Morgunblaðið - 14.06.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1975
11
Guðmundur G. Þórarinsson:
Hvað er hvers?
„MARGUR hyggur mig sig“ var
það fyrsta, sem mér datt i hug, er
ég las klausu Arna Johnsen í
Morgunblaðinu hinn 10. júni sl.
Arni hafði þá áður á laugardegin-
um á undan ritað að ýmsu leyti
athyglisverða grein um málefni
Viðlagasjóðs, þótt þar gætti mik-
illar ónákvæmni.
Það er ekki mitt að svara fyrir
Viðlagasjóð almennt, en i klausu
sinni beinir Arni spurningum til
min.
Ég verð raunar að játa, að ég les
Morgunblaðið ekki nákvæmlegar
en það, að þetta fór fram hjá mér,
og því er svarið ekki fyrr á ferð.
Fyrírtæki Karls
Erik Rocksén
Arni Johnsen lætur að því
liggja, að greiðslur til fyrirtækis
Karls Erik Rocksén hafi runnið
til min.
ifyrirtæki Karls vann fyrir Við-
lagasjóð ásamt um 30 öðrum
tæknifyrirtækjum. Fyrirtæki
hans er einkafyrirtæki og á ekk-
ert sameiginlegt við mitt fyrir-
tæki annað en að leigja á sömu
hæð.
Til þess að forðast frekari mis-
skilning er rétt að fram komi, að I
þessu sama húsi eru fleiri fyrir-
tæki með hliðstæða þjónustu.
Sum þeirra hafa starfað fyrir Við-
lagasjóð, en ekkert þeirra er i
minni eigu.
Greiðslur til Verk-
frœðistofu Guðm. G.
Þórarinssonar
Greiðslur frá Viðlagasjóði til
mins fyrirtækis nema, frá upp-
hafi goss til dagsins i dag, kr.
15.594.167.— Er þar um að ræða
samfellda vinnu I tvö ár og fjóra
mánuði, en hjá fyrirtæki mínu
hafa starfað um 10 manns að
meira eða minna leyti fyrir Við-
lagasjóð.
Af greiðslum þessum eru kr.
1.049.421.— beinar endurgreiðsl-
ur af þvi, sem fyrirtækið lagði út
fyrir Viðlagasjóð þ.e.a.s. síma-
kostnaður, kópieringskostnaður,
aksturs- og ferðakostnaður,
greiddur beint án álagningar frá
fyrirtækinu.
Fyrir þjónustu hefur því Við-
lagasjóður greitt fyrirtæki mínu
um kr. 14.500.000.—.
Rétt er að leggja áherzlu á, að
þetta eru ekki greiðslur til mín
persónuiega. Launagreiðslur fyr-
irtækis míns ásamt launatengdum
gjöldum nema á umræddu tima-
bili kr. 13.187.026.—, en að sjálf-
sögðu var unnið fyrir fleiri aðila
en Viðlagasjóð. I þessari tölu eru
mín laun ekki innifalin.
Vilji Arni einhverju við þetta
bæta, er einnig rétt að fram komi
að ég er hluthafi I Verkfræðistofu
Suðurlands h/f á Selfossi, sem
annaðist eftirlit að hluta austan
fjalls. Greiðslur til þess fyrir-
tækis nema kr. 1.394.000.—
samanlagt árin 1973 og 1974, en
þar starfa þrír menn.
Það sem verkfræðistofa mín
annaðist var í stórum dráttum:
1) Aðstoð við að finna húsnæði,
er var í smíðum og mátti gera
íbúðarhæft, meðan erfiðleikarnir
voru sem mestir, og áætlanir um
að ijúka þessum byggingum.
2) Að hluta samningagerð við
erlend fyrirtæki um sölu timbur-
húsa hingað ásamt tæknilegri
ráðgjafarvinnu við kaupin.
3) Samningar við sveitarfélög
um lóðaúthiutanir o.fl.
4) Hönnun grunna, skolp- og
vatnslagna.
5) Samningar við innlenda
aðila um grunnasmíði og lóðafrá-
gang og eftirlit með þessum fram-
kvæmdum.
6) Frágangur teikninga fyrir
bygginganefndir þar sem þess
var krafizt.
7) Eftirlit með vinnu erlendra
aðila við byggingu húsanna og
aðstoð við uppgjör við þá, en
vinnuskýrslur varð að þýða á
erlend mál I flestum tilfellum.
8) Fylgjast með húsunum á
ábyrgðartíma þeirra og lóðaúttekt
að honum loknum.
