Morgunblaðið - 23.08.1975, Page 24
Barentshaf:
Fengu loðnu um leið
og komið var á miðin
ÞÆR vonir sem menn bundu við
loðnuveiðar Barkar, Guðmund-
ar og Sigurðm- f Barents-
hafi virðast ekki ætla að bregðast
eftir þeim fréttum, sem nú hafa
borizt af skipunum, en þau fengu
öll loðnu um leið og þau komu á
miðin, en aðein's hafa borizt frétt-
ir af tveimur fyrstu veiði-
dögunum.
Sigurður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri ísfells h.f., sem
gerir út Sigurð RE, sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, að skipin þrjú og einnig fær-
eysku skipin hefðu komið á miðin
16. og 17. ágúst og bræðsluskipið
Norglobal um leið. Þann 18. ágúst
hefðu öll skipin landað, Börkur
150 lestum, Guðmundur 270
lestum og Sigurður 330 lestum.
Þá hefði færeyska skipið Krún-
borg Iandað 290 lestum og Sól-
borg 170 lestum.
Daginn eftir eða þann 19. ágúst
lönduðu tvö skipanna, Börkur 340
lestum og Krúnborg 480 lestum.
Að sögn Sigurðar er loðnan,
sem þarna fæst, bæði stór og feit.
Sex herskip frá
NATO í heimsókn
SEX herskip úr flota Atlantshafs-
handalagsins eru væntanleg
hingað til lands f kurteisisheim-
sókn á mánudaginn. Skipín fara
öll f Hvalfjörð til hirgðatöku en
tvö þeirra koma sfðan til hafnar f
Reykjavfk og verða þar fram á
miðvikudag. Hin skipin leggjast
við akkeri. Þessi tvö skip heita
Iroquois, sem er frá Kanada, og
Eversten, sem er frá Hoilandi.
Breiðablik
í 1. deild
BREIÐABLIK úr Kópavogi
tryggði sér sæti í 1. deild á næsta
ári er liðið sigraði Þrótt 4:1 á
Fífuhvammsvelli í Kópavogi í
gærkvöldi. Hefur Breiðablik
hlotið 24 stig að 13 umferðum
loknum en Þróttur sem er í 2. sæti
í deildinni er með 21 stig þegar
einn leikur er eftir.
Mörk Breiðabliks f leiknum í
gærkvöldi gerðu Hinrik Þórhalls-
son, Þór Hreiðarsson, Heiðar
Breiðfjörð og Ölafur Friðriksson
en fyrir Þrótt skoraði Sverrir
Brynjólfsson á síðustu mínútu
leiksins. Fjölmargir áhorfendur
fögnuðu sigurvegurunum ákaft í
lokin. Breiðablik lék síðast í 1.
deild 1973.
Ölafur Egilsson deildarstjóri f
utanríkisráðuneytinu tjáði Mbl. í
gær, að í þessari flotadeild væru
herskip frá Bandaríkjunum,
Kanada, Portúgal, Bretlandi, Hol-
landi og Vestur-Þýzkalandi.
Flaggskip deildarinnar er
Iroquois, annað tveggja herskipa
sem leggjast hér að bryggju.
Flotadeild þessi er að sögn Ölafs
notuð til að þjálfa samstarf milli
flota aðildarrfkjanna og er tákn
útávið um samstarf þeirra. A
milli æfinga heimsækja þau
aðildarrfkin til skiptis. Hluti
áhafnar skipanna tveggja sem
koma í höfn stígur á land í
Reykjavík og mun m.a. heim-
sækja Keflavíkurflugvöll.
St jórn SR vill
tiíraunaveiðar
Á FUNDI stjórnar Síldarverk-
smiðja rfkisins f gær var eftir-
farandi tillaga samþykkt:
„Stjórn Síldarverksmiðja ríkis-
ins beinir þeirri áskorun til
sjávarútvegsráðuneytisins, að það
hlutist til um við Hafrannsóknar-
stofnunina, að annað skipa
hennar, Árni Friðriksson eða
Bjarni Sæmundsson, verði látið
stunda tilraunaveiðar á loðnu
með flotvörpu fyrir Norðurlandi
síðari hluta þessa mánaðar og í
septembermánuði n.k. Einnig
verði leigt eitt skip eða fleiri í
sama skyni, en verði undir stjórn
stofnunarinnar."
Á fundi, sem verksmiðjustjórn-
in hélt í gær, mætti Jakob Jakobs-
son. Lét hann i ljósi þá skoðun, að
með þessu móti mætti ganga úr
skugga um hvort um væri að ræða
Framhald á bls. 23
Einar Ágústsson
Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
VÖRUSYNINGIN — Fyrstu tízkusýningarnar á Alþjóð-
legu vöriisýningunni voru í gærkvöldi og fylgdist fjöldi
fólks með þeim. Þarna sýna dömurnar hausttízkuna.
Meira um vörusýninguna á bls. 3.
Margeir meö
betri stöðu
MARGEIR Pétursson tefldi í
gærkvöldi við Spánverjann
Pablo á heimsmeistaramóti
unglinga f Tjentiste f Júgó-
slavíu. Skákin fór f bið og
hefur Margeir betri stöðu.
Hann er nú með 3 vinninga og
biðskák eftir 6 umferðir en
efstu menn hafa4'A vinning.
I gær tefldu saman fjórir
efstu menn mótsins og fóru
báðar skákirnar f bið.
