Morgunblaðið - 28.08.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1975
Viljum lýðræði í Portúgal
„AÐ sjóherinn I Portúgal sé
radikal? Það veit ég ekkert um,
kannski hann sé það fyrst þú
segir það,“ sagði stýrimaður á
portúgalska herskipinu Gago
Coutinho þegar Mbl. fór þang-
að um borð í fyrrdag. Stýrimað-
urinn og aðrir skipverjar vildu
ekki að nöfn þeirra kæmu fram
f blaðinu. „Segðu bara að þú
hafir talað við portúgalska her-
skipsmenn."
Morgunblaðsmenn komust
um borð í Gago Coutinho með
aðstoð skipsmanna á HMS
Argonaut og á báti frá þeim.
Skipsbátur Portúgalanna hafði
bilað og sjálfir komust þeir
ekki I land með góðu móti, og
gerðu margar tilraunir til að fá
báta til að sækja þá því „stúlk-
an frá bankanum sem kom til
að skipta fyrir okkur peningum
benti okkur á að fara á
Restaurant Sesar til að
skemmta okkur.“ Löngunin til
þess að komast í land var yfir-
gnæfandi hjá þeim skipverjum
sem við skeggræddum við og
stjórnmálin i Portúgal voru um-
ræðuefni sem þeir vildu lftið
ræða.
Skipherrann á Gago Coutin-
ho, Commander Niny Dos
Santos, hafði gefið okkur leyfi
til að fara um borð, en sjálfur
var hann I landi þegar okkur
bar að garði. Við ræddum fyrst
við nokkra yfirmenn sem sátu
yfir bjórglasi og góðri tónlist I
setustofu yfirmanna á meðan
beðið var ferðar i land. Þeir
yfirmenn sem við hittum voru
allir ungir menn, sem ekki
höfðu verið á sjónum ýkja
lengi. Allir voru þeir atvinnu-
menn i sjóhernum, en hinir
óbreyttu hins vegar flestir
unglingar að gegna herskyldu.
180 menn eru á skipinu, þar af
50 yfirmenn og foringjaefni.
Skipið sem er lítil freigáta var
smiðað f Lissabon eftir
ameriskri teikningu fyrir 7—8
árum. Það er búið ýmsum vopn-
um og er vanalega i samfylgd
tveggja systurskipa sinna i
æfinga- og eftirlitsferðum. I
flota Portúgals eru um 180
skip, að sögn skipsmanna ef
með eru talin ýmis minni skip
og varðbátar.
Sjóherinn i Portúgal er til-
Mænt löngunaraugum á skipsbát bandarfska herskipsins á leið til lands.
Portúgalska herskipið Gago Coutinho heimsótt
tölulega lítill ef miðað er við
flota annarra NATO-rfkja, en
að sögn skipsmanna er hann
heldur minni en landher Portú-
Yfirmenn ð Gago Coutinho f setustofu þeirra
gals en mannfleiri en flugher-
inn. Yfirmenn sjóhersins hafa
verið áberandi í byltingar-
hreyfingu hersins og er sjóher-
inn af mörgum talinn traust
vígi kommúnista i landinu. Yf-
irmenn skipsins vildu ekkert út
á þetta gefa, þegar um var
spurt, né vildu þeir yfirleitt tjá
sig um stjórnmálin i landi
þeirra. Þeir sögðust að vfsu
vera áhyggjufullir af fjölskyld-
um sfnum, enda hafa þeir verið
lengi f burtu. Þeir fengju á
hverjum degi fréttir að heiman
en erfitt væri að segja neitt um
ástandið nema vera í landinu.
Hinir óbreyttu sem við ræddum
við voru hins vegar opinskárri.
