Morgunblaðið - 26.06.1975, Síða 18

Morgunblaðið - 26.06.1975, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNt 1975 SUMARGLEÐI A FERÐ — Sumargleði hljömsveitar Ragnars Bjarnasonar ásamt Ómari Ragnarssyni og Halla og Ladda, er nú senn að verða fleyg og mun fyrst leggja leið sína um Vesturland. Þeir flytja tveggja tfma samfellda skemmtidagskrá, með dansieik á eftir. Á hverri skemmtun verður nýstárleg spurningar- keppni og eru góð verðlaun i boði. Þá verður spiiað bingó og er ferð til sólarlanda að verðmæti 50 þús. kr. I vinning. Einnig verða haldnar sérstakar barnaskemmtanir þar sem því verður við komið. — Samningar Framhaid af bls. 32 held þetta sé að settlast", sagði Torfi Hjartarson sáttasemjari. Hann vildi þó ekki spá um það hvenær deilunni lyktaði, og sagði sérkröfur yfirmanna vera eitt af spurningamerkjunum. I fyrrinótt settu matsveinar fram sérkröfur, sem komu hnút á samningaviðræðurnar, en um kvöldmatarleytið í gærkvöldi hafði greiðzt úr þeim hnút. Bjartsýni virtist sem sagt ríkja I Tollstöðinni I gærkvöldi og aðeins tímaspursmál hvenær nýir samn- ingar verða undirritaðir. — Réttarhöld Framhald af bls. 32 legur. Næstir komu fyrir réttinn skipverjar af báti frá Kópaskeri, en þeir töldu sig hafa séð Fróða á togveiðum á Axarfirði þann 17. júnf. Ekki vannst tfmi til að spyrja skipstjórann á Fróða um þetta atriði. Lauk réttarhöld- unum f gær um kl. 10:30, en verður væntanlega fram haldið í dag. Á laugardaginn höfðu verið dómkvaddir menn að ósk land- helgisgæzlunnar til að meta afla og veiðarfæri Fróða, er hann var kominn til Siglufjarðar þá um morguninn. — Islenzku- námskeið Framhald af bls. 2 styttri ferðir um nágrenni Reykjavíkur. Á námskeiðinu verða haldnir 6 fyrirlestrar um margs konar íslenzk efni og verða fyrirlesarar: Sigurður Þórarinsson, Sigurður Lfndal, Ólafur Jónsson, Jónas Kristjánsson og Sveinn Skorri Höskuldsson sem fly.tur tvo fyrir- lestra. Norræni menningarsjóðurinn og menntamálaráðuneytið veita fjárhagslegan stuðning til nám- skeiðsins en ýmsir þátttakendur, sérstaklega þeir frá Noregi, kenna fslenzku í heimaiandi sínu. Kennarar á námskeiðinu eru Guðni Kolbeinsson B.A., Kristján Árnason cand. mag. og Sverrir Tómasson cand. mag. (Fréttatilkynning frá Norræna félaginu.) — Ford Framhald af bls. 1 halda að það gerði Bandaríkjun- um greiða með því að vera í bandalagi með þeim“ boðuðu ekki nýja afstöðu til bandalaga og að þeim væri ekki beint gegn Grikk- landi eða Tyrklandi. Hann lét þó í Ijós áhyggjur vegna þeirra deilu- mála sem hefðu risið vegna erfið- leikanna á Kýpur. Ford sagði að ný hækkun á olíu- verði mundi valda mikilli röskun í bandarísku efnahagslífi og yrði „algerlega óviðunandi". Hann skoraði enn á þingið að sam- þykkja tillögur sfnar í orkumál- um sem stuðla eiga að þvf að landið verði ekki eins háð olíu erlendis frá. Aðspurður um þau ummæli James Schlesinger landvarnaráð- herra að Bandaríkin „geti ekki útilokað nokkurn valkost“ ef Norður-Kóreumenn réðust inn í Suður-Kóreu, sagði Ford að hann teldi ekki viðeigandi að ræða á þessum fundi hvernig Banda- ríkjamenn hygðust beita kjarn- orkuvopnum sfnum. Hann sagði að ef efnahags- ástandið batnaði ekki í ár mundi hann fhuga að fara