Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. AGUST 1975 — Minning Halldór Framhald af bls. 23 vist, en skömmu áður en hann dó sagði hann við mig: „Það er verst að ég má alls ekki vera að því að liggja hérna.“ Hann átti svo fjöl- mörg verkefni áformuð, sem hann hlakkaði til að leysa af hendi. Við samstarfsmenn Halldórs söknum hans sárt og sendum Þóru Dagbjartsdóttur konu hans og Þórhalli syni hans okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Þorsteinn Gfslason.- Við vitum, að góður guð hefur kallað Halla frænda til sín og nú Ilður honum vel. Við vitum líka að nú er hann orðinn „Halli frændi“ allra litlu barnanna á himnum, því hann var ekki aðeins bezti frændinn okkar systkina- barna Þóru frænku, heldur og vinur allra barna. Það var mikill söknuður, þegar við gátum ekki lengur heimsótt ykkur í Fögrubrekkuna. Þær mót- tökur eru okkur ógleymanlegar, hvort sem við komum þar við á leið heim úr skólanum eða á öðrum tímum. Barnalög af plötum voru spiluð og alltaf gætti hann þess að eiga til ís I Iitla munna, og svo ótal- margt fleira. Svo þegar litlu pakkarnir tóku að berast alla leið frá Ameríku, þá vissum við, að Halli hugsaði enn til okkar. Það var stór stund, þegar fímm ára clrengur fékk „alvöru úr“ í jóla- gjöf, með sérstakri kveðju frá Halla frænda. Það gleymist aldrei. Við söknum hans mikið. En við munum ávallt muna hve góður og glaður hann var. Við biðjum góðan guð að geyma hann og styrkja Þóru frænku og Þórhall, þau hafa misst svo mikið. Nú legg ('£ augun aflur, ó, guð, þinn náðarkraflur mfn veri vörn f nóll. Æ, virzt mig að þór taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Við þökkum Halla frænda fyrir allt. Guð blessi hann. Sigrún, Einar, Ingvar, Jón Bjarni og Ingólfur. Þann 17. ágúst lézt Halldór Þór- hallsson á spftala I Greenwich, Connecticut. Fráfall Halldórs var skyndilegt og kom öllum að óvör- um. Halldór hafði kvartað undan minniháttar truflunum í maga nokkra síðustu mánuði en engum datt I hug að veikindi hans væru alvarlegs eðlis. Halldóri kynntist ég ekki fyrr en hann flutti hingað vestur og tók til starfa hjá Coldwater Sea- food Corporation I Scarsdale, New York, en fyrir mörgum árum hafði ég kynnzt foreldrum og bróður hans og sérstaklega Ásu systur hans I Boston. Hjá Cold- water sá Halldór um gerð auglýs- inga og reyndist Halldór mjög góður starfsmaður. Hann var óvenju vandvirkur og samvizku- samur I starfi og var alltaf viljug- ur að hjálpa öðrum. Halldór og Þóra kona hans áttu mjög fallegt heimili í Scarsdale, New York. Þórhallur, sonur Hall- dórs, les nú verkfræði við Stony Brook háskólann á Long Island. Þeim sendi ég innilegustu sam- úðarkveðjur við fráfall þessa prýðismanns. Þorsteinn Þorsteinsson. Stýr mfnu fari heilu heim f höfn á friðarlandi, þar mig í þinni gæslu geym, ó, Guð minn allsvaldandi. Vald. Briem. Hinn 17. ágúst síðastliðinn lést Halldór G. Þórhallsson, auglýs- ingastjóri hjá Coldwater Seafood Corporation í New York, eftir stutta sjúkdómslegu. Halldór fæddist í Vestmanna- eyjum 27. júlí 1924, kominn af góðu fólki, Þórhalli Gunnlaugs- syni, stöðvarstjóra, og konu hans Ingibjörgu Ólafsdóttur. Við, sem þessar línur ritum, kynntumst Halldóri, er hann kvæntist seinni konu sinni, Þóru Dagbjartsdóttur. Þau byggðu heimili sitt að Fögrubrekku 1, Kópavogi. Þangað þótti okkur systkinabörnum Þóru ávallt gott að koma, enda var það sérlega listrænt og smekkiegt heimili, gestgjafar örlátir og ekki síst við okkur börnin. Til New York