Einn sagðist telja að helmingur
áhafnar skipsins væri stuðn-
ingsmenn Soarcs og jafnaðar-
mannaflokksins, en hinn helm-
ingurinn styddi ýmsa aðra
flokka. Þessi maður var frá
borginni Oporto, þar sem mjög
miklar óeirðir hafa orðið. Hann
sagðist reyna að fylgjast með
því sem gerðist eins vel og hann
gæti og sagðist vera uggandi
um ástandið. Foringjaefni sem
við ræddum við um borð sagði
að flestir skipverjar vildu, eins
og langflestir Portúgalar, að í
landinu yrði komið á fót lýð-
ræði með almennum þegnrétt-
indum.
Þegar við kvöddum Portúgal-
ana var hópur þeirra kominn i
land. Um borð í skapinu var
rikjandi ringulreið og lítil
stjórn. Yfirmenn rifust og æptu
hverjir á aðra og Morgunblaðs-
menn fengu að valsa einir um
þvf nær allt skip án eftirlits. Og
þegar skipsmenn komu í land
var yfirmaður þeirra búinn að
skipta um föt og kominn í borg-
araleg klæði. Hann ætlaði að
skemmta sér ekki síður en aðr-
ir. Þeir sem eftir voru drápu
tímann með gítarleik og spila-
mennsku. Þeirra vandi í augna-
blikinu var ekki ástandið i
heimalandinu heldur annar og
mannlegri.
Nokkrir óbreyttir skipverjar hafa ofan af fyrir sér f matsalnum
með gftarleik og söng
Tollgæzlustjórú
Tollgreiðslan samkvæmt
reglugerð frá árinu 1957
1 TILEFNI af frétt Mbl. f gær um
tollgreiðslu af kosti Gfsla Árna
RE 375 hefur Kristinn Ólafsson
tollgæzlustjóri óskað eftir þvf að
meðfylgjandi bréf hans til út-
gerðarfyrirtækisins verði birt.
Fer bréf tollgæzlustjóra i heild
hér á eftir:
Sjóli h/f,
hr. Júlfus Ingibergsson, útgerðar-
stj.,
Fjölnisvegi 9,
Reykjavfk.
KÓ/ÁG 15. ágúst 1975.
M.b. Gisli Árni kom til Reykja-
víkur þann 22. júlí sl. eftir að
hafa verið á síldveiðum f Norður-
sjó.
Mikið magn matvæla var í bátn-
um við komuna, einkum þó af
kjúklingum, en af þeim hafa kom-
ið fram rúmlega 34 kassar, sem
hver um sig vegur um 12,6 kg.
Kjúklingabirgðirnar einar sér
nálgast þvi að vera hálft tonn.
Hefur tollgæslan lagt hald á 34
kassa og 5 stk. af kjúklingum og 3
dósír af skinku, sem hver um sig
vegur um 5 kg.
Við eftirgrennslan var talið, að
12 kassar af kjúklingum tilheyrðu
vistum bátsins og hafið þér, hr.
útgerðarstjóri, óskað eftir að fá
þá kjúklinga aftur um borð i bát-
inn.
I reglugerð nr. 41/1957 um toll-
heimtu og tolleftirlit er svofellt
ákvæði i 61. gr.:
„Þegar utanlandssiglingu skips
lýkur ber því að greiða aðflutn-
ingsgjöld af vistabirgðum sfnum
og fullnægja öðrum innflutnings-
skilyrðum, og afhenda birgðir sín-
ar af einkasöluvörum til tolleftir-
litsins, sem skilar þeim til við-
komandi ríkiseinkasölu. Innlend
fiskiskip teljast vera i utanlands-
siglingum, meðan þau veiða afla,
er þau síðan sigla með til útlanda,
en er þau hefja veiðar, eða aðrar
siglingar að nýju skal svo með
farið, sem greinir hér á undan.“
Þann 29. júli sl. töldu tollverðir
matarbirgðir í m/b Gísla Árna,
sem keyptar höfðu verið erlendis.
Fylgir hér með I myndriti skýrsla
um þá talningu. Samkvæmt til-
vitnuðu reglugerðarákvæði ber
að greiða aðflutningsgjöld af
þeim vistum, sem fram komu við
talninguna og getið er um i taln-
ingarskýrslunni. Nema aðflutn-
ingsgjöldin kr. 98.276.— sam-
kvæmt útreikningi tollgæslunnar
á meðfylgjandi aðflutnings-
skýrslu.