fram á það við þingið að skattalækkanir giltu eitt ár í viðbót. Hann kvað „raunsæi" nauðsynlegt í barátt- unni gegn atvinnuleysi þar sem eitthvað afgerandi yrði að gera í baráttunni gegn verðbólgunni en taldi að draga mætti úr atvinnu- Ieysi sem er nú 9,2%. Ford kvaðst fljótlega gefa kost á sér til forsetakjörs en kvaðst ekkert vita um áform John Conn- ally fv. fjármálaráðherra sem er nefndur sem forsetaefni. Hann neitaði að ræða fréttir um að Rússar hefðu hlerað sfmtöl í Washington. Aðspurður hvort Rússar hefðu brotið Saltsamning- inn sagði hann að þeir hefðu „notað gloppur til að gera vissa hluti“ en þeir hefðu ekki brotið samninginn. Hann sagði að enn stæðu yfir viðræður sem miðuðu að þvf að haldin yrði ráðstefna um öryggi Evrópu í Helsinki í sumar með þátttöku æðstu manna, en samkomulag hefði enn ekki náðst. Leiðrétting I minningargrein um Gunnar E. Kvaran stórkaupmann eftir Magnús Guðbjörnsson, sem birt- ist í Mbl. þriðjudaginn 24. júní s.l. slæddust inn nokkrar prentvillur og á einum stað féll eitt orð úr málsgreininni, sem gerir hana torskilda og leiðréttist það hér með. Rétt er málsgreinin svona: Það hefur áreiðanlega ekki verið auðvelt að blekkja Gunnar, bar sem enginn, sem þekkti hann, efaðist um dómgreind hans og skarpskyggni. — Vopnahlé Framhald af bls. 1 svæði kváðust ákveðnir i að skjóta ekki og þó var skotið á þá á nokk- urra mínútna fresti og sprengjur sprungu rétt hjá þeim. Þeir sögðu að þeim væri ekkert í nöp við andspyrnuhreyfingu Palestfnu- manna og voru sannfærðir um að samtök Yasser Arafats, A1 Fatah, væru ekkert viðriðin bardagana. Einn af foringjum þeirra sagði: „Við erum sannfærðir um að öfgasinnaðir vinstrimenn skjóta á okkur til að ýta okkur út í stór- átök við Palestínumenn." Hann kvaðst einnig sannfærður um að nokkrir þeirra manna sem stæðu að skothríðinni væru „málaliðar Líbýumanna”. Ótryggt stjórnmálaástand ríkir í Líbanon og hefur versnað við þessa siðustu bardaga. Nú er talið enn brýnna en ella að skriður komist á tilraunir Rashind Karami til að mynda nýja stjórn. Fimm vikur eru sfðan hann hófst handa um tilraunir sínar en þær hafa strandað á úlfúð kristinna falangista og vinstrisinnaðra mú- hammeðstrúarmanna. — 120 þús. gestir Framhald af bls. 5 aðalhlutverk fara Magnús Jónsson og Ingveldur Hjaltested. f leikhús- kjallaranum er verið að æfa óperu- gamanið Ringulreið eftir Flosa Ólafs- son og Magnús Ingimarsson. Flosi leikstýrir og í aðalhlutverkum eru Sigrlður Þorvaldsdóttir, Árni Tryggvason, Guðrún Stephensen, Randver Þorláksson og Ingunn Jens- dóttir. Loks standa yfir æfingar 6 dagskrá sem hópur frá leikhúsinu mun flytja á 100 ára afmælishátfð fslendinga- byggða I Kanada I sumar. Brugðið er upp myndum úr sögu íslands, einkum úr fslenzkum leikverkum. Gunnar Eyjólfsson leikstýrir, en flytj- endur eru 13 leikarar og Þjóðleik- húskórinn. — Bátur aftrar Framhald af bls. 1 og Hollands reyna að komast að samkomulagi við stjórnina í Zaire um að önnur tilraun verði gerð til að nálgast stúdentana á næstunni, sam- kvæmt áreiðanlegum heimild- um. Sjónarvottar segja að Norman Hunt, faðir Carrie Jane Hunt, hafi fylgzt með at- burðinum f sjónauka frá hæð skammt frá Kigoma og verið sárgramur