Morgunblaðið - 14.06.1975, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDAGUR 14. JÚNI 1975
Aðalsteinn Sigurðsson, fiskifræðíngur:
Nokkur orð til fram-
kvæmdastjóra L.I.Ú.
I útvarpsþætti 15. maí sl. sagöi
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, eitthvað á
þá leið, að íslenskir fiskifræðing-
ar, að Jakobi Jakobssyni undan-
skildum, hefðu aldrei lagt fram
neinar tillögur um verndun fisk-
stofna.
Ef ég hefði ekki oftar en einu
sinni heyrt Kristján halda svona
endaleýsu fram, hefði það vakið
undrun’mína, að framkvæmda-
stjóri L.I.U. skyldi láta þetta út úr
sér, þar sem hann ætti, ef hann
fylgdist nokkuð með, að vita
betur.
Þó að Jakob Jakobsson bæri á
móti fullyrðingu Kristjáns í áður-
nefndum útvarpsþætti, get ég
samt ekki látið hjá líða að gera
nokkrar athugasemdir vegna
hennar.
Það hafa fjölmargar tillögur
komið, bæði fyrr og síðar, frá Haf-
rannsóknastofnuninni um vernd-
un og betri nýtingu stofna fiska
og annarra nytjadýra í sjó og hafa
allir fiskifræðingar stofnunarinn-
ar átt þar hlut að máli. Það er vel
af sér vikið hjá Kristjáni að geta
lokað augum og eyrum fyrir þeim
öllum. Ekki er það ætlun mín að
gefa neina skýrslu um þær hér,
enda mundi það verða of langt
mál. Oft eru þær 1 skýrslu- eða
umsagnarformi til Sjávarútvegs-
ráðuneytisins og má vel vera að
slík plögg fari fyrir ofan garð og
neðan hjá framkvæmdastjóra
L.I.U. Látum það gott heita, þó að
mér finnist eðlilegt, að slikur for-
ystumaður útgerðarinnar hafi
það náið samband við ráðuneytið
um mál útvegsins, að hann frétti
einstöku sinnum um meðferð
mála þar.
Þó að Kristján Ragnarsson hafi
e.t.v. sýnt það mikið áhugaleysi,
að hann hafi ekki fylgst með
neinu öðru, sem komið hefur frá
okkur fiskifræðingum um frið-
unarmál, þá fór það örugglega
ekki framhjá honum, þegar tillög-
ur okkar um nýtingu landhelginn-
ar birtust síðla árs 1972. Það lét
hann óspart í ljós þá, bæði I ræðu
og riti. Þótt hann væri okkur ekki
sammála, voru þetta þó tillögur
um verndun fiskstofna engu að
síður. Það fór ekki á milli mála,
að honumþóttuþærganga alltof
langt á ýmsan hátt. Enda vorum
við þeir fádæma þrjótar að leyfa
okkur að hugsa fyrst og fremst
um framtíðina, en ekki aðeins um
líðandi stund, en það mun íslensk-
ur útvegur ekki hafa talið sig
þola, ef dæma má eftir viðbrögð-
um Kristjáns og reyndar fleiri
manna. Þess ber þó að geta, að
sumir útvegsmenn lýstu ánægju
sinni yfir tillögum okkar.
Þrátt fyrir þær neikvæðu und-
irtektir, sem tillögur okkar fengu
hjá ýmsum forvígismönnum i
sjávarútvegi og stjórnmálum,
leyfi ég mér að halda því fram, að
þær hafi verið þannig úr garði
gerðar, að framkvæmd þeirra
mundi hafa stuðlað mjög að
verndun stofna þeirra, sem við
nýtum úr sjó, án þess að tekið
væri tillit til annarlegra sérhags-
munasjónarmiða, sem oft skjóta
upp kollinum.
Það er fjarri mér að halda því
fram, að þessar tillögur hafi verið
gallalausar. Auðvitað voru þær
takmarkaðar eins og önnur mann-
anna verk. Þær voru upphaflegá
afhentar ákveðinni þingmanna-
nefnd, sem lýsti yfir miklum vilja
til samstarfs við okkur, þegar hún
tók á móti tillögunum, en fremur
fannst mér litið fara fyrir sam-
starfsviljanum þegar til kom. Ég
fyrir mitt leyti Ieit fyrst og fremst
á tillögurnar sem umræðugrund-
völl fyrir nefndina og okkur og tel
að betur hefði farið, ef svo hefði
orðið. Framhald á bls. 23
Þrír kennarar
óskast
að Iðnskólanum á Akranesi.
Skólann vantar einn bóknámskennara —
helstu kennslugreinar: enska og danska
— svo og kennara að tré- og málm-
iðnaðardeildum skólans. Æskilegt er að
þeir séu með próf í tæknifræði. Laun eru
samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Umsóknir, ásamt uppl. um menntun og
starfsreynslu, sendist fyrir 28. júní 1975
til Menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
6, Reykjavík eða formanns skólanefndar,
Ólafs Guðbrandssonar, Merkurteigi 1,
Akranesi.
Skólanefnd.
Viðskiptafræðingur
eða maður vanur heildsölurekstri óskast
strax. Sími 1 9290 og 1 6568.
Fangavarðarstaða
Fangavörður óskast að Fangelsinu Síðu-
múla 28 í Reykjavík frá 1. september nk.
að telja.
Aldurstakmörk 20—40 ára.
Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfs-
manna.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 27.
þ.m. og fylgi þeim upplýsingar um fyrri
störf.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 12. júní
1975.
Lausar stöður
í Hafnarfirði
Stöður ritara við skólana í Hafnarfirði eru
lausar til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna Hafnarfjarðar-
bæjar.
Umsóknir sendist skrifstofu minni fyrir 1.
júlí.
