Morgunblaðið - 23.08.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGUST 1975
23
Sigurður Egilsson frá
Sveinsstöðum látinn
Mælifelli 21. ágúst.
I GÆRMORGUN Iézt á sjúkra-
húsi Skagfirðinga Sigurður Egils-
son frá Sveinsstöðum I Tungu-
sveit, 63 ára að aldri. Sigurður var
mörg sumur safnvörður í Glaum-
bæ, en bjð áður búi sínu á nýbýl-
inu Stekkjarholti, er hann reisti á
hluta úr Sveinsstöðum. Sigurður
var vfðlesinn maður og fágætlega
minnugur og mikið orð fór af
honum fyrir þekkingu á ljóðlist,
en hann hafði á hraðbergi svo
mikinn fjölda vlsna, kvæða og
Ijóðaflokka að einsdæmi var.
Hann var safnaðarfulltrúi Goð-
dalasóknar og meðhjálpari kirkju
sinnar og þar verður útför hans
Ekki starfs-
fólk Flugleiða
Flugleiðir hf hafa beðið Morg-
unblaðið að koma því á framfæri
að enginn starfsmaður fyrirtækis-
ins á Keflavfkurflugvelli hafi átt
þátt í hasssmyglmálinu, sem frá
var greint í baksíðufrétt Mbl. í
gær.
Heimsmet
FRAKKINN Guy Drut setti nýtt
heimsmet í 110 metra grinda-
hlaupi á frjálsfþróttamóti f Vest-
ur-Berlfn f gærkvöldi. Hljóp hann
vegalengdina á 13,0 sek.
r
Utimessa
á Akureyri
Akureyri 22. ágúst.
PRESTARNIR á Akureyri hafá
ákveðið að efna til útiguðsþjón-
ustu í trjálundinum f Glerár-
hverfi klukkan 14 á sunnudaginn.
Þeir þjóna báðir við guðsþjónust-
una og kirkjukór Lögmannshlíð-
arkirkju annast söng undir stjórn
Áskels Jónssonar. Hálfri klukku-
stund áður en guðsþjónustan
hefst byrjar Lúðrasveit Akureyr-
ar að leika þar f trjálundinum
undir stjórn Roars Kvam. Af veð-
ur reynist óhagstætt, sem engin
ástæða er til að ætla, verður mess-
að f skólahúsinu f Glerárhverfi.
Sv.P.
gerð hinn 28. þessa mánaðar.
Ekkja Sigurðar er Berta Karls-
dóttir frá Mzkalandi.
Sfra Agúst.
Tækniskólinn í nýtt
húsnæði 1. október
EINS og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu hefur Tækniskóli
íslands fengið aðstöðu í húsi
Aðalverktaka á Ártúnshöfða, en
skólinn hefur fram að þessu verið
á miklum hrakhólum með hús-
næði.
Bjarni Kristjánsson skólastjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið
að frágangur á þessu húsnæði
gengi nú sæmilega og gert væri
ráð fyrir, að öll starfsemi skólans
flytti þarna inn 1. október.
I vetur munu um 250 nemendur
stunda nám við Tækniskóla Is-
lands og er það svipuð tala og I
fyrra.
Bíómiðinn hækk-
ar í 240 krónur
RÍKISSTJÓRNIN staðfesti f gær
þá ákvörðun verðlagsnefndar frá
þvf á miðvikudaginn, að heimil
væri hækkun á bfómiðum og
þjónustu veitingahúsa.
Þjónusta veitingahúsa hækkar
um 10% og aðgangseyrir í kvik-
myndahús hækkar úr 200 krónum
í 240 krónur fyrir fullorðna og úr
70 krónum í 90 krónur fyrir börn.
— Villinganes-
virkjun
Framhald af bls. 13
að ræða, þá er Villinganesvirkjun
fyrir hendi og á Vestfjörðum lítil
virkjun við Kljáfoss. Ekki er
mikið um virkjunarmöguleika á
landinu af þeirri stærð. Á Suður-
landi hefur Landsvirkjun þó
verið með áætlanir um jarðgufu-
stöð. En eins og alltaf þurfa
markaðurinn og þróunin að falla
saman. Komi ekki upp meiri orku-
frekur iðnaður á Norðurlandi, þá
kemur virkjun í Héraðsvötnum
við Villinganes til greina, en fyrir
iðnað er hún ekki, sagði Jakob
Björnsson að lokum.
— E.Pá.
