Morgunblaðið - 01.08.1975, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGUST 1975
11
STÓRFRÉTT FYRIR
SJÓNVARPSTÆKJAKAUPENDUR:
Kaup á svart-hvítu tæki nú= innborgun
á litsjónvarpstæki framtíðarinnar.
1. september n.k. verSur ísienzka sjónvarpið níu ára.
All mörg þeirra sjónvarpstækja, sem keypt voru í
tilefni af opnun stöðvarinnar, eru nú því komin eða
að komast á endurnýjunarstig. Það, að endurnýja
sjónvarpstæki, er þó ekki jafn einfalt mál og það
ætti að vera. Ástæða þess er sú helzt, að stjórn-
völd hafa dregið það óhóflega, að ákveða, hver
þróun sjónvarpsmála á íslandi skuli verða, hvort
koma skuli hér litsjónvarp eða ekki og þá hvenær.
— Hefur sú óvissa, sem þetta afstöðuleysi ráða-
manna hefur valdið, orðið til þess að gefa alls kon-
ar sögusögnum um málið byr undir báða vængi, og
er nú svo komið, að menn vita vart sitt rjúkandi ráð.
— Er hér þó ekki um neitt smámál að ræða, því
24ra þumlunga svart-hvít sjónvarpstæki kosta nú frá
80 upp í 120 þús. kr. og littæki þre- til fjórfalt meira,
og kemur málið til með að varða flestar fjölskyldur
landsins áður en yfir lýkur. — Nokkrar sjónvarps-
tækjaverzlanir hafa hafið innflutning og sölu litsjón-
varpstækja, og skipta þeir menn sennilega nokkr-
um tugum, sem keypt hafa slík tæki dýrum dómum
í von um, að fregnir blaða og fullyrðingar sölumanna
um, að litútsendingar væru á næsta leiti, væru á
rökum reistar. — Ekki höfum við haft geð í okkur
til að taka þátt i þessum leik, enda ekki talið það
ábyrga viðskiptahætti, að selja mönnum litsjón-
varpstæki á margföldu verði svart-hvíts tækis,
meðan ekkert liggur fyrir um, hvort eða hvenær
umfram tækni littækisins muni nýtast. — Eins og
fram kemur þykja okkur kostir hins almenna sjón-
varpskaupanda ekki góðir, og höfum við nú ákveð-
ið að taka af skarið og veita hverjum þeim, sem af
okkur kaupir svart-hvitt sjónvarpstæki, þriggja-ára-
skiptarétt á því, þ.e. rétt til að skipta því upp í lit-
sjónvarpstæki i allt að 3 ár frá söludegi á grundvelli
15% affalla fyrsta árið og 10% affalla á ári eftir
það. — Við vonum, að þetta verði talið gott átak
i þeirri viðleitni okkar að veita viðskiptavinum okk-
ar, jafnt sjónvarpstækjakaupendum sem öðrum,
aukna þjónustu og fyrirgreiðslu.
NESCO HF
Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja.
Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Símar: 19150-19192-27788