Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. AGÚST 1975 11 Mótmæla síldarverði MORGUNBLAÐINU bárust f gær mótmæli þeirra aðila, sem síld- veiðar f reknet stunda við Vestur- land. Telja þeir að verð það, sem ákveðið var á sfld til frystingar fyrir stuttu, sé alltof lágt og nægi ekki til að standa undir veiðun- um. Mótmælaskjálið fer f heild hér á eftir: „Fyrir hönd útgerðarmanna, skipstjóra og skipshafna á eftir- töldum bátum, sem stunda síld- veiðar í reknet við Vesturland, viljum við eindregið mótmæla lágmarksverði því sem Verðlags- ráð sjávarútvegsins hefur ákveðið á síld til frystingar, veiddri í rek- net. Teljum við að verð þetta, sem er það sama og s.l. ár, sé alltof lágt enda óeðlilegt, ef bornar eru sam- an verðhækkanir sem orðið hafa á öðrum fiski á sama tima, að þessi eina grein fiskveiðanna skuli ekki hækka um eina einustu krónu og því sé útilokað að halda áfram þessum veiðiskap að óbreyttu sildarverði. Við viljum einnig vekja athygli á því, að i reknetin veiðist ekki smásíld, þvert á móti er síldin stór og góð og með tilliti til ástands síldarstofnsins við landið teljum við að allt verði að gera til að efla þessa veiðiaðferð, þvf að hún sé sú eina sem síldar- stofninn þoli nú,verði um ofveiði að ræða. Einnig má benda á, að þessi veiði brúar „dautt“ veiði- tímabil hjá mörgum bátum af millistærð sem er þeim ómetan- lega til góðs, en til þess að hægt sé að stunda þessar veiðar þarf verð- ið fyrir síldina auðvitað að vera viðunandi. Floti sá sem stundar þessar veiðar getur ekki tekið að sér að greiða niður beituverð þeirra báta sem v^rða á Ifnuveið- um n.k. haust. Það hefur komið í Ijós, að síldarmagnið í sjónum er ekki eins mikið og af er látið t.d. í fjölmiðlum. Algengast er að 15— 30 tunnur fáist yfir nóttina í 40— 50 net þannig að vafi leikur á hvort fiskast fyrir tryggingu sem aftur veldur því að margir sjó- menn höfðu við orð að ganga nú þegar af bátunum, er“þeir fréttu um núverandi síldarverð. Viljum við því skora á viðkomandi aðila að síldarverðið verði endurskoðað til hækkunar til þess að til alvar- legra vandræða komi ekki. Fyrir hönd m.b. Steinunnar SH, m.b. Matthildar SH, m.b. Saxham- ars SH, m.b. Sigluness SH, m.b. Reykjarastar GK, m.b. VIsis GK m.b. Óskars Halldórssonar GK, m.b. Jóhannesar Gunnars GK, m.b. Hamrasvans SH og m.b. Sandafells SH. Ólafsvík 23. ágúst 1975 Leifur Halldórsson skipstjóri Sævar Friðþjófsson skipstjóri.“ Fjör á útsölunum HAUSTÚTSÖLUR standa nú sem hæst. „Það er alltaf sama stemmn- ingin fyrir útsölunum," sagði Gunnar Kjartansson hjá Hag- kaup er Mbl. ræddi við hann í gær um útsölurnar. „Mestur er áhug- inn fyrsta daginn, en þá stendur fólk í tugatali við búðardyrnar klukkutíma áður en opnað er. Síð- an vill aðsóknin minnka, en það bregzt aldrei að roksala er á útsöl- um, enda getur fólk gert þar reyf- arakaup," sagði Gunnar. Eftir því sem Mbl. frétti, hafa aðrar verzl- anir svipaða sögu að segja. Ekið var á hest við Ingólfsfjall BIFREIÐ ók á hest á þjóðveg- inum undir Ingólfsfjalli um kl. 22.30 á sunnudagskvöldið og varð að lóga honum eftir slysið. Þetta var brúnn hestur, llklega fjögurra eða fimm vetra gamall. Talið var, að mark hans væri fjöður framan hægra. Lögreglan á Selfossi er ekki búin að hafa upp á eiganda hans Hefur þú kannað okkar verð? VIÐ BJQÐUM: ___________ Ritz kex...........á 89.— kr. pakkann Hrísgrjón........á 99.— kr. pakkann Toilet papír.....á 331.— kr. pr. 6 rúllur Kellogg’s Corn Flakes.á 160.— kr. pakkann Robinson’s Orange Juice .. á 224.— kr. flaskan Eldhúsrúllur (hvítar).á 197.— kr. STRÁSYKUR: 0,5 kg. á 100.— kr. 2,5 kg. á 490.— kr. 50,0 kg. á 9.000.— kr. (pr. kg. 200.—) (pr. kg. 196.—) (pr. kg. 180.—) NAUTAKJOT: í 4—6 kg. kössum (blandað) aðeins 819.— kr. kg. VERIÐ VELKOMIN Kaupgaróur RICOMAC^ISS^IP Meðmæli í starfi mínu, sem skrifstofustúlka, þarf ég nauðsynlega að nota fljótvirka reiknivél, sem skilar útkomu á strimli, og hefur tvö samlagningarverk, sem geta unnið saman eða sitt í hvoru lagi. Ég hefi ekki fundið vél í neinum verðflokki, sem ég hef verið fyllilega ánægð með — fyrr en ég reyndi Ricomac. Ricomac er lip- ur, fljótvirk og örugg. -4iidJdí 12. 13. 20. 14. 1 5. 16. 1 7. 18. immiti 1. Upphækkun 2. Mínus margföldun 3. Skiftitakki 4. Prentun 5. Hreinsun 6. Kommusetning 8. Minni I: Samlagning 15. Minni II: Subtotal 9. Minni I: Total 10. Minni I: Subtotal 11. Pappírslosari 1£. Aukaffifaveliari 13. Minni II: Safntakki 16. Minni II: Frádráttur 17. Minni IkSamlagning 18. Minni I: Safntakki 19. Pappírsfærsla 20. Sjálfv. prósentureikn. 21. Venjulegur pappír SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. 7. MinnjJ^Frádráttur 14. Mjnnhlll Total Sölum&nn ok^ar veita^slega allar upplýsingar um Ric^nag, sem hæfir stai»fi yðar ^ Hverfisgötu 33 /h?iA-iú>s Sími 20560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.