Morgunblaðið - 23.08.1975, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.08.1975, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGtJST 1975 Haraldur Jakobs- son - Minningarorð 1 dag verður til grafar borinn vaeru þegar taldir, var hann í upp- hafi mjög angurvaer. Hann sá sinar björtustu vonir um velferð, SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Verða kristnir leiðtogar eins og þér ekki að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd, að breytingar eru óhjákvæmilegar? Nú ríkir sú öld, er trúarbrögðin breytast, kenningar breytast, mat manna breytist, og ef við eigum ekki að dragast aftur úr, verðum við að gera okkur þetta ijóst. Ég held, að þér vinnið gott verk, en ég tel, að starf yðar yrði áhrifameira, ef þér breyttuð guðfræði yðar f samræmi við tfmana. Ég er yður hjartanlega ósammála! Biblían leggur á það mikla áherzlu, að lögmál Guðs séu óbreytanleg, þó að tími og tízka breytist. Biblían segir: „Ég, Drottinn, hef ekki breytt mér“ (Malakí 3,6) Hann er sá, sem allt snýst um, festan í tilverunni. Samfélög og alheimur, þar sem regla á að ríkja, verða að vera tengd honum. Þér segið, að allt sé að breytast, en það er ekki rétt. Vísindaleg lögmál (formúlur) breytast ekki. Maðurinn verður að laga sig að lögmálum al- heimsins, ef hann ætlar að tóra. Margföldunar- taflan hefur aldrei breytzt. Stafróið er óbreytt. Stjörnurnar hreyfast á föstum brautum, sem hafa verið ákveðnar fyrirfram. Sólin fer um óhaggan- lega braut, og ef hún breyttist, mundum við annaðhvort brenna eða frjósa í hel. Almanakið breytist ekki. Sjávarföllin breytast ekki. Og vilji Guðs varðandi mannkynið breytist ekki. Dómar hans breytast ekki. Boðorð hans breytist ekki. Elska og miskunn Guðs breytast ekki. Helvíti breytist ekki, og heimurinn hefur ekki breytzt. Mér er meir í mun að helgast í samræmi. við Guð, en að breyta boðskap mínum „í samræmi við“ nútímann. Það, sem þarf að breytast, er eðli mannsins, ekki eðli Guðs. Hundrað ára ártíðar Bólu-Hjálmars minnzt Haraldur Jakobsson, rúmlega fertugur aö aldri. Fyrir rúmum mánuöi hitti ég hann á förnum vegi, glaðan og reifan eins og venjulega. Hann var hvatlegur í spori og hýr í brá. Þá kom það mér ekki til hugar, að hann ætti svona skammt eftir. Vegir Guðs eru órannsakanlegir. Við vitum aldrei, hvað okkur er fyrir beztu. Lífið hér er stutt, alltaf stutt, sé miðað við það líf, sem tekur við fyrir handan. Nótt dauðans er ömurleg og okkur yfirleitt þung- bær, en hinn mikli meistari meist- aranna hefur tendrað liós í niða- myrkri dauðans, ljós, sem vekur von og fullvissu um eilíft dýrðar- lff, þar sem ófullkomleiki jarðlffs- ins hefur vikið fyrir ríki kær- leikans. Hans huggun var, þótt honum þætti sárt að hverfa svo skjótt frá konu, börnum, skyldu- liði og vinum, að menn lifa, þótt þeir deyi. Meistarinn Jesús Kristur sagði: Ég Iifi og þér munuð lifa. Það er sætt að hverfa frá þessu lífi með þessa sannfær- ingu f huga. Allt okkar líf hangir á bláþræði og okkar tími getur borið að hvenær sem er, að nóttu eða degi, við annir skyldustarfa eða í gleðskap góðvina. Haraldur var fæddur hér í Reykjavík 9. júní 1934. Foreldrar hans voru Jakob Jónasson rithöf- undur og María Jónsdóttir kona hans. Hann ólst upp f föðurhúsum ásamt fjórum systkinum. Har- aldur var mjög vel gefinn, bók- hneigður og skáldmæltur. Hann byrjaði ungur að aldri að vinna við verzlun. Verzlunarstörf stund- aði hann til æviloka, ýmist sem sölumaður eða afgreiðslumaður, úti á lándi eða hér f Reýkjavík. Kona Haraldar var Jónína Sfsí Bender. Þau eignuðust þrjú börn, eina dóttur og tvo sonu. Hans heitasta ósk var að koma börnum sínum vel til mennta. Fyrir rúmlega þremur vikum fór hann að finna fyrir þrautum innvortis. Áður en hann fór á sjúkrahús til rannsóknar, sagði hann við kunningja sína, að hann kæmi bráðlega aftur. En þetta fór á annan veg, því að annar mesti bölvaldur heimsins, krabbinn, varð honum að bana. Þegar honum varð ljóst, að dagar hans heill, menntun barna sinna, sem hann ætlaði að vinna að, verða að engu. En að lokum fékk hann aftur gleði sína, fól líf og heilsu allra sinna nánustu Guði á