- ara hér á landi. bessi verðlaunaveiting er mikill heiður fyrir isl. póst- og símamála- stjórnina. Ég er aftur á móti ekki eins viss um, að menn geri sér almennt Ijóst, að hún hefur einnig mikið auglýsingagildi og hlýtur að beina athygli enn fleiri safnara en hingað til að fslandi og frímerkjum þess. Frímerki 75. f gær var opnuð frimerkja- og myntsýning i Hagaskóla i Reykja- vik, og nefnist hún Frímerki 75. Að sýningunni standa Landssam- band islenzkra frimerkjasafnara og Myntsafnarafélag fslands. Hins vegar er Félag frimerkjasafnara ekki aðili að sýningunni, eins og ég hef orðið var við, að ýmsir halda Sérstakt pósthús er starfrækt þá þrjá daga, sem sýningin er opin, en henni lýkur annaðkvöld. Geta menn fengið allar póstsend- ingar stimplaðar þar með sérstök- um stimpli. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, sýna islenzkir og fær- eyskir frimerkjasafnarar og einn bandariskur frimerkjaefni í 74 römmum. Að sjálfsögðu er mest um isl. frimerki, bæði stimpluð og óstimpluð, og eins margs konar afbrigði þeirra. Færeyingar sýna þar hluta af íslandssöfnum sinum. En þeir sýna einnig frimerki frá Svíþjóð og Finnlandi og eins rúss- nesk frimerki, sem notuð voru i Finnlandi. Enn fremur sýna þeir frimerki frá Eistlandi og Ermar- sundseyjum auk ýmislegs annars. fslenzkur safnari sýnir hluta af Noregssafni sínu og annar fri- merki frá Japan. Þessi upptalning ber það með sér, að viða er komið við, þótt sýningin sé ekki mikil að vöxtum. Um þátt myntsafnara i sýningunni verður ekki fjallað hér. Undarlegt má það heita, að eng- in dönsk frimerki munu vera sýnd á Frimerki 75. Verð ég að segja eins og er, að ég tel alveg fráleitt, að Danir skuli verða þannig með öllu afskiptir. Vafalitið er einhver skýring fyrir þessu, þótt ég eigi fremur bágt með að koma auga á hana. Raunar er ekkert laununga- mál, að dönsk „filatelia" eða fri- merkjasaga hefur aldrei orðið mjög vinsæl hér á landi, og þeir eru ekki margir, sem safna dönsk- um frimerkjum sérstaklega, held- ur þá einungis sem hluta af Norð- urlandasöfnun. Af sýningarefni Færeyinganna virðist Ijóst, að af- staða þeirra er svipuð og islenzkra safnara. Hvað veldur þessu? Þvi er áreiðanlega ekki fljótsvarað, enda getur fleira en eitt atriði komið til greina. Ég veit, að margir isl. safn- arar telja dönsk frimerki fábreytt og litt eftirsóknarverð. Að minum dómi er þessu öfugt farið, a.m.k. um mörg þeirra. Ég álit að dönsk frimerki og þá ekki sizt hin elztu og allt fram yfir aldamót hafi upp á margt skemmtilegt að bjóða, þegar þau eru athuguð nánar. Hef ég sjálfur nokkra reynslu i þeim efnum. í ágúst 1976 munu fri- merkjasafnarar um allan heim sjálfir geta gengið úr skugga um þetta á væntanlegri alþjóðafri- merkjasýningu í Kaupmannahöfn. Hafnia 76. Er þetta fyrsta alþjóðafrimerkja- sýning i Danmörku og haldin til að minnast þess, að 125 ár verða liðín frá útkomu fyrsta danska fri- rnerkisins 1. april 1976. Varð Danmórk þannig fyrst Norður- 'anda til að taka upp frimerki i póstviðskiptum. Danskir fri- merkjasafnarar setja