Morgunblaðið - 01.08.1975, Side 1
36 SIÐUR
Sovézki flokksleiðtoginn, Leonid Brezhnev, á Helsinkifundinum í gær:
r
Ihlutun í innanríkismál þjóða get-
ur torveldað takmörkun vígbúnaðar
Helsinki, 31. júlí.
AP — Reuter.
0 LEONID Brezhnev, leiðtogi
sovézka Kommúnistaflokksins og
helzti forvfgismaður leiðtoga-
fundarins f Helsinki, sagði f ræðu
sinni á öðrum degi fundarins f
dag, að takmörkun vfgbúnaðar f
Mið-Evrðpu væri nú næsta
skrefið tii að bæta sambúð aust-
urs og vesturs, og efst á stefnu-
skrá Sovétrfkjanna f utanrikis-
málum væri að Ijúka farsællega
SALT-ráðstefnunni f Vfnarborg,
sem staðið hefur f tvö ár og geng-
ið brösðtt. En Brezhnev lagði
áherzlu á það, að hin viðkvæma
þrðun f átt til afvopnunar yrði að
byggjast á þvf að rfkin væru ekki
með fhlutun f innanrfkismál hver
annars. Ákvæðið um að forðast
slfka fhlutun væri einn mikil-
vægasti kafli lokayfirlýsingar-
innar, sem þeir 34 þjððarleiðtog-
ar, sem fundinn sækja, eiga að
undirrita á föstudagskvöld.
0 „Enginn ætti að reyna að segja
öðrum þjððum hvernig þær eigi
að stjðrna innaniandsmálum sfn-
um á grundvelli einhverskonar
stefnu f utanrfkismálum", sagði
Brezhnev. „Aðeins þjðð hvers ein-
staks rfkis, og enginn annar,
hefur rétt til að leysa sfn innan-
rfkismái og setja sfn innanrfkis-
lög.“ Þessi ummæli Brezhnevs
voru mikið rædd á ráðstefnunni
og sýndist sitt hverjum. Henry
Kissinger utanrfkisráðherra
Bandarfkjanna taldi ræðuna lýsa
„sáttfýsi" og gaf f skyn að leið-
toginn virtist vera að slá af svo-
kallaðri „Brezhnev-kenningu“,
sem Sovétrfkin notuðu til að rétt-
læta innrásina f Tékkóslðvakfu 1
ágúst 1968. Harold Wilson for-
sætisráðherra Bretlands kvaðst
einnig lfta svo á málið og sagði:
„Eg tek það alvarlega sem hann
hefur sagt hér. Ég velti þvf fyrir
mér hver hefðu orðið örlög vissra
þjðða ef þeir (Sovétmenn) hefðu
iýst þessu yfir fyrir 10 árum. Með
Framhald á bls. 35
Kanada frest-
ar ákvörðun
um útfærslu
til hausts
EINAR Ágústsson, utanrfkis-
ráðherra, sem nú er staddur f
Kanada ásamt forsetahjðn-
unum, átti f gær viðræður við
Állan MacEachen, utanrfkis-
ráðherra Kanada f Ottawa, og
ræddu þeir m.a. um land-
helgismálið. Utanrfkisráð-
herra sagði f samtaii við
Morgunblaðið f gærkvöldi, að
þeir hefðu kynnt afstöðu hvors
landsins um sig, og hefði m.a.
komið fram að Kanadastjðrn
hefur nú frestað ákvörðun um
útfærslu fiskveiðilögsögu
landsins til haustsins.
Kanadíska þingið hefur
lokið störfum fyrir sumarfrí og
kemur ekki saman fyrr en í
haust, og þá verður tekin
ákvörðun um útfærsluna,
sagði Einar Ágústsson. Hins
vegar hefðu Ka^iadamenn ekki
útilokað einhliða útfærslu og
lýstu þeir skilningi á ákvörðun
Islendinga.
