Morgunblaðið - 25.09.1975, Síða 2

Morgunblaðið - 25.09.1975, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1975 Kobalttæki Landspítalans: Endurnýja þarf hleðsluna -kostar nokkrar millj. kr. SÁ HLUTI kobalttækisins á Landspftaianum, sem sendir frá sér geislana, eða „sorsa-hleðslan“ er nú farinn að gefa sig og tekur geislun mun lengri tlma en á meðan tækið var nýtt Af þessum sökum er áætlað að panta nýja hleðslu á næstunni, sem að Ifk- indum verður sett upp á næsta Fríhöfnin: Minnkandi sala á sælgæti — ÞAÐ ER ekki hægt að neita því, að sala á sælgæti hefur minnkað eftir að hið nýja fyrir- komulag var tekið upp hjá toll- gæzlunni hér og strangt tekið á, ef fólk er með meira sælgæti en fyrir 1400 krónur, sagði Ólafur Thordersen fríhafnarstjóri, I samtali við Morgunblaðið I gær. Ólafur sagði, að fólk væri eink- um óánægt með, og það af skiljan- legum ástæðum, að börn innan 12 ára aldurs, sem mest voru fyrir sælgætið mættu ekki kaupa það. Oft á tíðum kæmu börn þarna í gegn og eðlilega langaði þeim mikið að kaupa sér sælgæti, en það mætti ekki afgreiða þau um það. Þá kæmi það fyrir að stund- um væru systkini á ferð, annað kannski 12 eða 13 ára og hitt 11 ára. Það eldra mætti kaupa sér sælgæti en hitt ekki. Allir vissu hvaða áhrif slíkt hefði á börn. ári, en slfk hleðsla kostar nokkrar milljónir króna. Kolbeinn Kristófersson prófessor við Landspítalann sagði þegar Morgunblaðið hafði sam- band við hann 1 gær, að á næsta fjárhagsári spítalans yrði ný hleðsla pöntuð. Hann sagði, að styrkleiki geislans minnkaði eftir því sem hleðslan yrði eldri og svokallaður helmingstími hennar væri 5.3 ár, sem þýddi, að eftir þann tíma tæki geislun helmingi lengri tfma en þegar hleðslan væri ný. Að sögn Kolbeins getur það ver- ið nokkuð óþægilegt fyrir fólk, þegar geislunin tekur svona langan tfma, sérstaklega fyrir fólk, sem á bágt með að liggja kyrrt. Kobalttækið á Landspítalanum var tekið í notkun í febrúar 1970 og tala þeirra, sem hlotið hafa geislameðferð, skiptir nú hundruðum. Ljósm. Mbl.. Brynjólfur. BUSAVIGSLA fór fram við Menntaskólann í Reykjavík og fór vígslan fram að gamalli hefð með tolleringu. Hér sjáum við eina stúlku í nýja nemendahópnum fljúga ei lítið upp á við. Byggðasjóður hefur ekkert lánað Eskfirðingum til gatnagerðar enn Fengu mest 10 tunnur NOKKRIR Hornafjarðarbátar reru með reknetin f fyrrinótt. Afl- inn var lítill og var Steinunn með mestan afla, 10 tunnur. Sjómenn kenna miklu tunglskini um afla- tregðuna. 1 FRÉTT f Morgunblaðinu f gær um borgarafund á Eskifirði og viðbrögð fundarins við málaleit- an bæjarstjórnar um að fbúar við þær götur f kaupstaðnum, sem fullgerðar hafa verið, greiði gatnagerðargjöld, er þess getið að ætlazt er til að Eskfirðingar greiði þegar f stað 20% gjaldsins, en fái sfðan að greiða eftirstöðv- arnar á næstu 4 árum. Greiðslan sé innt af hendi f formi veð- skuldabréfs með 10% ársvöxtum. í tilefni þessarar fréttar hefur Mbi. leitað upplýsinga um þann hátt, sem viðhafður er við inn- heimtu gatnagerðargjalda t.d. f Reykjavík. Gatnagerðargjöld voru fyrst samþykkt í borgar- stjórn Reykjavíkur f desember 1959 og síðan hafa umsækjendur, sem fengið hafa lóðir, þurft að greiða helming gjaldsins innan mánaðar frá úthlutun lóðarinnar. Síðari helming gjaldsins verða menn síðan að greiða áður eða um leið og byggingarleyfi er veitt á viðkomandi lóð. Með öðrum orð- um, Reykvíkingar verða að greiða allt gatnagerðargjaldið áður en til byggingar húss kemur. Byggi hemm hins vegar við götu, sem er fullgerð og lokið hafði verið við áður en reglugerðin um gatna- Viðhafnarútgáfa af „Manni og konu” BOKAUTGAFAN Helgafell hef- ur sent á markaðinn nýja viðhafn- arútgáfu af bók Jóns Thorodd- sens, Manni og konu, og er bókin með teikningum eftir hinn ný- látna snilling Gunnlaug Scheving, en í fyrra kom út hjá forlaginu Piltur og stúlka í sama broti með myndum Halldórs Péturssonar. Bókin er f allstóru