Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGUST 1975 Jóhannes Jónsson, útgerðar- maður frá Gauksstöðum í Garði Hinn 26. júlf lézt í Reykjavík Jóhannes Jónsson útgerðarmaður frá Gauksstöðum I Garðí 87 ára að aldri. Með Jóhannesi á Gauks- stöðum er horfinn héðan einn af merkustu og farsælustu útgerðar- mönnum þessa lands. Jóhannes Jónsson var fæddur á Gauksstöðum I Garði 4. apríl 1888. Foreldrar hans voru Jón Finns- son, útvegsbóndi þar og kona hans Guðrún Hannesdóttir bónda i Prestshúsum í Mýrdal Hannes- sonar. Ungur að árum hóf Jóhannes sjósókn frá heimabyggð sinni, fyrst á opnum bátum og siðan á vélbátum. Árið 1918 hóf hann út- gerð ásamt mági sínum, Halldóri Þorsteinssyni, útvegsbónda i Vörum i Garði. Hóf Jóhannes þá jafnframt fiskverkun á Gauks- stöðum, sem var fyrsti vísirinn að hinni þekktu fisk- og sildar- vinnslustöð þar. Haustið 1923 stofnuðu þeir Jóhannes Jónsson á Gauks- stöðum, uppeldisbróðir hans, Sveinn Guðmundsson og Þorgeir Magnússon, útvegsbóndi frá Lambastöðum, með sér útgerðar- félag og festu kaup á 16 lesta vélbáti, er hlaut nafnið Jón Finnsson. Var það fyrsti vélbátur- inn með því þekkta nafni. Jóhannes, sem þá skömmu áður hafði lokið fiskimannaprófi í Reykjavík, tók að sér skipstjórn- ina, auk þess sem hann annaðist stjórn fiskverkunarinnar og bú- skaparins á Gauksstöðum, en árið 1912 tók hann við búsforráðum af föður sínum. Árið 1930 keypti Jóhannes hlut félaga sinna i út- gerðinni. Var hann skipstjóri á Jóni Finnssyni, hinum fyrsta, til ársins 1937 en þá tók elzti sonur- inn á Gauksstöðum, Þorsteinn Jóhannesson, við skipstjórninni. + Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir ANNA SCHEVING Brekkustíg 6 lést 30 júlí Sigurjón Hansson börn og tengdabörn. + Hjartkær eiginkona min UNNUR ÓLAFSDÓTTIR, Hagamel 22, lést mánudaginn 28. júlí Gisli Jakobsson. t Maðurinn minn, ÞÓROUR EYJÓLFSSON fyrrverandi hæstaréttardómari verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 6 ágúst kl. 1.30 Halldóra Magnúsdóttir. + Útför GUÐMUNDAR MAX GUÐMUNDSSONAR, Hraunbæ 34 er lést i Landakotsspítala 24 júll verður gerð frá Oddakirkju föstudag- inn 1. ágúst kl. 2 e h Fyrir hönd vandamanna Sigriður Stefánsdóttir. Lokað vegna jarðarfarar Skrifstofur okkar, afgreiðsla og ritstjórn verða lokaðar í dag kl. 2—4 vegna jarðarfarar Sig- fúsar Jónssonar fyrrv. framkvæmdastjóra. Helgaði Jóhannes eftir það fisk- vinnslustöðinni og búskapnum á Gauksstöðum krafta sína, auk þess sem hann stjórnaði áfram útgerðinni ásamt elztu sonum sínum, Þorsteini, sem nú er fram- kvæmdastjóri fyrir fiskvinnslu- stöðinni og Gisla, sem er skip- stjóri á nýjasta bátnum með Jóns Finnssonar nafninu. Jóhannes giftist 21. desember 1912 Helgu Þorsteinsdóttur, út- vegsbónda á Meiðastöðum Gísla- sonar, mikilli dugnaðar- og dreng- skaparkonu. Var hjónaband þeirra hið farsælasta. Helga lézt 1968. Varð þá mikil breyting á högum Jóhannesar, þótt hann bæri harm sinn jafnan í hljóði. Þau Jóhannes og Helga eign- uðust 14 börn og eru 11 þeirra á llfi. Jóhannes Jónsson á Gauks- stöðum var farsæll skipstjóri og góður aflamaður. Þrátt fyrir miklar annir gaf hann sér tima til að starfa að ýmsum félagsmálum i byggðarlagi sinu. Hann var einn af stofnendum og forystumönn- um Útgerðarfélags Gerðahrepps og starfaði mikið að slysavarna- málum. Var hann um langt skeið formaður Björgunardeildar Slysavarnafélagsins í Garði. Átti Jóhannes stóran þátt I björgun fjölda mannslifa, bæði sem skip- stjóri og formaður björgunar- deildarinnar. Jóhannes var mikill tónlistar- unnandi og söngmaður góður. Hann var einn af stofnendum fyrsta karlakórs á Suðurnesjum. Var það karlakórinn „Vikingur" I Garði. I góðtemplarareglunni starfaði Jóhannes I áratugi, enda var hann alla æfi bindindis- maður. Jóhannes