Morgunblaðið - 26.06.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JUNI 1975
Blíðskaparveð-
ur í Skálholti
PRESTASTEFNU var fram
haldið I Skálholti í dag. Séra
Ólafur Skúlason flutti erindi
um nýskipan prestakalla, og
Heimir SteinSson flutti erindi
um kristindómsfræðslu í
grunnskóla.
Nú er í fyrsta skipti sá
háttur hafður á á prestastefnu,
að umræður um framsöguer-
indi fara fram að loknum
flutningi hvers þeirra, en
prestar skiptast niður í um-
ræðuhópaskv. búsetu sinni.
í gær var bezta veður í Skál-
holti. Prestastefnunni lýkur í
kvöld með sameiginlegu borð-
haldi þátttakenda.
„ Vinur” stal
frá „vinkonu”
A ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ
kom maður einn til kunningja-
konu sinnar I Reykjavlk og
fékk að gista hjá henni um
nóttina. Sfðla nætur vaknaði
hún við hurðarskell og sá þá,
að „vinurinn" var farinn og
hafði tekið með sér aleigu
hennar I peningum, nokkra
tugi þúsunda. Hún tilkynnti
lögreglunni um þjófnaðinn og
var maðurinn tekinn fastur
um hádegið. Kom þá f Ijós, að
hann hafði fengið óvenju
marga félaga sfna f lið með sér
að reyna að eyða þýfinu — og
tekizt það.
VESTRI LAND-
AR í GRANTON
TOGBATURINN Vestri frá
Patreksfirði er nú á leið til
Bretlands með 42—45 tonn af
kola, sem báturinn á að landa í
Granton í Skotlandi, en þaðan
verður aflanum svo ekið til
Grfmsby, þar sem hann verður
seldur. Eitt skip hefur áður
landað f Granton, var það
Ljósafell frá Fáskrúðsfirði,
sem þar landaði fyrir stuttu.
STOFNA SAM-
TÖK I V1 SPÁN-
ARFERÐIR
1 KVÖLD kl. 21 hefst í Sigtúni
stofnfundur Klúbbs áhuga-
manna um Spánarferðir og er
klúbburinn stofnaður að til-
hlutan ferðamálaráðuneytisins
á Mallorka. Spánarstjórn
hefur gengizt fyrir stofnun
slíkra klúbba í flestum löndum
Evrópu og er aðaltilgangur
klúbbanna að lækka verð á
sólarlandaferðum félags-
manna. Styðja yfirvöld á Spáni
við starfsemi klúbbanna með
því t.d að útvega félagsmönn-
um gistingu á lágu verði á
hótelum í eigu rfkisins og einn-
ig eru klúbbunum lagðir til
hópferðabílar í skoðunar-
ferðir, þannig að ferðirnar
kosti klúbbfélaga nánast ekki
neitt, nema e.t.v. laun bflstjór-
ans. I fréttatilkynningu sem
Mbl. barst um stofnun klúbbs-
ins kemur fram, að innan tíðar
eru væntanlegir í heimsókn til
Islands í tilefni af stofnun
klúbbsins ferðamálaráðherra
Spánar og borgarstjórinn í
Palma á Mallorka.
Gjaldeyri stoliö
BROTIZT var inn f fbúð f Hlfð-
unum á þriðjudaginn, á tfma-
bilinu frá kl. 13 til kl. 19, og
stolið þar nokkru af gjaldeyri,
sem geymdur var f læstri
hirzlu. Hafði verið farið inn
um kjallaraglugga, sem var
heldur illa lokaður.
Sótt um leyfi fyrir
tttla leigubíla íRvík
Þjófnaðurinn enn óupplýstur
Rannsókn á peningaþjófnaðinum úr bæjarskrifstofum Kópavogs
aðfaranótt þriðjudags var haldið áfram f gær, en f gærkvöldi hafði
lögreglan f Kópavogi engar nýjar fréttir að segja af rannsókn málsins.
Hafði þá ennþá enginn verið handtekinn vegna málsins.
Þessa mynd tók Ijósmyndari Mbl., Sv. Þorm., á verkstæði f Kópavogi
f gær, en þar var verið að hefja viðgerð á stálhurðinni sem spennt var
upp f innbrotinu. Innan við hurðina var að finna peningakassa með
nær hálfri milljón króna í peningum, auk ávfsana og annarra verð-
mæta, en stolið var rúmlega 1300 þúsund krónum.
SÓTT hefur v^rið um leyfi
til borgaryfirvalda til að
reka í Reykjavfk leigubíla-
stöð með minni fólksbíla en
tíðkast hjá venjulegum
leigubílastöðvum. Hefur
Sigurður Jónsson bif-
reiðarstjóri ritað borgar-
ráði bréf með ósk um
rekstrarleyfi fyrir slíka
smábílastöð.
. I bréfi Sigurðar og greinargerð,
sem því fylgir, kemur m.a. fram,
að það séu nokkrir leigubílstjórar
í borginni, sem hafi í hyggju að
stofna til reksturs slfkrar stöðvar
og hafi þeir í huga að taka lægra
gjald, t.d. 20% lægra, en tíðkast
hjá venjulegum leigubílum.
