Morgunblaðið - 28.08.1975, Side 10

Morgunblaðið - 28.08.1975, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28, ÁGÚST 1975 r Bftið einangrar fólk og virkar eins og deyfilyf — deyfilyf við hverju? ... hálfklikkaður og yfir- spenntur þegar ég er bú- inn að vera hér f stuttan tíma. ... tunguskera fólk og augnstinga það til að bjarga þvf frá Helvíti. ... sjálfum mér og öðr- I um til leiðinda. L_________________________ n AD GERA SIG MERKILEGAN - GAGNVART ÖDRH, S.JÁLFIIM SÉR OGGEDI Leifur heitir maður Þórarinsson og er tónskáld. Undanfarin ár hefur hann búið f Kaupmannahöfn ásamt konu sinni, Ingu Huld Hákonardóttur, sem þar leggur stund á sagnfræði, og þremur börnum þeirra. Leifur hefur dvalizt hér á landi f sumar, en er nú á förum til Hafnar. í kvöld verða tónleikar í Félags- stofnun stúdenta, þar sem eingöngu verða flutt verk Leifs. Við áttum samtal við hann nú f vikunni og spurðum fyrst hvort þessir tónleikar væru ef til vill yfirlitstónleikar: — Nei, verkin eru flest ný, m.a. verk, sem ég hef skrifað hér I sumar. Þetta eru fimm sönglög á ýmsum aldri og sex önnur verk. Sumar tónsmíðarn- ar voru fluttar á tónleikunum heima hjá Kristjáni Davíðssyni í vor. Þeir tónleikar voru haldn- ir til heiðurs Ragnari i Smára fyrir fáa útvalda, en verkin, sem flutt verða á tónleikunum núna hafa ekki verið flutt opin- berlega áður. Eitt sönglaganna er gert við þýðingu Hallgríms Péturssonar á Faðirvorinu. Það er dálítið sérstakt með þennan texta, að hann finnst hvergi á bókum, en Sigurjón Ólafsson myndhöggvari kann hann og lærði hann á Eyrarbakka í upp- vextinum. Þar var almælt, að þýðingin væri eftir Hallgrím Pétursson. Ruth Little Magnús- son ætlar að syngja I þessu verki, en m.a. syngur hún þarna kantötu við gamlan Maríusaltara f þýðingu Halldórs Laxness. Þá er þarna verk, sem ég hef breytt nokkuð frá því að það var flutt í vor. Málari tekur þátt í flutningn- um, en verkið er samið við texta, sem vinur minn Dieter Rot hefur gert, og það er ein- mitt ætlunin, að hann taki þátt í flutningnum. — Hvað hefurðu verið að vinna við I Höfn? — Eg hef samið mikið af tón- Iist fyrir kvikmyndir, sjónvarp og leikhús, auk þess sem ég hef verið að semja hljómsveitar- verk. Ég hef haft nóg að gera, — a.m.k. hef ég ekki þurft að fara út í það að skrifa krítík, eins og ég gerði hér, sjálfum mér og öðrum til leiðinda. — Heldurðu, að þú flendist f Danmörku? ' — Nei, varla. Við eigum alltaf heima á Islandi, enda þótt við höfum dvalizt langdvöl- um erlendis. Það er nú einu sinni svo, að maður verður ein- hvérs staðar að eiga heima. Það, sem auðvitað væri ákjósanlegast, væri að eiga heimili á svona þremur stöðum, — Islandi, Danmörku og Suður- Evrópu til dæmis, en' það er bara svo fjári dýrt, að það þýðir ekkert að hugsa um það. Við unum okkur ákaflega vel f Kaupmannahöfn. Þar er gott að vera með börn, atvinna og tækifærin eitthvað meiri en hér. Svo er Kaupmannahöfn lfka svo skemmtileg og þægileg borg, auk þess sem þar er ódýrt að lifa. Eg get ímyndað mér, að þar sé hægt að lifa jafngóðu lífi og hér á helmingi minni Iaun- um. Eg er nefnilega búinn að sjá það, aðjiér er ekki nokkur leið að lifa mannsæmandi lífi án þess að vera milljóneri. Þetta gera þó margir af miklum hetjuskap, en það er bara svo erfitt lff, að ég treysti mér ekki til að lifa því. Hér eru menn á hlaupum eftir hverjum einasta eyri, sumir í þremur eða fjór- um störfum samtímis, en ég hef ekki gáfur í það. Annars langar mig ekki til að búa í Reykjavík. Mér finnst Reykjavík vera þrúgandi bær. Það segir sig náttúrlega sjálft, að það er allt annað að búa i bæ, sem er um hundrað ára gamall, eða bæ, sem orðinn meira en þúsund ára, þar sem allt er gamalgróið og í föstum skorð- um. Mér finnst lífið hér svo stressað — ég verð bara hálf- klikkaður og yfirspenntur þeg- ar ég er búinn að vera hér í stuttan tíma. Samt bjó ég lengi í New York sem er þó ekki svo gömul borg, og það er bezta borg, sem ég hef nokkurn tíma dvalizt í. New York er stórkost- leg borg, sem hefur upp á allt að bjóða. Andstæðurnar eru svo miklar að það er erfitt að lýsa borginni eins og hún kemur manni fyrir sjónir. Nei, ég er ekkert hrifinn af að vera í Reykjavík, en ég gæti hins vegar mjög vel hugsað mér að búa úti á landi. I Skagafirð- inum til dæmis, eða bara hér fyrir austan fjall. Annars á maður ekki að tala svona um fæðingarbæ sinn, — ég gæti t.d. neyðzt til þess af óviðráðanlegum kringumstæð- um að setjast hér að, og hvar stæði ég þá? — Nú segja sumir, að nú- tfmatónlist sé ekki fyrir aðra en þá sem eru útlærðir f þvf að hlusta á hana. Hver finnst þér viðbrögð almennings við þessari tónlist vera? — Ef við tölum um þetta eins og það er hér á landi, þá verður auðvitað að taka tillit til þess, að almennt músíkupp- eldi hefur ekki tíðkast hér fyrr en á allra síðustu ár- um. Hér voru ekki til hljóð- færi, — það voru ekki einu sinni til almennileg hús, þannig að skilyrðin voru engin. Ætli fyrsta pfanóið hafi t.d. komið hingað fyrr en um sfðustu aldamót? Músíkuppeldi var miklu meira hér á miðöld- um en datt svo að heita má alveg niður I margar aldir. En nú er þetta allt í áttina og hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma. Ætli þetta hafi ekki byrjað þegar Pétur Guð- johnsen tók að starfa um miðja síðustu öld. Sumir telja, að sú músík, sem hann flutti með sér hafi ekki verið til góðs, en ég er ekki á þeirri skoðun. Hún varð að minnsta kosti til þess, að aftur var farið að syngja hér og leika á hljóðfæri. Músíkuppeldi er bráðnauð- synlegt til þess að fólk geti lifað rétt, en ég held nú satt að segja, að það sé ósköp lítið públíkum fyrir mína tónlist hvar sem er I heiminum. Ég held líka, að það hafi aldrei verið draumur minn, að út af henni yrði ein- hver tízkuhasar, en auðvitað finnst mér gaman þegar henni er vel tekið. Maður er auðvitað að þessu til að gera sig merki- legan gagnvart öðrum, sjálfum sér og guði. — Hvað með poppið? — Það hafa verið gerðir margir góðir hlutir í poppi. Rolling Stones hafa gert margt af því bezta á þessu sviði, og Bítlarnir náðu líka góðum árangri. En popptónlistin er annars eðlis en klassísk tónlist og þeir, sm eru I poppinu, hafa öðru vísi hæfileika en þeir, sem eru I klassíkinni. Ég held t.d., að Bítlarnir hafi hvorki hæfi- leika né gáfur til að skrifa klassísk tónverk, enda höfðu þeir alltaf með sér menn eins og George Martin sem var lærð- ur f músík og annaðist útsetn- ingar og annað það, sem krafð- ist kunnáttu og var eitthvað flókið. Ég hef skrifað tónlist fyrir popphljómsveitir og einu sinni hélt ég tónleika með hljóm- sveitinni Náttúru f Þórshöfn f Færeyjum, þar sem flutt var margt eftir mig. Ég hafði gaman af að fást við þetta á sínum tíma, en ég hef ekki áhuga á því lengur. Það er margt vont við poppið eða bitið. Því fylgir svo mikill hávaði, að það verður til þess að einangra fólk — virkar eigin- lega eins og deyfilyf, og deyfi- lyf við hverju? Mér finnst andrúmsloftið vera að verða eins og ég gæti ímyndað mér það rétt um árið 1000, þegar þeir Ölafarnir, Haraldsson og Tryggvason, voru tunguskera fólk og augn- stinga til að bjarga því frá Hel- víti. Boðskapur þeirra var kristindómur, og Heimsendir var í nánd. Nú er spáð Heims- endi eftir nokkur ár, kannski árið 2000, og Stalín byrjaði að feta I fótspor Láfanna fyrir löngu og síðan hafa margir tek- ið við, hver af öðrum, undir frelsisfánum ýmsum, rauðum og bláum. — A. R. — —— - ■ - . Rœtt við Leif Þórarinsson tónskáld j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.