lika metnað sinn i að gera Hafnia 76 sem bezt úr garði. Verður hún skipulögð af þeim i náinni samvinnu við aðal- póststjórnina dönsku. Takmark Hafnia 76 er fyrst og fremst það að auka virðingu fyrir dönskum frimerkjum, jafnt innan Danmörku sem utan. Jafnframt er tilgangur hennar að styrkja danska frí- merkjasöfnun og auka samvinnu milli frímerkjafélaga. Um leið á sýningin að hvetja almenning til að safna frimerkjum. Sakir rúmleysis verður ekki unnt að segja nánar frá Hafnia 76, en siðar verður það gert hér i blaðinu. Þessi þáttur verður hinn síðasti að sinni. Þegar hann hóf göngu sína i nóvember sfðastliðnum, var ætlunin, að við yrðum tveir, sem skiptumst á um að skrifa hann. Þvi miður fór svo, að Jónas Hall- grimsson, sem er með fróðustu mönnum um frimerki, hefur ekki getað sinnt þættinum siðustu mánuði sökum veikinda. Fyrir hönd okkar beggja þakka ég les- endum þann áhuga, sem þeir hafa sýnt þessum skrifum okkar. Ætlun ritstjórnar Mbl. er sú, að þátturinn hefjist aftur næsta haust, hvort sem hann verður áfram i umsjá sömu manna eða annarra. Þegar rætt var i siðasta þætti, 31. maí, um það. frá hvaða lönd- um menn ættu einkum að safna frimerkjum, var mjög stuðzt við sænska grein um það efni. Jafn- framt var birt skrá eða tafla, sem sýna átti fjölda frimerkja i Evrópu- löndum frá upphafi og eins þróun i útgáfumálum þeirra siðustu árin. Þvi miður tókst svo óhöndulega til við hönnun blaðsins, að skráin varð nær ólæsileg sakir letur- smæðar — og það jafnvel þótt notað væri stækkunargler! Þess vegna er hún birt hér aftur, um leið og beðið er afsökunar á þess- um mistökum. Að öðru leyti verð- ur að visa til fyrri þáttar til skýr- ingar á skránni. Antal frim. enligt Skillnad Första Befolkn.- Land Z-72 Z-75 72-75 frimárket mángd i milj. Turkiet 2.567 2.681 114 1863 37.000.000 Belgicn 2.342 2.496 154 1849 10.000.000 Spanicn 2.156 2.307 151 1850 34.000.000 Frankrike 1.930 2.051 121 1849 50.000.000 österrike 1.689 1.786 97 1850 7.500.000 Schweiz 1.531 1.616 85 1843 6.000.000 Italien 1.527 1.641 114 1861 55.000.000 Grekland 1.356 1.450 94 1861 9.000.000 Portugal 1.347 1.454 107 1852 8.000.000 Holland 1.143 1.212 69 1852 13.000.000 San Marino 1.098 1.187 89 1887 0.020.000 Monaco 1.042 1.170 128 1885 0.025.000 Luxemburg 1.041 1.100 59 1852 0.350.000 Storbritannien 783 872 89 1840 55.000.000 Sverige 770 919 149 1855 8.000.000 Norge 768 835 67 1856 4.000.000 Finland 751 807 56 1856 4.500.000 Víist-Tyskland 698 826 128 (1945) 1949 60.000.000 Danmark 658 720 62 1851 5.000.000 Liechtenstein 654 719 65 1912 0.022.000 Vatican-staten 625 679 54 1929 0.001.000 Island 517 560 43 1873 0.210.000 Malta 452 531 79 1860 0.325.000 Víist-Berlin 394 473 79 1948 2.000.000 Cypern 373 421 48 1880 0.650.000 Andorra 360 403 43 1928 0.025.000 Irland 287 327 40 1922 3.000.000 Gibraltar 279 316 34 1866 0.030.000 Grönland 98 109 21 1905 0.050.000 Guernsey 73 125 52 1940 0.050.000 Jersey 72 122 50 1941 0.070.000 F.N. (Europa-valuta) 18 45 27 1969 — Fiiröarna 6 6 — 1919 0.040.000 Isle of Man — De