Morgunblaðið - 23.08.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. AGÚST 1975
—£
^Miámssk
TIMMAN
OM
Guðmundur vakti upp
riddara og sigraði
GUÐMUNDUR Sigurjónsson stór-
meistari fókk l'A vinning á skák-
mótinu f London f gær. I gær-
morgun tefldi hann biðskákina
við Basman úr 5. umferð og iauk
skákinni í 50. ieik með sigri Guð-
mundar. Sfðdegis gerði hann
jafntefli við Englendinginn
Sfmon Webb í 17 leikjum, en
Guðmundur hafði svart f skák-
inni.
Það vakti athygli þegar Guð-
mundur tefldi biðskákina við Bas-
man í gærmorgun, að hann kaus
að vekja upp riddara en ekki
drottningu þegar hann kom peði
upp i borð. Væntanlega hefur
hann metið stöðuna þannig að
riddarinn kæmi að meira gagni í
lokasókninni enda gaf Basman
skákina stuttu sfðar.
Staðan í mótinu eftir 6 umferð-
ir er sú, að Ungverjinn Adorjan
og Englendingurinn Miles eru
efstir með 4 vinninga. Sax, Ung-
verjalandi, og Nunn, Englandi,
hafa 3lA vinning og Timman, Hol-
landi, 3 vinninga. Guðmundur er i
8.—9. sæti með 2 vinninga, en
hann hefur setið hjá í einni um-
ferð af þeim 6 sem tefldar hafa
verið.
BLAÐINU barst f gær yfirlýsing
frá bæjarstjórn Sauðárkróks þar
sem varað er við að skoðanamis-
munur heima fyrir og yfirlýs-
ingar minnihlutahópa verði til
þess að seinka ákvörðunartöku
um vatnsafisvirkjun á Norður-
landi vestra. Yfirlýsing bæjar-
stjórnarinnar fer hér á eftir:
„Á fundi bæjarstjórnar Sauðár-
Brátt byrjað á 1. áfanga
vöruhafnar á Akureyri
Akureyri 22. ágúst.
NÚ ER von til að vinna við fyrsta
áfanga vöruhafnar sunnan Odd-
eyrartanga á Akureyri geti hafizt
bráðlega og er þá ætlunin að
halda verkinu áfram eftir þvf sem
aðstæður og veðrátta leyfa f
vetur þannig að lokið verði við
mannvirkið með vordögunum.
Hér er átt við bryggju og hafnar-
mannvirki handa vöruflutninga-
skipum syðst á neðanverðum
Oddeyrartanga en verkið hófst
árið 1969.
Skilyrði þess að þessar vonir
rætist er að heimild fáist til lán-
töku erlendis en um hana hefur
þegar verið sótt. Það lán yrði að
upphæð 500 þús dollarar eða um
70—80 milljónir króna. Hafnar-
stjórn hyggst verja fénu til
tveggja verka, í fyrsta lagi vinnu
við frágang vöruhafnarinnar og í
öðru lagi við stálþil á bryggju-
kanti hjá dráttarbrautinni.
Eins og menn rekur minni til
urðu ýmis mistök í gerð þessara
hafnarmannvirkja í upphafi og
m.a. kom í ljós, að sjávarbotninn
þoldi ekki þann þunga sem á
hann var Iagður. Nú þekkja
menn botninn betur og af því
leiðir að gjörsamlega hefur verið
hætt við að gera þarna opna
staurabryggju eins og upphaflega
var ætlunin heldur hafa hafnar-
mannvirkin verið hönnuð að nýju
og ákveðið að gera stálþilskannt í
staðinn. Efni til hans er komið á
staðinn og tilbúið til niðursetn-
i.ngar og strandar nú aðeins á fjár-
magni til að unnt sé að hefja
lokaátakið.
Einnig hefur verið fengið efni í
stálþilið við dráttarbrautina en
það var nýverið lánað til Nes-
kaupsstaðar vegna uppbyggingar
þar gegn því að Norðfirðingar
skiluðu sams konar efni hingað
fyrir næsta vor. Sv. P.
Dæmdir fyrir
landhelgisbrot
RÉTTARHÖLDUM er lokið f mál-
um fjögurra landhelgisbrjóta
sem teknir hafa verið að ólögleg-
um veiðum við landið. Hafa skip-
stjórarnir allir hlotið dóm.
