Morgunblaðið - 14.06.1975, Qupperneq 21
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1975
21
UMSJÓN: Bergljót Halldórsdóttir, Björg Einarsdóttir, Erna Ragnarsdóttir
Lilja Ólafsdóttir.
Kvennaársvihan i4-21.fúni
14.
júní
2.
5.
I dag, 14. júní, kl. 14 verður
sett ráðstefna í tilefni hins al-
þjóðlega kvennaárs með
hátíðarfundi i Háskólabíó.
Dagskrá fundarins verður:
1. Sigríður Thorlacius formað-
ur K.I. setur fundinn.
Kammersveit Reykjavíkur
leikur
Eva Kolstad, formaður
kvennaársnefndar Noregs
flytur ræðu
4. „Ljóð Drífu"
Geirlaug Þorvaldsdóttir les
og Jórunn Viðar ieikur
frumsamda tónumgerð
Frumlutt verður samfelld
dagskrá um verkakonur á Is-
landi fyrr og nú, sem sam-
starfshópur úr íslenzkudeiid
Háskóla Islands tók saman
undir leiðsögn Öskars Hall-
dórssonar lektors. Flytjend-
ur eru: Bríet Héðinsdóttir,
Guðrún Alfreðsdóttir,
Margrét Helga Jóhannes-
dóttir, Steinunn Jóhannes-
dóttir, ásamt Hjördísi Berg-
þórsdóttur, Kjartani
Magnússyni, Magnúsi
Péturssyni og Normu
Samúelsdóttur.
Kynnir á fundinum verður
Vigdis Finnbogadóttir leikhús-
stjóri. Vonandi verður húsfyllir
i Háskólabió á hátíðafundinum,
en aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Eva Kolstad, fulltrúi í fasta-
nefnd Sameinuðu þjóðanna og
formaður kvennaársnefndar
Noregs. Hún er fyrrverandi
ráðherra og hefur gegnt for-
mannsstarfi í ,,Venstrepartiet“
I Norgei frá 1974.
Eva Kolstad var lengi í stjórn
alþjóða kvenréttindasambands-
ins og er nú einn af 'varafor-
mönnum í kvennanefnd S.þ., en
frá þeirri nefnd kom tillagan
um, að Sameinuðu þjóðirnar
helguðu árið 1975 réttindabar-
áttu kvenna.
íslenska rádsteinan
20. - 21. júní
#
I framhaldi hátíðarfundarins
verður haldin ráðstefna að
Hótel Loftleiðum dagana 20. til
21. júní.
Ráðstefnan hefst báða
dagana kl. 10 árdegis. Stutt
framsöguerindi verða flutt um
jafnréttis- þróunar- og friðar-
mál innanlands og á alþjóða-
vettvangi, en síðdegis verður
unnið í starfshópum.
Frummælendur verða: Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir,
Sóknarstarfsstúlka sem fjallar
um verkakonur fyrr og nú,
Björg Einarsdóttir, skrifstofu-
maður, um jafnréttismál, Elín
Aradóttir, húsmóðir, um kon-
una í dreifbýlinu, Erla
Eliasdóttir, fulltrúi, sem ræðir
um nám kvenna við Háskóla
íslands, Guðrún Halldórsdóttir,
skólastjóri Námsflokkanna, um
möguleika kvenna til viðbótar-
menntunar, dr. Gunnar G.
Sehram og Ölafur Egilsson,
deildarstjóri, um framþróun og
frið á alþjóðavettvangi, Harald-
ur Ólafsson lektor og Steinunn
Harðardóttir félagsfræðingur
ijm framlag íslenzka kvenna til
friðarmála, Katrin Friðjóns-
dóttir, félagsfræðingur fjallar
um efnið Konur og visindi,
Steinunn Ingimundardóttir,
skólastjóri ræðir um heimilis-
fræði, Stella Stefánsdóttir,
verkakóna, um stöðu verka-
kvenna i frystihúsum á miðju
kvennaári og Guðrún Hall-
grimsdóttir, verkfræðingur um
jafnréttisbaráttuna.
A ráðstefnunni munu leikar-
ar frá Leikfélagi Akureyrar
flytja leikþátt eftir Jakobínu
Sigúrðardóttur rithöfund. Allir
eru velkomnir að taka þátt í
þessari ráðstefnu, karlar jafnt
sem konur, en salurinn tekur
200 manns i sæti, svo að fjöldi
þátttakenda takmarkast við
það.
