Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1975 27 Sigurðína Ingibjörg Jórams- dóttir, Keflavík — Mirming Fædd 25. 11. 1903 Dáin 23.7. 1975 Kveðja Hvað er indælla hlutskipti á efri árum en að njóta ástar og umhyggju barna sinna og annarra afkomenda? Að vera elskaður og virtur til hinstu stundar? Slíkt hlutskipti öðlast enginn fyrirhafnarlaust. Eðlislægir eða áskapaðir mannkostir, sem felast í tápmiklu lundarfari og kærleiks- ríkum huga, yfirleitt öllu því, er góða manneskju prýðir leiðir óaf- vitandi og ósjálfrátt til gagn- kvæmrar elsku. Þannig var um ömmu mína, Sigurðínu Jóramsdóttur, sem í dag verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju. Líf hennar og starf verður ekki skráð á spjöld sögunnar, en óafmáanlega er það rist í vitund þeirra, sem umgeng- ust hana og fengu að njóta mann- kosta hennar. Til heimilis hennar lá leiðin í blíðu og stríðu. Þangað var gott að koma. Góðvild hennar, kjarkur og bjartsýni leiddu ávallt til gleðiríkra og eftirminnilegra samfunda. Hún var yndisleg kona. Þrátt fyrir sáran söknuð er mér þó efst í huga að þakka forsjón- inni þá hamingju að hafa átt hana að. Ég færi henni bestu þakkir fyr- ir gæsku hennar og gjafmildi. Blessuð sé minning hennar. Gfsli Það varð skammt á milli hjón- anna, nábúa okkar við Vatnsnes- vegihn, og fjarstæðu eina hefðum við talið það, að Sigurðína ælti aðeins nokkra daga ófarna á ævi- braut sinni, er við hjónin ræddurn við hana fyrir nokkrum dögum þar sem hún var að Iagfæra- og snyrta lóðina sína. En enginn veit sitt skapadægur fyrir, þött ýmsir fái hugboð um nálægð þess, og kann svo að vera að hér hafi það átt sér stað. Hún lézt á Landspitalanum 23. þ.m. ög verður jarðsungin i dag. En manni sínum íylgdi hún til hinztu hvilu 19. marz s.l. Hann lézt 11. s.m. Sigurðina Ingibjörg var fædd i Litla-Hólmskoti í Leiru 25. nóvember 1903. Foreldrar hennar voru hjónin Ragnhildur Péturs- dóttir og Jóram Jónsson, er þar bjuggu. Þar ólst Sigurðína upp með foreldrum sinum og systkin- um þar til hún missti föður sinn, en hann drukknaöi 12. mai 1910. Ragnhildur móðir hennar stóð þá ein uppi með 5 ung börn, það elzla 10 ára, en það yngsta á fyrsta ári. Engir möguleikar vorti á því að halda búskapnum áfram eftir frá- fall eiginmannsins. Tvii börnin varð hún að láta frá sér í fóstur, en þrjár dætur voru áfram með móður sinni, ein þeirra var Sigurðína. Skömmu siðar fluttist Ragnhildur til Reykjavíkur. Þar vann hún fyrir sér og dætrunum. Sigurðína var þar með móður sinni þar til hún fluttist til Kefla- vikur árið 1919, ásamt Jennýju systur sinni. Voru þær í vist hjá Matthíasi Þórðarsyni, sem þá var eigandi Keflavikureignarinnar. Systkini Sigurðinu eru þessi: Jenný, gift Ragnari Jóni Guðna- syni, Pétur, kvæntur Elínborgu Geslsdóttur, þau búa bæði í Kefla- vík; Guðrún og Sveinsína, búa báðar í Reykjavík. Drengur lézt í frumbernsku. Maður Sigurðínu var Guðmund- ur J. Magnússon, sem lézt á síöasl- liðnum vetri sem áður er getiö. Þau gengu í hjónaband 29. des. 1921 og bjuggu hér í Keflavik alian sinn búskaþ. Þau byggðu sér lítið hús við Kirkjuveg 28, sem þau síðar stækkuðu. Húsið við Vatnsnesveg, sem var síöasta heimili þeirra, reistu þau 1953. Þau hjónin voru samrýmd mjög og ávallt glöð og gamansöm og góð heim að sækja. Þau eignuöust 6 börn. Eru þau