Morgunblaðið - 27.07.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.07.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLl 1975 Verður hætt við Blönduvirkjun? Skoðanir heimamanna skiptar Við virkjun yrði Blanda stífluð neðan ármóta Sandár. Neðanjarðarstöðvarhús er svo ráðgert i Blöndudal og frárennsligöng verða niður f farveg Blöndu, þar sem hún er í 90 m hæð y.s., 0,7 km ofan við brúna hjá Syðri-Löngumýri í Blöndudal. Hannsóknir á hugsanlegri Blönduvirkjun liggja nú að mestu niðri, þvf stefnt er að því að ráðast ekki í meiri f járfestingar við dýrar rannsóknir þar fyrr en fyrir liggur skýr vilji heimamanna og þeirra aðila fyrir norðan, sem þarna eiga hagsmuna að gæta, fyrir slfkri virkjun. Hefur málið verið rækilega kynnt, orku- málaráðherra og sérfræðingar um orkumál og gróður farið norður og haldið fundi, og sfðan hafa hrepparnir sex, sem upprekstur eiga á landsvæði það, sem lón virkjunarinnar yrði á, verið að móta sína afstöðu. Ef til virkjunar kemur f Blöndu, sem orkustofnunarmenn telja hagkvæmustu virkjun norðanlands, þá þarf stórt uppistöðulón á Auðkúluheiði vegna rekstrar- öryggis, sem er einn aðalkosturinn við Blönduvírkjun. Það lón tæki allt að 350 gfgalftra af vatni og yrði allt að 56,5 ferkm að stærð, en við virkjunina færu þá alls um 5530 ha af grónu landi undir vatn. En áætlað er að Blönduvirkjun mundi þannig virkjuð auka um 800 Gfgavattstundum við orkuvinnslugetu virkjanakerfis á Norðurlandi. Valið er því hvort menn vilja fyrir svo hagstæða virkjun leggja þetta beitiland undir vatn og rækta upp f staðinn beitiiand til að bæta það úf>p, eins og Ingvi Þorsteinsson mag- ister telur að vel eigi að vera hægt að gera. Hefur orkumála- ráðherra Gunnar Thoroddsen látið i ljós vilja á að bætt verði i einu eða öðru formi það sem tapast, og heimamenn m.a. látið í Ijós að þá ætti að bæta þeím Iandið með uppgræðslu og hlunnindum i raforku. Aður en ákvarðað er hvort lagt verður fé í dýrar rannsóknir við undir- búning að Blönduvirkjun, fé sem mikil þörf er fyrir að nýta annars staðar, vill ráðuneytið láta ákvarða hvort vilji sé heimafyrir fyrir slíkri virkjun í Blöndu. Blönduvirkjun þykir langhagkvæmust, en norðan- lands er t.d. nær fullrannsökuð Dettifossvirkjun af svipaðri stærðargráðu og Blöndu- virkjun, sem yrði 135 Mw og sunnanlands eru fleiri mögu- leikar. En Villinganesvirkjun í Héraðsvötnum i Skagafirði, þar sem rannsóknir eru i gangi, er miklu minni, aðeins 32 Mw, og óöruggari rennslisvirkjun. Mbl. hafði á fimmtudag sam- band við oddvita hreppanna sem upprekstur eiga þarna, en þeir eru þrír vestan Blöndu, þ.e. Svínavatnshreppur, Torfa- lækjarhreppur og Blönduós- hreppur, en austan Blöndu Ból- staðarhlíðarhreppur, fremri hluti Seyluhrepps og hluti af Lýtingsstaðahreppi, tveir þeir siðustu í Skagafirði. Kom i ljós í samtölum við þá, sem siðar er getið, að Blönduósingar og íbúar Torfalækjarhrepps vilja láta halda áfram með Blöndu- virkjun, i Svínavatnshreppi voru skiptar skoðanir, 16 með og 31 á móti fundi, en Ból- staðarhliðarhreppur og Skaga- fjarðarhrepparnir tveir eru neikvæðir. Sú aðferð, sem nú er viðhöfð um undirbúning að hugsanlegri virkjun Blöndu, er nýjung og markar timamót í virkjun- armálum. Þannig er að staðið að virkjunartilhögun er í upphafi vandlega kynnt í heimahéraði, gerð grein fyrir landskemmdum og ræktun bit- haga og leitað eftír viðhorfum. Efndi Gunnar Thoroddsen iðn- aðarráðherra til kynningar- funda á Blönduósi 25. apríl með oddvitum upprekstrarfélag- anna á Auðkúlu og Eyvindar- staðaheiði, sem liggja sín hvorum megin að Blöndu. I för með ráðherra voru Árni Snævarr ráðuneytisstjóri, Jakob Björnsson orkumála- stjóri, Páll Flygenring yfirverk- fræðingur, Siguróur Þórðarson verkfræðingur, Ingvi Þor- steinsson magister, og Árni Þ. Árnason síðar. Páll fór svo aftur norður í maí og 9. júli voru sérfræðingarnir enn á fundi fyrir norðan. Voru meginniðurstöður varðandi til- högun virkjunar skýrðar og við- horf kynnt, greinargerðir lagðar fram um miðlunarlón og beitiland, er færi undir vatn og uppræktun að nýju o.s.frv. Létu okkvitar hreppanna í ljós ánægju með þessa kynningu, en ætlunin var að þeir boðuðu til funda heima, veittu upplýs- ingar og skiluðu svörum heima- manna til ráðuneytisins. Blönduvirkjun í fullri stærð gerir ráð fyrir því að stifla verði í Blöndu nálægt tveimur km. neðan ármóta Sandár. Yrói þar