Morgunblaðið - 26.06.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JUNl 1975
5
Úr Þjóðníðingi Ibsens, sem tekinn verður upp aftur I haust.
120 þúsund gestir
1 Þjóðleikhúsið á
síðastliðnu leikári
LEIKÁRI Þjóðleikhússins er lokið og urðu bæði leiksýningar og áhorfendur
fleiri nú en nokkru sinni fyrr, 119.363 áhorfendur á 390 sýningum. Samtals
var 21 verkefni sýnt á leikárinu og er það einnig met. Leikferðir voru óvenju
margar, bæði innanlands og utan.
Kemur þetta fram I yfirliti um leik-
árið, sem Þjóðleikhúsið hefur sent
blaðinu. Þar segir, að sýningar á
stóra sviðinu I Þjóðleikhúsinu hafi
orðið 219. sýningar á litla sviðinu I
Leikhúskjallaranum 76, aðrar sýn-
ingar I Reykjavlk og nágrenni 30,
sýningar annars staðar innanlands
26 og sýningar erlendis 39. Farnar
voru tvær leikferðir til útlanda með
(núk, sú fyrri um öll Norðurlönd, sú
slðari á alþjóðaleiklistarhátlðina I
Nancy F Frakklandi og slðan um
Þýzkaland, Frakkland og Sviss.
Á stóra sviðinu voru sýnd 12 verk-
efni: Þrymskviða, Klukkustrengir, Ég
vil auðga mitt land, Ballettkvöld,
Hvað varstu að gera F nótt? Karde-
mommubærinn, Kaupmaður I Fen-
eyjum, Hvernig er heilsan?, Coppe-
lia, Silfurtúnglið og Þjóðnlðingur.
Auk þess var inúk sýndur tvisvar,
afmælissyrpa I tilefni af 25 ára af-
mæli Þjóðleikhússins var sýnd
nokkrum sinnum og nemendasýning
listdansskólans og fslenzka dans-
flokksins tvlvegis.
Á litla sviðinu voru sýningar á
Herbergi 213, Lúkasi, Litlu flu'gunni
og Ertu nú ánægð, kerling? Þá var og
á afmælinu dagskrá I kjallaranum,
sem nefndist Ung skáld og æskuljóð,
svo og kvöldstund með danska leik-
aranum Ebbe Rode.
Flestar sýningar urðu á Karde-
mommubæ. 58 talsins, og áhorf-
endur 33.340. Verða nokkrar sýn-
ingar á verkinu I haust til að anna
eftirspurn. Silfurtúnglið og Þjóðníð-
ingur verða einnig tekin upp að nýju
í haust.
Tala áhorfenda hefur mjög sjaldan
komizt upp fyrir 100 þúsund á einu
leikári. Gamla metið var frá
1952—3, tæplega 110 þús. gestir,
og I fyrra komu um 105 þús. gestir,
en gestafjöldi hefur lægst komizt
niður I rúm 60 þúsund veturinn
1966—7.
Á 25 ára afmælisdegi leikhússins
var stofnað Starfsmannafélag leik-
hússins og eru félagar hátt á annað
hundrað manns, sem fastráðnir eru.
Æfingar standa nú yfir á þremur
verkefnum fyrir haustið. Á stóra
sviðinu verður fyrst frumsýnt hið
fræga leikrit Tennessee Williams. „A
Streetcar Named Desire", sem ekki
hefur hlotið endanlegt nafn á ls-
lenzku. Glsli Alfreðsson leikstýrir, en
i aðalhlutverkum eru Þóra Friðriks-
dóttij, Erlingur GFslason, Margrét
Guðmundsdóttir og Róbert Arnfinns-
son. Þá standa yfir æfingar á
Carmen undir leikstjórn Jóns Sigur-
björnssonar. SigrFður E. Magnús-
dóttir syngur Carmen og með önnur
Framhald á bls. 18
Nokkur rit A.A.-samtakanna á ensku.
Stofna útgáfufélag
í þágu AA-samtaka
HÓPUR áhugamanna um störf
A.A.-samtakanna hefur ákveðið
að stofna útgáfufélag í þeim til-
gangi að gefa út og dreifa
fræðsluefni um ofdrykkjuhneigð,
í samræmi við hlutverk A.A. sam-
takanna.
A.A.-félagar og velunnarar
A.A.-samtakanna hafa löngum
gert sér ljóst, að mikill skortur
hefur verið á fræðsluefni um of-
drykkjuhneigð og þeim leiðum,
sem vænlegastar eru til úrbóta.
Þekkingarskortur á vandamálum
ofdrykkjumannsins, bæði hans
sjálfs og almennings, hefur því
miður oft orðið þess valdandi, að
vandamálið hefur verið með-'
höndlað á rangan hátt. Aukin al-
menningsfræðsla og ekki sízt
fræðsla fyrir drykkjumennina
sjálfa, eykur möguleika á jákvæð-
um árangri og bata.
Stofnfundur þessa félags
verður haldinn að Hótel Sögu, í
kvöld kl. 9 e.h. öllum sem hafa
áhuga á þessum málum er boðið
að gerast félagar með kr. 3.000,-
stofntillagi.
(Fréttatilkynning).
FACO
KLÆÐIR YKKUR
Faco föt, herraföt í mörgum litum, Ijósum litum, einnig
riffluð ,,flauelis"-föt. Herraskyrtur í miklu úrvali. Terline
buxur á herra, einnig mikið úrval af bolum, mörg efni,
margar gerðir. Nýkomin sending af herraskóm. Kven
terline buxur, með háum streng, margir litir. Röndóttir
rúllukragaboiir á dömur nýkomnir. Bómullar gnorakkar
með hettu. Nýkomin stór sending af kvenmussum.
LEVIS og USA gallabuxur í miklu úrvali, ásamt nýkominni stórri sendmgu af
INEGA gallabuxunum vinsælu.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
ak;lvsin(;a-
SÍMINN F,R:
22480