Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1975 13 Föt Buxur Jakkar Frakkar Skyrtur Peysurofl. Nú er tækifsri til að fata sig upp hjá ÓAndersen Œb Lauth hf. Vesturgötu 17, Laugavegi 39. Sjötta skipið bætist í flota Hafskips hf. SJÖTTA skipið hefur nú bætzt I flota Hafskips og heitir það skip Rangá. Skipið var afhent í Ham- borg og heldur þaðan á hádegi f dag, þriðjudag, til Kaupmanna- hafnar, Gautaborgar og Frederikstad og sfðan til Reykja- víkur. Er skipið væntanlegt til Reykjavíkur f fyrsta skipti þann 6. sept. nk. Nýja skipið hét áður Peter Wessel og var í eigu þýzkra aðila smíðað árið 1966. Það er tæplega 1200 lestir og hið minnsta af skip- um Hafskips að burðargetu. Ganghraði þess er 12 hnútar. Skipstjóri er örn Ingimundarson, sem áður var skipstjóri á Hvitá. Hafskip átti lengi vel fjögur skip, en af þeim er nú aðeins Langá eftir. Hins vegar hafa fimm skip komið i staðinn á undanförnu Vá ári og eru flest stærri en gömlu skipin voru, þannig, að mikil burðargetuaukn- ing hefur orðið í flota Hafskips á skömmum tima. 1200 íbúa hverfi skipulagt UM ÞESSAR mundir er verið að ganga frá skipulagi nýs Ibúðar- hverfis I Hafnarfirði, í Hvömmum fyrir sunnan klaustrið. Gert er ráð fyrir að þarna verði blönduð byggð og verði þar samanlagt 300 ibúðir með allt að 1200 ibúum. Vonazt er til að hægt verði að hefja byggingarframkvæmdir í þessú nýja hverfi á árinu 1977. Á blaðamannafundi hjá bæjarstjórn Hafnarfjarðar kom fram að á hverju ári er úthlutað i Hafnar- firði lóðum fyrir 100 til 110 íbúðir, en eftirspurn eftir einbýlishúsalóðum hefur verið til muna meiri en hægt hefur verið að sinna. Valdatökunefnd lýsir yfir stofnun nýrrar stjórnar Tokyo 25. ágúst — AP. „VALDATÖKUFUNDUR“ var haldinn í Vientiane, höfuðborg Laos, á laugardag, og lýsti fund- urinn því yfir að byltingarstjórn alþýðunnar hefði tekið við af gömlu stjórninni I Vientiane, að sögn kínversku fréttastofunnar Hsinhua. ! útvarpsfregnum, sem heyrðust f Tokyo, var sagt að um 100.000 manns hefðu verið við- staddir fundinn, þar á meðal Phoun Sipaseuth, varaforsætis- ráðherra bráðabirgðaþjóðstjórn- arinnar. Sagði í frétt Hsinhua að Thao Moun, formaður „valdatöku- nefndar" Vientiane „hefði flett ofan af og fordæmt á fundinum glæpi bandarísku heimsvalda- stefnunnar og afskipti hennar og nýlendustefnu í Laos síðustu tvo áratugi og kúgun hægri öfga- manna og arðrán." Hsinhua sagði, að Thao Moun hefði Iýst yfir að byltingarstjórn alþýðunnar myndi sitja í Vientiane. Jasmme svefnsófinn Hvort heldur sem er: Fallegur sófi eða tvíbreitt rúm. Breidd: 170 cm, dýpt: 91 cm, hæð: 80 cm. Rúm: 135x190 cm. Sófinn er til sýnis í sýningarbás okkar í Laugardalshöll Hjá okkur er úrvaliÓ af svefnhúsgögnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.