Morgunblaðið - 25.09.1975, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1975
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
kennsla
Frá Listdansskóla
Þjóðleikhússins
Þeir nemendur er stunduðu nám við
skólann sl. ár og óska eftir að halda áfram
mæti til inntökuprófs í æfingasal Þjóðleik-
hússins, laugardaginn 27. sept. sem hér
segir:
yngri flokkar I og II. kl. 1 7.
eldri flokkar I og II kl. 1 8.30.
Nýir nemendur er náð hafa 9 ára aldri
mæti til inntökuprófs, þriðjudaginn 30.
sept. kl. 17.
Styrkir
til háskólanáms í Sambandslýðveldinu Þýska-
landi.
Þýska sendiráðið i Reykjavik hefur tilkynnt íslenskum stjórn-
völdum að boðnir séu fram þrir styrkir handa islenskum
námsmönnum til háskólanáms i Sambandslýðveldinu Þýska-
landi háskólaárið 1976-—77. Styrkirnir nema 650 þýskum
mörkum á mánuði hið lægsta, auk 400 marka greiðslu við
upphaf styrktimabils og 100 marka á námsmisseri til bóka-
kaupa, en auk þess eru styrkþegar undanþegnir skólagjöldum
og fá ferðakostnað greiddan að nokkru. Styrktimabilið er 1 0
mánuðir frá 1. október 1976 að telja en framlenging kemur til
greina að fullnægðum ákveðnum skilyrðum.
Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 32 ára. Þeir skulu hafa
lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
Umsóknir, ásamt tilskildum fylgigögnum, skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1.
nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást 'rráðuneyt-
inu.
Menntamálaráðuneytið,
21. september 1975.
Styrkur
til háskólanáms í Sviss.
Svissnesk stjórnvöld bjóða fram styrk handa islendingi til
háskólanáms í Sviss háskólaárið 1 976—77. Ætlast er til þess
að umsækjendur hafi lokið kandídatsprófi eða séu komnir
langt áleiðis i háskólanámi. Þeir sem þegar hafa verið mörg ár
i starfi, eða eru eldri en 35 ára, koma að öðru jöfnu ekki til
greina við styrkveitingu. Styrkfjárhæðin nemur 800 svissnesk-
um frönkum á mánuði fyrir stúdenta, en allt að 900 frönkum
fyrir kandidata. Auk þess hlýtur styrkþegi nokkra fjárhæð til
bókakaupa og er undanþeginn kennslugjöldum. — Þar sem
kennsla i svissneskum háskólum fer fram annaðhvort á
frönsku eða þýsku, er nauðsynlegt að umsækjendur hafi
nægilega þekkingu á öðru hvoru þessara tungumála. Þurfa
þeir að vera undir það búnir að á það verði reynt með prófi.
Umsóknum um styrk þennan skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. nóvember
n.k.— Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
21. september 1975.
Skáklíf í Hafnarfirði
vaknar á ný eftir sumarið
VETRARSTARFSEMI Skák-
félags Hafnarfjarðar er að
hefjast með æfingum á föstudags-
kvöldum í Sjálfstæðishúsinu við
Strandgötu og haustmót skák-
félagsins hefst föstudaginn 26.
september klukkan 19.30 á sama
stað. Tefldar verða þrjár umferð-
ir í viku, föstudaga, sunnudaga og
mánudaga. Teflt verður I riðlum
og að loknu haustskákmótinu
verður hraðskákmót — segir í
frétt frá Skákfélagi Hafnar-
fjarðar.
— Zorza
Framhald af bls. 18
þeirra sé að komast I „æ æðri
opinberar stöður“.
En í húfi er pólitískt mál,
„uppgjafarstefnan", sem svo
oft er drepið á í greinum og
eignuð er þeim sem vilji „upp-
gjöf“ Kína fyrir Sovétríkjunum
og Bandarlkjunum. Lin Piao er
nú sagður hafa haldið því fram,
að Kína gæti aðeins notið góðs
af friði og ró, ef landið beygði
sig fyrir risaveldunum. Nei,
svara blöðin nú, það hefði að-
eins í för með sér þjóðarsmán,
niðurlægingu og undirokun og
hörmungar fyrir þjóðina. Sjálf-
stæði Kína, segja blöðin, er að-
eins hægt að tryggja með bar-
áttu, „ekki með því að biðja
heimsveldissinna um greiða“.
