Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 36
Fallegri litir
Litfilmur
Fallegri litir
FUJI FILM
Litfilmur
172. tbl. 62. árg.
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1975
Brezkir togaraeigend-
ur vilja færa veiðileyfi
af gömlum skipum á ný
BREZKA blaðið Fishing News
skýrði frá því fyrir skömmu, að
brezkir togaraeigendur hafi reynt
að fá veiðileyfi innan 50 mflna
fiskveiðilögsögunnar við Island
yfirfærð af gömlum togurum yfir
á nýrri skip, en fslenzk yfirvöld
hafi reynzt erfið viðureignar f
þeim málum. Fékk Mbi. það
staðfest hjá bæði utanrfkis- og
dómsmálaráðuneytinu, að nokkr-
ar slfkar umsóknir lægju fyrir, en
hefðu ekki hlotið afgreiðsiu
ennþá. Þó hefur f tveimur tilvik-
um verið veitt heimild til að
flytja veiðileyfið yfir á annað
skip, en það var eftir að skipin,
sem höfðu hlotið leyfin f upphafi,
höfðu farizt.
Baldur Möller ráðuneytisstjóri i
dómsmálaraðuneytinu sagði í
samtali við Mbl. f gær, að ekki
væru neitt ákvæði um þétta atriði
í því samkomulagi, sem Island og
Bretland gerðu um fiskveiði-
heimildir innan 50 mílna
markanna. Af íslands hálfu hefði
alltaf verið litið svo á, að ekki
væri eðlilegt að veita nýjum
skipum veiðileyfi þeirra gömlu,
sem lagt væri vegna aldurs eða
eðlilegs slits. Forsendur sam-
komulagsins hefðu einmitt verið
þær, að það næði einungis til
skipa sem hefðu stundað veiðar á
þessum miðum á undanförnum
árum og samkomulagið hefði
kveðið á um hvaða skip þar væri
um að ræða Eðlilegt hlyti að
teljast að þessi skip týndu tölunni
með tfmanum.
Hans G. Andersen sendiherra
sagði að Bretar hefðu f sambandi
við þetta atriði haldið þvi fram að
listinn yfir skipin, sem fylgdi
samkomulaginu, hefði aðeins
verið til staðfestingar á sóknar-
þunga Breta á þessum miðum, en
Islendingar hefðu haldið þvf
fram, að listinn væri yfir þau
skip, sem fengju heimild til að
stunda veiðar innan markanna,
og önnur fengju ekki slíka
heimild.
Tvítugur piltur í 60 daga gæzluvarðhald:
Réðst á konu daginn eftir
að hann slapp út fyrir árás
TVlTUGUR piltur hefur verið úr-
skurðaður f 60 daga gæzluvarð-
hald fyrir að ráðast inn til gamall-
ar konu S heimili hennar f
Reykjavfk ‘aðfaranótt s.l. laugar-
dags og veita henni áverka. Hafði
piltinum verið sleppt úr 90 daga
gæzluvarðhaldi kvöldið áður fýrir
sams konar árás á gamla konu á
heimili hennar f miðbænum f
Reykjavfk, en sú fruntalega árás
vakti mikla athylgi og reiði fólks
á sínum tfma.
Gamla konan sem nú varð fyrir
árás piltsins býr ein á neðri hæð f
húsi skammt frá miðbænum. Hún
vaknaði um nóttina við einhverr.
umgang í herbergi við hliðina á
svefnherbergi sfnu. Fór hún að
gæta að þvf, hverju þetta sætti og
kom þá að piltinum, en hann
hafði skriðið inn um gluggann á
herberginu. Var hann töluvert
ölvaður. Þegar pilturinn sá kon-
una réðst hann umsvifalaust á
hana, tók hana m.a. kverkataki og
var með hótanir. Heimtaði hann
Allmiklar
snjóleys-
ingar í júlí
„JtJLl hefur verið mjög drjúgur
snjóleysingamánuður og er snjór
á hálendinu ekki nema rétt f með-
allagi“, sagði Sigurjón Rist vatna-
mælingamaður f samtali við
Morgunblaðið. „Snjór var aftur á
móti óvenju mikill eftir veturinn
og f júní var snjór t.d. yfir meðal-
lagi, en f júlf lagaðist ástandið
mikið“. Fjallvegir eru allir orðn-
ir færir og mikil umferð um þá,
að sögn Sigurjóns.