1 tilvitnuðu reglugerðarákvæði
er ennfremur boðið að fullnægja
skuli öðrum innflutningsskilyrð-
um en greiðslu aðflutningsgjalda.
Sá þáttur reglugerðarákvæðisins
tekur einkum til kjúklinganna,
sem teknir hafa verið i vörslu
tollgæslunnar, en þeir eru háðir
innflutnings- og gjaldeyrisleyfi
samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr.
370/1974. Slfkra leyfa ber yður
MIKIL aukning hefur verið á
flutningum með Akraborg frá því
að aðstaðan f Reykjavfkurhöfn
batnaði fyrir afgreiðslu skipsins
og sett var flotbryggja, svo að
bflar gætu ekið beint f ferjuna.
Samkvæmt upplýsingum Þórðar
Hjálmssonar hefur ferjan flutt að
meðaltali um 120 bfla á dag —
mest 167 bfla einn daginn. Bfla-
fjöldinn hefur aldrei farið niður
þvi að afla áður en hægt er að
fallast á að afhenda aftur um borð
í bátinn kjúklingakassana 12.
Auk þess ber að greiða af þeim
innflutningsgjöld, sem beðið
verður með útreikning á, þangað
til innflutnings- óggjaldeyrisleyfi
eru fengin, þar sem tollafgreiðsla
þeirra er ekki heimil fyrr, sbr. 4.
gr. reglugerðarinnar og 3. gr. laga
nr. 30/1960 um skipan innflutn-
ings- og gjaldeyrismála o.fl.
Frestur til þess að afla leyfanna
er hér með veittur til 1. okt. n.k.
Að þeim tíma liðnum verður
kjúklingunum ráðstafað sem
ótollafgreiddum.
Aðflutningsgjöld af öðrum vist-
um bátsins, kr. 98.276.—, óskast
greidd eigi síðar en 1. sept n.k..
Hafi þá ekki verið gerð á þeim
skil, verða þær fluttar í vörslu
tollgæslu og síðan ráðstafað eins
og öðrum ótollafgreiddum varn-
*n®*' Virðingarfyllst
K.Ó.
fyrir töluna 100 frá þvf er flot-
bryggjan komst f gagnið.
Þórður sagði að allur tækja-
búnaður hefði reynzt vel og taldi
hann að 200 þúsund króna tekjur
á dag myndu standa undir rekstri
ferjunnar og lét hann þess getið,
að hefði þessi aðstaða fengizt
strax, er ferjan kom til landsins,
hefði eigendum tekizt að greiða
Framhald á bls. 18
Sýningu að ljúka
GÓÐ aðsókn hefur verið að
sölusýningunni á Loftinu,
Skólavörðustíg, að undan-
förnu. Þar eru sýnd 22
verk eftir 10 listamenn.
Sýningunni lýkur á morg-
un klukkan 18.
Breytingar á
launaflokkum
SAMKOMULAG það , sem tókst
með samninganefnd undirmanna
á kaupskipaflotanum og útgerðar-
félögunum, var kynnt á fundi Sjó-
mannafélags Reykjavíkur f gær,
en fundinn sóttu um 80 manns.
Guðmundur Hallvarðsson,
starfsmaður Sjómannafélagsins,
sagði er Mbl. ræddi við hann í
gær, að helztu breytingar frá
gömdlu samningunum væru, að
breyting verður á launaflokkaröð
til samræmis við yfirmenn um
borð f skipum og nær þessi breyt-
ing einnig til yfirvinnu.
Þá er ákvæði um sérstakar
greiðslur til undirmanna, þegar
þeir vinna ákvæðisvinnu við hlið
verkamanna f höfnum hér á landi.
Allherjaratkvæðagreiðsla um
nýju samningana er hafin hjá Sjó-
mannafélaginu og stendur hún
,fram til kl. 17. n.k. þriðjudag.
Rekstur Akraborg-
ar gengur vel