Röksemd, sem er eignuð Lin
Piao, „taktu ekki harða afstöðu
fyrr en þú átt kjarnorku-
sprengju“, merkir í núverandi
samhengi, að Peking-stjórnin
megi ekki storka annaðhvort
Sovétríkjunum eða Banda-
ríkjunum, þar sem aðstaða
hennar sé svo miklu veikari. En
vinstri armurinn, sem stendur
á bak við núverandi herferð,
vill aftur skera upp herör,
storka bæði Sovétríkjunum og
Bandaríkjunum og hefja að
nýju byltingu heima fyrir.
I umrótinu, sem við tekur
þegar Mao hverfur af sjónar-
sviðinu, gætu vígorð vinstri-
sinna orðið opinber stefna
Peking-stjórnarinnar — og f
þeim gæti falizt ógnun við jafn-
vægi, ekki aðeins í Kfna heldur
í öllum heiminum.
— Tilþrif
Framhald af bls. 14
urðardóttir, Kristin Helgason,
María S. Kjarval, Marfa H. Ölafs-
dóttir, Nanna Biichert, Kolbrún
S. Kjarval, Ólöf Pálsdóttir, Svala
Hólm, Margrethe Nielsen, Þór-
unn Guðmundsdóttir, Hildur
Helga Sigurðardóttir.
Þeir áhugamannahópar, er hug
hefðu á að notfæra sér húsakynni
félagsheimilisins til ýmissrar
starfsemi, svo sem allskyns tóm-
stundastarfs o.fl., eru vinsam-
legast beðnir um að hafa samband
við formenn félaganna.
Barnaskólinn hefst laug-
ardaginn 4. október kl. 10:00 í
félagsheimilinu og verður með
svipuðum hætti og í fyrra.
Foreldrar er hafa hug á að láta
börn sín taka þátt í kennslunni,
vinsamlegast skrifið til skólans að
östervoldgade 12, st. 1350 — K.
Tilgreinið aldur og nafn barnsins,
svo og heimilisfang og nöfn
foreldra.
Kveðja,
stjórnirnar.
Nýstárleg gítarkennsla
ÓLAFUR Gaukur, gítarleikari
og hljómsveitarstjóri, er um
þessar mundir að setja á stofn
gltarskóla með all nýstárlegu
sniði.
Er hann að fá frá Bandarfkj-
unum sérstök tæki til hóp-
kennslu á gitar, sem þar í landi
hafa mjög rutt sér til rúms á
síðustu árum, og í New York
eru þau jafnvel notuð til al-
mennrar músíkkennslu vfða í
barna- og unglingaskólum. 1
kennslustofu Ólafs verður rúm
fyrir átta nemendur samtímis,
og fer öll kennslan fram innan
lokaðs kerfis, þannig að nem-
endur fylgjast með gegnum
heyrnartól og hafa sjálfir sam-
band við kennara og sfn á milli
með notkun hljóðnema, sem
tengdur er heyrnartólinu.
Einnig fylgja sérstakir gftarar,
sömuleiðis tengdir umræddu
kerfi, til afnota fyrir nemendur
í kennslustundum. Nemendur
þurfa því ekki að koma með
hljóðfæri með sér f tímana, og
er að því mikið hagræði.
Aðallega mun verða miðað
við byrjendakennslu á nám-
skeiðum í skólanum, en 1 ráði
er að hafa örfáa tfma fyrir þá
sem eitthvað kunna fyrir sér.
Byrjendakennslan er, að sögn
Ólafs Gauks.létt og skemmtileg,
en undirstöðuatriðum tónfræði
blandað með í hæfilegum
skömmtum og eftir ástæðum.