Útlit fyrir mikinn hey-
feng en gæðin misjöfn
r
Ometanlegir dagar,” segja bændur um þurrkdagana tvo
»» _
ÞURRKDAGARNIR tveir í
vikunni hafa gjörbreytt öllum
heyskaparhorfum um sunnan- og
vestanvert landið. t samtölum við
nokkra fréttaritara Mbl. á þessu
svæði kom fram, að margir bænd-
ur hafa náð inn miklum heyjum á
þessum þurrkdögum og sumir
hafa jafuvel lokið heyskap. En
vfðast er þó hluti túna enn ósleg-
inn en þar er kafgresi enda hefur
viðrað eindæma vel til gras-
sprettu syðra undanfarnar vikur.
„Ef þurrkar verða á næstunni má
reikna með að bændur nái inn
miklu meira heyi en f fyrra en
gæðin verða vafalaust minni,“
sagði einn fréttaritaranna sem
Mbl. ræddi við f gær, Björn
Erlendsson bóndi f Skálholti.
„Þetta voru góðir dagar sem
breyttu öllu til hins betra. Það var
bara verst að þurrkurinn skyldi
ekki standa Iengur," sagði Björn.
,yÁ tti von á meiri stuðn■
ingi frœndþjóðanna ”
— segir Einar Ágústsson, utanríkisráðherra
„ÉG verð að viðurkenna, að við
áttum von á að frændþjóðir
okkar á Norðurlöndum myndu
veita okkur meiri stuðning I
iandhelgismálinu en raun varð
á. Þó fengum við fram eina
setningu f yfirlýsingu fundar-
ins, sem við verðum vfst að
telja viðunandi,“ sagði Einar
Agústsson, utanríkisráðherra, f
samtali við Morgunblaðið f
gær, að afloknum fundi utan-
rfkisráðherra Norðurlanda sem
fram fór f Ósló.
Einar Ágústsson sagði, að það
hefði kostað mikinn þrýsting af
hálfu Islands að fá inn eina
setningu varðandi landhelgis-
málið. Um tima hefði hann
verið hræddur um að það feng-
ist ékki fram, frekar mótmæli
vegna fyrirhugaðrar útfærslu.
Þá sagði hann ennfremur:
„Eftir að búið var að ræða um
hafréttarráðstefnuna og lýsa
óskum um að hún mætti takast
vel kom setning sem fjallar um
landhelgismálið og er á þessa
leið: „Utanríkisráðherrar Dan-
merkur, Finnlands, Noregs og
Svíþjóðar láta í ljós skilning á
því ástandi sem liggur til
grundvallar útfærslu fiskveiði-
lögsögu íslands.“ Þá minntust
ráðherrarnir einnig á það sér-
staklega, að fslenzka ríkis-
stjórnin væri fús til að taka upp
viðræður við þær þjóðir, sem
lengi hefðu veitt á íslandsmið-
um.
Einar sagði einnig að í gær-
morgun hefði verið haldin sér-
stakur blaðamannafundur ráð-
herranna og landhelgismálið
verið þar mest í sviðsljósinu.
Hann hefði orðið að svara flest-
um spurningum fundarins
þannig að ljóst væri að mikill
áhugi væri á málinu. Ennfrem-
ur hefðu blaðamennirnir spurt
hina ráðherrana hvers vegna
hin Norðurlöndin veittu ekki
Islendingum meiri stuðning á
málinu. Svör ráðherranna
hefðu yfirleitt verið á þann veg,
að beðið væri eftir framhaldi
hafréttarráðstefnunnar og
svona mál þyrftu að takast fyrir
á breiðari grundvelli.
Að lökum sagði Einar, að
eftir blaðamannafundinn hefði
norska og norður-þýzka sjón-
varpið átt viðtöl við sig. Ekkert
sérstakt hefði komið fram á
þessum fundi, sem snerti Is-
land verulega annað er. land-
helgismálið.
Hann sagði að bændur f nágrenn-
inu hafðu nýtt þurrkinn vel en
ástandið væri misjafnt eftir
bæjum. I sama streng tók Markús
Jónsson bóndi á Borgareyrum i
Vestur-Eyjafjallahreppi. „Þessir
dagar breyttu miklu, björguðu
heyskapnum hjá mörgum
bændum," sagði Markús, en út-
litið hefði verið orðið æði ískyggi-
legt. Hann sagði, að enn væri tals-
vert óslegið á sumum bæjum og
þau tún væru óvenjulega vel
sprottin. Útlitið væri þannig núna
að heyfengur gæti orðið mikill að
vöxtum en misjafn að gæðum.
Hey hefði hrakið hjá þeim bænd-
um sem hefðu verið bjartsýnir og
slegið snemma en nú væru þau
hey nýkomin í hús og væri gott að
sjá ekki lengur bleika töðu liggja
á túnunum.
Magnús Sigurlásson á Eyrar-
landi f Þykkvabæ sagði að þurrka-
dagarnir tveir hefðu nýtzt vel f
sinni sveit og væru margir bænd-
ur búnir að hirða allt sitt hey.
Magnús kvaðst nýkominn úr
ferðalagi um Suðurlandsundir-
lendið og væri ástandið þar .gjör-
breytt frá því sem það var, alls
staðar mætti sjá hey sem væri
Framhald á bls. 23
Mikil loðna á miðunum
Siglufirði 22. ágúst.
SKIPVERJAR á skuttogaranum
Dagný héðan frá Siglufirði hafa
skýrt frá því, að er þeir fyrir
nokkrum dögum voru á
Strandagrunni og við Þverálinn,
hafi þeir orðið varir við
óhemjumagn af loðnu og hafi þeir
tekið stærðarsýnishorn, er þeir
fengu loðnu í trollið. Þessi loðna
reyndist vera 15—17 cm löng. m.j.