Morgunblaðið - 10.07.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JULl 1975
17
Norræna húsinu
Veturliði í
Það eru á annað hundrað
No. 19.
„1
ljósaskiptunum“
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
mynda á sýningu þeirri, er Vetur-
liði Gunnarsson hefur efnt til
þessa dagana í Norræna húsinu.
Hann var með sýningu á Kjarvals-
stöðum fyrir nokkrum mánuðum,
og þá reit ég hér um hann i
blaðið. Veturliði er sérlega
iðinn við að sýna, og það
hvarflar að manni að ef til
vill sé of stutt milli sýninga
hjá honum. Ég tek þannig til orða
vegna þess að mér fannst eins og
ég sæi ekki á þessari sýningu Vet-
urliða nægilega breytingu, eða
réttara sagt, einhverja breytingu
á vinnubrögðum og viðhorfum
hans í myndlist. Ekki má þannig
skilja þessi orð mín, að mér finn-
ist þessi sýning alveg eins og aðr-
ar sýningar Veturliða. Þvi fer
fjarri, en hún er ekki nægilega
frábrugðin sýningum hans að
undanförnu, til að hún verði
spennandi í mínum augum.
Fjörutiu olíumálverk eru á
þessari sýningu og sextíu og fimm
pastelmyndir. Eins og gefur að
skilja er þetta nokkuð misjafnt,
enda mikiðsýntíeinuogeins og
áður finnst mér sumt af verkum
Veturliða hafa sterka og persónu-
lega tjáningu, en hinu er heldur
ekki að leyna, að stundum hvarfl-
ar að mér, hvort hann hefði ekki
getað gert betur. Veturliði er sér-
lega tengdur sjónum og strönd-
inni. Húsin og bátarnir, brimið og
sólarlagið eru þeir brunnar er
hann teygar af. Þetta eru í sjálfu
sér viðkvæmar fyrirmyndir, sem
hafa rómantiskt eðli sem mörgum
Islendingi er kært og kunriugt.
Margir af myndlistarmönnum
okkar hafa látið heillast af þess-
um fyrirmyndum. En Veturliði er
dálítið hrjúfur málari að eðlisfari,
og mér finnst, eins og svo oft
áður, að hann sé stundum nokkuð
harðhentur við þann heim, er
verður honum hvati til myndgerð-
ar. Það er órói og frumkraftur,
sem einkennir þessa sýningu Vet-
urliða, einkum og sér í lagi á þetta
við oliumálverkin. Pastelmynd-
irnar eru yfirleitt í mýkri tónum,
en því miður eru sumar þeirra
heidur losaralega gerðar og sann-
færa mann ekki nægilega til að
hrífa mann með í unaðsemdum
augnabliksins.
Það er ýmislegt á þessari sýn-
ingu Veturliða, sem kitlar minn
persónulega smekk. Sérstaklega
hvernig hann einfaldar fyrir-
myndirnar og nær stundum
skemmtilegri myndbyggingu i
sjálfu forminu. Þetta á sérstak-
lega við, þegar hann málar skip
og báta. En hann á það líka til að
vanda ekki nægilega litameðferð-
ina, svo að það samræmi náist,
sem brenni sig í hug áhrofandans.
Þannig mætti lengi telja kosti óg
það er miður fer í málverki Vet-
urliða, en ég læt þetta nægja að
einu sinni þann Veturliða, sem
við þekkjum frá fyrri sýningum
við þekkjum frá fyrri sýningum
hans, og ég persónulega er alltaf
að bíða þess, að hann komi með
eitthvað, sem maður hafi ekki áð-
ur séð. Ef til vill er þetta ósann-
gjörn krafa á hendur málara eins
og Veturliða, sem stundað hefur
málverk í langan tíma. Hann er
fastmótaður sem listamaður og
hefur mikla framleiðslu að baki
sér. Hann hefur haldið óteljandi
sýningar á verkum sínum, og
hann hefur alltaf verið nokkuð
vinsæll málari.
Guðmundur Sigurjónsson:
Eins og menn minnast, tók Guðmundur Sigurjónsson stór-
meistari þátt í skákmóti vestur I Lone Pine I Kalifornlu á
sfðastliðnu vori. Þar voru hvorki meira en minna en 22 stór-
meistarar meðal þátttakenda og hafa að sögn ekki verið fleiri á
einu móti I aðra tíð. Guðmundur segir hér frá mótinu, en greinar
hans um það fyrir Morgunblaðið verða alls þrjár.
ir svissneska kerfinu, en megin
einkenni þess er, að keppend-
ur, sem jafnir eru að vinning-
um, eru látnir tefla saman.
Kerfi þetta er mjög vinsælt í
Bandaríkjunum, en í gamla
heiminum er því litið beitt. Um-
hugsunartími fyrir hvern kepp-
anda var 2H klst. á fyrstu 45
leiki, en síðan 1 klst. á 20 leiki.
