Morgunblaðið - 27.07.1975, Síða 34

Morgunblaðið - 27.07.1975, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JULl 1975 miklir mátar kálfanna hjá afa þeirra, sem byggi í Borgarfirðin- um. En þeir voru ekki neitt sér- lega hressir yfir þvf að við skyld- um vera að ónáða þá, því að þeir vildu fá að fylgjast með sæljónun- um í ró og næði. Önnur hjón voru þarna ásamt börnum sfnum. Þau búa á Lóran- stöðinni á Snæfellsnesi. Þetta voru þau Svala Steingrímsdóttir og Þórður Markússon, en börnin voru þrjú, Laufey, Lilja og sá yngsti Markús Þórarinn. Þetta var ekki í fyrsta skiptið, sem þau heimsóttu safnið, en ekki var hægt að sjá að áhuginn á dýr- unum væri farinn að minnka. Það var sama sagan, okkur gekk afar erfiðlega að fá börnin til að slfta sig frá dýrunum og ræða við okkur. Markús Þórarinn, sá yngsti í hópnum, sagói að „pútta ... pútt og brabbra ... ra“ væru langskemmtilegust. En Laufey var ekki tilbúin að segja að ein tegund dýranna væri skemmti- legri en önnur, þau væru öll jafn- skemmtileg. Þó sagði hún að sér þætti ekkert sérstaklega gaman að skoða kindurnar, því þær gæti hún alltaf séð heima. Við héldum áfram gönguferð okkar um safnið og hittum þá fyrir nokkra krakka. Þarna voru á ferðinni börn úr Reykjavík, sem voru að sýna kunningjum sfnum 450 þús. manns hafa komið í Sædýrasafnið Sæljónin tóku meó ánægju á mótJ fæðu sinni, og þótti ýmsum nóg um hávaðann og bægslaganginn. Ljósm. Brynjólfur. Hjónin Herdfs Viggósdóttir og Gunnar Jónsson frá Isafirði voru að skoða sæljónin ásamt sonum sfnum, Jóni Viggó og Ingva. Ljósm. Brynjólfur. utan af landi dýrin í safninu. Við bústað ísbjarnanna var annar hópur og voru þar einnig á ferðinni krakkar úr Reykjavík, sem voru að sýna vinum sínum, er heima eiga í Þýzkalandi þennan fslenzka dýragarð. öll fylgdust börnin af athygli með hreyfingum bjarnanna. Mest var undrun þeirra, þegar annar bjarnanna kafaði skyndilega langt niður og svo leið og beið þar til að hann gægðist upp á yfirborðið. Þau áttu f nokkrum erfiðleikum með að sætta sig við þessa undirdjúpa- ferð bjarnarins. Skyndilega tók að heyrast mikill hávaði í dýr- unum og blönduðust þar saman hin fjölbreyttustu hljóð, og er ógeriegt að lýsa þeim söng. Ástæðan var sú að byrjað var að gefa dýrunum, og hvert þeirra vildi vera visst um að það fengi sinn skammt. Alla daga er starfrækt hesta- leiga fyrir yngstu gesti safnsins og hefur hún notið mikilla vin- sælda. Þá fjölgar dýrum safnsins nokkuð á hverju ári auk þess sem dýrategundir eru endurnýjaðar. Ýmis fyrirtæki og félög hafa gefið safninu einstök dýr. Og eru t.d. f þeim hópi ljónin, en þau fékk safnið að gjöf frá Lionsklúbbnum Fjölni 3 mánaða, en þau verða 3 ára f september á þessu ári. Fyrir skömmu komu í safnið nýir og yngri apar og koma þeir I stað hinna, sem áður voru í safninu, en voru farnir að eldast og gerast æði rólegir. I starfi safna sem þessa er nauðsynlegt að dýrin séu lffleg og hafi ánægju af leik sfnum fyrir gesti safnsins. SKAMMT fyrir vestan Hafnar- fjörð f jaðrinum á Hvaleyrarholt- inu niður við sjóinn stendur þyrping húsa. Þetta eru lftil hús og mörg hver nokkuð sérkenniieg f útliti. Þarna er Sædýrasafnið til húsa. A góðviðrisdögum kemur þangað fjöldi fólks til að skoða dýrin, sem þar gefur líta, Dýra- kostur safnsins hefur stöðugt verið að vaxa og hefur safnið í auknum mæli fengið ýmis dýr erlendis frá s.s. ljón, tfgrisdýr og apa. Þá hefur safnið fengið ýmsar nýjar fuglategundir og eru f þeim hópi Snæuglur, páfagaukar og pelicanar, en þeir þoldu ekki veðráttuna og dóu. Væntanlegir eru nýir pelicanar til safnsins innan tfðar. Sædýrasafnið var opnað í júni- mánuði árið 1969 og hafa frá upp- hafi komið í safnið 450 þúsund manns. Mesta fjölmenni hefur orðið í safninu góðveðursdag einn í október árið 1971 en þá komu í safnið um 3000 manns. Og var ástæða þess, að þá höfðu skamma viðdvöl í safninu tígrisdýr úr er- lendu safni. Aðsókn að safninu fer mikið eftir veðri og á góðviðrisdögum eru gestir safns- ins venjulega um 1000 — 1200. Á þessu sumri hefur mesta aðsókn að safninu orðið 2000 manns, einn sunnudag fyrir skömmu. Reynt er að byggja upp aðstöðu safnsins eins og fjárhagur á hverjum tíma leyfir. I fyrstu var unnið af litlum efnum og margt gert til bráðabirgða. Fyrir nokkr- um árum ákváðu 6 sveitarfélög á Suðvesturlandi í samvinnu við rikissjóð að veita fé til fram- kvæmda í safninu. Þessi sveitar- félög eru: Reykjavík, Kópavogur, Garðahreppur, Seltjarnarnes, Keflavfk og Hafnarfjörður. Fram- kvæmdastofnun rfkisins beitti sér fyrir að gerð var sérstök fjárfest- ingaráætlun og var hafizt handa um að vinna eftir henni árið 1974. Þá var gerð sérstök gryfja fyrir ísbirni og er þetta ca. 1200 fm mannvirki. Kostnaður við gerð gryfjunnar var um 11 milljónir króna. Þá var einnig unnið að lagfæringu og snyrtingu eldri mannvirkja og á umhverfi safnsins. Eins og áður sagði er oft fjöl- menni, sem kemur til að skoða dýrin í Sædýrasafninu. Mörgum leikur forvitni á að sjá með eigin augum þessi furðulegu dýr sem fiestir hafa aðeins heyrt talað um eða lesið um í kennslubókum. Einkum nýtur safnið vinsældg hjá yngri kynslóðinni og vinsælt er hjá henni að fara með gesti utan af landi eða frá útlöndum í heimsókn í safnið. Þegar Morgun- blaðsmenn voru í heimsókn í safninu í vikunni hittum við fyrir nokkrar f jölskyldur utan af landi, sem litu við i safninu í heimsókn sinni til höfuðborgarinnar. Fyrst hittum við fyrir hjónin Herdísi Viggósdóttur og Gunnar Jónsson frá ísafirði, en þau heim- sóttu safnið með tveimur sonum sínum, Jóni Viggó, 5 ára og Ingva, 3 ára. Þetta var fyrsta heimsókn þeirra í safnið en ekki eru strákarnir með öliu ókunnugir dýrum, því að þeir sögðust vera

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.