Sigurjón nefndi að á sumum
svæðum væri snjór vel undir með-
allagi, t.d. á Ödáðahrauni og á
Herðubreið og nágrenni. Snjó-
þyngst væri á rar.dfjöllum út við
sjó, einkanlega á Austurlandi, en
svo virtist sem hitinn f júlfmánuði
hefði ekki náð að bræða snjóinn
þar nema að litlu leyti, líklega
vegna kælingar frá sjónum.
peninga af konunni. Hún sagði
honum að peningar væru í til-
teknu herbergi. Fór pilturinn þar
inn og leitaði en fann ekkert.
Reiddist hann þá, réðst aftur á
konuna með hnefahöggum svo að
sá á henni. Fékk hún m.a. glóðar
auga. Sfðan hljóp pilturinn á
brott og greip með sér verðmætar
bækur, sem seinna komu í leitirn-
ar.
Konan kærði þegar árásina til
lögreglunnar. Gat hún gefið
glögga lýsingu á piltinum og
fannst mynd af honum f mynda-
safni rannsóknarlögreglunnar.
Hófst þegar leit að piltinum og
bar hún árangur á miðvikudag-
inn. Var pilturinn úrskurðaður í
60 daga varðhald af Sakadómi
Reykjavíkur.
Eins og fyrr segir var pilturinn
nýsloppinn úr fangelsi fyrir aðra
árás. Réðst hann þá inn til 78 ára
gamallar konu á laugardagseftir-
miðdegi. Veitti hann konunni
áverka bæði með hrindingum og
barsmfðum, auk þess sem hann
hótaði henni margsinnis lífláti, og
hafði þá a.m.k. einu sinni stóran
búrhníf á lofti. Stóð martröð þess-
arar 78 ára gömlu konu f rúman
Framhald á bls. 35
AP-simamynd.
FORSETINN í KANADA — Forsetahjónin, frú Halldóra og
dr. Kristján Eldjám, komu til Ottawa í fyrradag ásamt Einari
Ágústssyni utanríkisráðherra. Á móti þeim tóku á flugvellin-
um landsstjórinn í Kanada, Jules Leger, kona hans og
utanríkisráðherra Kanada, Allan MacEachen. í gær áttu
forsetahjónin fund með aðstoðarforsætisráðherra Kanada
Mitchell Sharp, sem sést á myndinni ásamt forseta íslands.
Einnig fóru þau í ferð um Ottawa, og var m.a. komið við í
Þjóðskjalasafni Kanada og þjóðminjasafni. í dag heldur
forsetinn og föruneyti hans í nfu daga ferð til Manitoba og
brezku Kolumbíu á Kyrrahafsströnd Kanada. Eins og kunn-
ugt er verða þau viðstödd hátíðahöldin í Gimli í tilefni 100
ára búsetu íslendinga í Kanada.
Álafoss-
húsið aug-
lýst tíl sölu
HÚSEIGNIN Þingholts-
stræti 2 og 4, þar sem nú er
verzlunin Álafoss, hefur
verið auglýst til sölu. Hús-
ið, sem stendur á eignar-
lóð, nær frá Bankastræti
að Gutenbergshúsinu og er
þrjár hæðir að hluta til.
Eigendurnir eru Ásbjörn
Sigurjónsson og systkini
hans, þ.e. erfingjar Sigur-
jóns Péturssonar á Ála-
fossi og konu hans. Fyrir-
tækið Álafoss hefur hús-
næðið á leigu fram til
næsta sumars. Það er Fast-
eignasalan að Laugavegi
18A, sem hefur þessa eign í
sölu, en söluverðið mun án
efa skipta milljónatugum.
„Ég vona bara að það verði
sem hæst,“ sagði Ásbjörn
Sigurjónsson í samtali við
Mbl. í gær, en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um málið.
LOKAÐ VEGNA
JARÐARFARAR
Skrifstofur okkar, af-
greidsla og ritstjórn veröa
lokaðar f dag kl. 2—4 vegna
jarðarfarar Sigfúsar Jóns-
sonar fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra.