fluttu þau í febrúar árið 1972 og bjuggu þar til dánardægurs Halldórs, sem að framan greinir. Halli „frændi“, sem hann jafn- an var kallaður hjá oRkur, var ávallt reiðubúinn að rétta öðrum hjálparhönd, ef með þurfti. Góð- látleg kímni hans og falslaus framkoma laðaði fólk að honum, enda var hann félagslyndur, greinargóður og glöggskyggn á marga hluti. Nú, þegar leiðir skilja, vitum við að trú hans verður honum leiðarljós í nýjum heimkynnum, eftirlifandi konu hans styrkur og syni hvatning I námi og starfi. Blessuð sé minning hans. Vinir. Trúðu á tvennt í hrimi, tign sem æðsta ber, Guð í alheimsgeimi — Guð í sjálfum þér. Þegar mér var tilkynnt andlát vinar míns Halldórs, datt mér fyrst I hug þessi fallega vísa, — enda finnst mér hún lýsa honum best og þeirri trú sem hann bar til lífsins. Það fylgir því undarlegur tómleiki, þegar maður fréttir það, að einhver samferðamannanna hafi horfið skyndilega af sviði lífsins. En þegar það er náinn vinur, sem kveður, verður maður gripinn söknuði og gildir þá einu, hvort sá er ungur eða aidinn. — Halldór Þórhallsson var fæddur 27. júlí 1924 og uppalinn í Vest- manneyjum, sonur hjónanna Ingibjargar Ólafsdóttur og Þór- halls Gunnlaugssonar fyrrum símstöðvarstjóra í Vestmanna- eyjum. Arið 1947 kvæntist Halldór Þóru Ólafsdóttur, en nokkrum árum síðar slitu þau hjónabandi sínu. Þá höfðu þau eignast einn son Þórhall, sem stundar nú nám í rafmagnsverkfræði við ríkis- háskólann í New York — og var hann augasteinn föður síns, enda voru þeir óvenju samrýndir feðgar. Arið 1963 kvæntist Halldór eftirlifandi konu sinni, Þóru Dagbjartsdóttur, mestu myndarkonu — þeirra líf rann I einum farvegi, enda bar heimili þeirra að Fögrubrekku skýran vott um það. Ég kynntist Halldóri ekki fyrr en við byrjuðum að starfa saman við Kópavogsbíó — en þar starfaði hann sem sýn- ingarstjóri í 12 ár eða til ársins 1972, er hann hóf starf sem auglýsingastjóri hjá Coldwater í Bandaríkjunum. Það má með sanni segja að starf sem auglýs- ingarstjóri hjá stórfyrirtæki og það í Bandaríkjunum er ekki á færi neinna aukvisa, enda er mér sagt, að þar hafi hann staðið sig með miklum sóma og unnið óeigingjarnt starf. En Halldór hafði lært auglýsingateiknun i Danmörku að loknu stúdentsprófi — með mjög góðum vitnisburði. Halldór Þórhallsson var einn sá prúðasti maður í framgöngu sem ég hef kynnst, en jafnframt skap- heitur og tilfinninganæmur, ef því var að skipta. Hann var hins vegar svo dulur, að tilfinningum sfnum flíkaði hann sjaldan. Hugstæðust er mér kannski kimni hans, leikandi létt, sagnasjóður hans og einstök frásagnarlist, allt var það svo græskulaust og grómi firrt, enda heyrði ég hann aldrei hallmæla neinum, allt slíkt var eðlisfari hans viðsfjarri. Þær birt- ast hinar Ijúfu og björtu minn- ingar, sem ég á um Halldór, þær eru ótaldar ánægju- og gleði- stundyrnar, sem við i mynni fjöl- skyldu höfum notið f návist Halldórs, bæði heima hjá mér og á heimili þeirra hjóna. Hann setti svip sinn á alla vinafundi, hvort sem tílefnið var afmæli, ferming eða bara venjuleg vináttu- heimsókn. Hann var bæði skemmtilegur gestur og góður gestgjafi og þau hjónin voru indæl heim að sækja. Það er fleira en sameiginlegar gleði- stundir, sem mig langar að þakka Halldóri vini mínum fyrir. Ég vil þakka honum og Þóru fyrir það atlæti er þau ávallt sýndu mínum börnum — og sér í lagi Braga, sem biður fyrir sérstakar kveðjur til hans. Ég bið Guð að blessa fjölskyldu Halldórs svo og ástvini og jafn- framt að