öll uppkomin og mannvænleg mjög. Þau eru þessi í aldursröö: Siguröur Breiöfjörö, kona hans Gretha, búsett í Kaupmannahöfn; Ingveldur Hafdís, gifl Sighvati Gislasyni; Ingvar, kona hans Hera Ólafsson, búsett í Keflavík; Svan- hildur gift Ólafi Þorvaldssyni. búsett i Ytri-Njarðvík; Jórunn gift Ólafi Gunnlaugssyni, búsett i Sandgerði; Guðrún, gift Guðbirni Ásbjörnssyni, búsett í Ytri- Njaróvík. Sigurðina var i eðli sínu félags- lynd. En af skiljanlegum ástæð- um vegna heimilisanna á barn- mörgu heimili varð starfsvett- vangur hennar minni en ella á félagsmálasviðinu. Þó vann Sigurðina vel og af fórnfúsum áhuga að félagsmálum á tímabili, meðan hún mátti, á sviði verka- lýðsmála. Hún var ein af foryslu- konunum, sem gengust fyrir stofnun kvennadeildar innan Verkaiýðs- og sjómannafélags Keflavíkur árið 1936. Hún var kosin fyrsti formaður deildar- innar. Deildin var mjög athafna- söm og Iét mjög að sér kveða. Henni tókst aö bæta kjör kvenna verulega og hún náði samningum við atvinnurekendur um ákvæðis- vinnu við síldarsöltun, sem þá var Guðmundur Max Guð- mundsson — Minning ekkert áhlaupaverk, og voru þessir samningar i ýmsu hag- stæðari verkakonum en víöa annars staðar. Fvrir starf hennar að þessum málum er henni nú þakkað af heilum huga. Við hjónin þökkum innilega góö kynni á liðnum árum og flvtj- um börnum og barnbörnum þeirra hjóna. svo og öðrum ástvin- um, innilegustu samúðarkveðjur. Ragnar Guöleifsson. var alltaf að gefa öðrum eitthvað, þó að hann stæði kannski sjálfur eftir slippur og snauður. Ef það væru fleiri menn búnir mann- gæzkunni hans Harðar væri betra að lifa I þessum heimi. Hörður var ókvæntur og bjó hjá móður sinni sem lifir son sinn. Henni bið ég blessunar á þessari raunastund í iífi hennar. Jóhann Larsen. Hörður Jóhanns- son — Minning 1 dag verður gerð frá Dómkirkj- . unni útför Harðar Jóhannssonar Ásvallagötu 59. Hörður er fæddur 26. október 1923 í Reykjavík. Hann var sonur hjónanna Frið- riku Eggertsdóttur og Jóhanns Garðars Jóhannssonar, eitt 10 barna þeirra hjóna. Þegar við stöndum við vegamót- in miklu, þar sem samferðamenn- irnir einn á eftir öðrum týnast f burtu, staldrar maður við og innra með sér brennur spurning- in, hvert, hvers vegna, hver næst? Trúlega eru margir búnir að finna svör við sínum spurningum, aðrir ekki. Við, sem í dag kveðj- um frænda okkar og vin, höfum líkast til misst sjónar af honum um stund, en öll munum við fara sömu ferð fyrr eða síðar. Á kveðjustundu vill hugurinn reika, og margar minningar leita á hugann sem hlýja um hjartar- . rætur. Hörður var einhver hjálp- samasti náungi sem ég hef kynnzt. Ef einhver ættingi hans eða vinur stóð í verklegum fram- kvæmdum heima fyrir, var hann ætíð boðinn og búinn að rétta hjálparhönd. Annar kostur var ákaflega ríkur í eðli Harðar, en það var hve barngóður hann var. Ég minnist þess frá barnsárum mínum, þegar Hörður var í sigl- ingum, þá kom hann eitt sinn og færði mér armbandsúr I afmælis- gjöf. Eg held ég hafi verið eini drengurinn í skólanum það árið sem átti úr. Þannig var Hörður í eðli sínu alltaf að reyna að gleðja aðra og sérstaklega börn. Annað dæmi kann ég af sonum minum. Síðastliðið sumar spurði Hörður þá hvers þeir óskuðu sér í jóla- gjöf. Þeir svöruðu fótbolta. Síðan minntist enginn á þetta meir, enda ætlaðist