Morgunblaðið - 02.09.1975, Page 15

Morgunblaðið - 02.09.1975, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 15 G. Kirby Jón Alfreðsson Jón Benedikt Steinn Gunnlaugsson Valtýsson Helgason Matthfas Hallgrímsson Guðjón Þórðarson Sveinsson Þórðarson Stefánsson Teitur Þórðarson Björn -» Hörður Haraldur Lárusson Jóhannesson Sturlaugsson Jóhannes Guðjónsson Davfð Krist jánsson Hörður Heleason Skagamenn vel að sigri komnir ÞEGAR upp er staðið eftir keppni tslands- meistaramðtsins i knattspyrnu 1975, verð- ur ekki annað sagt en að mót þetta hafi verið hið skemmtilegasta og til- þrifarfkasta. tJrslitin réðust ekki fyrr en á sfðustu mfnútum f sfð- asta leiknum f 1. deild- ar keppninni, og þótt auðvitað hefði verið gaman að fá aukaleik milli tveggja efstu lið- anna f deildinni, Akur- nesinga og Framara, verður ekki annað sagt en að Akurnesingar hafi verið vel að því komnir að taka við ís- landsbikarnum f spari- fötunum á sunnudags- kvöldið. Verðlaunaaf- hending mótsins var reyndar kafli út af fyrir sig, — um meiri lág- kúru getur varla, og satt að segja hélt maður að það væri liðin tfð, að leikmönnum væri hrúg- að upp á bekki fyrir framan skúrinn á IVlela- vellinum innan um manngrúann og þeim rétt þar verðlaunin. En vallarmálin á Islandi og þá sérstaklega í Reykja- vfk eru þannig að allt virðist geta gerzt — jafnvel þetta. Það leikur varla á tveimur tungum að lið Islandsmeistaranna, Akurfíesinga, sýndi beztu knattspyrnuna í sumar. Sigur liðsins i mótinu var að vísu erf- iðari nú en i fyrra, enda samkeppnin yfir höfuð harðari og liðin jafnari og baráttuglaðari, en Akurnesingar sýndu á tíðum í leikjum sínum knattspyrnu, eins og maður getur frekast gert kröfur til að verði bezt hérlendis, og það voru þessir leikkaflar, sem öðru fremur færðu liðinu Islandsmeistara- titilinn. Þetta er í áttunda sinn sem Islandsbikar- inn gistir Akranes. Fyrst urðu Akurnes- ingar Islandsmeistarar árið 1953, en síðari hafa þeir orðið meistara á ár- unum 1954, 1957, 1958, 1960, 1970 og 1974. Hlutu þeir nú 19 stig f mótinu, en 23 stig í fyrra, en þá urðu Kefl- vfkingar í öðru sæti með jafnmörg stig og meist- ararnir hlutu nú. Akranesliðið var í sumar skipað mjög áþekkum og skemmti- legum leikmönnum. Hvergi var verulega veikan hlekk að finna í liðinu, en framlína liðs- ins var þó öllu sterkari hluti þess, og þegar hennitókst vel upp, var hún illviðráðanleg. Má nefna leiki eins og við Fram, ÍBV og FH til dæmis. öðru hverju kom það svo fyrir að framlína liðsins hrökk í hálfgerðan baklás og megnaði ekki að ná vel saman, eins og t.d. í seinni leik IA við FH og Val. Það lið sem kom mest á óvart f mótinu var Fram sem hreppti annað sætið þvert ofan f alla spádóma. Sem kunnugt er yfirgáfu flestir. máttarstólpar FramliðSins liðið í vor, og urðu þannig margir til þess að spá liðinu falli niður í 2. deild. En með því var þá ekki reiknað að sennilega höfðu Framarar í sumar hæfasta þjálfarann sem hér starfar, ef Kirby Akranesþjálfari er undanskilinn. Sá er Guðmundur Jónsson, sem hefur margsannað hæfni sina á undan- gengnum árum og þó aldrei eins og f sumar er honum tókst að gera hina ótrúlegustu hluti |með Framliðið ásamt hinum þjálfara liðsins, Jóhannesi Atlasyni. Varla er vafamál að Framarar eiga þeim Guðmundi og Jóhannesi mest að þakka vel- gengni sína í sumar, og einnig þvi að þrir helztu leikmenn liðsins: Arni Stefánsson, Jón Péturs- son og Marteinn Geirs- |son voru i betra formi en þeir hafa nokkru sinni verið áður. Víkingsliðið kom einnig nokkuð á óvart f sumar. Það er lið á upp- leið, og í þvi leika marg- ir mjög efnilegir knatt- spyrnumenn, sem þó hafa tæpast tekið út þroska sinn sem slíkir. Vel kann að vera að það taki Vikingsliðið enn nokkur ár að springa út, en það hefur alla burði til þess að komast fljót- lega í fremstu röð. Liðið átti nokkuð misjafna leiki i sumar, en stóð sig yfirleitt vel þegar