Fyrstu verðlaun voru 4000 dalir
eða 600.000 ísl. kr., svo til ein-
hvers var að vinna. Á mótinu
voru tefldar mjög margar
athyglisverðar skákir, en ekki
er fært að birta þær allar hér.
Ég mun því hafa þann hátt á að
lýsa því markverðasta i hverri
umferð. Vindum okkur þá i
leikinn.
1. umferð
I fyrstu umferð dró strax til
tíðinda. Mesta athygli vakti sig-
ur Kushnir yfir stórmeistaran-
um Larry Evans frá Banda-
rikjunum. Kushnir hefur
nokkrum sinnum háð einvigi
við Nonu Gaprindashvili um
heimsmeistaratitil kvenna í
skák, en jafnan beðið lægri
hlut. Ef skák hennar við Évans
er vísbending um það, sem
koma skal, þá skyldi engan
undra, þótt heimsmeistaratitill
kvenna félli henni i skaut
innan tiðar. En lítum nú á skák-
21. f5! ( — Nú hótar hún m.a.
22. Bg3 og d-peðið fellur) g5 22.
Bg3 Dxa4 23. Rxd6 He7 24. e5
Hxe5 ( — Evans er kominn
með tapað tafl. Hann reynir þó
aðeins að blíðka hana með
skiptamunsfórn, en allt kemur
fyrir ekki) 25. Bxe5 fxe5
26. f6 Dd7 27. Rf5 Kh8 28. Rxh6
He8 29. Dh5 e4 30. Rf7+ Kg8
31. Rh6+ ( — Hún fer sér að
engu óðslega) Kh8 32. c4 e3 33.
Rf5 a6 34. Re7 b5 35. Hxe3 bxc4
36. Df7 og Evans gafst upp
saddur lífdaga.
Sumir ráku upp stór augu,
þegar Weinsteiri frá Banda-
rikjunum bar sigurorð af
Shamkovich, en þeir sem
þekkja piltinn vita, að hann er
Skákmótið íLonePine 1975
Maður er nefndur Louis D.
Statham. Hann er uppfinninga-
maður, sem grætt hefur
milljónir dala á hugviti sínu.
Nú er hann kominn á efri ár og
lætur fara vel um sig á glæsi-
legu setri sínu í Lone Pine I
Kaliforníu. Skákáhugamaður
er hann mikill og fylgist vel
með öliu, sem gerist í skák-
heiminum. Hann er vel liðtæk-
ur skákmaður, en nú orðið læt-
ur hann sér nægja að tefla bréf-
skák. Skákmenn eiga þarna
góðan hauk í horni. Reyndar er
annar bandarískur milljóna-
mæringur öllu þekktari meðal
skákmanna. Á ég þar við
timbursalann Turover, er leitar
uppi öll meiriháttar skákmót,
sem haldin eru í heiminum. En
Statham nennir ekki að leggja á
sig löng ferðalög. Hann býður
skákmönnum að sækja sig heim
í litla þorpið sitt í Kaliforníu.
Undanfarin ár hefur hann stað-
ið fyrir mótum í Lone Pine við
góðan orðstír. Skákmótið í ár
átti að verða nokkuð sérstakt —
og það varð það.
44 skákmeistarar mættu til
leiks, þar af 22 stórmeistarar!
Aldrei fyrr hafa svo margir
stórmeistarar tekið þátt í skák-
móti, ef undan eru skilin
olympíumót, sem eru allt ann-
ars eðlis (þ.e. sveitakeppni, en
ekki einstaklingskeppni). Hér
var því sett heimsmet og
Bandarikjamenn hafa ávallt
gaman af því. Keppendur voru
frá öllum heimsálfum, flestir
að sjálfsögðu frá Evrópu og N-
og S-Ameríku, en allir stór-
meistarar Asíu voru hingað
komnir! Þeir eru nú reyndar
aðeins þrir, þ.e.a.s. Liberyon og
Shamkovich frá Israel og Torre
frá Filippseyjum. Rússar sendu
enga keppendur til mótsins
vegna deilna þeirra við Skák-
samband Bandaríkjanna, er
spunnizt höfðu út af fyrirhug-
uðu einvígi þeirra Fischers og
Karpovs. Reyndar komu hingað
þrír rússneskir Gyðingar, sem
nýfiuttir eru til ísraels, áður-
nefndir Liberyon og
Shamkovich og svo Alla
Kushnir, eini kvenkeppandinn
í mótinu. Of langt mál yrði að
telja alla keppendur upp, en
sterkustu menn mótsins sam-
kvæmt skákstigum voru
Gligoric frá Júgóslavíu, Browne
frá Bandaríkjunum og Panno
frá Argentínu.
Tefldar voru 10 umferðir eft-
ina, — og til að fyrirbyggja
allan misskilning skal það tekið
fram, að skákin er ekki birt í
tilefni hins margumrædda
kvennaárs, heldur einungis
vegna síns eigin ágætis!
