Morgunblaðið - 27.07.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.07.1975, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JULl 1975 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6, sfmi 22 4 80. Áskriftargjald 700.00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 40,00 kr. eintakið Rúmlega þriðja hver króna, sem ráðstafað er á fjárlögum ársins 1975, eða 16.000 milljónir, fer til tryggingar- og heilbrigðis- mála, enda eru þeir mála- flokkar langstærstu gjalda- liðir ríkissjóðs. Núverandi ríkisstjórn tók við völdum í endaðan ágúst á sl. ári. Frá þeim tíma og til og með júlímánuði í ár hafa lífeyrisbætur almanna- trygginga hækkað . um 2.200 milljónir króna. Þetta kom fram í viðtali Morgunblaðsins við Matthías Bjarnason, heil- brigðis- og tryggingaráð- herra í gær. Á valdaferli núverandi ríkisstjórnar hafa lífeyris- bætur hækkað fjórum sinnum: í fyrsta sinn í október- byrjun sl. árs. Þá hækkuðu almennar lifeyristrygg- ingar um 6%, sem kostaði þá tæpar 302 m.kr., tekju- trygging um 16%, sem kostaði um 80 m.kr. og slysatrygging og sjúkra- dagpeningar um 7%, sem kostaði 24. m.kr. Samtals var þessi fyrsta hækkun upp á 406 m.kr. Aftur varð hækkun bóta l. desmeber um 3%, sem nam á ársgrundvelli 173 m. kr. Þá varð hækkun á öllum ákvörðun um, að bætur skyldu hækka um 8% frá sama tíma, vegna almennra kauphækkana, sem urðu nýverið, en þær bætur koma ekki til út- borgunar fyrr en í næsta mánuði. I reynd hækkuðu bætur almannatrygginga- kerfisins því um 11% frá í júlí sl. og er áætlað að þess- ar hækkanir muni nema um 740 m.kr. Það má þvi segja að á u.þ.b. 11 mánaða valdaferli núverandi ríkisstjórnar hafi lífeyrisbætur hækkað um 2.200 m.kr. Ef gerður er saman burð- ur á lífeyri almannatrygg- inga í ársbyrjun 1974 og í júlíbyrjun 1975 verður niðurtaðan þessi. Lifeyrir einstaklings, 67 ára og eldri, án tekjutryggingar, hefur hækkað úr 9.772 um tíma hækka hlutfalls- lega miðað við kaup í al- mennri verkamannavinnu. Við þetta lagaákvæði er ákvörðun ráðherra og ríkisstjórnar bundin, meðan það er óbreytt. Þessi var og háttur á um ákvörðun lífeyrisbóta bæði hjá fyrrverandi og nú- verandi rikisstjórn. Hitt er svo annað mál, að á tímum fyrri trygginga- ráðherra, eða i febrúar 1974, var þann veg gengið frá almennum kjarasamn- ingum, að svokölluð lág- laun, sem eru lagaleg við- miðun lífeyris almanna- trygginga, hækkuðu minna, bæði hlutfallslega og í krónutölu, en laun tekjuhærri * starfshópa. Þessir starfshættir komu síðan óhjákvæmilega fram í ákvörðun ellilífeyris á bótum 1. apríl sl. um 9%, sem þýddi útgjaldaauka að fjárhæð 455 m.kr. á ári. Tekjutrygging hækkaði um 16% frá sama tíma, eða sem svarar 250 m.kr. með sömu viðmiðun. Auk þessa er skattaafsláttur greiddur sem tekjutrygging 1975, sem áætlað er að muni nema 210 m.kr. Samtals eru þetta um 915 m.kr. Frá 1. júlí sl. hækkuðu svo allar bætur um 3%. Að auki tók ríkisstjórnin Lífeyrir krónum í 16.130 eða um 65%. Einstaklingur með fulla tekjutryggingu fékk þá 15.108 krónur, fær nú 29.223, hækkun 93%. Hjón, án tekjutryggingar, fengu