„Smábflarnir" yrðu bílar sem
taka 3 farþega auk ökumanns, en
nær allir leigubílar borgarinnar
eru fyrir 4 eða 5 farþega og
nokkrir fyrir 7 farþega.
I bréfinu tilgreinir Sigurður
helztu kostina við þessa nýbreytni
í leiguakstri: Minni og ódýrari
bílar, minna fjármagn bundið í
atvinnutæki og ódýrari og hag-
kvæmari rekstur. Ætti afleiðing-
in því að verða lægri taxti fyrir
viðskiptavinina.
Þá nefnir Sigurður einnig í
bréfi sínu til borgarráðs, að smá-
bilastöðin hafi möguleika á að fá
aðstöðu til afgreiðslu hjá sendi-
bílastöðinni Þresti í Síðumúla og
liggur fyrir leyfi Umferðarnefnd-
ar borgarinnar varðandi þá stað-
setningu stöðvarinnar.
„Ibúarnir eru sáróánægðir”
— segir einn íbúinn á Stóragerðissvæðinu
„IBUARNIR hér á svæðinu eru
sáróánægðir með þessa afgreiðslu
málsins hjá borgarráði,“ sagði dr.
Örn Erlendsson, sem var einn
þeirra íbúa á Stóragerðissvæðinu
svonefnda sem rituðu borgaryfir-
völdum bréf með ósk um að há-
hýsi borgarinnar fyrir aldraða
verði ekki reist á fyrirhuguðum
stað við Furugerði, heldur verði
svæðið notað sem útivistar- og
leiksvæði fyrir börn f hverfinu.
Borgarráð Reykjavfkur synjaði
þeirri málaleitan á fundi sfnum
sl. föstudag, eins og frá hefur
verið greint f Mbl.
„Ég vísa algerlega á bug þeirri
skýringu, sem nefnd hefur verið
manna á meðal, að fbúarnir hér
séu á móti þvf að fá aldraða fólkið
í hverfið. Aðalástæðan fyrir
þessari málaleitan okkar var sú,
að hér eru þegar orðin mikil
þrengsli og fyrirsjáanlegur skort-
ur á leiksvæði fyrir börn — og
raunar eínnig bflastæðum,“ sagði
örn ennfremur. Benti hann á, að
við háhýsin á Austurbrún og í
Sólheimum væri miklu meira
rými til útivistar og leikja en við
Óhagstæður vöru-
skiptajöfnuður í maí
þau háhýsi sem nú eru risin f
Espigerði.
örn benti einnig á, að komið
hefði fram, að til væru lóðir fyrir
fyrrnefnt háhýsi aldraðra — og
þær jafnvel betri en sú við Furu-
gerðið — þarna örskammt frá,
önnur við Borgarspítalann en hin
uppi á Grensáshæðinni, bak við
Grensásdeild Borgarspftalans „Ég
tek fram, að ég tel fulla nauðsyn á
að reisa þetta hús fyrir aldraða,
en tel að þessi staður sé afleitur,"
sagði Örn.
Að lokum var hann spurður,
hvort íbúarnir, sem skrifuðu und-
ir bréfið til borgaryfirvalda, gætu
nokkuð frekar aðhafzt í þessu
máli. „Við getum ekki annað en
skfrskotað ennþá til frjálslyndis
og skilnings þeirra, sem hafa
tekið þessa ákvörðun, í von um að
þeir endurskoði hana,“ sagði dr.
Örn Erlendsson að lokum.
Birkibeinaskáta-
mót á Bringum
BIRKIBEINADEILD f skátafé-
laginu Dalbúum í Reykjavik
gengst fyrir skátamóti um næstu
helgi að Bringum í Mosfellssveit.
Er þetta nfunda skátamót deild-
arinnar og það þriðja á Bringum.
Mótið verður sett á föstudag kl. 15
og stendur fram til sunnudags. Á
dagskránni eru ýmiss konar
fþróttir, flugdrekakeppni, flokka-
keppni og einstaklingskeppni í
skátafþróttum, gönguferðir og að
sjálfsögðu kvöldvökur. Mótinu
hefur verið valinn eins konar
rammi, sem er „Framtíðin“ og er
vonazt til, að það hugtak móti
skreytingar tjaldbúða og starf
skátanna. Foreldrabúðir verða á
mótinu. Mótsstjórar eru Sveinn
Finnbogason og Reynir M.
Ragnarsson.
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR
landsmanna var óhagstæður um
1.346,9 milljónir króna f mafmán-
uði og er þannig orðinn óhagstæð-
ur um 8,4 milljarða króna frá
áramótum til mafloka.
