Morgunblaðið - 26.06.1975, Side 3

Morgunblaðið - 26.06.1975, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNI 1975 3 Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn, og menntamálaráðherra, Vilhjálmur Hjálmarsson taka sér sæti hjá söngkonunni. FRÁ TÓNLEIKUM TIL HEIÐURS MARÍU MARKAN VINIR og aðdáendur Marfu Markan héldu tónleika í Austurbæjar- bíói i gærkvöldi I tilefni af sjötugsafmæli söngkonunnar. Komu fram á tónleikunum margir þekktustu Iistamenn lslendinga, tuttugu og tveir söngvarar og fimm einleikarar. Það vakti mikinn fögnuð f lok tónleikanna þegar Guðmundur Jónsson fékk Marfu til að syngja með sér dúet. Því næst settist Marfa við flygilinn og allir söngvararnir og áheyrendur sungu saman Ö, blessuð vertu sumar- sól, við undirleik hennar. Austurbæjarbíó var troðfullt í gærkvöldi og var Marfu ákaflega vel fagnað. María við flygilinn og söngvararnir syngja Ó, blessuð vertu sumar sól, Og áhorfendur taka undir. ism. Mbl. Sv.Þorm, Fiskurinn veiddur við Nýfundnaland en ekki við ísland FÆREYSKA blaðið Dimmalætting hefur það eftir Birgi Daníelsen, for- stjóra Föröya Fiskasölu, að saltfiskur sá, sem Færey- ingar seldu til Portúgal um mánaðamótin apríl—maí Bókagerðar- menn semja SAMNINGAR um kaup og kjör prentara og bókagerðarmanna voru undirritaðir seint f fyrri- nótt. Aðild að samkomulaginu áttu Hið fslenzka prentarafélag, Graffska Sveinafélagið og Bók- bindarafélag Islands fyrir hönd launþega og Félag fslenzka prent- iðnaðarins fyrir hönd atvinnurek- enda. Samningaviðræður höfðu staðið yfir sfðan f fyrri viku. Samningurinn er nær samhljóða samningi þeim sem önnur félög innan ASI gerðu við atvinnurek- endur á dögunum. Þá er í honum að finna fimm breytingar frá fyrri samningi, sumt orðalags- breytingar og einnig er þar að finna yfirlýsingu FlP og HlP þar sem segir, að setjarar skuli hafa jafnan rétt til útlitsteiknunar dagblaða og blaðamenn. Gildis- timi samningsins er til áramóta. Samningafundi blaðamanna og útgefenda lauk klukkan 6,30 i gærmorgun, og hafði þá staðið f tæpa 17 klukkutfma. Samkomu- lag tókst ekki. hafi ekki verið veiddur á íslandsmiðum heldur við Nýfundnaland og það sé algjör fjarstæða, að togar- arnir hafi farið af íslands- miðum skömmu fyrir mán- aðarmót til að koma fiskin- um á markaðinn á réttum tíma. Togararnir, sem talað er um, segir Birgir, eru Sjúðarberg og Sundaberg og veiddu þeir allan aflann, yfir 1300 tonn, á Ný- fundnalandsmiðum og var aflinn seldur í Portúgal fyrir 3,9 millj. d.kr. fyrir hver 670 tonn, ópakk- að. Birgir segir, að fyrir stærsta fiskinn hafi Færeyingar fengið 10,50 til 11,05 pr. kg., en að lik- indum hafi Islendingar fengið 12,05—12,60 d.kr. fyrir hvert kg er þeir gerðu sína samninga. Tónleikar S.í. í Eyjum SINFÖNtUHLJÖMSVEITIN heldur tónleika i Félagsheimilinu við Heiðarveg i Vestmannaeyjum laugardaginn 28. júni kl. 16.30. Stjórnandi er Páll P. Pálsson. A efnisskránni eru verk eftir Mozart, Beethoven, Glinka, Odd- geir Kristjánssbn, Dvorak og Smetana. deild - Voru 4 KONUM við nám í Háskóla Is- lands fjölgaði úr 326 veturinn 1965—66 f 792 veturinn 1974—75. En á þessum 10 árum fjölgaði körlum úr 804 f 1757. A tímabil- inu frá 1967 fram til 1974, að báðum árum meðtöldum, luku þó ekki prófi nema 249 konur alls. 12 luku prófi 1967, en 40 árið 1974. A sama tfma luku 1078 karlmenn prófi. Þetta kom fram f töflu, sem Erla Elfasdóttir tók saman um nám kvenna f háskóla og Maria Lárusdóttir kennari lagði fram sem umræðugrundvöll á kvenna- ráðstefnunni. Athyglisvert er hvernig konur við nám f háskólanum skiptast á námsgreinarnar, en nokkur breyting hefur orðið þar á, ef fyrir 10 árum tekin eru þessi sömu ár. 1965—66 voru t.d. 35 konur i læknisfræði, n 52 árið 1974—75, hafði ekki i iölgað mikið. Aftur á móti höfðu \ erið 4 í verkfræði og raunvis- indadeild árið 1965—66, en fjölg- aði upp í 93 árið 1974—75. Heim- spekideildin er bæói árin fjöl- mennust, hafði 246 konur fyrra árið, en 436 hið síðara. I guðfræði var aðeins 1 kona 1965, en voru 5 sl. vetur, í tannlækningum voru 4, en orðnar 11 sl. ár, í lyfjafræði voru þær 8 fyrir 10 árum, en 23 nú, i lögfræði fjölgaði konum úr 21 í 36 á þessum 10 árum, i við- skiptafræði úr 7 í 34 og auk þess koma nú til nýjar deildir, þar sem 29 konur eru í þjóðfélagsfræði og 37 í almennri hjúkrunarfræði, en þar er enginn karlmaður. ltalska skemmtiferðaskipið IRPINIA kom til Reykjavíkur i gærmorgun, en fram- undir hádegi var ekki út- lit fyrir að margir af farþegunum 720 kæmust í land til að skoða sig um. Olli því slæmt sjólag, sem kom í veg fyrir að skipið gæti lagzt að bryggju í Sunda- höfn árla morguns og sfðan gátu skipsbátarnir ekki at- hafnað sig við skipshlið úti á sundum. Eftir árangurslausar tilraunir til að fá stærri skip til aó flytja farþegana f land tókst loks að koma skipinu i Sundahöfn. Ifarþegarnir voru aðallega Þjóðverjar og fóru þeir að Gullfossi og Geysi sfð- degis f gær. Skipið kemur aft- ur sfðar f sumar og gengur þá vonandi betur að athafna sig á Reykjavfkurhöfn en nú... (Ljósm. Mbl. Sv.Þorm.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.