þá 17.590 krónur, fá nú 29.051, hækkun 65%. Hjón með fulla tekjutryggingu fengu þá 27.195 krónur, fá nú 51.169, hækkun 88%. í almannatrygginga- lögum er svo kveðið á um lífeyrishækkan- ir, að þær skuli á hverj- þeirri tíð. Við kjarasamn- inga á þessu ári var á annan og heilbrigðari veg staðið að þessum málum sem skunnugt er. Það er flestra mál, að aldraðir þegnar þjóðfélags- ins, sem unnið hafa því langan og strangan ævi- dag, eigi það inni hjá sam- félaginu, áð þeir geti búið við afkomulegt öryggi á efri árum. Sífellt miðar og í rétta átt um aðbúð aldraðra og vanheilla, þó enn megi að sjálfsögðu betur gera. Lítið þjóðfélag með tiltölulega stórt hlut- fall fólks, aldraðra, van- heilla og námsmanna, sem af eðlilegum ástæðum tek- ur ekki fullan þátt í verð- mætasköpun þess, hlýtur þó hverju sinni að taka mið af þeirri fjárhagsgetu, sem fyrir hendi er. Sú aldraða sveit, sem nú situr á friðarstóli í dag, hefur gegnt mikilvægu hlutverki í framvindu þjóð- félagsmála. Það er hún, sem með störfum og striti breytti íslenzku þjóðfélagi úr frumstæðu og fátæku samfélagi í það velferðar- þjóðfélag, sem við búum að í dag. Það er hún, sem lagði grundvöllinn að nú- tíma velmegun lands- manna. Hún skilaði niðjum sfnum betra landi en hún tók við. Þjóðin sem heild stendur því í stórri ógold- inni þakkarskuld við hina eldri kynslóð. Það er ljósasti votturinn um menningu og siðferði- legan styrkleika hverrar þjóðar, hvern veg hún býr að hinum öldruðu. Sú endurskoðun á löggjöf almannatrygginga, sem núverandi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir og væntanlega leiðir til fram- lagningar nýs lagafrum- varps á vetri komanda, verður að taka mið af þeim menningarlegu og siðferði- legu kvöðum nútíma þjóð- félags, sem skyldu þess við hina eldri kynslóð leggja því á herðar. i Reykiavíkurbréf ♦ ►Laugardagur 26. júlí Sögulegur fundur I þeirri viku, sem nú er að hefj- ast, koma leiðtogar 35 Evrópu- landa saman í Helsingfors til að undirrita svonefndan öryggissátt- mála Evrópu, en hann er eins konar viljayfirlýsing þessara landa um ákveðin efni, svo sem öryggi álfunnar, menningar- og mannúðarmál, mennta- og efna- hagsmál. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að setja yfirlýsingar þessar saman í Genf og nú hefur verið gengið frá text- anum. Hlutverk leiðtoganna í Helsingfors er ekki annað en flytja ræður og skrifa undir. Enda þótt hér sé ekki um sáttmála að ræða, heldur grundvallar-skuld- bindingar eru þátttökurikin að sjálfsögðu siðferðilega bundin að framfylgja þvi, sem þar segir. Að vísu er reynslan sú, að einræðis- riki framfylgja einungis því, sem þeim hentar. Þau hafa undirritað sáttmála Sameinuðu þjóðanna, þar sem kveðið er skýrt að orði um ýmis grunvallaratriði í mann- réttindamálum án þess þó, að þeim detti i hug að framkvæma hann. Auk þess leggja þau þá merkingu i orð og hugtök, sem þeim sjálfum sýnist og þarf ekki að tíunda dæmi þess efnis í löngu máli, heldur er nóg að minna á orð eins og „alþýðulýðveldi" og „sósíalístískt lýðræði“, svo ekki sé talað