var allmikill bóka- maður og bar einkenni hins sann- menntaða manns, þótt skóla- gangan væri stutt eins og algeng- ast var á uppvaxtarárum hans. Er sildarsöltun hófst fyrir alvöru á Suður- og Vesturlandi árið 1950, stækkuðu Jóhannes Jónsson og synir hans fisk- verkunarstöðina á Gauksstöðum Leifur Þórhalls- son — Minning Fæddur 14. aprfl 1912. Dáinn 25. júlf 1975. Kveðja frá samstarfsmönnum „Horfinn, dáinn,“ og sætið hans er autt. Enn einu sinni erum við skyndi- lega manni færri í samvinnustarf- inu. Hann kvaddi á sinn sérstæða hátt, allt var fínt og fágað á skrif- stofunni hans, — einmitt þetta sem við öfunduðum hann af. Þótt margt megi segja um hinn látna, lýsir ekkert eins vel manninum, persónuleika hans og öllum manndómi I lifanda lífi, eins og hiri nákvæma umgengni hans á skrifstofunni og nærgætni við aðra menn. Við samstarfsmenn Leifs Þórhallssonar eigum honum margt gott að þakka. Að vinna með manni eins og honum er starfsmenntum meiri en löng skólaganga getur veitt. Leifur Þórhallsson var Sam- vinnuskólagenginn og hóf störf sín hjá Sambandinu 1933. Hann fór í starfsnám erlendis, bæði í Skotlandi og i Danmörku. Leifur vann alla tið við innflutning og sölu á matvörum, fóðurvörum og fleiru. Störf hans voru meiri að vöxtum en menn almennt gerðu sér grein fyrir. Ef til vill var það vegna þess, hve hljóðlátt og hnit- miðað var unnið. — Eitt i einu og annað síðar og ekkert tvítekið. — Þetta kann að vera skýring þess, hve Leifi vannst vel, en „hollt er heima hvað“ í daglegri umgengni var Leifur fremur fáskiptinn, en þeir sem betur til þekktu, vissu að á bak við festu og rósemi leyndist létt og græskulaus kýmni. Á þessa strengi var gjarna slegið ef timi vannst til frá annasömu starfi. Leifur hafði yndi af góðri hljóm- list og lék hann á hljóðfæri á yngri árum. Við samstarfsmenn Leifs heit- ins Þórhallssonar kveðjum hann með djúpum söknuði. Við þökk- um honum samstarfið og biðjum að Guð leiði hann til sólroðinna stranda eilífðarinnar. öllum að- standendum vottum við innilega samúð. Drottin blessi minningu hans. Samstarfsmenn. + KRISTJÁN RÓSBERG GUÐMUNDSSON BólstaðahlTS 66. verður jarðsettur frá Kálfatjarnar- kirkju laguardaginn 2. ágúst kl. 14. Þeim, sem vjldu minnast hans, er vinsamlega bent á líknarstofnanir. Súsanne GuSmundsson GuSmundur Þór Kristjðnsson. „Fyrir handan höfin blá heiðan veit ég dag þar sumarþrá mín athvarf á eftir sólarlag.“ Stefán frá Hvítadal. Samstarfsmaður minn, Leifur Þórhailsson' deildarstjóri hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, andaðist á Landspítalanum 25. júlí s.l. eftir stutta legu. Hann fór, að okkur fannst, sem með honum störfuðum, sæmilega frískur á sjúkrahúsið til rann- sóknar, en í ljós kom að lasleiki hans var meiri og alvarlegri en nokkurn hafði grunað, og þaðan átti hann ekki afturkvæmt. Með honum er genginn gegn og mætur drengur sem lokið hefur lífs- göngu sinni langt fyrir aldur fram. Leifur Þórhallsson var fæddur 14. apríl 1912 á Vopnafirði. For- eldrar hans voru Þórhallur Sigtryggsson frá Húsavík og Kristbjörg Sveinsdóttir frá Fagra- dal í Vopnafirði. Ári eftir að Leifur fæddist, fluttust foreldrar hans til Djúpavogs. Tók Þórhallur faðir Leifs þar fyrst við verzlunarstjórn og síðan kaup- félagsstjórn til ársins 1935, að hann fluttist til heimabyggðar sinnar, Húsavikur, og tók þar við stjórn og rekstri Kaupfélags Þing- eyinga. Leifur var næstelstur sinna systkina, er voru átta að tölu. Hann ólst því upp í stórum barna- hóp á myndarheimili við leik og störf. Heimili foreldra hans var rómað fyrir gestrisni og rausn og þangað komu margir sem áttu erindi við föður hans og barna- hópurinn dró að sína vini, svo þar var jafnan margt um manninn. Þarna í glaðværð systkinahóps og á góðu heimili