Morgunblaðið - 14.06.1975, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JUNl 1975
29
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags.
% Versnandi
ökuskilyrði.
Leigubílstjóri kom að máli við
Velvakanda. — „Nú hefur verið
blíðskaparveður um langt skeið
og bjart veður, en svo syrti í lofti
og dimmdi yfir. Ég varð fijótt var
við það, að fjöldi ökumanna gerði
sér ekki grein fyrir, hve ökuskil-
yrði breytast við slíkt og verða
miklu lakari, bæði hvað utsýni
snertir og einnig að ætla verður
mun lengri vegalengd til þess að
stöðva bílinn á regnvotum götum
en þegar þær eru þurrar. Malbik-
ið verður sumsstaðar hreint eins
og hál rennibraut."
0 Að aka með
ljósum.
En það var nú ekki þetta, sem ég
ætlaði aðallega að tala um.
heldur hitt, hve mikið öryggi er i
því að aka með ljósum, fullum
ljósum.
Ég gerði mér ekki grein fyrir
þessu fyrr en ég ók nokkuð með
bilum erlendis á siðasta sumri.
Þegar dumbungur var, keyrðu
nær allir með fullum ljósum. Sér-
staklega var þetta þó til þæginda
fyrir utan borgirnar, þótt inni i
þeim sé það einnig miklu örugg-
ara.
Margir virðast álíta, að ljósin
komi ekki að neinu gagni að degi
til, þar sem þau lýsa ekki öku-
manninum sjálfum. Þeir gera sér
ekki ljóst, að ljósin eru fyrir aðra
ökumenn og gangandi vegfarend-
ur, þannig að þeir verði umferðar-
innar betur varir. Á þessu átta
menn sig, þegar aðrir bílar aka
með ljósum.“
0 Allir verða
að vera með.
„Mælzt hefur verið til þess, að
allir aki með ljós, þegar dimmt er
í lofti — og það er mikið atriði, að
allir geri það. Hætta er til dæmis
á ferðum, ef Ijóslausum bíl er
ekið á milli tveggja bíla með ljós,
eða ef einn og einn bíll er ljóslaus
i langri bílalest. Þeim bíl er veitt
sáralitil athygli, og það getur
skapað hættu, bæði fyrir þá, sem
eru i þeim bíl, og aðra.
I rigningunni í gær ók ég með
fullum Ijösum, en þeir voru sára-
fáir, sem það gerðu. Ég mætti
meira að segja oft bílum, sem
blikkuðu með ljósum, sýnilega í
því augnamiði að vekja athygli
mina á því, að ég væri með ljós.
Hafa sennilega haldið að það væri
í ógáti gert.“
0 Gleyma að
slökkva.
„Einn mann ræddi ég við, sem
féllst alveg á skoðun mina með
ljósin. Hann sagðist meira að
segja hafa byrjað á þessu, en hætt
þvi fljótlega aftur, þar sem hann
hefði iðulega gleymt að slökkva
ljósin á bilnum, þegar hann skildi
við hann. Eitt sinn hafi ljósin
verið á alla nóttina og bíllinn raf-
magnslaus að morgni. Þá sagðist
hann hafa gefizt upp á að aka með
ljósum að degi til þótt rigning
væri og dimmt yfir.
Ég skal viðurkenna að í byrjun
kom fyrir að ég gleymdi að
slökkva en nú er það orðið að
ósjálfráðum viðbrögðum, að ég at-
huga ljósin I hvert sinn, sem ég
geng frá bilnum. Það er alveg það
sama með þetta og öryggisbeltin.
Dálítinn tíma tekur að venja sig á
þau.“
% í fylgd með
klúbbfélaga.
Velvakanda hefur borizt eftir-
farandi frá Gyðu Jóhannsdóttur,
formanni Golfklúbbs Reykjavík-
ur, vegna bréfs frá golfáhuga-
mönnum, sem birtist hér i dálkun-
um:
„Vegna fyrirspurnar frá golf-
áhugamönnum þess efnis að þeim
hafi verið neitað um leyfi til að
fara inn á golfvöllinn, þótt þeir
hafi boðizt til þess að greiða til-
skylin gjöld, vil ég upplýsa eftir-
farandi.
Nærmynd af Snæfellsjökli.
Þeir, sem ekki hafa kynnt sér
golfleik eða þær siðareglur, sem
gilda á golfvellinum, geta ekki
farið inn á völlinn nema í fylgd
með klúbbmeðlim, sem tekur
ábyrgð á þvi að viðkomandi fari
eftir settum reglum og valdi ekki
tjóni á flötum og brautum vegna
ókunnugleika.
Öðrum leikmönnum á vellinum
getur stafað hætta af kúlum og
kylfum þeirra, sem ekki kunna
með þær að fara.“
# Stendur öllum
opinn.