— Deila BHM
Framhald af bls. 2.
ur, sem sfðan hafa verið til um-
ræðu milli fulltrúa félagsins og
ráðuneytisins. Nú hefur deilunni
aftur á móti verið visað til Kjara-
dóms. Rfkissjóður tók þá einhliða
ákvörðun á sínum tíma að greiða
félagsmönnum BMH sem vinna
hjá ríkinu þessa hækkun þótt
ósamið væri um hana við félagið
og hefur það verið gert fram til
þessa.
— Samningur
Framhald af bls. 1
Meðal annars safnaðist allstór
hópur manna saman úti fyrir
gistihúsi því sem Kissinger dvald-
ist á og hrópaði ókvæðisorð og
skipaði honum að fara heim aftur.
I Egyptalandi er komu Kiss-
ingers beðið með óþreyju og
verður honum fagnað eins og
þjóðhöfðingja segir f fréttum frá
Alexandrfu. Segja fréttaskýrend-
ur að það sé samdóma álit manna
f Kairó og Alexandríu að Kiss-
inger muni takast að koma bráða-
birgðasamkomulagi þessu í kring
fyrir 1. september -eins og hann
hefur lýst yfir að hann hafi hug á.
— Korsíka
Framhald af bls. 1
hríð á móti og skömmu síðar
gáfust Korsíkumennirnir upp.
Þeir eru flestir bændur og
samtök þeirra eru kölluð ARC
krefjast sjálfstæðis Koisíku og
sömuleiðis að landeignir í eigu
fyrrverandi auðmanna í Alsír og
víðar f Norður-Afríku, sem nú
búa á Korsíku, verði lagðar undir
eyjaskeggja sjálfa.
— Stjórn SR
Framhald af bls. 24
fyrir Norðurlandi loðnugöngur, 2
til 4 ára loðnu, er hentaði til
vinnslu.
Tillagan var borin undir at-
kvæði og samþykkt með sam-
hljóða atkvæðum, þeirra Sveins
Benediktssonar, Jóns Kjartans-
sonar, Hannesar Baldvinssonar,
og Jóns Sigurðssonar.
— Útlit fyrir
Framhald af bls. 24
búið að taka saman og ætti bara
eftir að færa í hús en á sárafáúm
stöðum mætti sjá liggjandi hey.
„Það er hin geysimikla vélvæðing
í landbúnaðinum sem gerir það
kleift að nýta þennan skamma
þurrk svona vel,“ sagði Magnús.
Loks ræddi Mbl. við Pál Pálsson
bónda á Borg í Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi. Hann sagði að
þurrkdagarnir tveir og dagurinn
þar á undan hefði gerbreytt öllum
heyskaparhorfum. „Það var þurrt
en sólarlaust á þriðjudaginn og
þess vegna nýttist þurrkurinn á
miðvikudaginn miklu betur en
annars hefði orðið,“ sagði Páll.
„Þetta hafa verið ómetanlegir
dagar og hér hefur fólk ekki hugs-
að um annað en heyskapinn og
unnið myrkranna á' milli. Þetta
hefur svo sannarlega létt áhyggj-
um af bændum sem sumir hverjir
höfðu ekki náð inn þurri tuggu í
allt sumar.“
— Portúgal
Framhald af bls. 1
inginn Carlos Fabiao, eins og spáð
hefur verið síðustu daga. Sagt er
að þrír herforingjar af þeim níu,
sem opinberlega snerust gegn
stjórn Goncalves á dögunum muni
eiga sæti í rikisstjórninni sem
mynduð verður líklega þeir Melo
Antunes, Victor Alves og Vitor
Crespo, og úr embættum muni
vfkja tveir ráðherrar sem hafa
þótt einum of hlynntir kommún-
istum, báðir herforingjar.
Þá barst sú yfirlýsing frá
Spinola fyrrverandi forseta lands-
ins, sem hefur verið landflótta í
Brasilíu eftir misheppnaða bylt-
ingartilraun f marz sl., að hann
væri reiðubúinn að snúa heim og
taka við stjórnartaumum og upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum. Um
viðbrögð við því boði hefur ekk-
ert heyrzt.
I morgun flaug sú frétt eins og
eldur f sinu um Lissabon að Gon-
calves hefði leitað hælis í herstöð
skammt fyrir utan borgina og
ætlaði að flýja land, en sú frétt
var síðan borin til baka.
I dag kom til mikilla óeirða í
Braganca í Norðaustur-Portúgal
og réðst hópur fólks á skrifstofur
kommúnistaflokksins þar og
brenndi þær til grunna. Slösuðust
þar átta manns þegar fólk reyndi
að brjóta byssur sem það fann á
skrifstofunum.