broti og eru þar yfir 40 heilsíðu teikningar eftir Scheving, en bókin er alls yfir 260 bls., ef með er talinn ítarlegur formáli eftir Steingrfm heitinn Þorsteinsson. Gunnlaugur Scheving gerðargjöld tók gildi, þ.e. 1959, greiða menn engin gatnagerðar- gjöld, en hins vegar var krafizt sérstakra gangstéttargjalda, sem þó voru felld niður fyrir 4 til 5 árum. Viðbrögð Eskfirðinga við gatna- gerðargjöldunum, sem þeim er nú gert að greiða, eru þau, að borg- arafundurinn á Eskifirði sam- þykkti að menn greiddu gatna- gerðargjöldin á næstu 5 árum vaxtalaust, en héldu eftir 20% gjaldsins, þar til gangstéttir hefðu verið gerðar við götuna. Þær reglur og lög, sem bæjar- stjórn Eskifjarðar hefur farið eft- ir, eru tiltölulega ný af nálinni eða frá 1974 og fjalla þau um innheimtu gatnagerðargjalda. Er um' tvenns konar gjald að ræða, A-gjald og B-gjald. A-gjalddið er samsvarandi því gjaldi, sem Reyk- víkingar greiða, þ.e. að lóðarhafa er gert að greiða það við lóðarút- hlutun og að fengnu byggingar- leyfi, en B-gjaldið er nýmæli og er gjald vegna þátttöku lóðarhafa í lagningu bundins slitlags á götu og gangstéttarlagningu við lóð. Innheimta þess er bundin því skilyrði, að lagningu bundins slit- lags sé lokið. Samband fslenzkra sveitarfé- laga hefur komizt að samkomu- lagi við Byggðasjóð, — að þvf er Kristinn Ziemsen, framkvæmda- stjóri sjóðsins, tjáði Mbl. — um að 20% gjaldsins séu innheimt sama Framhald á bls. 21 Listasafnið fœr mynd eftir Júlí- önu Sveinsdóttur NÝVERIÐ hafa Listasafni ís- lands borizt tvær góðar gjafir. Eru það málverk eftir Júlfönu heitina Sveinsdóttur og Sigur- jón Ólafsson, myndhöggvara. Selma Jónsdóttir, forstöðu- kona Listasafnsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að mynd Júlfönu væri uppstilling máluð á árunum 1920—1930. Gefandi myndar- innar er bandarisk kona að nafni Eva Sigrid, en hún er af dönskum ættum. Þá sagðist Selma nýlega hafa fengið í hendur styttu Sigur- jóns Ólafssonar, „Móðir og barn.“ Þessa mynd gerði Sig- urjón kringum 1938. Listasafn- inu var gefin þessi mynd fyrir milligöngu Jóns Helgasonar, prófessors f Kaupmannahöfn. L-jusin. Halldór Olafsson. MATTHÍAS BJARNASON, heilbrigðis- og tryggingáráðherra, tekur fyrstu skóflu- stunguna að hinni nýju heilsugæzlustöð og sjúkrahúsi á ísafirði. Framkvæmdir hafn- ar við nýtt s júkra- hús á ÍSAFIRÐI NÝLEGA var tekin fyrsta skóflu- stungan að nýju sjúkrahúsi og heilsugæzlustöð á tsafirði, og var það Matthfas Bjarnason, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, sem tók hana. Með þessum fram- kvæmdum hillir undir langþráð- an draum Vestfirðinga um full- komið sjúkrahús á ísafirði. Páll Sigurðsson, ráðuneytis-. stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, sagði í gær, að þessi bygging væri búin að vera lengi á döfinni. Sjúkrahúsið yrði fyrir norður- hluta Vestfjarða, en sjúkrahús væri á Patreksfirði fyrir suður- hlutann. Nýja heilsugæzlustöðin og sjúkrahúsið mun m.a. þjóna Isafirði, Súgandafirði og Súðavík. Gert er ráð fyrir að 3—4 almennir læknar starfi við heilsugæzlustöð- ina, fyrir utan sjúkrahúslæknana. Páll sagði, að á sjúkrahúsinu yrði aðstaða fyrir skurð- og lyf- lækna, án þess að um beina deild- arskiptingu yrði að ræða. Húsið er teiknað þannig, að mjög góð aðstaða verður til allrar sjúkra- hússtarfsemi og á heilsugæzlu- stöðinni verður t.d. aðstaða fyrir tannlækni. Húsið verður kjallari og tvær hæðir, og ennfremur verður svo- nefnd kjarnabygging, þar sem skrofstofur, lyftur og fleira verð- ur til húsa. I kjallaranum verður ýmiskonar þjónustustarfsemi, fyrsta hæðin er ætluð fyrir heilsu- gæzluna tog önnur hæðin fyrir legudeildir. Ekki er vitað hvenær lokið verður við þessa byggingu, en það mun fara eftir fjárveitingu hverju sinni, en húsið verður allt steypt upp í einum áfanga. Gert er ráð fyrir, að heilsugæzlustöðin verði fyrst tekin í notkun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.