Morgunblaðið - 27.07.1975, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.07.1975, Qupperneq 1
48 SÍÐUR 167. tbl. 62. árg. SUNNUDAGUR 27. JÚLl 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Herinn herðir tökin í Portúgal Lissabon, 26. j.úlí. AP. Reuter. HREYFING hersins í Portúgai félist f gærkvöldi á að fela þrem Zaccagnini í stað Fanfanis Róm, 26. júlí. AP. BENIGNO Zaccagnini, 63 ára sérfræðingur i fótaaðgerðum, var i dag naumlega kjörinn aðalritari Kristilega demó- krataflokksins á Italíu i stað Amintore Fanfanis sem bolað var úr embætti s.l. miðvikudag vegna afhroðs flokksins i kosn- ingum undanfarið. Kjör Zaccagninis var málamiðlun sem kom nokkuð á óvart, en kristilegir demókratar, stærsti flokkur Italíu, voru marg- klofnir, í málinu. Endanleg úr- slit urðu þau að i atkvæða- greiðslu la'ndsráðs flokksins fékk Zaccagnini 93 atkvæði og var enginn á móti, en 72 seðlar voru auðir, — flestir frá stuðn- ingsmönnum Flaminio Piccoli, sem búizt hafði verið við að Framhald á bls. 47. Fær Kekkonen friðarverðlaun? Helsingfors, 26. júli. NTB. URHO Kekkonen Finnlands- forseti má heita öruggur um að fá friðarverðlaun Nóbels i ár, að því er finnska fhaldsblaðið Uusi Suomi segir í forsíðufrétt í dag. Hefur blaðið eftir áreiðanlegum heimildum að helzta ástæðan fyrir þessu sé sú að hann er gestgjafi leið- togafundarins sem ijúka mun öryggismálaráðstefnu Evrópu i Helsingfors. mönnum stjórn landsins, Con- calves forsætisráðherra, Costa Gomez forseta og Carvalho yfir- manni öryggislögreglunnar. 240 nianna þing hersins ákvað þetta á 12 tfma fundi og jafnframt var ákveðið að byltingarráðið sem skipað er 30 mönnum skyldi vera þremenningunum til ráðuneytis um stjórnina. Á fundinum var þvf lýst yfir að nauðsynlegt væri að veita landinu „sterka pólitfska forsjá". Litið er á ákvörðun þings hers- ins sem mikinn sigur fyrir vinstri- sinna i hreyfingunni, sérstaklega fyrir Concalves, en hægfara með- limir þingsins eins og Antunes, utanríkisráðherra Portúgals, komu ekki til fundarins. í tilkynningu fundarins sagði að ákveðið hefði verið aó „taka föstum tökum aðgerðir þeirra afla, sem andsnúin eru bylting- unni og skapað hafa ólgu meðal Framhald á bls. 47. Geimfararnir eru enn í sjúkrahúsi Honolulu, 26. júlí. Reuter GEIMFARARNIR þrfr úr Apollo, Stafford, Brand og Slayton, eru enn í sjúkrahúsi f Honolulu, en þeir munu hafa andað að sér eiturgasi þegar geimskip þeirra lenti í fyrradag. Talið er að þeir muni ná sér fljótlega, en einhver bólga mun hafa náð að myndast í lungum þeirra. Ujvarpið i Peking fordæmdi í dag harðlega geimferð Apollos og Soyuzar og sagði að stefnumótið i geimnum væri misheppnuð til- raun til að bæta sambúð Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna. Ljósmynd Ol.K.M. VESTUR-lSLENZK FRÆNKA — Þessi litla vestur-íslenzka stúlka, Kristin Sigurðsson, beið hin rólegasta eftir frændum sinum frá íslandi sem komu flugleiðis til Winnipeg s.l. miðvikudag, en hátiðahöld I tilefni 100 ára byggðar á Nýja-Islandi hefjast 2. ágúst. Sjá bls. 3. Gíslum sleppt Dar Es Salam, 26. júli. AP AFRÍSKU skæruliðarnir i Zaire sem rændu fjórum erlendum stúdentum frá frumskógarann- sóknarstöð við Tanganyikavatn fyrir 69 dögum og slepptu fyrir