Morgunblaðið - 23.08.1975, Síða 10

Morgunblaðið - 23.08.1975, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. AGÚST 1975 Annað kvöld, sunnudag, verður f fyrsta skipti rokk- hljómsveit á Hótel Sögu í Reykjavík og bindi verður ekki skilyrði fyrir inngöngu, að sögn Helga Steingrímssonar hjá Demant, sem stendur fyrir samkomunni. — Change spilar í þetta fyrsta skipti og næsta sunnu- dagskvöld verður það Jakob Magnússon ásamt Hvítárbakka- tríóinu og fleiri skemmtikröft- um, sagði Helgi. — Ef vel gengur, þá munum við að sjálf- sögðu halda þessari starfsemi áfram, enda yfirleitt afskap lega iítið að gerast í skemmt- Magnús og Jóhann áður en þeir urðu Change. Myndin var tekin í Húsafellsskógi sumarið 1972. Annað kvöld eru þeir á Sögu og á þriðjudaginn verða hljóm- leikar með Change, Stuðmönn- um, Svartálfum, Hvítárbakka- tríói og einu og öðru 1 Reykja- vík. anabransanum á sunnudags- kvöldum Auk Change koma fram á sunnudagskvöldið þeir Magnús og Jóhann (sálin í Change) og Sigrún Magnúsdóttir, sem Helgi segir syngja engilblítt við eigin gítarundirleik. Peliean á lista hjá Elton John Elton John ásamt Chér og Díönu Ross í „First Annual Rock Awards“ fyrir hálfum mánuði. Elton var sjálfur kjörinn „Rocky“, þ.e. rokkstjarna og persónuleiki ársins. Verðlaunapeningurínn hangir um háls honum á milli Chér og Díönu. Föstudagskvöldið 8. ágúst var í Bandaríkjunum sýndur sjón- varpsþátturinn „First Annual Rock Awards“, sem er, eins og nafnið bendir til, einskonar Óskarsverðlaunaþáttur rokk- tónlistarinnar. Kynnir og stjórnandi var enginn annar en Elton John sjálfur og var, að sögn, margt góðra gesta í þætt- inum, sem sýndur var samtímis um öll Bandaríkin. Frá þessu er sagt hér, fyrir það, að snemma í þættfnum las Elton John upp nöfn erlendra hljómsveita, sem taldar eru vera á uppleið og var islenzka hljómsveitin „Pelican" ein þeirra. Ekki fer á milli mála, að með þessu hefur verið vakin töluverð athygli á Pelican þar vestra, því áætlaður áhorfenda- fjöldi þeirra sjónvarpsþátta, sem skarta Elton John, er rúm- lega 50 milljónir manna. — Við vitum í rauninni ekkert meira um þetta, sögðu félagarnir í Pelican, þegar Stuttsíðan spurði þá nánari fregna af umræddum sjón- varpsþætti. — Við fengum fréttir af þessu í bréfi frá Robert Edlund, væntanlegum umboðsmanni okkar í Banda- ríkjunum og Kanada, — og sagðist hann sjálfur hvergi hafa komið þar nærri, þannig að greinilega hefur hljómsveit- in vakið töluverða athygli þar í vetur sem leið. Haokar og Jensení Laugardal á morgiin ■ Þá eru það HAUKAR sem færa sér í nyt þjóðhátíðarvagn- inn og munu þeir félagar halda hljómleika i grasgarðinum í Laugardal á morgun (sunnu- dag) kl. 16, ef veður leyfir. Auk Hauka mun Engilbert Jensen koma fram á hljómleikunum en hann hefur gert nokkuð af því að undanförnu að troða upp með Haukum. Kæra Stuttsfða: Ég skrifa þér til að koma á framfæri skoðunum sem ég veit að ég er ekki einn um. Mikil gróska virðist nú vera í íslenska poppheiminum. Bestu hljómsveitirnar eru í óða önn að gefa út plötur og sumar eiga ef til vill möguleika á frama erlendis. Samt sem áður eru hljómleikar steindautt hugtak hér á landi. Maður var að vona þegar Slade tróð upp hér á dögunum að eitthvert líf mundi færast í hljómleikahaldið. En þá kom yfirlýsing frá Á.A. að þetta stæði ekki undir sér og síðan hafa engir hljómleikar verið haldnif. En mér er spurn: Ef ekki er fjárhagslegur grund- völlur fyrir því að fá erlendar hljómsveitir hingað væri þá ekki í staðinn hægt að fá góðar íslenskar grúppur til að koma saman eitt kvöld í höllinni eða einhverju bíóinu og halda hressilega hljómleika?? Hér með kem ég þeirri áskorun á framfæri að eitthvað verði gert til að rffa orðið hljómleika upp úr þeim öldudal sem það hefur verið í að undanförnu hér- Iendis. Eina hljómsveitin sem hefur haldið hljómleika að ein- hverju marki er Sinfóníuhljóm- sveitin en ég vona að hinir framtakssömu umboðsaðilar Amundi Ámundason, Demant eða einhverjir aðrir