vald. Hann beygði sig og sagði: Guð, verði þinn vilji. Sáttur við Guð og menn sofnaði hann út af þann 16. sfðast liðinn. Guð blessi minningu hans, Guð blessi eftirlifandi konu hans og börn, foreldra og systkini og alla vini og kunningja. Skúli Guömundsson. Því lýkur jarðlffinu og ýmist hefur okkur tekizt að lifa því eða aðeins heyrt það fara hjá sem vindinn. Ég þekkti hann Harald, mann sem skynjaði og lifði þetta jarðlíf lifandi. Mér fannst meira að segja líkt honum að yfirgefa okkur svo fljótlega eftir að hann hafði heyrt um ólæknandi mein sitt. Lífsskoðun hans rúmaði ekki þá tilveru að kveljast af einhverri jarðneskri plágu. Ég kynntist honum í raun fyrir rúmu ári, en hafði þó þekkt til hans sem vinkona sýstur hans frá því hann var drengur. Mér varð það ljóst á þessu rúma ári, sem ég þekkti Harald, að líf hans hafði tekið margvislegar stefnur og sí- fellt var hugur hans í leit að nýstárlegum tiltektum, sem hann sjálfur sagði ekki henta heimi okkar, nema kannski síðasta starf hans, sem var fólgið í að kynna fólki nýjar leiðir í notkun hrein- gerningarefna hjá heildverzlun- inni West h/f. Haraldur hafði kynngimagnaða frásagnargáfu og var oft kraftbirtingarhljómur í lýsingum hans á einföldustu hlut- um tilverunnar. Honum tókst ávallt að sjá sjálfan sig í skemmti- lega skoplegu samhengi við um- heiminn og sat ég oft lengi og heyrði hann rifja upp æskudaga sína f sterkum og litríkum bún- ingi, í borginni eftir strið, þegar rómantíkin var blönduð bílum, brillkremi og rokki. Haraldur heitinn var fæddur í Reykjavik 9. júní 1934 og eftirlif- andi foreldrar hans eru merkis- hjónin María Jónsdóttir og Jakob Jónasson rithöfundur. Systkini hans eru þau Jón, Jenný, Helga og Jónas, sem öll eru búsett hér- lendis nema Jenný, sem dvelst í Tanzaníu ásamt fjölskyldu sinni. Ofangreindum aðstandendum svo og konu Haralds, Jónínu Sísí Bender, og börnum þeirra, Marfu 17 ára, Róbert 15 ára og Jakob Þór 12 ára, votta ég dýpstu samúð mina. Megi Haraldi farnast vel í nýj- um heimkynnum. Erla Guðmundsdóttir. Hann er farinn, sagði læknir- inn, og horfði á mig, Haraldur Jakobsson aðfaranótt 16. þ.m. Já, hann var farinn f burtu úr þess- um þjáða líkama, hann bróðir minn, en hvert? Hann sem hafði svo gaman af að lesa bækur um dulræn efni og rökræða um þau. Skildi hann finna það sem hann bjóst við? Ég hugsaðúmargt þessa stund, um leið og ég reyndi að fara með Faðir vorið, eins og ég lofaði móðurokkar. Við vorum fimm systkinin, tvær systur og þrír bræður. Haraldur var í miðið. Ég man hann svo vel sem ungan glaðværan dreng, sem gat sagt svo skemmtilega frá að allir höfðu ánægju af sem á hlustuðu. Hann hafði sérstakt lag á að fá fólk til að hlæja og notaði það óspart, þegar hann fann að þess var þörf. Síðan man ég þegar hann leyfði mér að fara með sér upp á Akranes, þegar hann var að keppa með Fram. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór þangað með Akraborginni. Það hefðu ekki allir drengir viljað hafa litlu systur með sér í svona ferðalag, og ég man hvað ég var stolt af honum. í íþróttafélaginu, sem þeir leikbræðurnir á Lindargötu stofnuðu, var hann alltaf fremst- ur og fékk styttu í verðlaun, sem ég sýndi öllum, sem komu heim, með stolti. Svo kom sá tími er við vorum ekki lengur áhyggjulaus systkini í foreldrahúsum. Við stofnuðum sjálf heimili og alvara lífsins mætti okkur í ýmsum myndum. Samband okkar var ekki lengur jafnnáið og áður, en þegar hann var orðinn veikur, urðum við aftur eins nátengd og systkini geta orðið. Við töluðum saman, og ég var með honum í baráttunni við þennan sjúkdóm, sem vonlaust var að berjast við. Hann sagði mér, að við færum saman til Akureyrar að heim- sækja Magnús lækni, vin þegar hann hresstist aftur, og hann hlakkaði til. En nú er hann horf- inn. Ég mun alltaf muna hann sem greindan, vellesin bróður, sem aldrei var hægt að munnhöggvast við. Ef tilveran hinum megin er eins og hann hélt, þá veit ég að hann hjálpar mér yfir landamær- in, þegar þar að kemur. Og þá tekur hann litlu systir með sér í ferðalag, þótt það verði ekki til Akureyrar. Systir. Afmælis- og minningar- greinar ATHVGLl skal \akin á þ\í, aó afmælis- og minningargreinar veróa aö berasl blaóinu meó góóum fyrirvara. Þannig veróur grein, sem birtast á i ntióvikudagsblaói, aó berast í síóasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlióstætt ^rneó greinar aöra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- fornii eöa bundnu máli. Þa-r þurfa aö vera vélritaöar og nteó góöu línubili._______ Mælifelli 21. águst. ÞESS verður minnzt með guðs-' þjónustu á Mælifelli á sunnudag- inn kemur, að liðin eru hundrað ár frá dauða skáldsins Hjálmars Jónssonar, sem jafnan er kenndur við Bólu í Blönduhlíð, þar sem hann bjó þó aðeins um 9 ára skeið. Hjálmar var þingeyskr- ar ættar, en ólst upp við Eyjafjörð og bjó þrjú ár á Bakka i öxnadal. 1824 gerðist hann bóndi á Nýjabæ í Ábæjarsókn. Var hann í Akra- ÞAÐ óhapp vildi til á miðvikudag, að einn af þremur hreyflum Sól- faxa, Boeing 727 þotu Flugfélags íslands bilaði þegar flugvélin var í flugtaki í Glasgow. Flugvélin, sem var á leið til Kaupmanna- hafnar var full af farþegum og reyndist ekki unnt að gera við hana á Glasgowflugvelli. Far- þegarnir voru því settir af þar og var reynt að koma sumum þeirra hreppi upp frá því, en loks vestan Vatna í Skagafirði á ævikvöldi. Eru ýmsar sagnir um hann bundnar þeim slóðum og vinum hans þar og einn merkasta við- burð langrar ævi lifði hann á Mælifelli þjóðhátíðarsumarið. Dvaldist hann á Starrastöðum þau misseri, en var nýfarinn þaðan er hann lézt hinn 5. ágúst 1875 í beitarhúsunum frá Brekku hjá Víðimýri. áfram með vélum annarra flug- félaga, en aðrir biðu fram á kvöld eftir Gullfaxa, sem kom við í Glas- gow á leið til Kaupmannahafnar. Sólfaxa var svo flogið heim til Keflavikur á tveimur hreyflum og mun ferðin hafa gengið vel. Lenti flugvélin á Keflavíkurflug- velli úm tvöleytið í gærmorgun. Flugstjóri i ferðinni var Viktor Aðalsteinsson. t Faðir okkar JÓNJÓNSSON frá Svanavatni á Stokkseyri lést að Landakotsspltala miðvikudaginn 20 ágúst litförin verður frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 8 sept kl 2 e h Astvaldur Jónsson Sigurður Jónsson. t Útför dóttur minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, SJAFNAR BJÖRNSDÓTTUR, verður gerð frá Fossvogskirkju, mánudaginn 25. ágúst kl. 1.30. Björn Gíslason, Laufey B Dupuis Davíð Andrésson Linda L. Dupuis Debora S. Dupuis og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við útför systur okkar GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR Ólafur Guðmundsson Soffia Guðmundsdóttir Ögn Guðmundsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, SIGURÐAR MARTEINS EYJÓLFSSONAR, frá Húsatóftum, Skeiðum. Gautlandi 15. Sérstaklega þökkum við stjórn og starfsmannafélagi Bæjarleiða. Fyrir hönd aðstandenda, . . , , Þiry Jónsdóttur og börn. Morðið á Róbert Kennedy: Tvö sönnunargögn horfín? Los Angeles 21. ágúst. AP. MÁLFLUTNINGSMAÐUR í Los Angeles, Dion Morrow, skýrði frá því 1 dag, að tvö sönnunargögn sem lögð hefðu verið fram vegna morðsins á Robert Kennedy vorið 1968 hefðu horfið. Var þar um að ræða loftplötur úr Ambassador hótelinu, þar sem morðið var framið, en í plötunum voru merki eftir byssukúlur. Sömu- leiðis hefði horfið vinstri frakkaermi öldungadeilda- þingmannsins. Einn rannsóknarnefndar- manna sagði, að eftir því sem hann bezt vissi væri þetta í fyrsta skipti sem að því hefði verið íað að eitthvað af upplýs- ingunum varðandi málið væru ekki lengur tiltækar. I rannsóknarnefnd þeirri sem hefur tekið málið upp að nýju hefur verið hvatt til að Ðion Morrow verði yfirheyrður. Af hálfu lögreglúnnar hefur komið fram andstaða við það að leggja öll spil á borðið vegna máls þessa og er því borið við að saklaust fólk kynni að verða fyrir óþægindum. Dion Morrow hélt þessu fram í viðtali við Los Angeles Daily Journal. Hann sagði að þil- plöturnar hefðu verið eyði- lagðar ári eftir atburðinn af því að ekki hefði verið hægt að koma þeim fyrir í skjalaskáp eins og öðrum gögnum. Aftur á móti hvarf nefnd frakkaermi áður en réttarhöldin fóru fram að sögn Morrows. Síra Ágúst. Boeing Fí á tveimur hreyflum frá Glasgow

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.