átti Leifur sína æsku. Ekki er vafi á að hann naut þess alla tíð, hve vel hann var undir Iffið búinn. Hugur hans og athöfn voru til fyrirmyndar og framkoman öll falleg og fáguð. Ungur fór Leifur I Alþýðu- skólann á Eiðum og síóan í Sam- vinnuskólann, en þaðan lauk hann prófi 1931, rétt 19 ára gamall. Mér hafa tjáð skólabræð- ur Leifs að hann hafi átt gott með að læra og að hann hafi verið ástundunarsamur nemandi, enda lauk hann prófi með mjög góðum vitnisburði. Skömmu eftir að Leifur lauk námi réðst hann til Sambands ísl. samvinnufélaga og þar starfaði hann alla tíð síðan, eða I 42 ár. Er það mikið lán fyrir hvert fyri-- tæki sem svo lengi færi að njóta starfskrafta svo ágæts manns sem Leifur var. Leifur vann margvísleg störf á vegum Sambandsins og starfaði meðal annars um nokkurra ára skeið á skrifstofum þess í Kaup- og hófu söltun sildar I all stórum stil . Atti ég þá þvi láni að fagna að kynnast Jóhannesi all vel. Þótt aldursmunur væri mikill, bund- umst við þá vináttuböndum, sem héldust ætið siðan. Síldarsöltunarstöð þeirra feðga á Gauksstöðum fékk fljótlega gott orð á sig, bæði hjá íslenzkum síldarmatsmönnum og erlendum sildarkaupendum, enda var öll vöruvöndun þar I hávegum höfð. Ég minnist margra dæma um það, að síldaryfirtökumenn töldu nánast óþarfa að framkvæma verulega gæðakönnun á saltslld- inni frá Gauksstöðum. Er ér reyni að leita þeirra orða, sem bezt hæfa minningunni um Jóhannes Jónsson á Gauks- stöðum, koma mér helzt til hugar orðin: drengskapur, ljúfmennska, snyrtimennzka, fyrirhyggja, höfðingjabragur, hógværð og heiðarleiki, enda hefi ég aldrei fyrirhitt þann mann, sem hall- mælt hefir hinum látna heiðurs- manni. Við hjónin þökkum vináttu hans og flytjum öllum aðstand- endum hans innilengar samúðar- kveðjur. Gunnar Flóvenz mannahöfn og Leith. Hann hafði mjög gott vald á erlendum tung- um og var mikill smekkmaður á mál, enda voru bréf hans og samningar þeir, sem hann mótaði og gerði, til fyrirmyndar. Leifur starfaði lengi að innflutningi á matvöru hjá Sambandinu, en .1 nokkur undanfarin ár stjórnaði hann deild þess sem annast kaup á fóðurvörum og fræi. Sú deild sem Leifur veitti for- stöðu er ein af stærri deildum Sambandsins hvað veltu snertir, enda 'algengt að hún annist um kaup og sjái um flutning á rösk- um 40 þúsund tonnum af fóðri til landsins árlega. Segir sig sjálft að I mörg horn er að líta þegar um svo umfangsmikil viðskipti er að ræða. Gleggst vita þeir sem fóður- vörurnar nota, hve áríðandi það er að vörugæðin séu góð og að varan sé jafnan fyrirliggjandi, þá á henni þarf að halda. Leifur annaðist starf sitt af vandvirkni og nákvæmni, enda var hann sér- stakur reglu- og snyrtimaóur. Leifur var ágætur starfsmaður með mikla og góða starfsreynslu og þekkti vel til starfsemi kaup- félaganna. Kom það sér vel I þvi starfi sem hann annaðist. Ég sem þessar línur rita hóf störf I Innflutningsdeild Sambandsins fyrir átta árum. Þá og síðan hafa leiðir okkar Leifs legið meira og minna saman. Mér er ljúft nú að leiðarlokum að þakka honum alla þá aðstoð sem hann veitti mér og öll þau ráð sem hann átti svo gott með að miðla öðrum. Leifur var tvlkvæntúr. Fyrri kona hans var Ingibjörg Jóns- dóttir, ættuð héðan úr Reykjavík. Þau Leifur og Ingibjörg eignuðust tvo myndarsyni, þá Steingrlm og Þórhall, sem báðir búa hér I borg. Konu slna missti Leifur 1966. Síðari kona hans var Hildegard von Osten, þýskrar ættar, og lifir hún mann sinn. Þessi fátæklegu orð mín eru kveðja og þakklæti til horfins samstarfsmanns og vinar. Með honum er genginn vandaður drengskaparmaður. Við hjónin þökkum Leifi Þórhallssyni góða samfylgd og sendum bestu kveðjur til konu hans, barna og annarra ættingja. Hjalti Pálsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.