Skrásetning þátttakenda fer
fram að Hallveigarstöðum við
Túngötu á skrifstofu Kven-
félagssambands Islands.
Mexico - ráds tef nan
Aðalráðstefna S.þ. á alþjóð.
kvennaarinu verour naiain i
Mexikóborg 19. júni til 2. júli.
Hverju aðildarlandi S.þ. er
boðið að senda 3 aðalfulltrúa til
ráðstefnunnar.
Sendinefnd Islands hefur nú
verið tilnefnd og eru í henni
Auður Auðuns, fyrrv. ráðherra,
Sigríður Thorlacius, formaður
Kvenfélagssambands Islands
og Vilborg Harðardóttir blaða-
maður. Alls munu um 3000
manns sækja ráðstefnuna, en
aðalmarkmið hennar er:
„Að kanna að hve miklu leyti
fastanefndir S.þ. hafa fram-
kvæmt „Sáttmálann um afnám
misréttis gegn konum“ síðan
hann var gerður.
— Að hrinda af stokkunum
alþjóðahreyfingu þar .sem um
skammtíma- og langtímaaðgerð-
ir yrði að ræða sem miða að því
að konur nái fullu jafnrétti á
við karla í heildarþróunarátak-
inu.
— Að útiloka misrétti vegna
kynferðis.
— Og að ná sem útbreiddastri
þátttöku kvenna til styrktar
heimsfriði og til að fyrirbyggja
kynþáttamisrétti“, eins og fram
kemur í tilkynningu Sam-
einuðu þjóðanna um dagskrá
ráðstefnunnar.
Kvennaársnefndin
28. maí s.l. var skipað i is-
lenzku kvennaársnefndina, en
12 konur eiga sæti í henni,
skipaðar af eftirtöldum aðilum:
A.S.I., 1 fulltr., BSRB., 1 fulltr.
Kvenfélagssamband Islands, 2
fulltr., K.R.F.I., 1 fulltr., M.F.
l. K., 1 fulltr., Kvenstúdenta-
fél^gið 1. fulltr. og 3 fulltr.
skipaðir af ríkisstjórninni. þ.á
m. formaður nefndarinnar.
Skipan nefndarinnar er til
óakveðins tíma, en verkefni
hennar er m.a. að kanna stöðu
kvenna á Islandi.
Eva Kolstad
jum
Laugardaginn 6. júní var
opnuð sýning í Listasafni Is-
lands. Þar eru til sýnis m.a. 67
listaverk í eigu safnsins eftir 25
islenzkar listakonur, og eru þau
sýnd í tilefni hins alþjóðlega
kvennaárs.
Á sýningunni eru auk þess
176 verk eftir aðra islenzka og
erlenda iistamenn. Sýningin
stendurtil 15. september.
• r
jum
I gær, 13. júni, var opnuð
sýning i tilefni hins alþjóðlega
kvennaárs i Þjóðminjasafni Is-
lands, Bogasal. Sýningin ber
nafnið „Listiðja i dagsins önn“.
Samstarfsnefnd - íslenzkra
kvenna hefur staðið að sýning-
unni, en þar eru sýndir munir
eftir konur frá Alandseyjum,
Færeyjum, Islandi og Sama-
þjóðflokknum í Norður-
Skandinaviu.
Sýningargripir takmarkast
aðallega við nytjamuni, svo-
kallaða nytjalist.
Markmiðið meö sýningunni
er að sýna hvernig konur, er
búa á útjöðrum Norðurlanda, á
afskekktum stöðum, gera —
með listrænu handbragði —
hluti, sem þær nota daglega, og
tjá sig þannig á listrænan hátt.
Sýningin er styrkt af Menn-
ingarsjóði Norðurlanda.
Leiðrétting
I seinasta blaði féll
niður í inngangi hluti af
texta innan svigans í 4.
línu ofan frá. Setningar-
hlutinn á að vera á þessa
leið: ennfreniur verk-
námsskóli iðnaðarins og
framhaldsdeildir hans
(þ.e. útvarps- og sjón-
varpsvirkjun, rafvirkj-
un, rafvélavirkjun og
bifvélavirkjun), —.
JÚDAS
ORKIDEA
KOMA FRAM
OG GERA
ALLT BRJALAÐ
Ath. Munið
sætaferðirnar.
U.M.F. Selfoss „Það verður þú, sem verður klæddur úr, ha, ha
JÚDAS
í KVÖLD VERÐUR
„KUNG FU"
LEYFT.
KIDDI LEIÐBEINIR
BYRJENDUM.