Kennsla í Gítarskóla Ólafs
Gauks mun fara fram f verzl-
unarhúsinu Miðbæ við Háaleit-
isbraut, þar sem skólinn hefur
fengið sérstakt húsnæði.
Kennslan mun hefjast 14.
október, en innritun fer fram í
skólahúsnæðinu eftir miðja
næstu viku.
Nemendur 1 barnaskóla f New York f tónlistartfma. Tækln eru af
sömu gerð og notuð verða f Gftarskóla Ólafs Gauks.
20 á biðlista um skóla-
vist 1 Vélskóla íslands
VÉLSKÓLI íslands var
settur í 61. sinn mánudag-
inn 15. september. Aðsókn
að skólanum hefur vaxið ár
frá ári og hefur aldrei ver-
ið meiri en nú — eða rösk-
lega 400 nemendur í öllum
deildum skólans. Auk skól-
ans í Reykjavík, starfa nú
vélskóladeildir á Akureyri
með 20 nemendur, á ísa-
firði með 20 nemendur og á
Siglufirði með 13 nem-
endur.
Þessar upplýsingar komu fram
í skólasetningarræðu Andrésar
Guðjónssonar, skólastjóra. Jafn-
framt kom fram að ætlunin hafi
verið að hefja starfsemi Vest-
mannaeyjadeildar skólans aftur
eftir gos, en vegna ónógrar þátt-
töku hefur ekki orðið af því enn.
Þá hefur verið 1 athugun stofnun
deilda á Akranesi og 1 Keflavík,
en þátttaka hefur ekki reynzt
nægileg.
Af þeim 160 nýju nemendum
sem sóttu um skólavist í Reykja-
vík eru um 20 á biðlista, þannig
að ekki er fullvíst að unnt verði
Sýnir á
ísafirði
Á LAUGARDAG opnar Krist-
inn Mortens málverkasýningu
í Mánakaffi á fsafirði. Krist-
inn sýnir þar tuttugu olfumál-
verk, sem hann hefur málað á
undanförnum 4 árum vlðs veg-
ar um landið.
Hann sýndi slðast á Hellu
fyrir 5 árum, en við málaralist
hefur hann fengist undanfarin
40 ár.
að þessu sinni að taka við öllum
umsækjendum. Þeir nemendur,
sem hefja nám á öðru stigi, eru 24
iðnsveinar, 8 stúdentar og 10
menn, sem uppfylla skilyrði um
tveggja ára starfsreynslu. Hér er
um nokkra fjölgun iðnsveina frá
því sem verið hefur undanfarin
ár. Tveir stúdentar stunduðu nám
við skólann I fyrra, en nú verða
þeir átta eíns og áður er getið.
Hér er um nokkurt nýmæli að
ræða, sem gefið hefur góða raun.
Stúdentarnir taka 1. og 2. stig
saman.
Húsnæði skólans er nú fullnýtt,
en vonir standa til að unnt verði
að halda áfram við nýbyggingu
skólans áður en langt um líður.
Alls starfa 38 kennarar við
skólann í vetur, þar af 21 fast-
ráðinn.
Hjólið fór
óvænt af stað
UNGUR piltur var f fyrrakvöld að
reyna vélhjól, sem hann hugðist
festa kaup á. Fór hann í reynslu-
akstur á hjólinu og var að koma
úr honum, er hann missti stjórn á
því og ók á vegg við húsið Þórs-
götu 21. Höfuð drengsins fór inn
um glugga á húsinu og skarst
hann illa á höfði. Þó fékk hann að
fara heim til sin að lokinni aðgerð
í slysadeild Borgarspftalans.
Tildrög slyssins voru, að piltur-
inn var að koma úr áðurnefndri
ökuferð, hafði stöðvað hjólið og
var f þann mund að stíga af því.
Sleppti hann tengslunum, en
gætti þess ekki að taka hjólið úr
gír. Hjólið þaut af stað méð pilt-
inn með áðurnefndum afleiðing-
um. Pilturinn var réttindalaus —
hafði ekki tekið próf á vélhjól.