enginn til þess að hann gæfi þeim jólagjafir, en á aðfangadag kom pakki með boltanum í. Hann hafði þá munað eftir ósk þeirra og uppfyllt hana. í daglegri úmgongni var Hörður ákaflega gamansamur og alltaf með spaugsyrði á vör, enda ákaf- lega orðheppinn maður. Sóttust menn eftir návist hans, þvf að kringum hann var alltaf glens og gleði. Hörður var nokkuð vínhneigður og tel ég það eina ókostinn á annars þessum góða dreng. Hörð- ur vann öll almenn störf bæði á sjó og landi og var jafnan eftir- sóttur í vinnu, enda dugnaðar- maður að hverju sem hann gekk. Hörður kom þannig fyrir að ég held, að öllum sem þekktu hann hafi verið hlýtt til hans, og held ég að hann hafi enga óvildarmenn átt. Hörður var ákaflega hugulsam- ur maður og þegar hann var á vertíð hér einn vetur kom hann ekki svo í heimsókn að hann kæmi ekki færandi hendi. Hann Guðmundur Max Guðmundsson trésmíðameistari andaðist á Landakotsspítala 24. júli s.l. eftir fimm vikna legu þar. Hann verður jarðaður frá Oddakirkju í dag. Guðmundur var fæddur í Grindavík 13. október 1898. For- eldrar hans voru hjónin Gyðríður Sveinsdóttir og Guðmundur Magnússon. Kornungur fluttist Guðmundur með foreldrum sín- um til Reykjavíkur og var þar til níu ára aldurs. Þá flutt- ist hann að Miðeyjarhólmi i Austur Landeyjum og var þar í eitt ár. Þaðan fór hann að Kanastöðum ti'l sæmdar- hjónanna Guðrúnar Tómasdótt- ur og Geirs Isleifssonar. Á Kanastöðum leið Guð- mundi eins og hann væri i for- eldrahúsum. Þar átti hann heim- ili til fullorðinsárá. Á uppvaxt- arárunum stundaði Guðmund- ur venjuleg sveitastörf. Auk þess stundaði hann sjóróðra í Vestmannaeyjum á vetrarver- tfðum. Hann hafði mjög gaman af skepnum, sérstaklega hestum, sem hann kunni vel að meta og fór vel með. Það voru ánægju- stundir Guðmundar, þegar gæðingi var hleypl á sprett á sjálfgerðum skeiðvöllum austur þar. Hann minntist oft æsku- daganna góðu og glöðu í Land- eyjunum, þegar unga fólkið á bliðviðrisdögum sumarsins geyst- ist f hópi á góðhestum í skemmti- ferðir um nærliggjandi sveitir og til Þórsmerkur. Guðmundur naut sín vel í glað- værum vinahópi á yngri árum og einnig eftir að árin færðust yfir hann. Söngmaður var hann góður, vinsæll og glaður á góðra vina Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Getið þér sagt mér, hvernig ég get gleymt gömlum syndum? Ég hef reynt það, en ég get ekki losnað við þær úr huga mínum. Grískur heimspekingur sagði: „Kenn mér listina að gleyma, því að oft man ég það, sem ég vil ekki muna, og get ekki gleymt því, sem ég vil gleyma.“ Syndin hefur þann eiginleika að brenna sig óafmáan- lega í minni okkar og huga. Það er alvarlegt, hve margir spauga með syndina nú á dögum. Þeir gera sér ekki grein fyrir, hversu djúp spor sektar syndin lætur eftir í sálum okkar. Hvernig getið þér gleymt syndum yðar? Hinn virti vinur minn, dr. William Sangster, var vanur að gefa fólki, sem átti við þennan vanda aó stríóa, eftir- farandiráó: ,,Guð hefur fyrirgefið yður. Nú verðið þér að fyrirgefa yður sjálfur.