Samkvæmt fréttun. i kvöld virð-
ist trúlegt að sósíalistar muni
eiga aðild að þeirri ríkisstjórn
sem nú er reynt að
koma á fót i Iandinu, en
engin tilkynning hefur komið
frá flokknum um það efni í dag.
Aftur á móti er talið að sósialistar
svo og herforingjar muni geta
sætt sig dável við að Carlos
Fabiao verði forsætisráðherra, en
hann lýsti vantrausti á stjórn
Goncalves fyrr í þessari viku.
Aftur á móti er talið að Gosta
Comes myndi kjósa að einn
nánasti samstarfsmaður hans,
Ferreira da Cunhal hershöfðingi
tæki við embættinu, en það mun
hafa fengið dræmar undirtektir.
Aftur á móti er talið að gengið
verði að kröfum sósialista og
þeirra herforingja, sem hófsamir
teljast, varðandi brottvisun ráð-
herranna tveggja, sem áður er
vikið að og hlynntir eru kommún-
istum, en þeir eru Costa Martines,
atvinnumálaráðherra og Correia
Jesuino, upplýsingaráðherra.
Concalves forsætisráðherra er
sagður reyna til hins ítrasta að
halda stöðu sinni og sagði tals-
maður hans að forsætisráðherr-
ann liti svo á, að hann nyti stuðn-
ings meirihluta hersins hvað sem
hver segði.
I Reutersfréttum kemur fram
að staða Otelo Saraiva de Car-
valho virðist óljós þessa stundina,
sérstaklega væri því veitt athygli
að í tilkynningu forsetans um þá
yfirstjórn, sem hann tók sér f dag,
var hvergi að Carvalho og fram-
tíðarhlutverki hans vikið.
Svo virðist af ýmsu, sem komm-
únistaflokkur landsins sé nú opin-
berlega að fallast á að snúast gegn
Goncalves forsætisráðherra, segir
í Reutersfréttum, og munu full-
trúar hans bíða átekta unz málin
skýrast. Cunhal, formaður flokks-
ins ræddi viö Costa Gomes í dag
og segja áreiðanlegar heimildir,
að Cunhal hafi tjáð forsetanum,
að flokkur hans myndi ekki
leggja á það kapp úr því sem
komið vjeri, að Goncalves yrði for-
sætisráðherra áfram. Segja frétta-
skýrendur, að kommúnistar virð-
ast reiðubúnir að taka sæti I
hvaða samsteypustjórn sem kann
að verða mynduð, þegar tekst að
koma Goncalves frá völdum.
— Barzel
Framhald af bls. 3
bandalaginu. Sagði Barzel að við-
ræðurnar hefðu verið mjög vin-
samlegar og væri hann margs
vísari eftir. Barzel sagðist ekki
vera kominn hingað til að miðla
málum í fiskveiðideilunni til þess
hefði hann ekkert formlegt um-
boð, en hins vegar vildi hann nota
tímann hér og fræðast sem mest
um málið.
Um helgina fara Barzel og
Jansen til Þingvalla og Laugar-
vatns, í Skálholt og e.t.v. annarra
staða fyrir austan Fjall. Á mánu-
dag er m.a. gert ráð fyrir að hann
hitti Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra, Einar Ágústsson utan-
ríkisráðherra og fleiri áhrifa-
menn. Héðan verður haldið á
þriðjudagsmorgun.
gferl
meógott hj
Á Alþjóðlegu vörusýningunni í
Laugardal er sérstök heilbrigðis-
sýning, þar sem meðal annars gefur
að líta gegnsæja glerkonu, þannig að
fylgjast má með hluta líkamsstarf-
seminnar. Þá eru á heilbrigðissýning-
unni fjöldi tækja þar sem sýningar-
gestir geta prófað viðbragðsflýti
sinn, nákvæmni og þekkingu.
Hver vill ekki spreyta sig á slíku?
Vinningur dagsins í gestahappdrættinu er.
Dvöl í Valhöll á Þingvöllum fyrir tvo frá
föstudegi til sunnudags, þar sem vinnings-
hafi og gestur hans munu njóta gestrisni og
góðrar þjónustu hótelsins í húsnæði, mat og
drykk.
í dag verður verslunin Bimm Bamm með
tvær tískusýningar á barnafötum klukkan
14.30 og 16.30.
Opnað klukkan 1.30 i dag.
VerS aSgöngumiSa 350 krónur fyrir fullorSna og
1 00 krónur fyrir börn.
ALÞJÓÐLEG VÖRUSYNING REYKJAVlK 1975