Starfi þessu er ekki lokið enn.
Abyrgðartími síðustu húsanna
rennur út á þessu ári og lóðafram-
kvæmdum lýkur I sumar.
Að sjálfsögðu störfuðu fleiri
aðilar að þessu verki en mitt fyr-
irtæki, eins og áður getur, þótt
meginábyrgðin hvíldi á mér, og
undan henni mun ég ekki skorast.
Meðal annars störfuðu tveir
Vestmanneyingar með mér og
lögðu dag við nótt og allt þrek sitt
í þessa vinnu, sem stundum var
mjög erfið. Mér virðist þeirra
starf ekki hafa verið þakkað sem
skyldi.
Varðandi verkfræðikostnaðinn
almennt er það að segja, að ég
þekki aðeins til þess hluta hans,
er lýtur að byggingu innfluttu
húsanna.
Verkfræðikostnaður
í heild
Verkfræðikostnaður vegna
þessara framkvæmda mun nema
hjá Viðlagasjóði um 30 millj. kr.
til hinna ýmsu aðila. Þar af eru
um 5 millj. kr. hönnun grunna,
skolp- og vatnslagna ásamt
frágangi teikninga fyrir
byggingarnefndir, eða ca. kr.
10.000.— á hús.
Samningagerð og eftirlit og
uppgjör nema þá um 25 millj. kr.
eða um 1% af framkvæmda-
kostnaði, sem er um 2,5 milljarð-
ar.
Ég hygg, að hér sé mjög vel
sloppið. Um var að ræða byggingu
13 húsagerða á 20 stöðum á land-
inu.
Ekki er óvenjulegt, að verk-
fræðikostnaður nemi 5% við
eftirlit, til dæmis i vegagerð, og
allt að 10% við virkjanir.
Ég er þvi þeirrar skoðunar, að
verkfræðikostnaður vegna inn-
fluttu húsanna sé í lágmarki, og
ef til vill verði það aldrei leikið
eftir að hrinda siíku verki i fram-
kvæmd með jafnlitlum tilkostnaði
og jafnlitlu skrifstofuliði. Að
minnsta kosti treysti ég mér ekki
til að endurtaka það.
Grunnasmíðin
Arni telur, að smíði grur.nanna
hafi orðið óeðlilega dýr, eða um
500 þús. kr. að meðaltali. Hjá hon-
um gætir þess misskilnings, að
Viðlagasjóður hafi að auki greitt
efnið í- þá. Það er ekki rétt. I
undantekningartilfellum tók Við-
lagasjóður að sér öflun skolp-
lagnaefnis og slíks til þess að fá
ekki álagningu verktaka á það.
Meðalkostnaður á grunn er þvl
um 500 þús. kr.
Það kann að vera, að mönnum
virðist það hátt, en margs er að
gæta.
1) I þessum kostnaði er grunna-
gerðin, ásamt frárennslis- og
vatnslögnum, jarðvegsskiptum í
bílskýlum og aðkeyrslum að
húsunum. I mörgum tilfellum
varð að fylia sérstaklega að
húsunum til þess að koma krön-
um að vegna elementbygginga. I
þessu er með frágangur grunna
að utan (pokapússning) og oft
raflagnir að nokkrum tengipunkt-
um i hverfinu o.s.frv.
2) Aðstæður voru mjög mis-
munandi. Sums staðar voru
margra metra fyllingar, annars
staðar allt að 7 m niður á fast og
þá borað. — Slikar aðstæður
hleypa meðaltalinu upp.
3) Grunnarnir eru mjög mis-
munandi eftir fyrirtækjum og
sums staðar jarðvegsaðstæður
mismunandi innan sama svæðis.
Akvæðisvinnutaxti tekur mjög lít-
ið tillit til endurtekninga, þótt
margir grunnar séu eins.
4) Vinnan var framkvæmd i
mikilli tímapressu, þegar ástæður
á vinnumarkaði voru erfiðar.
Mjög mikil vinna var, en grunn-
smíði varð að ljúka á stuttum
tíma. — Fjöldi fólks var á götunni
og enginn vissi um tima, hver
yrðu afdrif Eyjanna.
Það er ekki auðvelt að rifa iðn-
aðarmenn úr vinnu, þar sem nóg
er að gera til þess að vinna undir
slíkum þrýstingi og greiða þeim
minna en þeir fá annars staðar.
Við smíðina var i öllum tilfell-
um unnin mikil yfirvinna.