Kushnir-Evans
Ben Oni
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e6 4.
Rc3 exd5 5. cxd5 d6 (Evans
hefur mikið dálæti á Ben Oni).
6. Rf3 g6 7. Bg5 — (Sumir
kenna þetta afbrigði við
Uhlmann, sem beitir þessum
leik iðulega gegn Ben Oni) Bg7
( — Skarpara var 7. ... h6 8.
Bh4 g5 9. Bg3 Rh5) — 8. e3 h6
9. Bh4 0-0 10. Rd2 b6 11. Be2
Ba6 12. a4 De7 13. 0-0 Bxe2 14.
Dxe2 Rb — d7 15. f 4! ( — Það
er sókn í aðsigi á miðborði) Hf
— e8 16. Ha — el Rf8 ( —
Kjánalegur leikur, en hvernig á
svartur að bregðast við leiknum
e4 — e5, sem hvitur er að
undirbúa?) 17. e4 Dd7 18. Df3
Rf6 — h7 19. Rc4 ( — Hvítur er
þess albúinn að leika 20. e5.
Svartur hindrar það með f6, en
fyrst lætur harin biskupinn af
hendi, svo að hann lokist ekki
inni). Bxc3 20. bxc3 f6.
Fyrsta
grein
til alls vis. — Gligoric tók
ungan Bandarikjamann i
kennslustund í kóngsind-
verskri vörn. Væntanlega geta
aðrir einnig nokkuð af lært.
Commons — Gligoric
Kóngsindversk vörn
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7
4. e4 d6 5. d4 0-0 6. Be2 e5 7. 0-0
Rc6 8. d5 Re7 ( — Nú er ljóst i
hvað farveg skákin mun renna.
Hvítur hyggur á sókn á
drottningarvæng, en svartur
mætir henni með gagnsókn á
kóngsvæng. Þetta verður oft
æðisgengið kapphlaup, eins og
á sér stað i þessari skák) 9. b4
Rh5 10. Rd2 ( — Önnur leið er
hér 10. g3 f5 11. Rg5 Rf6) Rf4
11. c5 f5 12. f3 Rxe2+ 13. Dxe2
f4 14. Rc4 g5 15. Ba3 Hf6 16. b5
Rg6 17. Hf-cl Bf8 18. b6 axb6
19. cxb6 cxb6 20. Ha-bl
20. ...g4! ( — Gagnsóknin
kemur ítækatíð)21. Df2(-Ef
hvítur þiggur peðsfórnina, nær
svartur öflugri sókn: 21. fxg4
Rh4 og svartur hótar 22. ... f3
en einnig 22. ... Hg6 23. h3 h5)
21. . . . gxf3 22. gxf3 Rh4! ( —
Svartur hefur greinilega betur
í kapphlaupinu. Riddarinn er
friðhelgúr sbr. 23. Dxh4 Hg6+
og drottningin fellur) 23. Khl
Hg6 24. Hgl Bh3 25. Dxb6 ( —
Hvítur hefur orðið undir i bar-
áttunni) Dbx6 26. Hxg6 hxg6
27. Hxb6 Hc8 ( — Riddararnir
hanga í lausu lofti) 28. Hb4 Bfl
og hvitur gafst upp, vegna þess
að hann kemst ekki hjámanns-
tapi eftir 29. Rd2 Hxc3 30. Bb2
Bg2 +
Ég tefldi við David Levy frá
Skotlandi og mátti ég þakka
fyrir að ná jafntefli. Byrjunina
tefldi hann dálítið skemmti-
lega.
Guðmundur Sigurjónsson —
Levy
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 ( — Dreka
afbrigðið. Levy hefur ritað bók
um afbrigðið) 6. Be3 Bg7 7. h3
(— Þessi leikur hafði ávallt
reynzt mér vel, en nú sneri gæf-
an við mér bakinu. Algengara
er 7. f3) 0-0 8. Bc4 a6! ( —
Nýjung í þessari stöðu. And-
stæðingar mínir höfðu ætíð
leikir 8. .. . Rc6, en leikur Lev-
ys er miklu skemmtilegri. Nú
verður mér á meinleg skyssa)
9. a4? Rxe4! 10. Rxe4 d5 11. Bd3
dxe4 12. Bxe4 f5! 13. Re6!? og
hvítur er á barmi glötunar, en
Levy tefldi framhaldið veikt og
ég slapp með skrekkinn.
2. umferó
I þessari umferð fóru ung-
versku stórmeistararnir Forint-
os og Bilek miklar hrakfarir
fyrir Parr fráAstralíu og Erv-
in frá Bandaríkjunum, en þeir
eru báðir algjörlega óþekktir.
Benkö, sem er landflótta Ung-
verji með bandariskan ríkis-
borgararétt átti fullt i fangi
Framhald á bls. 23