styrkja þau í harmi nútiðarinnar, svo vel sem í störfum framtíðarinnar. Hafi Halldór þakkir mínar fyrir samveruna og allar góðu minn- ingarnar. Geymi hann ávallt góður Guð. G. H. Jónasson. — Hey selt Framhald af bls. 2 boð um bygg frá Kanada og var tonnið af því á 157 dollara. Þessar breyttu aðsíæður hafa haft þau áhrif á lönd Efnahags- bandalagsins, sem voru með út- flutningsuppbætur á fóðurbæti i vor og sumar, er voru 119,30 krón- ur danskar á tonnið voru lækkað- ar í júlí niður í 85.30 krónur danskar á tonnið og nú fyrir skömmu voru þær felldar alveg niður. Þetta leiðir til hækkunar á fóðurbæti, sem neytendur verða að bera og við hana bætist, að á sama tíma og þeir felldu niður útflutningsbæturnar leggja lönd Efnahagsbandalagsins útflutn- ingsskatt á hafra, bygg, hveiti og maís og er þessi skattur 90.90 dollara á tonnið. Að sögn Gísla keypti SÍS í gær maís frá Kanada en vegna hins breytta verðlags er ógerlegt að kaupa fóðurbæti i Evrópu. Hvað snertir fóðurblöndur, sem mest hafa verið fluttar inn frá Danmörku, er það að segja, að ekki er hægt að fá útflutnings- leyfi fyrir þær i löndum Efna- hagsbandalagsins og gæti það bent til þess að þeir ætluðu líka að setja útflutningsskatt á fóður- blöndur. Gísli sagði, að Samband- ið, sem flytur inn milli 60 og 70% af öllum fóðurbæti, væri búið að kaupa til landsins fóðurblöndur og hráefni til fóðurblöndunar, sem dygði fram til áramóta. Gísli sagði, að ákveðið hefði verið að jafna hinni miklu hækk- un fóðurbætis niður á þrjá mán- uði og ætti hann að hækka mán- aðarlega og gera mætti ráð fyrir að um mánaðamótin nóvember — desember yrði verðið 30% hærra en það var I júlí og er þá miðað við núverandi gengi. Verð á hverju kílói af sekkjaðri kúa- fóðurblöndu er I dag 35 til 36 krónur en f einu kílói er ein fóóureining. Gunnar Bjarnason hjá Fóður- eftirliti ríkisins sagði að þessir kögglar, sem Sambandið ætlar að flutja inn til tilraunar, væru mjög eggjahvítuauðugir og væri í þeim álíka mikil eggjahvfta og í mjög góðu fslenzku heyi. Hins vegar væri orkuinnihald þessara köggla minna en hinna islenzku, en af dönskum kögglum þarf 1,7 til 1,8 kg í fóðureininguna en 1,4 kg af þeim íslenzku. Þetta verður þó allt rannsakað nánar þegar dönsku kögglarnir koma til lands- ins og þeir þá gæðametnir á sama grundvelli og íslenzku kögglarnir en þeir eru í þremur flokkum og er verð þeirra að sama skapi mis-. jafnt. Gunnar kvaðst telja senni-. legt að þessir dönsku kögglar- væru svipaðir að gæðum og þeir. kögglar, sem framleiddir væru hér sem þriðji flokkur og nefnd-. ust heymjölskögglar. Hér á landi eru starfræktar nokkrar heykögglaverksmiðjur auk þess sem reknar eru nokkrar færanlegar verksmiðjur, sem framleiða svonefndar graskökur. Árleg framleiðsla þessara verk- smiðja er rúmlega 5000 tonn á ári. Að sögn forráóamanna þeirra verksmiðja sem blaðið hafði tal af í gær, hefur framleiðslan í sumar gengið vel og gífurleg eftirspurn hefur verið eftir kögglum en hvert kíló af fyrsta flokki þeirra kostar nú 35 krónur. Verksmiðj- urnar halda áfram að framleiða köggla fram eftir september en nú er vfða að hefjast sláttur hafra og rígresis, sem sprottið hafa vel í sumar en nýting þeirra kann að ráðast nokkuð af veðráttu. Hin slæma heyskapartíð hefur valdið því að mjög lítið framboð er á heyi sunnanlands og í Borgarfirði. Bændur í Skagafirði og Eyjafirði eru einna bezt settir og hafa þeir selt töluverð hey. Einnig eru einstaka bændur I öðr- um sveitum aflögufærir þó að