vegna aðgerða fall- byssubátsins. Auk dóttur hans rændu upp- reisnarmenn Kenneth Stephen Smith, sem er frá Stanford- háskóla í Kaliforníu eins og hún, og Emilie Bergman frá Hoilandi. Þeir slepptu fjórða gfslinum, Barbara Smuts, sem afhenti bréf frá þeim með kröfu um að Tanzaníustjórn léti lausa skæruliða í skiptum fyrir gíslana fyrir miðjan júlí. Tanzanía hafnaði kröfunni og bæði Tanzanía og Zaire hafa litla aðstoð veitt banda- rískum stjórnarfulltrúum sem hafa reynt að komast að sam- komulagi um að gíslunum verði sleppt. Zaire-stjórn vís- aði nýlega sendiherra Banda- rikjanna úr landi og gaf hon- um að sök að hafa verið viðrið- in meint samsæri um að myrða Mobutu forseta og kollvarpa stjórn hans. Mannræningjarnir eru úr marxistískum stjórnmála- flokki, Alþýðubyltingarflokki Zaire (PRO). — Eitur Framhald af bls. 1 hafði tekið að sér verkefni fyrir CIA. Rosselli sagði að sá sem haft hefði umsjón með verkinu, að myrða Kastro, væri „Big Jim“ O’Connell, að sögn Andersons. „Matheu kom Rosselli í sam- band við O’Connel f New York 14. september 1960“, sagði Anderson, og bætti við: „Síðan flaug Rosselli til Miami og réð aftökusveit. Fyrst ákváðu þeir að eitra fyrir Kastro. Eiturtöfl- ur fengust frá CIA. Þær voru afhentar á hótelherbergi á Miami af Maheu, samkvæmt Rosselli. „Maheu opnaði skjalatösku og í ljós komu 10.000 dollarar f reiðufé og eiturtöflurnar”. Pen- ingunum var skipt á milli sam- særismannanna. Roselli sór þess eið að hafa ekki tekið við neinum peningum frá CIA, nema einhverjum smágreiðsl- um, heldur hafi hann greitt kostnaðinn úr eigin vasa. Eiturtöflurnar áttu að virka á þremur dögum. Nægur tfmi yrði þá fyrir eitrið að hverfa úr líkama Kastrós áður en hann dæi, svo að líta myndi út fyrir að hann hefði dáið eðlilegum dauðdaga. Roselli frétti aldrei um afdrif félaga sinna né taflnanna, en aftur var reynt og þá voru notaðar sterkari töflur. Bárust þá fregnir af þvi að Kastró væri alvarlega veikur en „Roselli vissi ekki hvort það væri af eitrinu eða öðrum orsökum", sagði Anderson. Eftir Svfnaflóaárásina, hafði Anderson eftir Roselli, var Maheu kippt út úr samsærinu. Upp frá þessu hafði Roselli beint samband við Harvey, starfsmann CIA. „Fjórar morðtilraunir voru gerðar í viðbót”, hélt Anderson áfram. „Samsærismönnum var Iaumað til Kúbu með háþrýsti- riffla. Síðasti tilræðishópurinn komst til Havanna og upp á húsþak, þar sem hann var handtekinn. Þetta var f kring- um 1. marz 1963. Eftir það voru ekki gerðar frekari tilraunir til að myrða Kastró. Yfirmaður CIA, William Colby, fór í dag fram á það við þingið að haldið yrði leyndum ýmsum upplýsingum, sem þing- nefndin kann að fá um starf- semi leyniþjónustunnar. Sagði hann ýmsar upplýsingar vera þess eðlis að það væri hagsmun- ir þjóðarinnar að þeim yrði haldið leyndum. John G. Tower, sem á sæti í CIA-þingnefndinni, sagði eftir yfirheyrslurnar yfir Roselli að samsærið gegn Kastró væri eina tilfellið, þar sem vart hefði verið við samstarf CIA við undirheimana. — Amin Framhald af bls. 1 Bæði Bretar og Kenyamenn neituðu þeim fullyrðingum Ugandamanna f dag að brezkt herlið væri í Kenya og Bretar kváðust ekki hafa f hyggju að grípa til hernaðaraðgerða gegn Uganda. Samkvæmt