skömmu þremur gislanna, létu í dag lausan þann fjórða og siðasta. Var það bandariski háskólanem- inn Stephen Smith, 22 ára að aldri. Hann var sagður við góða heilsu. Valda hárlitunarefni lungna- krabba hjá hárgreiðslufólki ? Erfitt að fylgjast með innflutningi hingað RANNSÓKNIR, sem nýlega hafa verið gerðar 1 Bandarfkjunum á hárlitunarefnum, sýna hinar hroðalegustu niðurstöður. Snyrti- sérfræðingar og hárgreiðslu- konur, sem höndla hárlitunarefni og aðrar snyrtivörur á deg,i hverj- um f sínu starfi eru tfu sinnum ifklegri til að deyja úr lungna- krabba en annað fólk. Það voru þrfr sjúkdómafræðingar við Berkley háskóla f Kalifornfu, sem rannsóknirnar gerðu. Einn þeirra, dr. Steve Selvin, segir að þó að tölur þeirra séu úr Of mikil saltneyzla getur valdið of háum blóðþrýstingi OF MIKIÐ salt í mat getur verið ein höfuðorsök of hás blóðþrýstings að áliti margra lækna í Svíþjóð. Blóðþrýst- ingur jókst stórlega f öpum sem gefið var matarsalt f tilrauna- skyni og nokkrir þeirra dóu af þeim sökum. Læknar virðast sammála um að minni notkun salts geti hjáipað til að koma f veg fyrir of háan blóðþrýsting. Lfkaminn tekur vanalega allt það salt sem hann þarfnast úr þeirri fæðu sem venjulegt fólk borðar og þarf ekki að gæta þess að salt sé f venjulegri fæðu nema sérstaklega standi á. Fólk notar þvf ekki salt af Ifkamlegri nauðsyn heldur aðeins vegna þess bragðauka sem það gefur. Vfsindamenn hafa lengi veitt þvf athygli að samband virðist vera milli salt- neyzlu og blóðþrýstings. Þvf hefur t.d. verið veitt eftirtekt að grænlenzkir eskimóar og innfæddir Ástralfumenn sem að staðaldri nevta Iftils salts hafa að jafnaði lágan blóðþrýst- ings. I rannsóknarstöðinni Suchumi við Svartahaf f Sovét- rfkjunum rannsaka vfsinda- menn gagngert sambandið milli saltneyzlu og blóðþrýst- ings. Þar voru gerðar tilraunir með apa. Þeim voru gefin 20 grömm af matarsalti á dag og eftir 2—3 mánuði hafði blóð- þrýstingurinn f dýrunum stór- vaxið. Hjá ungum dýrum minnkaði vaxtarhraði líkamans og vöxturinn varð óeðlilegur. Við athugun þeirra dýra sem dóu f tilraununum kom f ljós að vefir f hjarta og lifur hættu að starfa á eðlilegan hátt. aðeins einni sýslu i Kaliforníu og séu miðaðar við aðeins 3000 fórnarlömb krabbameins, þá séu niðurstöðurnar svo skýrar að unnt sé að draga af þeim ályktanir. Tölur þeirra um lungnakrabba sanna þó ekkert endanlega um hárlitunarefni. Þær geta einfald- lega stafað af því að hárgreiðslu- konur reykja meir en aðrar kyn- systur þeirra eða þá að þær séu meir berskjaldaðar gegnvart öðrum efnum í umhverfinu, sem eru krabbameinsvaldandi. Dr. Selvin segir það vera erfitt að átta sig á þvi af hverju hár- litunarefni ættu frekar að valda lungnakrabba heldur en t.d. húó- krabba. En hvað sem því liður þá lita heilbrigðisyfirvöld í Banda- rikjunum niðurstöður þeirra félaga mjög alvarlegum augum. Siðustu 10 ár hefur Bruce Ames, prófessor við Berkeley not- að bakteriur til að kanna hvort hin ýmsu efni eru krabbameins- valdandi. Er kerfi hans mjög há- þróað og notar han sérstaklega ræktaðar bakteríur. Prófessor Ames varð fyrstur til að upp- gvötva þær hættur, sem stafa af V Framhald á bls. 47. jr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.