Ég get fullvissað Arna um það,
að alls staðar var reynt að gæta
fyllstu hagkvæmni og yfirleitt
stóðu þeir sig vel, sem að þessari
grunnasmíði unnu og eiga þakkir
skyldar fyrir verk sin.
5) Við þær aðstæður sem riktu
á vinnumarkaðinum, var það sam-
dóma álit mitt og stjórnar Við-
lagasjóðs, að vænna væri til ár-
angurs að semja beint við ein-
staka aðila en hafa almennt út-
boð, auk þess sem útboð á grunn-
unum hefði tafið verkin. Á sum-
um stöðum var jafnvel varla um
nema einn aðila að ræða, sem
ráðið gæti við verk af þessu tagi á
þeim tíma, sem um var að ræða.
Sums staðar fóru fram lokuð út-
boð, en víða var unnið að grunna-
UNDIRBUNINGI að 15. ráð-
stefnu norrænna búvísinda-
manna, sem haldin verður dagana
1.—4. júll n.k. I Reykjavík, er að
mestu lokið. Kemur þetta fram í
nýútkomnu fréttabréfi Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins og
segir þar að þátttakendur i ráð-
stefnunni verði 574, en auk þess
koma margir þeirra með fjöl-
skyldur sínar. Þannig koma alls
832 frá Norðurlöndunum.
Ráðstefnan verður haidin í
húsakynnum Háskóla íslands.
Verður hún sett i Háskólabíói 1.
júlí og verða þar flutt tvö erindi.
Dr. Björn Sigurbjörnsson flytur
annað en hitt flytur prófessor
Kalle Maijala frá Finnlandi, en
flutt verða um 150 erindi á ráð-
stefnunni. ,
Ráðstefnunni verður slitið i Há-
skólabíói föstudaginn 4. júlí, og
mun forseti íslands, dr. Kristján
Eldjárn, flytja lokaerindi ráð-
stefnunnar.
Þessar Norðurlandaráðstefnur
eru haldnar 5. hvert ár og þá gefið
smiðinni jafnhliða gatna- og hol-
ræsagerð í hverfinu. Handhægast
var þá að sami verktaki ynni bæði
að grunnasmíði og gatna- og hol-
ræsagerð til þess að hindra
árekstra innan svæðisins.
Alit Arna að eðlilegur meðal-
kostnaður á grunn væri kr.
200.000.- er fráleitt.
I sumum tilfellum kostaði
steypan ein frá Steypustöð yfir
kr. 100.000,- pr. grunn, og er þá
eftir öll jarðvinna, stundum
sprengingar eða boranir, upp-
sláttur og timbur, járn og járna-
vinna og frárif, skolp- og vatns-
lagnir, frágangur grunna og poka-
pússun og jarðvegsskipti í inn-
keyrslum o.s.frv.
Hitt er annað, að það hefur allt-
af verið auðvelt að standa utan
við veginn og ausa auri á þá,sem
draga vagninn.
yfirlit um það helzta sem gerzt
hefur á sviði landbúnaðarrann-
sókna og tilrauna. Undirbúningur
að skipulagi ráðstefnunnar hefur
að mestu hvílt á stjórn Islands-
déildar NJF, en formaður hennar
er Sveinn Hallgrímsson, ráðu-
nautur, en framkvæmdastjóri
ráðstefnunnar er Agnar Guðna-
son, blaðafulltrúi. Jóhanna Þrá-
insdóttir hjá Ferðaskrifstofu
rikisins hefur veg og vanda að
skipulagi allra ferða fyrir þátttak-
endur, móttöku og gistingu hér á
landi.
Brotizt inn
hjá Tímanum
BROTIZT var inn i skrifstofur
dagblaðsins Timans við Aðal-
stræti í fyrrinótt. Tvær hurðir
voru spenntar upp og rótað til á
skrifstofunum en ekki var hægt
að merkja, að neinu hefði verið
stolið.
Munið okkar glæsilega
kalda borð í hádegi.
Danshljómsveit II /'St r I QODf"
Árna ísleifs leikur í kvöld. 11 I II L D ix
832 komu vegna ráðstefnu
norrænna búvísindamanna
Stapi — Dögg —
Stórkostlegur dansleikur í kvöld
Gestir kvöldsins
verða hinir efnilegu
FRÆNDUR
STUÐIÐ VERÐUR
í STAPA í KVÖLD
DÖGG
Ný Dögg kemur
fram í fyrsta skipti
á Suðurnesjum
síðan
breytingarnar
áttu sér stað.
Sætaferðir frá B.S.Í.
kl. 21.30 — 22.00
STAPI