brezkum heimildum hefur freigátan Salis- bury verið í Mombasa siðan snemma í þessum mánuði í venju- legri heimsókn og hjálparskipið Tidesurge kom þangað fyrr í vikunni. Skipin eru úr flotadeild sem Bretar hafa við strendur Austur- Afrfku til að framfylgja viðskipta- banninu á Rhódesíu, samkvæmt þessum heimildum. Engir her- menn eru í skipunum, segja þessar heimildir, og þau komu aðeins til Mombasa til að fá elds- neyti. Utvarpið í Uganda segir að nærvera brezkra herskipa og hermanna hafi verið „staðfest" og komi heim við það sem Sir Chandos Blair hershöfðingi, sem hefur reynt að bjarga Denis Hills, hafi sagt Amin forseta i sfðustu viku, að Bretar muni beita herliði sinu í Kenya gegn Uganda ef Hills verði tekinn af lifi. Brezka stjórnin bar til baka í dag frétt Lundúna-blaðsins Daily Mail þess efnis að fjórar flutningaflugvélar flughersins væru hafðar til taks til að flytja Breta frá Uganda ef ástandið versnar. En diplómatar í London segja að endurskoðaðar hafi verið áætlanir um að flytja á brott þá 700 Breta sem enn búa f Uganda ef það reynist nauðsynlegt. Embættismenn í London leggja á það áherzlu að fulltrúar brezku stjórnarinnar í Kampaia hafi ekki gefið Bretum þar nokkur sérstök fyrirmæli. I hópi Bretanna eru trúboðar, kennarar, læknar, kaupsýslumenn og aðstandendur margra þeirra. Að sögn Uganda- útvarpsins „stendur Amin á sama þótt allir Bretarnir fari frá Uganda. Uganda blómstrar án þeirra og getur tekið örari fram- förum án þeirra.“ SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM 2% Flestir leiðtogar okkar lifa f munaði. Haldið þér, að það sé ástæðan til þess, að kommúnisminn hefur færzt í aukana? Öskapleg fátækt rfkir víða f heiminum. Er ekki syndsamlegt að eiga ofgnótt, þegar aðrir búa við örbirgð? Það fer ekki á milli mála, að margs konar ranglæti þrífst í lýðræðisskipulagi okkar. En leiðtogar kommúnista sækjast engu síður en aðrir eftir að lifa í allsnægtum. Blaðið Parade Magazine sagði á sínum tíma frá Kim II Sun, drottnara í Norður-Kóreu, sem stjórnaði að hætti Stalíns. Hann lét taka Púebló. Blaðið sagði, að þessi maður væri milljónamæringur. Aðsetursstaður hans í Pyongyang var sagt vera skrauthýsi, umlukt varðstöðvum. Blaðið sagði, að hann ætti sex jarðir. Hverjir borguðu þær? Fólkið, „sem hann arðrænir“, sagði blaðið. Forsenda kommúnismans er jöfn eignaskipting. En kommúnisminn er langt frá þessu. Hann hefur þróazt í stéttakerfi, þar sem ríkir menn verða ríkari og fátæklingar fátækari. Það er eins og Sókrates sagði: „Sæluríkið verður aldrei stofnað á þessari jörð vegna ágirndar mannanna. Fullkomið þjóðfélag er ekki til nema þar sem fullkomnir menn eru.“ Stjórnmálakerfið sjálft skiptir ekki eins miklu máli og hugarfar fólksins, sem lifir í þessu kerfi. Margir landar okkar eru ruglaðir í ríminu vegna áróðurs þeirra, sem telja, að siðferðiskröfurnar eigi ekki við okkar tíma. Siðferðisbylting á sér stað um þessar mundir í landi okkar. Þetta er hreyfing, skipulögð og óskipulögð, sem miðar að því að láta fyrir róða erfðavenjur, sem margt hugsandi fólks telur vera undirstöður lífhátta okkar. Tíminn leiðir í ljós, hvort þær muni standast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.