JtlovBunXiIntiiti
Farmönnunum heitið aukn-
um tollfrjálsum innflutningi
FJARMÁLARAÐHERRA hefur
gefið samninganefnd Sjómanna-
félags Reykjavfkur fyrirheit um
að lagfæra innan tfðar ákvæðin
um tollfrjálsan innflutning farm-
anna, að sögn Péturs Sigurðs-
sonar, ritara Sjómannafélagsins,
en f atkvæðagreiðslu félagsins
um nýgerða kjarasamninga
felldu undirmenn á kaupskipa-
flotanum samningana, ekki sfzt
vegna óánægju með tollákvæðín.
Samninganefnd Sjómannafél-
NORDJAMB—75: 14. alþjóðlega Jamboreemót skáta er þessa dagana
haldið skammt frá Lillehammer f Noregi. Norðurlandaþjóðirnar fimm
hafa sameiginlega undirbúið þetta mót og hafa Islendingar tekið
virkan þátt f undirbúningi. Um 18 þúsund skátar eru samankomnir ð
mótinu og eru f hópi þeirra 245 Islendingar. i.j6sm. Bergur jónsson.
agsins átti í gær fund með út-
gerðarmönnum, en þar sem þeir
höfðu ekki frétt af niðurstöðum
atkvæðagreiðslunnar fyrr en í
gærmorgun og það reynzt ákaf-
lega erfitt að kalla þá saman á
fund vegna sumarleyfa, féllst
samninganefnd Sjómannafélags-
ins á það að fresta fundahöldum
samningsaðilanna fram á mið-
vikudag kl. 2. En ef ekki miðar
neitt í samkomulagsátt á fundum
fljótlega, blasir það við samninga-
nefndinni að leita verkfallsheim-
ildar hjá undirmönnum á far-
skipum, að sögn Péturs.
Pétur Sigurðsson sagði, að toll-
ákvæðið, sem farmenn hefðu
verið svo óánægðir með, væri frá
árinu 1968 og tölurnar i engu
samræmi við verðlagsþróun . á
þessum tíma. Þannig væri far-
mönnum heimilt að hafa með sér
inn í landið tollfrjálsan varning
fyrir 5. þús. kr. eftir 20 daga
utanlandsferð, en ferðamenn
mættu hafa með sér varning fyrir
8 þús. kr. Hefði Matthías Á
Mathiesen fjámálaráðherra lýst
því yfir við samninganefndina í
gær að ekki myndi standa á sér að
lagfæra þetta ákvæði.
Pétur sagði ennfremur að
óánægja hefði verið meðal far-
manna með samanburðinn á laun-
um þeirra og hafnarverkamanna,
en sá samanburður hefði orðið
farmönnum æ óhagstæðari að
undanförnu. Einnig voru far-
menn óánægðir með að ekki
skyldi I nýju samningunum vera
gert ráð fyrir 3% kauphækkun f
apríi nk., en þessa hækkun höfðu
farmenn fengið inn f eldri samn-
ingana vegna þess að þeir samn-
ingar voru með mun lengri gildis-
tíma en yfirleitt hjá öðrum
stéttum.
MANNABEIN FINN-
AST VIÐ SUÐURÁ
Björk, Mývatnssveit 31. júlí
f' GÆR fóru fjórir starfsmenn
Kísiliðjunnar f ferðalag í Suður-
árbotna, þeir Jens Gfslason, Þor-
steinn Einarsson, Matthías Krist-
jánsson og Garðar Sverrisson.
Megintilgangur með þessari ferð
var að kanna landslagið meðfram
Suðurá. 1 smágjótu rétt við kof-
ann f Suðurárbotnum. f hraun-
kambi, fundu þeir mannabein,
sennilega mjög gömul. Hér var
um að ræða tvo lærleggi, eina
hauskúpu nokkuð heillega með
óskemmdum jöxlum, og einnig
brot úr annarri hauskúpu. Komu
þeir með þessi bein til byggða og
hafa þegar látið þjóðminjavörð
vita um þennan beinafund.
— Kristján.