Ift- ið sé um það vegna ótíðar. Bergur Magnússon hjá Hestamannafélag- inu Fáki í Reykjavík. en Fákur er stærsti heykaupandi landsins sagði, að félagið væri búið að tryggja sér nægjanlegar hey- birgðir en það notar um 500 tonn á ári. Mest kvað hann félagið hafa keypt í Skagafirði og Eyjafirði og hefði verð þar verið um 15 krónur komið á bfl en síðan bættist við flutningskostnaður að norðan, sem er milli 5 og 6 krónur á kílóið. Hann sagði að meðalverð í fyrra hefði verið 8 til 9 krónur. Eftir þvf sem Mbl.kemst næst virðist heyverð sunnanlands vera milli 18 og 20 krónur en hafa verður í huga að sunnanlands eru hey mjög misjöfn vegna ótíðar en að sögn þeirra, sem blaðið hafði tal af fyrir norðan, eru hey þar yfirleitt góð. — Kristinn Framhald af bls. 2 sér f gamla Vísi,“ sagði Kristinn. Morgunblaðið spurði Kristin hvort blaðstjórn Tfmans og stjórn Blaðaprents hefðu tekið afstöðu til þess hvort nýtt dag- blað yrði prentað á undan Vísi í Blaðaprenti. Kristinn sagði, að blaðstjórn- in hefði enn ekki tekið afstöðu til málsins og ekki heldur stjórn Blaðaprents. Morgunblaðið reyndi í gær, að ná tali af fulltrúa Alþýðu- blaðsins og Þjóðviljans í Blaða- prenti en tókst ekki. I Þjóðviljanum í gær er einnig fullyrt, að Albert Guðmunds- son alþingismaður og borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins f Reykjavík verði hluthafi í nýju dagblaði. Morgunblaðið sneri sér í gær til Alberts Guðmunds- sonar og spurði hvort þetta væri rétt: „Ég hef fengið bréf frá stofn- endum Nýja Vísis, þar sem mér er boðið að gerast hluthafi í útgáfufélaginu og ég get sagt með ánægju að ég ætla mér að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu. — Hvað ég læt mikið fé af hendi rakna hefur enn ekki komizt á umræðustig.“ Þá spurði Mbl. hvort hann teldi, að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti að eignast málgagn. Hann sagði, að ekki væri það brýn nauðsyn. Morgunblaðið hefði stutt vel við bakið á Sjálf- stæðisflokknum á undanförn- um árum, enda væri gott að blöð styddu ákveðinn flokk. Munnlegur málflutningur f hinu svonefnda Vfsismáli hófst kl. 10 f gærmorgun hjá fógeta- rétti á Seltjarnarnesi. Eftir að málflutningi lauk um kl. 12 var málinu frestað þar til í dag, en þá er vonazt til að úrskurður verði kveðinn upp. Mál, þetta höfðar Reykja- prent h.f. gegn Jónasi Krist- jánssyni fv. ritstjóra vegna fyr- irhugaðrar notkunar á nafninu Nýr Vísir að frjálsu dagblaði. — Goncalves Framhald af bls. 1 urinn til fjöldafundar til að mót- mæla því, að hershöfðingi, sem er hlynntur kommúnistum, var lát- inn taka við starfi á ný sem yfir- maður hersveita í norðurhlu*a landsins, þrátt fyrir ótvíræða and- stöðu hans eigin hermanna. Hafði hershöfðingjanum sem heitir Euricho Corvacho, verið vikið frá fyrir nokkrum dögum og var þá litið á það sem verulegan hnekki fyrir kommúnisk öfl innan hers- ins. Á fundi Sósíalistaflokksins í kvöld létu ræðumenn þá skoðun f ljós að kommúnistar og herinn undirbyggju nú að taka endan- lega öll völd í landinu í sínar hendur. I bænum Esmoriz meiddust tveir menn, þegar kommúnistar skutu að fólki sem safnazt hafði að bækistöðvum flokksins f bæn- um, og gerði sig líklegt til að ráðast þar til inngöngu. Þá kom einnig til átaka í bæn- um Leiria, þriðja daginn í röð. Skutu kommúnistar á mannfjölda sem hafði safnast saman úti fyrir bækistöðvum flokksins og særð- ust tveir menn. Sfðdegisblaðið Diario de Noticias, sem styður kommúnista, faði í dag að því í fyrsta skipti, að