mikið reyndi á, eins og t.d. er það gerði jafntefli við Akurnesinga i skemmti- legum leik á Laugar- dalsvellinum. Sum mörkin sem Víkingar skoruðu f sumar, eins og t.d. í þeim leik, voru stórglæsileg. Keflavíkurliðið átti við mikla erfiðleika að etja i sumar. Vonir stóðu til þess að hinn trausti leikmaður þess, Guðni Kjartansson myndi leika með því, en strax í fyrstu leikjunum í vor kom i ljós að hann var ekki heill heilsu og því borin von að hann gæti verið með. Þá bætt- ist það við raunir Kefl- víkinga að hinn skap- íheiti þjálfari liðsins, iJoe Hooley raunfráþví þegar verst gegndi, en mikið má vera, ef fram- koma hans hefur ekki verulega spillt fyrir lið- inu í sumar. Það náði sér betur á strik þegar Guðni og Jón höfðu tek- ið við þjálfuninni. Keflavikurliðið var að- eins miðlungslið í sumar, átti misjafna leiki og fékk nokkurn veginn það út sem því bar. Töluverðar breyt- ingar eru að verða á Valsliðinu, og það náði ekki að sýna eins góða knattspyrnu í sumar og það gerði i fyrra. Munar þar sennilega mestu um Jóhannes Eðvaldsson, sem ekki lék með því i sumar, en var yfir- burðamaður í íslenzkri knattspyrnu i fyrra. Valsmenn eiga marga mjög efnilega leik- menn, eins og t.d. Atla Eðvaldsson, Guðmund Þorbjörnsson, Magnús Bergs og Albert Guð- mundsson, þannig að liðið ætti ekki að þurfa að kvíða ef rétt er á málum haldið. Þegar á heildina er litið verður þó ekki annað sagt, en að Valsliðið hafi valdið vonbrigðum í sumar og ekki leikið eins góða knattspyrnu í flestum leikja sinna og efni stóðu til. Nýliðarnir i deildinni, FH, komust yfir hinn örðuga hjalla sem fyrsta árið í deildinni er jafp- an. Þar er um að ræða lið framtíðarinnar — skipað ungum piltum, mörgum hverjum bráð- efnilegum eins og t.d. þeim Janusi Guðlaugs- syni og Ólafi Danivals- syni. KR-ingar áttu i erfiðri baráttu við fallið i sumar, og björguðust Framhald á bls. 21 Menn mótsins: Matthlas Hallgrímsson, Marteinn Geirsson og Jón Alfreðsson. Menn mótsins Marteinn Geirsson úr Fram og Jón Alfreðsson frá Akranesi urðu efstir og hnffjafnir f einkunna- gjöf blaðamanna Morgunbiaðs- ins. Hlutu þeir báðir 41 stig I leikjum sfnum 14 og hljóta því f sameiningu titilinn „ieikmaður Islandsmótsins“. Einar Gunnars- son varð sfðan f þriðja sæti. Markakóngur lslandsmótsins varð Matthfas Haligrfmsson frá Akranesi og skoraði hann 10 mörk. Guðmundur Þorbjörnsson, Val, örn Óskarsson, IBV, og Mart- einn Geirsson úr Fram skipuðu svo næstu sæti, en þeir skoruðu allir 8 mörk. Morgunbiaðið mun á næstunni afhenda leikmönnunum sem urðu I efstu sætunum verðlaun þau sem þeir hafa til unnið. Marteinn Geirsson Marteirui Geirsson úr Fram hefur leikið hvern leikinn öðrum betri með Framliðinu i sumar og verið styrk- asta stoð liðsins sem svo mjög kom á óvart i mótinu. Auk þess að vera klettur i vörn, þá skoraði hann 8 mörk i 1. deildinni og er það glæsi- legur árangur hjá miðverði. Mar- teinn hyggur á atvinnumennsku i Þýzkalandi í framtiðinni og verða „njósnarar" frá sterku 1. deildarliði i V Þýzkalandi viðstaddir leik fslands og Frakklands i Nantes á morgun. Jón Alfreðsson______________ Jón Alfreðsson er nú i annað skipti „leikmaður íslandsmótsins" og kemur það sjálfsagt fáum á óvart, sem fylgzt hafa með leikjum hans og félaga hans i ÍA-liðinu i sumar. Jón er sívinnandi leikmaður og ætið byggjandi upp. Hann er fyrirliði ÍA- liðsins sem nú varð fslandsmeistari annað árið i röð. Matthías Hallgrímsson Matthias Hallgrimsson skoraði flest mörk leikmannanna i 1. deild og er þetta I annað skiptið, seni Matthias verður markakóngur. Fyrra skiptið var 1969, en Matthias hefur fjórum sinnum orðið í öðru sæti á listanum yfir markaskorara. Mark Matthiasar i leiknum gegn ÍBK á laugardaginn var hans sjötugasta mark í 1. deild og er það frábær árangur. í sumar skoraði Matthias 10 mörk i 1. deildinni. \

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.