I maf var andvirði innfluttnings
5.431,7 milljónir króna, en and-
virði útflutnings 4,084,8 milljónir
króna. Frá áramótum hafa verið
fluttar inn vörur fyrir 25,3
milljarða króna, en út hafa verið
fluttar vörur fyrir 16,9 milljarða
króna. Á sama tíma í fyrra var
vöruskiptajöfnuðurinn orðinn
óhagstæður um 4 milljarða króna
frá áramótum, eða helmingi
minna en nú, og sömuleiðis var
vöruskiptajöfnuðurinn i mafmán-
uði í fyrra helmingi lægri en nú í
krónutölu, en hins vegar hafa
íslenzkunámskeið
fyrir kennara
á Norðurlöndum
SlÐAST liðinn sunnudag hófst á
vegum Norræna félagsins nám-
skeið í fslenzku fyrir norrænu-
kennara á Norðuriöndum öðrum
en tslandi. Þátttakendur eru 28
og skiptast þannig milli landa:
frá Noregi 10, Svíþjóð 10, Finn-
landi 5 og Danmörku 3. Nám-
skeiðið fer fram f Arnagarði og
Norræna húsinu. Hver þátttak-
andi fær 30 tfma kennslu f hefð-
bundnu námi en auk þess 10
stundir f málstofu Norræna húss-
ins. Námskeiðið stendur f 14
daga.
Tvær kynningarferðir verða
farnar um fslenzka sögustaði,
önnur um Borgarfjörð en hin um
sögustaði Njálu, en auk þess
Framhald á bls. 18
orðið breytingar á gengisskrán-
ingu síðan, sem valda verulegri
hækkun á krónutölunni.
í maí var flutt inn til Lands-
virkjunar, að mestu vegna Sig-
ölduvirkjunar, fyrir 159,2 millj-
ónir króna og er heildarupphæð
þess innflutnings frá áramótum
orðin 342,3 milljónir. Islenzka ál-
félagið flutti inn fyrir 39,9
milljónir í maf, en út fyrir 109,7
milljónir. Frá áramótum nemur
andvirði innflutnings til álfélags-
ins 2,001,1 milljón króna, en verð-
mæti útflutnings er helmingi
minna, eða 1,051,7 milljónir
króna.
Einar Sveinsson ráðinn
r
framkvæmdastjóri BUR
Á FUNDI borgarráðs sl.
þriðjudag var samþykkt til-
laga útgerðarráðs Reykja-
víkur um að ráða Einar
Sveinsson í starf fram-
kvæmdastjóra Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur í stað
Talsvert hefur selzt
af litasjónvarpstækjum
ALLNOKKUR sala hefur verið
á litasjónvarpstækjum f ýms-
um sjónvarpstækjaverzlunum
höfuðborgarinnar að undan-
förnu og þegar Mbl. hringdi f
nokkrar þeirra, fengust upp-
lýsingar um sölu á 60—70
tækjum, sem flest hafa selzt á
undanförnu ári. Verð á lita-
sjónvarpstækjum er mismun-
andi eftir stærð og sérbúnaði,
allt frá 160 þús. kr. fyrir lftil
tæki upp f 350 þús. kr. fyrir
stór tæki með f jarstýrisbúnaði.
Að sögn þeirra sölumanna,
sem Mbl. ræddi við er ástæðan
fyrir kaupum fólks á litasjón-
varpstækjum fyrst og fremst
sú, að fólkið er að endurnýja
sjónvarpstæki sfn og reiknar
með þvf að litasjónvarp verði
komið á hér á landi innan 2—3
ára. Myndlampi f venjulegu
svart-hvftu sjónvarpstæki
endist í 7—10 ár, en þótt unnt
sé að kaupa nýjan lampa f stað
þess ónýta, hafa flestir valið þá
leið að kaupa ný sjónvarpstæki
f stað þeirra gömlu, þegar þau
eru komin á þennan aldur — og
•sumir hafa þá keypt sér lita-
sjónvarpstæki, enda sjást svart-
hvitar útsendingar einnig í
þeim.
Ennþá hefur engin tfma-
setning verið nefnd af hálfu
íslenzka sjónvarpsins um það
hvenær litasjónvarpsútsend-
ingar hefjist.
Þess skal getið að verð á sjón-
varpstækjum af algengustu
stærð fyrir svarthvftar útsend-
ingar er nú nálægt 100 þús.
krónum.
Ásgeirs Magnússonar, sem
sagt hefur starfi sínu
lausu, þar sem hann tekur
við starfi framkvæmda-
stjóra járnblendiverk-
smiðjunnar.
Einar Sveinsson hefur
verið framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar undanfarin fimm
ár, en starfaði áður m.a.
hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, Jöklum og Ofna-
smiðjunni.
Fulltrúafundur
hjúkrunarkvenna
FULLTRUAFUNDUR Samvinnu
hjúkrunarkvenna á Norður-
löndum (SSN) verður haldinn í
Reykjavík 9.—12. september
nk. Aðalviðfangsefnið verður
„Vinnuskilyrði hjúkrunarkvenna
innan og utan stofnana". Eftir-
taldir þættir verða kannaðir:
Fyrjrkomulag stjórnunar,
ábyrgðar- og verkaskipting,
starfsmannamál, vinnuvernd og
ráðstöfun mannafla og fjármagns.
Fjallað verður um efnið í nefnd-
um samkvæmt gögnum sem
vinnuhópur SSN leggur fram.
Fundurinn verður á Hótel Loft-
leiðum.
(Fréttatilkynning).