svo kynni að fara, að Goncalves léti af embætti forsætisráðherra. .1 blaðinu sagði, að byltingarráðið myndi koma saman á morgun og ræða möguleika á að skipa annan mann forsætisráðherra og yrði sá hliðhollur kommúnistum. Þá sögðu fréttir frá Lissabon f dag, að þeir Costa Gomes, Carvalho og Carlos Fabiao, sem einnig hefur verið nefndur líklegur eftirmaður Goncalves hefðu verið á fundum í dag til að ræða verkaskiptingu sín á milli eftir að Goncalves væri farinn frá. — Selassie Framhald af bls. 1 ann. Var það þjónn sem kom að Selassie I morgun látnum, sam- kvæmt fréttinni. Tilkynningin um lát Hailes Sel- assies, sem áður var þjóðhöfðingi 27 milljón manna, vakti engin áköf viðbrögð i Addis Ababa, og hún var lesin upp f venjulegum fréttatíma, en dagskrá ekki rofin til að skýra frá andlátinu. Talið er hugsanlegt að Iát hans muni enn auka á leyndardóminn kringum auðæfi þau sem herstjórn Iands- ins heldur fram að Selassie hafi komið fyrir i bönkum í Sviss. Eþíópísk stjórnvöld segja, að verðmæti þessara auðæfa nemi 15 milljörðum dollara og reynist það rétt má búast við deilum erfingja keisarans og herstjórnarinnar vegna þeirra. Selassie hafði óskað eftir því, að hann yrði grafinn í glæsilegu grafhýsi sem hann lét byggja í kapellu hallar sinnar í Addis Ab- aba, en ekki var vitað um afstöðu herstjórnarinnar til þessarar ósk- ar. — SUS-þing Framhald af bls. 19 félagssvæða F.U.S.-félaga geta þannig orðið þingfulltrúar I gegnum þessi samtök Ég vil eindregið hvetja alla unga sjálfstæðismenn sem áhuga hafa á þátttöku í þinginu að hafa samband við forráðamenn við- komandi félags- eða kjördæmis- samtaka eða þá að snúa sér beint til skrifstofu S.U.S. I Reykjavik fer fram skráning fulltrúa á skrifstofu Heimdallar i Galtafelli. Það auðveldar okkur mjög allan undirbúning að fá sem fyrst upp gefin nöfn væntanlegra þing- fulltrúa. — Nauðgun Framhald af bls. 32 var að hinn kærði verknaður hafði verið framinn. Maðurinn náðist svo I gærkvöldi uppi i Mos- fellssveit, en hann var þá að koma á bfl ofan af Akranesi. Við yfir- heyrslur hjá rannsóknarlögregl- unni í gærmorgun játaði hann svo verknaðinn. — Rekstur Framhald af bls. 3 sinn hluta i kaupverðinu. Mikil aðsókn virðist vera í ferjuna, bæði af litlum bílum svo og stór- um bílum, sagði Þórður. Fargjald fyrir ökumann og bfl er 1.000 krónur, en fjargjald fyrir mann án farartækis er 600 krón- ur. Sé farþegi með ökumanni i bil er fargjaldið 1.400 krónur og séu farþegarnir 2 með ökumanni er fargjaldið 2.000 krónur alls. Ef um þrjá farþega er að ræða, greiða þeir með ökumanni 2.400 krónur og er þá ekkert fargjald fyrir bílinn. Fyrir stóra bfla, t.d. vöruffutningabíla, sem eru 8 til 10 metrar að lengd, kostar farið 2.500 krónur með ökumanni, án tillits til þyngdar farmsins í biln- um. — Skar á víra Framhald af bls. 2 sjómílur fyrir utan fiskveiðimörk- in. Þess má geta, að varðskipið Ægir tók Arcturus á sinum tfma á veiðum innah 50 mflna markanna og flutti togarann til Vestmanna- eyja, þar sem skipstjóri togarans var dæmdur fyrir Iandhelgisbrot. Að sög Gunnars hafa þýzku eftirlitsskipin, sem halda sig á Islandsmiðum, fylgzt mjög náið með ferðum fslenzku varðskip- anna og tilkynnt togurunum, m.a. stefnu þeirra, staðsetningu og hraða. Lengi vel notuðu eftirlits- skipin hin réttu nöfn varðskip- anna, en nú nota þau dulnefni. Þá fylgjast eftirlitsskipin vel með hvaða varðskip eru í höfn í Reykjavík, er þau koma þangað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.