“ Það á ekki að gæta fortíðar- synda eins og gamalla muna, sízt þegar haft er í huga, aó syndunum hefur verið varpað í djúp hafsins og þeirra verður ekki framar minnzt eins og segir í Míka 7, 19. Hugarangur yðar vegna gamalla synda er í raun og veru vantraust á fyrirheitum Guðs. Þér eruð eins og gamli þrællinn, sem hélt áfram að vinna fyrir húsbónda sinn eftir að frelsið var fengið, af því aó hann gat ekki trúað, að þaó væri satt. Biblían segir: ,,Ef sonurinn gerir yður frjálsa, munuð þér verða sannarlega frjálsir“ (Jóh. 8, 36). Trúið því, að þér eruð frjáls. fundum. En Guömundur var einnig alvörumaður og hugsandi og gerói sér fulla grein fyrir ábyrgö og skyldum starfandi manna í samfélaginu. Hugur Guömundar hneigöist snemma lil smíöa og varð hann trésmíöa- meistari.Hann var góöur smióur. velvirkur og vandlátur. Stundaöi Guðmundur húsasmíöar víös vegar, sérstaklega um Rangár- vallasýslu. Áriö 1933 fékk Guðmundur landspildu úr Ægis- síðulandi viö Rangá og ræktaöi hann alll landiö. Ari síöar giftist hann eflirlifandi konu sinni Sigriði Stefánsdóttur frá Bjólu. Fluttu þau í nýbyggl hús ,,Rangá ‘, sem Guömundur reisti á fyrrnefndu landi. Húsiö á Rangá var ekki stórt, en smekklegt og fullnægöi vel þeim kröfum, sem geröar voru til ibúöarhúsa á þeim tíma, sem þaö var byggt. Viö gift- inguna eignaöist Guömundttr gott heimili, sem hann kunni vel aö mela. Hjónin á Rangá eignuöust þrjú mannvænleg börn en þau eru: Asa, gift Gunnari Guöjóns- syni trésmiö i Hvolsvelli; Györiöur gift Jóni Baldvinss.vni smió á Hellu; og Höröur bifreiöa- sljóri ógiflur á Hellu. Húsiö á Rangá stendur viö þjóö- braut. Þar var oft gestkvæmt og þar var gotl aö koma. Heinliliö á Rangá bar húsmóóurinni góöan vitnisburö um hreinlæti og myndarbrag. Guömundur átti vió heilsubrest aö stríöa, þótt hann léti oft ekki á þvi bera. Hann stundaöi vinnu eins og heilsan frekast leyfði og kom miklu i verk á starfsamri ævi. Guömundur á Rangá átti marga vini en enga sem ekki báru til hans góóan hug. Starfsþrek Guömundar bilaöi áriö 1965. Þá fór hann á Revkjaiund og var þar í tvö ár. Ilaföi Guömundur orö á þvi. hve mikils- vert þaó er fyrir sjúklinga aö liaí'a starf viö sitt hæfi. Á Reykjalttndi gat Guömundur stundaö léttar smiöar og flýtti þaö mjög f.vrir bata hans. eöa varö e.t.v. til þess. aö hann fékk bata. Reykjalundur hefur oft fengiö réttinæta viöur- kenningu og fer vei á því. Eflir aö Guömundur kom frá Reykjalundi vann hann viö smiöar i Reykjavik meöan heilsan levföi. Þegar Guömundur leit yfir farinn veg var hann þakklátur fvrir margt. sein honttm haföi hlotnast ilífinu. Hann minntist góöu daganna á Kanaslööum og inargra vina i Landeyjum á æskudögum. Hann var þakklátur f.vrir vinina mörgu. sem hann eignaöist siöar á lil's- leiöinni. En sérstaklega var hann þakklátur fvrir konuna góöu sem . aldrei brásl og stóö viö liliö lians og veitti honum gott heimiii hamingju og styrk. þegar mesl á reyndi. Hann var þakklátur i'yrir btirnin og barnabörnin. sem voru honum til inikiilar ánægju og veittu lionum hamingjustundir. Nú þegar Guömundur Max er kvaddur munu margir minnasl góös manns, sem var alla tíö vel- viljaóur og bætti umhveifiö. Menn koina og menn fara. Menn heilsast og kveöjasl. Lifiö heldur áfram og hefir sinn tilgang. Góöar minningar um gengna menn geymast og ltafa góö áltrif á hugarfar manna og framvindu mála. Eftirlifandi konu. börnum og tillum vandamönnuiii skál vntl- ttö fyllsta samúö meö einlægúm óskum ttm, aö söknuöur megi víkja fyrir birtu góöra líma. Ingólfur Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.