Morgunblaðið - 14.06.1975, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 14.06.1975, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JUNl 1975 25 fclk í fréttum Nixon einmanna og bitur + Richard M. Nixon hefur ekki aðeins misst völdin og æruna, hann hefur einnig misst alla vini sína og þjónustufólk og tekjur hans eru ekki nema þriðjungur af því sem hann áð- ur hafði. Fallið úr forsetastóln- um hefur gert Nixon að veikum og einmana manni. „Einmana- leikinn er verstur. Flestir þeirra, sem ég taldi vini mfna, láta nú ekki sjá sig meir, og allt virðist svo innantómt,“ segir Nixon, sem ásamt konu sinni Pat finnst að þau séu nokkurs konar fangar í húsi þeirra I San Clemente f Californfu. „Það er farið með okkur eins og við værum geðveik og við forðumst að fara út úr húsi. Konan mín hefur einu sinni farið til Los Angeles til þess að kaupa sér föt, en hún faldi sig undir svartri hárkollu. Hún vildi ekki að neinn þekkti sig og óskaði eftir að vera laus við niðurlægj- andi augnatillit fólks,“ sagði Nixon f viðtali við dagblaðið „The Sun“. Þau hafa um 8 milljónir fsl. kr. í tekjur á ári, en óttast að þau neyðist til að selja sumarhús sitt f Florida til þess að borga gamlan reikning til skattayfirvalda sem hljóðar upp á um 60 milljónir ísl. kr. „Það er sjúkur heimur, sem getur komið svona fram við fyrrum forseta landsins. Já, meira að segja húsgögnin frá forsetatíma mínum hafa þeir sótt,“ sagði Nixon. Ilann er núna að viða að sér efni f ævi- sögu sína. Og hvað sem fólki finnst um þá sögu, þá þýðir hún peninga fyrir Nixon. Bókafor- lag f Bandaríkjunum hefur boðið honum yfir 250 millj. ísl. kr. fyrir handritið. Solzhenitsyn sagður íhuga að ganga í klaustur + Alexander Solzhenitsyn íhugar nú að ganga f klaustur. Eftir þvf sem bandarfska tfma- ritið Newsweek segir getur sov- ézki rithöfundurinn og nóbels- verðlaunahafinn ekki fellt sig við lifnaðarhætti Vesturlanda- búa. Um þessar mundir er hann á ferðalagi um Kanada með rússneskum presti, Cyril Bulasievitj. Sá sfðarnefndi er eins og Solzhenitsyn í útlegð. Solzhenitsyn sem settist að í Zúrich eftir að honum var visað úr Sovétrfkjunum, hefur konu sína með sér á ferðalaginu, og haldið er að hann sé að leita að klaustri í Kanada þar sem fjöl- skyldan getur búið í næsta ná- grenni. Talsmaður grfsks- rétttrúnaðar klausturs eins í Kanada hefur sagt að unnt sé fyrir Solzhenitsyn að búa þai- og starfa án þess að hætta öllu samneyti við konu sfna. Johnny Weismuller + Margir muna eftir leikaran- um Johnny Weismúller — hann var þekktastur fyrir að leika Tai’zan, sem hann lék f 20 kvikmyndum, einnig var hann þekktur fyrir sundhæfileika sfna — hann vann hvorki meira né minna en 52 sundmeistara- mót f Bandaríkjunum og setti 67 heimsmet. Hann byrjaði að vinna fyrir sér sem lyftudreng- ur á hóteli einu f Chicago og stundaði jafnframt sund af kappi. Nú er þetta gamla átrún- aðai’goð, sem er 69 ára að aldri, komið hringinn ef svo má segja. Hann vinnur nú á hóteli í Las Vegas og er þar nokkurs konar „stafnbúi". Þar á hann að líta huggulega út og brosa til ferðamanna, segja þeim að honum þyki ofsalega vænt um þá, og skrifa eiginhandarárit- anir. Áður var hann fram- kvæmdastjóri fyrir sundlauga- fyrirtæki f Florida, en það var ólaunað starf. „Ef ég hefði haft vit á að fara betur með pening- ana mina, þá væri ég milljóna- mæringur í dag,“ sagði Johnn.v Weismúller og tók eitt af sín- um frægu öskrum. Listiðja í dagsins önn — Kvennavinna Heimilisriðnaðarsýning frá Færeyjum, Grænlandi, íslandi, Álandi og frá Sömum verður í bogasal Þjóðminjasafnsins 14—22 júní. Sýningin er opin um helgar kl. 14—22, aðra daga kl. 14 —19. Samstarfsnefnd kvennaársins aðgangur ókeypis. Nemendasamband Mennta- skólans að Laugarvatni heldur árshátlð að Hótel Loftleiðum, Víkingasal, mánudaginn 16. júni. Hefst með borðhaldi kl. 19.30. Stjórnin ÞETTA ER BARA AUGLÝSING Hann Þorvaldur Gíslason forstjóri í Hraðfyrsti- húsi Grindavíkur þurfti að taka erfiða ákvörðun síðast liðið haust. Aðalvélin í mb Már GK-55 var orðin 14 ára gömul og eitthvað þurfti að gera Fleygja og kaupa nýja? Það hefði kostað ca. 10 til 15 milljónir með niðursetningarkostnaði. Nei, sagði Þorvaldur, það lýzt mér ekkert á. Hvað kostar að skvera gömlu vélina upp? Við erum gætnir, samvizkusamir og kjarklitlir að eðlisfari. Til að verða okkur ekki til skammar þorðum við ekki að nefna minna en 2 — 3 milljónir fyrir efni og vinnu. Þá gerum við það, sagði Þorvaldur. Verkið var unnið af vélfræðingi frá okkur og meistaranum á bátnum, reyndum MANNHEIM- meistara. Vinna vélfræðingsins kostaði Kr. 216.356.-. Varahlutir fyrir Kr. 189.268 - voru notaðir og dexelin yfirhöluð á verkstæði fyrir Kr. 1 60.000.-. Samtals gerir þetta víst bara Kr. 565.624 - og skeði í janúar. Ekki missti báturinn róður í vetur og ekki hvarflar að okkur að segja að vélin sé eins og ný. En hún á líklega eftir að gera sitt í nokkur ár enn, með minni háttar viðhaldskostnaði dags- daglega, eins og gengur. Hve mikill sparnaðurinn er í raun verður aldrei hægt að reikna út. Enginn veit fyrirfram hve gamla vélin „lifir" lengi og enginn getur áætlað með vissu hve lengi ný vél hefði dugað. Nýjar vélar í gömlum bátum hafa stundum þá áráttu að verða fljótt að rusli. Eitt er víst. Það er alltaf hagkvæmara að gera við góða vél i gömlum bát, því að niður- setningarkostnaðurinn einn, fyrir nýja vél, er meiri en stórviðgerð á gamalli góðri vél. Tímarnir breytast og mennirnir með, en eitt breytist aldrei. Það borgar sig að kaupa vandað og fara vel með það. Og að lokum. Góður meistari er gulls ígildi. Fyrir öllu því, sem hann getur sparað í „kjallar- anum" þarf ekki að vinna fyrir á dekki. Litla þjóð, sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast. 1925 — 1975 = 50ÁRA SfiyoHmoiiyG3 cJ§xrD©©®!rQ Si reykjavik VESTURGÖTU 16 —SÍMAR 14680 OG 13280 —POB 605

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.