Jón Magnússon fulltrúi sýslu-
mannsins í Stykkishólmi kvað
upp dóma i málum þriggja skip-
stjóra sem teknir voru að veiðum
i Breiðafirði. Skipstjórarnir á
Haraldi SH 123 og Kóp SH 132
hlutu báðir 200 þúsund króna
sekt sem gengur til Landhelgis-
sjóðs og afli og veiðarfæri voru
gerð upptæk. Skipstjórinn á Gull-
faxa SH 125 hlaut 300 þúsund
króna sekt, tveggja mánaða varð-
hald og afli og veiðarfæri voru
gerð upptæk. Þessi sami maður
var tekinn að ólöglegum veiðum
með nokkurra daga millibili og
auk þess einu sinni í fyrra.
I Vestmannaeyjum dæmdi Jón
Þorsteinsson fulltrúi í máli skip-
stjórans á Gunnari Jónssyni VE
500 sem tekinn var að ólöglegum
veiðum útaf Ingólfshöfða. Hann
hlaut 350 þúsund króna sekt sem
gengur til Landhelgissjóðs og afli
og veiðarfæri voru gerð upptæk.
Deila BHM og rík-
is til Kiaradóms
A FUNDI fulltrúa Bandalags
háskólamanna og rfkisins með
rfkissáttasemjara f gær var
ákveðið að vfsa kjaradeilu
aðilanna til Kjaradóms.
Forsaga málsin er sú, að þegar
ASl samdi við vinnuveitendur um
5300 króna kauphækkun 13. júní
s.l. bauð fjármálaráðuneytið f.h.
rfkissjóðs BSRB og BMH sömu
hækkun. BSRB samþykkti það en
BMH ekki og lagði fram sérkröf-
Framhald á bls. 23
Símamynd AP.
SKÁKMÓTIÐ — Svipmynd frá skákmótinu í London. Guðmundur teflir við
hollenzka stórmeistarann Timman, en hann hefur teflt hér heima.
Vatnsaflsvirkjun á Norðurlandi vestra:
Aflabrestur við V-Grænland
vegna lækkandi sjávarhita
FISKVEIÐAR við Vestur-
Grænland hafa gengið mjög treg-
lega undanfarin ár og eru nú ekki
nema brot af því, sem þær voru
fyrir 10—15 árum. Fiski- og haf-
fræðingar telja höfuðástæðuna
fyrir þessum aflabresti vera, að
sjórinn við V-Grænland hefur
kólnað og klak þorksins þvf gjör-
samlega misheppnazt undanfarin
ár.
Sigfús Schopka, fiskifræðingur,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að um miðjan síðasta áratug
hefði veðurfar kólnað nokkuð á
Grænlandi og eins hér á Islandi
m.a. með tilkomu hafíss við
landið. Sjórinn við V-Grænland
hefði kólnað um leið og segja
mætti að þorskstofninn hafi
hrunið saman vegna þess að klak
tókst ekki en á þessum slóðum á
þorskurinn hrygningarstöðvar.
Hann sagði, að á þessum slóðum
hefðu veiðzt 400—500 þús. lestir
af fiski á árum 1950—1960, en nú
veiddust ekki nema um 100 þús.
lestir á ári. Þó svo að svona hefði
farið við Grænland, ættu menn
ekki að þurfa að óttast samskonar
hrun fiskstofna við ísland, a.m.k.
ekki á meðan Golfstraumurinn
vermdi hafið hér.
Flugfreyjudeil-
an að leysast?
FULLTRUAR Flugleiða hf. og
Flugfreyjufélag Islands vörðust
allra frétta af flugfreyjudeilunni
er Mbi. ræddi víð þá í gær.
Morgunblaðið hefur það hins-
vegar eftir góðum heimildum að
Flugleiðir hafi lagt fram tilboð
fyrir fjölmennan félagsfund í
Flugfreyjufélaginu á fimmtu-
dagskvöld og hafi það fengið
góðar undirtektir á fundinum.
Sögðu sömu heimildir að
samningaviðræður væru í gangi
milli félaganna, en talsmenn
þeirra vildu hv;orki staðfesta það
né neita því þegar Mbl. ræddi við
þá í gær.
Útitónleikar á Selfossi
Hljómsveitin Orkidea hefur á-
kveðið að halda tónleika á Sel-
fossi í dag, ef veður leyfir.
Tónleikarnir verða við Tryg^va-
skála og hefjast kl. 1.30 e.h.
Reiknað er með að tónleikarnir
taki um klukkustund.