um, hvernig kommúnistar hafa gengið af orðinu „frelsi“ dauðu. Margt og mikið hefur verið skrifað um öryggissáttmála Evr- ópu hér í blaðið og þar við verður látið sitja. Einungis bent á, að í dag er gerð dálítil úttekt á þeirri viljayfirlýsingu, sem um er að ræða. Margt vekur grunsemdir í sambandi við yfirlýsingu þessa, ekki sízt það hve annt Sovétríkj- unum og öðrum kommúnistalönd- um hefur verið um að koma þess- um sáttmála í höfn. Upphafið hef- ur jafnvel verið rakið til óska Molotovs, utanríkisráðherra Stal- íns, og er að sjálfsögðu óbragð að þvi. En Sovétríkin hafa löngum viljað fá staðfestingu á núverandi fyrirkomulagi i Evrópu, því að með status quo þyrftu þau ekki að hafa áhyggjur af leppríkjum sín- um í Austur-Evrópu og innlimun Eistlands, Lettlands og Litháens í Sovétrikin. Örlög þessara þriggja smáríkja eru sem kunnugt er, ein- hver ljótasti bletturinn á sögu Sovétríkjanna og er þá mikið sagt, þvi miður. Ýmsum þykir sem lýðræðisríkin séu ekki nógu vel á verði gagnvart Sovétríkjun- um og „détente“ eða friðsamleg sambúð hafi orðið meiri ávinning- ur fyrir einræðisöflin en lýðræð- isríkin. Hvað sem því lfður hafa lýðræðisrikin þó áorkað ýmsu í sambandi við samningagerðina í Helsingfors og Genf, m.a. eru kommúnistar siðferðilega skuld- bundnir til að auka mannréttindi f löndum sínum, þoka mannúðar- málum í rétta átt, auka samskipti við önnur ríki, auðvelda frétta- flutning og síðast, en ekki sízt, virða landamæri þeirra rikja sem enn eru frjáls i álfunni. Þá hafa Sovétmenn orðið að kyngja þeirri kröfu Vesturveldanna að tilkynna fyrirfram um heræfingar og ætti þetta m.a. að auka öryggi á Norð- ur-Atlantshafi, þar sem Rússar hafa víðtækar flota- og heræfíng- ar, eins og kunnugt er, en fróðlegt verður að sjá, hversu vel þeir virða i verki þær skyldur, sem nú hafa verið á þá lagðar, með hinum nýja öryggissáttmála, þ.e. að til- kynna Islendingum og öðrum At- lantshafsríkjum fyrirfram um væntanlegar flotaæfingar þeirra á Atlantshafinu. Verður rækilega fylgzt með því, hvernig þeir munu framfylgja þessu ákvæði, ekki sið- ur en öðrum. NATO jafn nauðsynlegt og áður, segir Mao Enginn ætti að vera svo barna- legur að láta sér detta í hug, að kommúnistar breyti áróðurstækni sinni, stefnu, hvað þá markmiði, þó að þeir skrifi nú undir fyrr- nefnda viljayfirlýsingu um öryggi og samskipti ríkja í Evrópu. Þvert á móti er nú nauðsynlegt að vera vel á verði og fylgjast rækilega með því, hvaða stefnu þeir fram- fylgja á næstunni. Og margoft hefur verið á það bent, að þessi nýja viljayfirlýsing breyti engu um hernaðarjafnvægi i álfunni, og sízt af öllu eigi Atlantshafs- bandalagsþjóðirnar að draga úr vörnum sínum. Nauðsynlegt er að hafa þetta i huga. Hér að framan var minnzt á Stalínstímann. HoIIt er að hafa það einnig í huga, að á þeim ár- um, sem Molotov kom með hug- myndina um öryggissáttmála Evr- ópu unnu Rússar að því öllum árum að breyta Kínaveldi í sov- ézka nýlendu. Kínverjar benda oft á, að sú fyrirætlan hafi farið út um þúfur rétt f þann mund, sem heimsveldastefna sovézkra kommúnista