sjái sér fært að verða við þessari ósk minni og vafalaust margra annarra. Ég vona að þetta bréf sé birtingarhæft, með fyrir- fram þökk. R.J.F. SVAR: Stuttsíðan þakkar bréfið og með því opnar hún vettvang fyrir skoðanir lesenda sinna. Er það ósk sfðunnar að sem flestir notfæri sér þennan möguleika til að koma skoðunum sínum á framfæri en það skal þó tekið fram, að Stuttsíðan áskilur sér rétt til að velja og hafna í því sambandi. Vegna bréfsins hér að ofan setti Stuttsíðan sig í samband við tvo umboðsaðila, þá Ámunda Ámundason og Helga Steingrfmsson hjá Demant og voru báðir sammála um að grundvöllur fyrir hljóm- leikum í Höllinni væri enginn og lftill sem enginn í bíóunum. Bæði væri húsaleiga of dýr og svo hitt að gjöld og kostnaður væri of mikill til að hljómleikar sem þessir gætu borið sig. Austurlandi 12/8’75. MÉR finnst Stuttsíðan hafa komið óréttlátlega fram í skrifum sfnum um Austurlandshljóm- sveitir 9/8. Hún talar aðeins um Lótus og Einsdæmi. Hún er greinilega ekki kunnug á þessum slóðum, því að ekki er minnzt einu orði á hljómsveitina Völund, sem þó er þeirra vinsælust og langelzt. Völundur verður eins árs 15. september en Lótus er ekki orðin tveggja mánaða. Bæði Lótus og Einsdæmi spiluðu í fyrra undir sömu nöfnum, en nokkrar manna- breytingar hafa orðið þótt kjarn- inn sé sá sami. Þess má geta hér um leið, að trommuleikarinn í Einsdæmi heitir Ragnar Ey- mundsson, það kom ekki fram um daginn, þegar skrifað var um Þokkabót og Éinsdæmi. Þá er einnig i þessari „Lótus- grein“ sagt, að Lótus hafi „leikið vitt og breitt í allt sumar". Þetta er allt annað en satt. Þeir hafa eins og áður sagði aðeins spilað í rúman mánuð og þetta sem þeir hafa spilað vítt og breitt er Nes- kaupstaður, Reyðarfjörður, Egils- staðir og svo hið fræga Hjalta- lundsævintýri. Einsdæmi hefur farið heldur víðar, og meðal annars á Hornafjörð fyrir hálfum mánuði. Aftur á móti hefur Völ- undur spilað að ég held í öllum helztu húsunum i fjórðungnum, að undanskilinni Egilsbúð og Miklagarði. Þeir eru nýkomnir frá Hornafirði og. helgina þar áður voru þeir í Skúlagarði og hef ég fregnað, að þeir fari á báða þessa staði seinna í haust og sennilega líka á Vopnafjörð og Þórshöfn. Um hljómsveitina Eins- dæmi vil ég segja það, að ég efast um að margar íslenzkar hljóm- sveitir geti státað af betri röddum en þeir. Því miður hefur þeim ekki gengið vel í sumar hvað vin- sældir snertir, en vonandi fara menn að hugsa sig um betur og hlusta á þá. Einsdæmi var kynnt hér um daginn, svo nú langar mig að kynna Völund. Gitarleikarar eru tveir, þeir Friðrik Lúðvíksson (sóló) og Helgi Arngrímsson (rythma). Aðalsöngvari og trommuleikari er Bjarni Helgason, Jón Ingi Arn- grfmsson er bassaleikari og á píanó og synthesiser leikur Eyþór Hannesson. Þökk fyrir birtinguna með kveðju til allra poppara á Austur- landi. — Stuttsíðunni barst þetta bréf í vikunni frá M.G.V. Egilsstöðum. Það var hljómsveitin Change sem reið á vaðið með að nota þjóðhátíðarvagninn til hljóm- leikahalds, síðan komu Pelican og nú eru það Haukar. Stutt- siðan væntir þess að fleiri hljómsveitir notfæri sér þá möguleika sem vagninn hefur upp á að bjóða enda er hér um að ræða skemmtilega tilbreyt- ingu f bæjarlífinu. Hljómplötn- ntgáfa Fálkans vaknar nr dáinu: HLJÓMPLÖTUÚTGÁFA Fálkans er að fara af stað aftur, eftir að hafa legið hreyfingarlaus undir feldi sinum i hálft annað ár, er hljóm- plötur Rió komu út. Rétt er þó að geta þess, að Fálkinn hefur ekki algjörlega setið auðum höndum I klassíkinni, þvi Fálkinn kom m.a. við útgáfuna á afmælisplötu Mariu Markan. Ástæðan fyrir deyfð Fálkans er sú, að forráðamenn hafa viljað ganga sómasamlega frá sinni vöru en ekki talið verjandi að láta gera allar upp- tökur erlendis. Mið tilkomu Hljóð- ritunar telur Fálkinn, að viðunandi aðstaða til upptöku hafi skapazt hér og þvi sé óhætt að fara af stað. Það er í sjálfu sér gleðiefni, þvi Fálkinn er

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.