„Golfklúbbur Reykjavíkur
stendur opinn öllum, sem vilja
læra að leika golf, og eru nýliðar
aðstoðaðir eftir því sem tök eru á
til þess að fá kennslu og leiðsögn
á golfvellinum.
írskur golfkennari hefur verið
ráðinn til G.R. um tveggja vikna
skeið og kemur aftur i byrjun
júlí, en þá munu nýliðar fá
ókeypis hópkennslu. Vil ég nota
tækifærið til þess að benda golf-
áhugamönnum á að notfæra sér
þetta tækifæri.
Hvað viðkemur styrkjum til
þessarar Iþróttagreinar, er það að
segja, að Golfklúbbur Reykjavik-
ur nýtur á þessu ári styrks frá
Iþróttabandalagi Reykjavikur.
Mun láta nærri að sú fjárhæð
nægi fyrir áburðarkaupum á völl-
inn á þessu sumri.
Með þökk fyrir birtinguna.
Gyða Jóhannesdóttir".
0 ÚtsýniÖ úr
turninum.
Þá er hér bréf frá Þórunni
Jónsdóttur:
„Kæri Velvakandi.
Ég fæ nokkrum sinnum út-
lendinga i heimsókn — mest
ættingja, sem búa erlendis — og
reyni þá eftir beztu getu að sýna
þeim það nierkasta i bænum, fer
með þá í söfn og svoleiðis.
Á einum bjartviðrisdeginum
datt mér í hug að fara með tvær
frænkur minar upp í turn
Hallgrimskirkju. Þangað hafði ég
aldrei komið. Og ég segi það satt,
þarna urðu þær hrifnastar, útsýn-
ið var svo dásamlegt. Borgin fyrir
fótum manns og fjallahringurinn,
sundin og flóinn blöstu við. Ég sá
ekki eftir þeirri ferð. Það vita
allir, hvað veðrið hefur mikið að
segja, kannski allt, þegar sýna á
fegurð landsins. Ég var heppin
þennan dag, það var svo bjart
yfir. Þessar frænkur minar höfðu
komið vestan af Snæfellsnesi dag-
inn áður. Og nú blasti allt nesið
við þeim með Snæfellsjökli sem
punkti yfir i-ið. Þær ætluðu varla
að trúa þessu.
Ég hef orðið vör við, að fólk veit
oft ekki almennilega, hvert fara á
með erlent fólk, sem heimsækir
það. Þess vegna vona ég að þú
birtir þetta. Það bæti kannski
hjálpað einhverjum.
Þórunn Jónsdóttir."
Síðdegis hringir borgarstjórinn
og spyr:
— Hafið þér handtekið ein-
hvern?
Maigret sá ekki ástæðu tíl að
mæla hann máli. Unglingar á
aldrinum átján til tuttugu og
fimm ára streymdu inn á kaffi-
húsið settust við borð og pöntuðu
sér drykkjarföng, sem þeir snertu
siðan ekki á.
Þeir höfðu ekki verið nema
nokkrar mfnútur í veitingastof-
unni þegar dró niður í talinu.
hláturinn þagnaði og einhvers
konar ónotatilfinning greip um
sig, og læstist um hvern mann. Og
áður en varði hurfu unglingarnir
út hver á eftir öðrum.
Munurinn varð þó enn
merkjanlegri, þegar fór að
rökkva og varð að kveikja Ijós.
Klukkan var fjögur. Venjulega
hélt fólk áfram gönguferðum sin-
um, en að þessu sinni voru götur
auðar og hvergi heyrðist minnsta
skraf. A skemmri tíma en
stundarfjórðungi tæmdust göt-
urnar og það fótatak sem heyrðist
var hratt og vitnaði um að sá sem
þar fór flýtti sér að koma sér á
öruggan stað heima hjá sjálfum
sér.
Emma stðð og hallaðí sér upp
HÖGNI HREKKVÍSI
^ GARÐTJARNIR
margar gerðir
®SKODA
SÖLUSÝNING
Kynnum SKODA 1975 á
Snæfellsnesi
Á HELLISSANDI 14. JÚNÍ (LAUGARD.) frá kl.
10.00—1 3.00 við félagsheimilið Röst.
Á ÓLAFSVÍK 14. JÚNÍ (LAUGARD) frá kl.
1 5.00—1 9.00 við Bensínafgreiðslu B.P.
í STYKKISHÓLMI 15. JÚNÍ (SUNNUD.) frá kl.
1 4.00—1 8.00 við Bensínafgreiðsluna.
í GRUNDARFIRÐi 16. JÚNÍ (MÁNUD.) frá kl.
10.00—15.00 við Hótel Fell.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H/F
AUÐBREKKU 44-46 KÓPAVOGt SÍMI 42600
SÝNING
í SUNDABORG
Einnig sýnum viö margar tegundir
af hjólhýsum og tjaldvögnum
Gísli Jónsson & co. hf.
Sundaborg — Klettagarðar 4, simi 86644.
Við sýnum alla
daga frá 2—7
þessar amerísku