s.k. östcuropciska landcrna: 44 44 1973 0.055.000 Sovjetunionen 3.883 4.236 353 1857 245.000.000 Rumiinien 3.224 3.479 255 1858 20.000.000 Ungern 2.919 3.221 302 1871 10.000.000 Bulgarien 2.195 2.430 235 1879 8.500.000 Polen 2.155 2.386 231 1918 (1860, 1 márke) 33.000.000 Tjeckoslovakicn 2.116 2.329 213 1918 14.000.000 Jugoslavien 1.797 1.945 148 1918 20.000.000 Öst-Tyskland 1.574 1.851 277 1948 17.000.000 Albanien 1.523 1.752 229 1913 2.000.000 Blóm ® vlkunnar Enn um illgresi SÉRFRÆÐINGURINN sem á laugardaginn var byrjaði að fræða okkur um illgresi og mögu- leika á útrýmingu þess féllst á að segja ofurlítið frá tveimur mjög illræmdum tegundum sem mörg- um garðræktanda hefur orðið ær- in þoiraun að uppræta en það eru haugarfi (stellaria media) og húsapuntur (agropyron repens), ekki vantar að þær eigi sér nógu fin latnesk nöfn! „Þegar talað er um illgresi kemur arfinn eða haugarfinn fyrst og fremst i huga ræktunar- mannsins. Haugarfinn er út- breiddastur allra illgresistegunda hér á landi og veldur mestum skaða í görðum. Hið raka og svala loftslag er mjög hentugt fyrir vöxt og þroska haugarfans. Hann er einær og stönglarnir margir, annaðhvort uppsveigðir eða jarðlægir, safamiklir, Ijós- grænir á lit. Laufblöðin eru safa- rik. Krónublöðin eru hvit, jafnvel bleik á stundum. Eftir að skordýr hafa frævað blómin og frjóvgun lokið myndast aragrúi fræja. Þeg- ar þau eru þroskuð dreifast þau um garðinn fái haugarfinn að ná fullum vexti í garðinum. Fræin verða þroskuð frá þvi um mitt sumar og fram á haust. Séu raki og hlýja i moldinni spirar fræið fljótlega eftir að það hefur fallið i jarðveginn frá móðurplöntunni. Arfafræið spirar snemma vors og getur arfinn bjómstrað i maibyrj- un. Strax og ungu arfaplönturnar komast upp er nauðsynlegt að reita þær eða hreyfa moldaryfir- borðið með handverkfærum, en við það drepst mikið af ungplönt- um og fræjum, sem eru að byrja að spira. Sifelld barátta er háð milli garðplantna og arfans um vatn, birtu og vaxtarrými. Á siðari árum hafa margskonar lyf verið seld í verzlunum sem eyða haugarfa og öðru illgres/ úy matjurtagörðum, trjábeðum ua skrautjurtabeðum. Öll eru þessi lyf sérhæf þ.e. eyða aðeins viss- um tegundum illgresis en skemma ekki nytjaplöntur. Sum efni í illgresislyfjum geta safnazt fyrir i nytjajurtum án þess að valda sýnilegum skemmdum á þeim, en valdið tjóni á heilsu manna. Mörg slik lyf sem áður voru seld á frjálsum markaði eru nú talin í ftokki hættulegra lyfja og fást ekki keypt nema með sérstöku leyfi Eiturlyfjanefndar. Þótt haugarfinn sé eitt hið ill- ræmdasta illgresi hérlendis þá inniheldur hann mikið af vitamín- um og er uppáhaldsgrænmeti margra náttúrulækningamanna og útbúa þeir úr honum ýmsa gómsæta rétti. Húsapuntur er fjölært gras með löngum jarðstöngli. Á 4—7 sm millibili myndast rætur á jarð- stönglinum og með þeim koma blöðin upp. Húsapunti fjölg- ar á þann hátt að jarðstöngullinn vex út frá móðurplöntunni og myndar einskonar þéttriðið net Framhald á bls. 13.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.