jarðstífla með þéttikjarna úr jökulruðningi. Lónið næði yfir 56,5 ferkm, en heildar- stærð gróins lands þar og við virkjunina almennt yrði 5530 hektarar. Frá miðlunarlóni ofan stíflu yrði veituskurður að Þrístiklu með lokuvirki í stíflu norðan Kolkuóss. Vatnsborð Þrístilku yrði hækkað lítið eitt með jarðstíflu í Fannlæk neðan Smalatjarnar og verður þá sam- fellt lón þaðan að áðurnefndum veituskurði. Frá Smalatjörn verður þá stuttur veituskurður noróur f efstu drög Stuttalækj- ar, sem fellur í Austara Frið mundarvatn. Þaðan fellur vatnið um Fiskilæk í Gilsvatn, sem yrði inntakslón virkjunar innar. Inntaksskurður virkjun- arinnar frá Gilsvatni að Sel- bungu verður um 7 km langur. Við skurðenda myndast lítið lón ofan jarðstíflu. I jarðstifl- unni verður steinsteypt inn- taksmannvirki með geiraloku. Að stöðvarhúsi, sem ráðgert er neðanjarðar, verða lóðrétt hringlaga aðrennslisrör. Frá- rennslisgöng verða niður i far- veg Blöndu, þar sem hún er í 90 m hæð, 0,7 km ofan við brúna hjá Syðri Löngumýri I Blöndu- dal. Meðalrennsli til fyrirhug- aðrar virkjunar er talið 38,6 kl/s. Virkjað rennsli er ráðgert 48,7 kl/s í þremur vélasam- stæðum, samtals 135 Mw. Fyrir- huguð miðlun við Reftjarnar- bungu er 415 Gl. Þarf þá að stffla upp í 478,2 m hæð, en i almestu flóðum mundi vatns- borðið stíga upp f 479,74 m hæð. Slfk Blönduvirkjun mundi auka um 800 Gfgawattstundum við orkuvinnslugetu virkjana- kerfis á Norðurlandi. Umhverfismál og þá fyrst og fremst rýrnum beitilands hafa verið mjög til umræðu í sam- bandi við hugmyndir um virkjun Blöndu og því komu fram tillögur um að reisa miðl- unarstíflu ofan móta Sandár og Blöndu. Þá myndi verulega minna gróðurlendi fara undir vatn vestan Blöndu en hins vegar austan ár. Einnig hafa fram komið tillögur um að reisa miðiunarstíflu ofan i Blöndu í því skyni að minnka fóðurgildi þess lands, sem færi undir vatn. Með þessu fyrirkomulagi verður þó ekki komist hjá að hafa einnig miðlun neðar til nýtingar á þvi vatni, sem fellur milii stíflustæða. Við slfka at- hugun kom i ljós að tilfærsla miðlunarstiflu við Sandárhöfða eða tvískipti lónsins eykur stofnkostnað virkjunarinnar um 970 — 2415 milljónir króna og hækkar orkukostnað hennar um 9,7 — 25,2%. Þær aðgerðir bjarga allt að 45% þess beiti- lands, er undir lónið fer i grunntilvikinu. Við að draga úr stærð miðlunarlónsins við Ref- tjarnarbungu minnkar afl virkjunarinnar um allt að 25 Mw og orkuvinnslugetan um allt að 146 Gfgawattstundir eða um 18%. Með því má bjarga allt að 15% beitilandsins. Orku- kostnaður hækkar lftið eða mest 3,5%. Hvorug leiðin virð- ist álitleg, fyrst og fremst vegna verulegrar aukningar stofn- kostnaðar eða rýrnunar orku- vinnslugetu, en eftir sem áður fer verulegt beitiland undir vatn. Það er ekki talið for- svaranlegt vegna rekstrar- öryggis virkjunarinnar að hafa miðlunarlónið undir 250 Gl. Aftur á móti er lagt til og talið unnt að rækta upp örfoka land I næsta nágrenni væntan- legs miðlunarlóns, bæði vestan Blöndu og austan, og gerði Ingvi Þorsteinsson magister grein fyrir þvf. Þetta er talið sannað meðal annars með til- raunum, sem starfsmenn hjá Rannsóknastofnun land- búnaðarins hafa staðið fyrir á vegum þeirrar stofnunar. Með núverandi áburðarverði (óniðurgreiddu) má áætla að kostnaður við dreifingu áburð- ar úr flugvél nemi um 20.000 kr./ha, en 2500 kr./ha ef jafn- framt er dreift fræi. Hugsa má sér, að slík uppgræðsla sé fram- kvæmd þannig, að fyrsta árið sé dreift bæði fræi og áburði, en áburði næsta ár og síðan annað hvert ár uns liðin eru 10 ár frá því verkið hófst, segir i greinar- gerð, sem lögð var fram á fund- inum 9. júlí og fjórða hvert ár úr því um alla framtíð. En reiknað er með að uppgræðslan hefjist 4 árum áður en lónið er fyllt i fyrsta sinn. Yrði beitar- gildi þess lands, sem fer undir lónið ríflega bætt með upp- græðsiu 1500 hektara af gróður- lausu landi. Uppgræðslan hækkar þannig orkukostnað virkjunarinnar um 2,5% sam- kvæmt áætluðum útreikn- ingum. Hagkvæmni hennar Stórt miðlunarlón á Auðkúluheiði er nauðsynlegt, ef virkja á Blöndu. En við það mundi fara f kaf 56 ferkm af landi og þar f gróið land. Virkjunarmenn hafa stungið upp á því að rækta í staðinn jafnstórt land á afréttinum, og Ingvi Þorsteinsson magister telur það vel hægt. Á myndinni sést stærð slíks lóns og hvar það yrði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.