Fræðs/ust/órinn í Hafnarfirði.
Vélstjórar
Vanan I. vélstjóra vantar á 300 tonna
fiskiskip. Upplýsingar í síma 35792 eftir
kl. 19.00.
Tjónaskoðunar-
maður
Tryggingarfélag óskar að ráða bifvéla-
virkja, bílasmið eða mann vanan bodyvið-
gerðum til tjónaskoðunar, tjónaáætlana
og annara starfa í tjónadeild. Æskilegast
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu eru vin-
samlegast beðnir að senda nöfn sín,
ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf á afgreiðslu blaðsins fyrir
19. júní n.k. merkt: „Tjónaskoðunar-
maður — 2503".
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
húsnaeði
íbúð óskast
2ja til 3ja herb ibúð óskast til
leigu frá 1. ágúst, helsf í
Austurbænum. Uppl. i si(na
93 — 6290.
Háskólanemi
og hjúkrunarnemi óska eftir
2ja herb. ibúð frá og með
15. ágúst. Reglusemi og
góð»ri umgengni heitið. Uppl.
eftir kl. 19.00:í sima 93 —
8168.
Verzlið ódýrt
Sumarpeysur kr. 1000.—
Siðbuxur frá 1000.— Denim
jakkar 1000.— Sumarkjólar
frá 2900.— Sumarkápur
5100,—
Verðlistinn, Laugarnesvegi
82.
Mold
Gróðurmold til sölu. Heim-
keyrð. Upplýsingar i sima
51468.
Reyrstólar
og körfuborð i sumarbústaði,
nú fyrirliggjandi. Styðjið is-
lenzkan iðnað.
Körfugerðin, Ingólfsstræti
16.
Byggingarmenn
Járnaklippur óskast keyptar.
Þurfa að geta klippt svert
steypustyrktarstál.
Tilboð sendist Mbl. merkt: .,
járnaklippur — 6959".
Hestar
Hestur til sölu. Uppl. i sima
52343.
Baðsett
Nýtt vandað baðsett, ásamt
sturtubotni, til sölu. Hagstætt
verð. Upplýsingar í sima
14830 og 1 1293.
barnag®z,a
12 ára telpa óskar eftir að
gæta barns hálfan eða allan
daginn, helst i Háaleitishverfi
eða nágr. Uppl. i síma:
37923.
tapífund'ð
Roamer kvenúr
tapaðist í eða við Sundlaug
Laugardals um helgina.
Fundarl. Simi 41 1 73.
bílar
Til sölu
VW 1302 árg. 72. Fallegur
bíll. Uppl. í síma 38349.
VW 1200 árg. '71 til
sölu
ekinn 48.000 km. Óvenju
fallegur og vel með farinn
bíll. Á sama stað: Stereo
samstæða i meðal verðflokki.
Simi 36300.
atvinna
Hárgreiðslukona
óskar eftir hálfdagsvinnu i
sumar. Sími 7351 5.
Sprunguviðgerðir
Þéttum sprungur i steyptum
veggjum og steyptum þök-
um.
Notum aðeins 100% vatns-
þétt Silicone gúmí selant
efni.
20 ára reynsla tryggir góða
þjónustu.
H. Helgason — simi 41055.
Steypum bílastæði
leggjum gangstéttir.
Standsetjum og girðum lóðir.
Simar 14429 og 74203.
féiagslíf^
Kvenfélag Laugarnes-
sóknar
Sumarferð verður á Vestfirði
til Bolungarvikur dagana
4. — 7. júli. Fundur varðandi
ferðina verður mánudaginn
16. júni i Kirkjukjallaranum
kl. 21.30.
Grensássókn —
Safnaðarferð
Safnaðarferð sunnudaginn
22. júni. Hreppar— Þjórsár-
dalur — Landsveit. Uppl.
gefa Kristrún Hreiðarsdóttir,
simi 3691 1 og sóknarprest-
ur símar 32950 — 43860.
Nefndin.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins-
götu 6A á morgun kl. 20.30.
Allir velkomnir.
K.F.U.M. og K.
Reykjavik
Munið sumarferðina á morg-
un, sunnudag. Guðsþjónusta
í Skálholti kl. 14.00. Sóknar-
presturinn, séra Guðmundur
Óli Ólafsson, predikar og
þjónar fyrir altari. Samkoma
verður á sama stað kl 1 6.30.
Kórar félaganna syngja.
Ræða og mikill almennur
söngur. Allir velkomnir. Sam-
koma i húsi félaganna i
Reykjavík fellur niður.
Skrifstofa félags ein-
stæðra foreldra
er opin mánudag og fimmtu-
dag kl. 3 — 7. Aðra daga kl.
1—5. Ókeypis lögfræðiað-
stoð fyrir félagsmenn
fimmtudag kl. 10—12. Simi
11822.
Laugardagur kl. 8.00
Ferð að Skaftafelli,
kl. 12.30
Vestmannaeyjar.
Sunnudagur kl. 9.30
Ferð á sögustaði Njálu,
Leiðsögumaður Haraldur
Matthiasson Farmiðar á skrif-
stofunni.
UTIVISTARFERÐIR
Laugardaginn 14.6.
kl. 13
Óbrynnishólar. Fararstjóri
Gisli Sigurðsson.
Sunnudaginn 15.6.
kl. 13
Hellaskoðun vestan Kóngs-
fells. (Hafið góð Ijós með).
Fararstjóri Jón I. Bjarnason.
Brottfararstaður BSÍ. Verð
500 kr.
Útivist.
Farfugladeild
Reykjavíkur
Sunnudag 15. júni kl. 9.30
gönguferð á Keilir og Sveiflu-
háls. Brottfarastaður bila-
stæði við Arnarhvol.
Farfuglar, Laufásveg 41.