var að sigra i Kína og það hafi verið fyrir einstaka ár- vekni og framsýni Mao formanns, sem Kínverjum tókst að sjá við Rússum og snúa þróuninni sér I hag. Áreiðanlega er mikið til i þessari söguskoðun Kinverja, enda ekki út í hött að fullyrða, að Mao formaður og samstarfsmenn hans hafi á siðustu árum verið raunsæjastir allra í afstöðunni til Sovétrikjanna. Varnaðarorð þeirra hafa sem betur fer haldið vöku yfir ýmsum þeim, sem ann- ars hefðu sofnað á verðinum, ekki sízt lýðræðisþjóðunum í Evrópu. Hurð skall nærri hælum í Kina. Þvi þá ekki í minni löndum? spyrja Kínverjar. Enginn skyldi halda annað en Sovétríkin stefni að heimsyfirráðum. Þetta þykjast Kínverjar vita af biturri reynslu, enda augljóst þegar litið er á ut- anríkisstefnu Rússa frá striðslok- um. Kínverjar benda fámennum þjóðum eins og íslendingum á að vera vel á verði, því að fyrst litlu munaði að Kínaveldi yrði Sovét- ríkjunum að bráð, sé smárikjum nauðsyn á að hafa opin augu og eyru. Þessi aðvörun maoista á fullan rétt á sér og Islendingar ættu að leggja við hlustirnar, ekki sizt þegar maoistar hvetja þá til að efla samstöðu sína með öðrum Atlantshafsbandalagsrfkjum, svo að unnt sé að halda Sovétríkjun- um innan þeirra takmarka, sem nauðsyn krefur, ef heimurinn á ekki að verða rússneska birninum að bráð. Fulltrúar Maos hér á landi segja íslenzkum gestum sín- um blákalt, að sovézk sendiráð í öðrum löndum hafi einungis tvenns konar hlutverki að gegna: að stunda njósnir og vinna að því að koma viðkomandi riki undir sovézk yfirráð. Ekki er annað hægt en taka mark á þessum orð- um Kínverjanna. Þeir hafa reynsluna. Auk þess hefur það vakið miklar grunsemdir og tor- tryggni, hvernig Sovétmenn hafa valið í sendiráð sitt hér á landi. Morgunblaðið hefur áður bent á, að sendiherrann, Farafanov, hef- ur verið KGB-njósnari frá 1951 og sérhæfður í að fjarstýra erlend- Solzhenitsyn um kommúnistaflokkum. Höfund- ur bókarinnar, „KGB — leynileg störf sovézkra njósnara“, John Barron, sem nefnir hann f þeim kafla bókar sinnar, sem fjallar um sovézka njósnara, segir, að hann hafi m.a. starfað i sendiráð- inu í Helsingfors og haft tviþætt verkefni, i fyrsta lagi að fylgja fram fyrirmælum miðstjórnar sovézka kommúnistaflokksins gagnvart finnska kommúnista- flokknum og i öðru lagi að sjá um flutning með leynilegum hætti á fjármagni frá Moskvu til þess að halda uppi margvíslegri undirróð- ursstarfsemi. Fyrir átta árum minntist hinn heimsfrægi blaða- maður New York Times, Sulz- berger, sérstaklega á Farafanov og skýrði frá þvi, að hann hefði um 8 ára skeið verið KGB- njósnari i Svíþjóð. Menn geta þvi rétt ímyndað sér, hvaða starfi hann gegnir hér á landi. Morgunblaðið vill einnig vekja athygli á því, að nánasti sam- starfsmaður hans hér á landi, Yevgennni Ivanovich Gergel fyrsti sendiráðsritari sovézka sendifáðsins, er einnig nefndur i bók John Barron um KGB- njósnara, og er þar sagt frá því, að bann hafi starfað í Nýja-Sjálandi 1956—1961 og Sviþjóð 1964— 1970. Morgunblaðinu er kunnugt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.