Morgunblaðið - 23.08.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.08.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. AGÚST 1975 11 0 Sá orðrómur hafði verið á kreiki að hljómsveitin Brimkló væri f þann veginn að leysast upp. STUTTSlÐAN sat f þungum þönkum og vefti þvf fyrir sér við hvern hún ætti að hafa samband til að fá nánari upplýsingar þegar á fjörur hennar rak, — óvænt og skyndilega — tvo félaga úr hljómsveitinni, þá Arnar Sigur- björnsson gftarleikara og Pétur Pétursson pfanóleikara. — „Brimkló hættir ekki heldur er hér aðeins um mannabreyting- ar að ræða, — við Raggi höldum áfram,“ sagði Arnar þegar Stutt- síðan spurðist fyrir um áform þeirra félaga. — „Það eru engin leiðindi í þessu,“ bætti Pétur við. „Við höfum verið að bræða þetta með okkur að undanförnu og við þrír ákváðum að hvila okkur á þessu í bili, — það var líka kominn tími til að stokka upp i hljómsveit- inni.“ „Við þrír“ eru auk Péturs þeir Jónas R. Jónsson söngvari og Sigurjón Sighvatsson bassaleik- ari. 0 Hljómsveitin Brimkló á að baki merkilegan feril i islenzku skemmtanalífi og hefur hljóm- sveitin löngum notið vinsælda enda ávallt skipuð úrvals hljóð- færaleikurum. Eins og gengur hafa menn komið og farið og enn á ný skilja leiðir. Pétur hyggur á tónlistarnám erlendis. — „Ég er npp rétt að byrja,“ eins og hann komst sjálfur að orði. Jónas mun snúa sér óskiptur að upptökustörfum hjá Hljóðritun s/f og Sigurjón verður við kennslu í vetur en auk þess stundar hann háskólanám i bókmenntasögu. Ýmsar getgátur hafa verið uppi um það hverjir muni ganga til liðs við þá Arnar og R^gnar og hafa nokkrar athyglisverðar hug- myndir komið fram í því sam- bandi. M.a. hefur verið rætt um að Ari Jónsson, sá ágæti söngvari og trommari, verði kallaður til en það þýðir að trommuleikarar verða tveir í hljómsveitinni, — skemmtileg hugmynd sem vel mætti reyna. Þá hefur Stuttsíðan hlerað að bollaleggingar séu um það að fá Bjarka Tryggvason frá Akureyri til að taka að sér bassa- leikinn og söng og mundi Stutt- síðan fagna ef úr yrði. — „Það verður ekkert gefið upp að svo stöddu,“ sagði Addi. — „En þetta verður gott band þegar það kemur og nafnið verður áfram Brimkló ef nýju meðlim- irnir hafa ekki á móti því,“ bætti hann við og glotti. ■ ■ ■ Hljómsveit Pálma | Gmrnars með 12 ný ■ lög eftir Magga í Rín* 1 * * * * * * elzta — og jafnframt einna virðu- legasta — hljómplötufyrirtæki landsins. Er Stuttsíðan átti leið I Hafnarfjörð I fyrradag hitti hún þar fyrir gamal- kunnug andlit, sem sameiginlega hafa að undanförnu gengið undir nafninu „Hljómsveit Pálma Gunnarssonar". — Fálkanum leizt strax vel á að gefa þetta út, þegar við sendum þeim mjög ófullkomna upptöku, sagði Baldur Arngrlmsson, gitar- leikari. — Við erum núna rúmlega hálfnaðir og ætlunin er að klára þetta nú um og eftir helgina. Ef það tekst ekki, þá frestast það um hálfan mánuð, þvi ég er á leið til Ameriku. Höfundur laga og Ijóða er Magnús Eiriksson gitarleikari og blúsari, sem m.a. samdi prýðileg lög fyrir Pónik i tið hans þar. Bassaleikari og söngvari er að sjálfsögðu Pálmi Gunnarsson og trommuleikari Björn Bjömsson. Allir þessir menn eiga langa reynslu að baki og á það ekki síður við um fimmta manninn, sem þeir félagar hafa fengið sér til aðstoðar á hljómborð, Úlfar Sigmars- son, hljómborðs- og gitarleikara Pónik. Að auki er litil hornasveit i fjórum laganna. Að sögn Baldurs eru löqin í vmsum stemningum, allt aftur t „gamla kreppufijinginn", eins og hann orðaði það. Textar eru á islenzku og einnig eftir Magnús Eiriksson. a |a J Yfir hafiö meö HAFSKIP SKIP VOR MUNU LESTA Á NÆSTUNNI SEM HÉR SEGIR: HAMBORG: Langá 25. ágúst. -I- Skaftá 1. sept. + Langá 10. sept. + Skaftá 22. sept. + Langá 30. sept. + ANTVERPEN: Langá 28. ágúst + Skaftá 4. sept. + Langá 1 5. sept. + Skaftá 25. sept. + Langá 3. okt. + FREDRIKSTAD: Hvitá 1 5. ágúst Rangá 1. sept. Laxá 8. sept. + Laxá 22. sept. Laxá 6. okt. GAUTABORG: Hvítá 20. ágúst Rangá 29. sept. + Laxá 9. sept. Laxá 23. sept. Laxá 7. okt. KAUPMANNAHÖFN: Hvitá 1 8. ágúst Rangá 27. ágúst Laxá 1 0. sept. + Laxá 24. sept. Laxá 8. okt. HELSINGJABORG: Laxá 25. ágúst Laxá 9. sept. Laxá 25. sept. Laxá 9. okt. VENTSPILS: Hvitá 3. sept. Hvitá 1 7. okt. GDYNIA/GDANSK: Laxá 21. ágúst Hvitá 4. sept. Hvitá 25. sept. Hvitá 1 8. okt. + = Lestun og losun Akureyri, Húsavik. HAfSKIP H.f. hafnarhusinu revkjavik Vi.iÚfN, HAFSKIP 5IMI 21160 Reykjanes S.U.S. Umræðuhópur um sjávarútvegsmál Annar fundur umræðuhóps um sjávarútvegsmál verður haldinn i Sjálfstæðishúsinu Keflavik, mánudaginn 25. ágúst. Fundurinn hefst kl. 8.30. Umræðustjóri er Helgi Hólm. Aðalfundur Aðalfundur Fjölnis F.U.S. i Rangárvallasýslu verður háldinn i Hellubíó miðvikudaginn 27. ágúst kl. 9. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á S.U.S. þing. 3. Önnur mál. Stjórn Fjölnis F.U.S. Fólksbila- Jeppa- Vörubila- Lyftara- Búvéla- Traktors- Vinnuvéla- ATLAS Veitum alhliöa hjólbaröaþjónustu Komi6 með bilana inn í rúmgott húsnæöi OPIÐ: mánud.-fimmtud. 8-19 föstudaga 8-22 _______laugardaga_____9-17 Véladeild HJÓLBARÐAR Sambandsins símaíSmo8og mvoo Alþjóða vörusýning Rvk. 1975 VIÐ SÝNUM Á ÚTISVÆÐI III B, EFTIRFARANDI: Sumarhús A-line Hjólhýsi Cavalier Hjólhýsi Monza Tjaldvagna, Ameríska steury Tjaldvagna, Þýzka fólksbílakerrur og jeppakerrur Kanadíska vélsleða SKI - DOO VERIÐ VELKOMIN Gísli Jónsson & Co. hf. Sundaborg — Klettagarðar 11 ALÞJÚÐLEG VfiRUSÝNING 22.ÁG.-7.SEPT.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.