SLÖKUN SPENNU — Ekki ber á öðru en „detente“-stefnan um slökun spennu I samskiptum þjðða setji svip sinn á þennan fund fjögurra
þjóðarleiðtoga f Helsinki f gær, en þeir Harold Wilson forsætisráðherra Bretlands, Gerald Ford Bandarfkjaforseti, Valery Giscard d’Estaing
Frakklandsforseti og Helmut Schmidt kanzlari Vestur-Þýzkalands ræddust við í breska sendiráðinu í borginni.
Ný stjórn mynduð í Portúgaí
en þríeykið hefur öll völd
Lissabon 31. júlf AP-Reuter.
0 Francisco da Costa Gomes,
forseti Portúgals skýrði frá
þvf f kvöld að ný rfkisstjðrn
hefði verið mynduð f landinu.
Costa Gomes tilkynnti þetta
rétt áður en hann steig upp
f flugvél á leið til leiðtoga-
fundarins f Helsinki og stðð
Vasco Goncalves, forsætisráð-
herra við hlið hans er yfirlýs-
ingin var gefin. Hvorugur þeirra
vildi hins vegar láta nokkuð uppi
um hverjir skipa hina nýju
stjórn. Talið er sennilegt að yfir-
lýsing þessi hafi verið gefin til að
koma f veg fyrir að staða Costa
Gomes verði vandræðaleg f Hels-
inki og töldu fréttaskýrendur f
kvöld vafasamt að hin alvarlegu
pólitfsku vandamál, sem hindrað
hafa stjórnarmyndunina hingað
til, væru raunverulega leyst. Þetta
er fimmta rfkisstjðrnin f Port-
úgal á 15 mánuðum.
>0 Fyrr f dag afhenti 30 manna
byltingarráð hersins æðstu völd
til að stjðrna og setja lög f land-
inu formlega þrfeykisstjðrninni,
sem f eiga sæti Costa Gomes, Gon-
calves og Otelo Saraiva de Car-
vaiho, hershöfðingi og yfirmaður
COPCON-öryggissveitanna. Urðu
hðfsamir herforingjar innan
ráðsins undir f deilum um þessa
ákvörðun, sem er stefnt gegn
ásökunum jafnaðarmannaflokks-
ins um að skipun þrteykisstjðrn-
arinnar sé f andstöðu við stjórnar-
skrána. Hún var skipuð af þingi
herhreyfingarinnar, sem ekki
hefur formlegt val til að gera
slíkt en byltingarráðið hefur hins
vegar verið viðurkennt af öllum
stjðrnmálaflokkum. Hefur þrf-
eykisstjðrnin nú rétt til að taka
ákvarðanir sem hingað til hafa
aðeins verið teknar af byltingar-
ráðinu í heild. Þá virtist f kvöld
sem fyrstu merki um hreinsanir
innan hersins væru að koma f
Ijós, er skýrt var frá þvf að
Carvalho hershöfðingi hefði
fyrirskipað handtöku nfu liðsfor-
ingja og fjögurra undirforingja
úr öryggissveitunum vegna skorts
á „aga, hæfni og pðlftfskri með-
vitund."
Ekki er búizt við þvi að skýrt
Framhald á bls. 35
ÞRlEYKIÐ — Þeir fara nú með æðstu völd f Portúgal: f.v. Costa Gomes, forseti, Vasco Goncalves,
forsætisráðherra og Carvalho, yfirmaður COPCON-öryggissveitanna, sem nú hefur böðað hernaðarað-
gerðir og f jöldahandtökur.
Bandarisk þingnefnd:
200 mílur
samþykktar
Washington, 31. júlf — AP.
NEFND fulltrúadcildar
Bandarfkjaþings um kaupsigl-
ingamál og fiskveiðar sam-
þykkti f kvöld 200 mflna fisk-
veiðilögsögu til að vernda hin
hefðbundnu mið bandarfskra
veiðiskipa. Eriendir veiði-
flotar munu eftir sem áður fá
aðgang að miðunum, en aðeins
samkvæmt nýjum samningum
og þegar fiskistofnar þola það.
33 nefndarmenn voru fylgj-
andi tillögunni, en aðeins 2
voru á móti. Tillagan fer nú
fyrir dagskrárnefnd deildar-
innar og sfðan deildina f heild.