Lokatónleikar Tón-
listahátíðarinnar í dag
I FYRRAKVÖLD hélt Harald
Gullíchsen orgeltónleika f
Háteigskirkju við góðar undir-
tektir, en hann er einn þátt-
takenda f tónlistarhátíðinni
Noregur-Island 1975, sem nú
stendur yfir. I gærkvöldi lék
sinfónfuhljómsveit ungmenna að
Árnesi og hlutu þau 100 ung-
menni, sem f sveitinni eru góðar
móttökur. Lokahljómleikar
hljómsveitarinnar verða f
Háskólabfói klukkan 13 I dag.
Aðgangur er ókeypis meðan hús-
rúm leyfir.
Á efnisskrá er sinfóníetta 1973
eftir Herbert H. Ágústson, pianó-
konsert í c—dúr k-467 eftir W.A.
Mozart, einleikari Gísli Magnús-
son, fanfare og koral eftir Egil
Hovland og loks sinfónía nr. 2
eftir Johannes Brahms. Stjórn-
andi á tónleikunum hefur verið
Karsten Andersen. Hefur þetta
samstarf Norsk Musiker
Forbund, með Sigurð Löriseth og í
fararbroddi, og Félags íslenzkra
hljómlistarmanna, en þar er
Sverrir Garðarsson formaður
gefið mjög góða raun. Hljóm-
sveitin, einleikarar og farar-
stjórar halda utan síðar í dag eftir
velheppnaða vikudvöl á Islandi.
Skoðanamismunur má ekki
seinka ákvörðunartöku
króks 19. ágúst var rætt um orku-
mál. Bæjarfulltrúar samþykktu
einróma eftirfarandi yfirlýsingu:
Bæjarstjórn Sauðárkróks lýsir
yfir, að hún tók alvarlega og
fagnaði yfirlýsingu iðnaðarráð-
herra á s.l. vetri um byggingu
raforkuvers á Norðurlandi
vestra og skildi það svo að næsta
veruleg vatnsaflsvirkjun lands-
manna yrði í kjördæminu.
Bæjarstjórn beinir til iðnaðar-
ráðherra, að láta ekki skoðana-
mismun heimafyrir og yfirlýs-
ingar minnihlutahópa í kjör-
dæminu verða til þess að seinka
ákvörðunartöku í jafnmikils-
verðu máli fyrir landshlutann.
Bæjarstjórn treystir því, að
staðarval orkuvera verði á
faglegum hagkvæmisgrundvelli
og leggur fyrst og fremst áherzlu
á að hönnun og fjármagnsút-
vegun verði hraðað, svo að bygg-
ingarframkvæmdir geti hafizt
sem fyrst.
Jafnframt minnir bæjarstjórn
á, að undanfarna áratugi hefur
atvinnulíf á Norðurlandi vestra
verið veikast á landinu, meðal-
tekjur hinar lægstu og tíma-
bundið eða viðvarandi atvinnu-
leysi í þéttbýlisstöðunum og
alvarleg búseturöskun. Sérstök
byggðaáætlun fyrir Norðurland
vestra í tengslum við svokallaða
Norðurlandsáætlun hefur fram
að þessu aðeins verið orðagjálfur
og þvi fyllilega tímabært að fram-
tíðar atvinnuuppbygging komist á
fastan grundvöll. Ætti nú að vera
kostur á, að jafnframt byggingu
stórra raforkuvera verði gerð
áætlun um stofnun og starf-
rækslu traustra iðnfyrirtækja, er
nýti orkuna í landshlutanum
sjálfum og treysti til frambúðar
grundvöll atvinnulifs og byggðar.
Bæjarstjórn hefur lýst fylgi við
athugun á stofnun Norðurlands-
virkjunar og fylgist með störfum
nefndar, sem að því verkefni
vinnur.“
Viðræður við
Breta 11. sept.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að viðræð-
ur um fiskveiðimál milli fulltrúa
ríkisstjórna Islands og Bretlands
fari fram i Reykjavík fimmtudag-
inn 11. september n.k.
Matthías Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra sagði f samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að
ekki hefði verið ákveðið hverjir
tækju þátt í viðræðunum fyrir
Islands hönd en telja mætti vfst,
að þetta yrðu ráðherraviðræður
með þátttöku nokkurra embættis-
manna. Formaður brezku sendi-
nefndarinnar verður Roy Hatt-
ersley aðstoðarutanríkisráðherra.